Vísir - 25.01.1944, Síða 1

Vísir - 25.01.1944, Síða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) 34. ár. Ritstjórar Blaðamenn Slmií Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 iinur Afgreiðsla Reykjavík, þriðjudaginn 25. janúar 1944. ^ «hipr^anr 20. tbL Þannig litu Focke-Wulf-verksmiðjurnar í Mariendorf í Aust- ur-Prússlandi út úr lofti, þegar amerískar flugvélar höfðu kom- ið í heimsókn þangað. Það er eftirtektarvert, hvað allar sprengj- urnar hafa komið niður á litlu svæði. 61 jðpislt flivél silia alr. Tveim skipum sðkkt. Japanir raisstu alls 61 flugvél í gær, en baijdamenn réðust á bækistöðvar þeirra. Aðalárásin var á flugvellina við Vivak. Japanir sendu upp 50 orustuvélar og skutu banda- menn niður 33 þeirra, en misstu sjálfir 3 vélar. í árás á Rabaul lenfu flugvélar bandamanna í bardögum við 70 japanskar flugvélar. Af þeim voru 18 skotnar niður, en bandamenn misstu 8 vélar. í öðrum árásum voru 10 japanskar vélar eyði- lagðar. Flugher MacArtliurs hefir fundið sér nýjan árásarstað, flugvöll sunnárlega á Nýja- írlandi og var fyrsta árásin gerð í gær. . Á sunnudag var tveim jap- iinskum skipum sökkt fyrir norðan Nýju-Guineu. Sendiherrar fara frá La Paz. Fjögur Ameríkuríki hafa neitað að viðurkenna hina nýju stjóm í Boliviu. Ríki þessi eru Bandaríkin, Venezuela, Kúba og Uruguay. Bandaríkin hafa gefið út til- kynningu um þetta efni, og seg- ir í henni, að öfl standi að þess- ari stjórn, sem sé andvíg sam- eíginlegu öryggi Ameríkuríkja. Ofangreind ríki hafa kallað sendiherra sína í La Paz heim. Þjóðverjar misstu 13 flugvélar. Það er nú komið í ljós, að Þjóðverjar misstu 13 flugvélar í árásum á Bretland aðfaranótt laugardags. Þjóðverjar voru þá að liefna fyrir mestu árásina, sem Bretar hafa nokkuru sinni gert á Ber- lín og fór fram nóttina áður, en sendu þó aðeins 90 flugvélar i hefndarárásina. I fyrstu var tal- ið, að 8 þýzkar flugvélar liefði verið skotnar niður alls, en síð- an hefir komið á daginn, að enn flehri vélar hafa farizt Eíisenhower og Leigh-Malloiy, flugmarskálkur, hafa gengið á fund Georgs konungs 6. og rætt við hann styrjaldarhorfumar. • Franskir kafbátar, sem eru í flota bandamanna á Miðjarðar- hafi, hafa sökt tveim skipum fyrir Þjóðverjum. Nýtt flugstöðvarskip og nýtt orustuskip. 1 gær var hleypt af stokkun- um vestan hafs nýju flugstöðv- arskipi. Það er 25,000 smálestir að stærð og mun geta liaft inn- anborðs um 80 flugvélar. Næstkomandi laugardag verð- ur hleypt af stokkunum i Banda- ríkjunum orustuskipinu „Miss- ouri“. Það er 45,000 smálestir að stærð og stærstu fallbyssur þess eru níu með 40 sentimetra lilaupvídd. Smíði skipsins er níu mánuði á undan áætlun. D ússar héldu áfram sóknaraðgerðum sín- um fyrir suðvestan, sunnan og suðaustan Leningrad með svo góðum árangri, að vamir Þjóðverja virðast vera að fara út um þúfur. Fyrir suðaustan borgina tóku Rússar borgina Uranovka, sem var vel viggirt af Þjóðverjum. Eru Jieir þá komnir að Moskva- Leningrad-brautinni á einum stað ennþá og eiga eftir aðeins stutta leið til Tusla, sem er bú- izt við að Þjó^Sverjar verji af harðfengi. Fjörutiu staðir urðu Rússum að bráð fyrir sunnan Leningrad og voru meðal þeirra tveir sögufrægir staðir, Pushkin (áð- Arás á Sofia. Bandamenn gerðu enn eina árás á Sofia í gær, segir i þýzk- um fregnum. Flugvélarnar komu í .hópum inn yfir borgina og ollu allmiklu tjóni, en manntjón hefir vart orðið mikið, því að það var til- kynnt í útvarpi frá Búlgaríu fyrir skemmstu, að búið væri að fiytja alla íbúanna á lirott úr liöfuðborginni og ýmsum hafn- arborgum. ur Tsarskoje Selo) og Pavlovsk. Er sá síðarnefndi aðeins 25 km. frá Leningrad, en báðir hafa þeir járnbrautastöðvar. Suðvestur af Leningrad liafa Rússar rofið járnbrautina sem liggur vestur til Narva. Hafa Þjóðverjar þá aðeins tvær braut- ir opnar og þær liggja suðvestur til Pskov við suðurenda Peipus- vatns. Norðurherinn veikastur. Her sá, sem Rússar eiga í höggi við milli Ilmen-vatns og Leningrad, er myndaður af að- eins einum tveim herjum, eða Í6. hernum, sem er stjórnað af Busch og 18. hernum, sem von Lindemann stjórnar, en yfir- hershöfðingi beggja er von Ktichler. Blaðamenn i Moskva skýra svo frá, að það sé einna mesta orsök ófara Þjóðverja, að þeir hafi treyst of vel víg- girðingum sínum á þessum víg- stöðvum. Þjóðverja vantaði einkum flugvélar, svo að her- skip Rússa gátu athafnað sig næstum óhindrað milli Kron- stadt og strandar. Þá vantaði líka skriðdreka, því að þeir höfðu næstum enga, fyrr en fáeinum dögum síðar, þegar þeir fengu lítinn hóp sendan beint frá Þýzkalandi, en þeir gátu á engan hátt staðið fjölda rússnésku skriðdrekanna á sporði. Gagnáhlaup hjá Vinnitsa. Eftir viku hvíld liafa Þjóð- verjar b>Tjað á ný æðisgengin Vélbyssuhpeiðup á vöpubíl. Margir af flutningabílum fimmta hersins á Italiu liafa verið úibúnir með vélbyssum, eins og myndin hér að ofan sýnir, til þess að verjast skyndiárásum þýzkra flugvéla. Varnir Þj óðverj a I norðan Umenvatns að moina. Norðurherinn þýzki var allra herja veikastur IlaiiitaiiMmsa komnir Sft km. frá Mettmio. Hafa telcið Axizió. Brjótast aftur yíir Rapidoána. andanienn sóttu með meiri hraða inn í land frá Nettuno í gær en áðttr og í herstjórnartilkynning- unni frá Alsír í morgun er sagt, að framsveitir sé komnar allt að því 20 km. frá sjó. t)r þvi að svo er koinið, eiga handamenn aðeins fáeina kiló- metra eftir til Appia-vegárins (Via Appia) og er haldið uppi skothríð á haun. Mun það verða fyrsta verk handamanna að reyna að rjúfa þessa mikilvægu samgönguæð Þjóðverja. Mikið lið og hergögn streyma á land um höfnina í Nettuno, sem var á friðartínmm einna mest sótti baðstaðurinn i grennd Róm, en bandamenn hafa náð annari liöfn þar á næstn grös- um, sem þeir eru einnig farnir að nota. Það er Porto d’Anzio, sem er mun ininni horg en Nettuno. Snörp gagnáhlaup. I fregnum frá blaðamönnum segir, að á sunuudag liafi Þjóð- verjar gert nokkur snörp gagn- álilaup, sem báru nokkurn ár- angur fyrsl í stað, en þegar bandamenn voru húnir að átta sig, hrundu þeir Þjóðverjum úr hinum nýunnu stöðvum þeirra og sóttu sjálfir lengra fram. Aðstoðuðu herskip við þessar he r n aðaraðgerðir. Engar frásagnir voru í her- stjómartilkynningunni um verulega bardaga, en húizt er við því, að Þjóðverjar taki rösk- lega á móti þá og þegar, þvi að þeir flytja mikið lið á vettvang. Yfir Rapido. Hinsvegar dregur hvorugur af sér við Guarigliano eða Rapido. Er þar barizt hvildar- laust dag og nótt. Hafa amer- isku hersveitirnar, sem voru hraktar aftur yfir Rapido-ána, ‘ gert aðra tilráun til þess aS hrjótast yfir liana og tekizt það. önnur Salerno-orusta. Wilson yfirhershöfðingi ræddi við blaðamenn í gær um landgönguna lijá Nettuno. Sagði hann, að allt hefði gengið vel til þessa, en menn ætti ekki að vera of hjartsýnir, þvi að ; bráðlega mundu Þjóðverjar byrja að herjast þarna og þá mundi hefjast önnur Salerno- orusta, en eins og menn rekur álilaup fyrir austan Vinnitsa. | Þeir heita miklum fjölda skrið- | dreka, en árásir þeirra bera engan árangur fremur en fyrr, • I Ný sókn Rússa. j Þjóðverjar segja frá því i : morgun, að Rússar sé byrjaðir nýja sókn suður í Ukrainu. H»fa ]>eir lagt til atlögu þar sem þeir létu staðar numið fyrir norðan Kirovograd fyrír rúmri viku. Engar fregnir hafa borizt um þetta frá Moskva. minni til, munaði ekki nema liársbreidd, að bandamenn væri liraktir í sjóinn þar. Yfirburðir bandamanna í lofti. Bandamenn hafa greinilega yfirhurði í lofti yfir öllum víg- stöðvunum, þótt það hindri nokkuð, að þeir geti beitt þeim til fulls, að veður hefir versn- að. Blaðamenn áætla, að banda- menn hafi sent fram 12—15 sinnum fleiri flugvélar land- göngudaginn og næsta dag á eftir, svo að þegar bandamenu sendu fram 1200—1500 vélar, hafi Þjóðverjar aðeins teflt fram 100 vélum. Undanhald undirbúið. í gienn dvið Cassino liafn gerzt ýmsir atburðir, sem virð- ast benda til þess, að Þjóðverj- ar sé að undirbúa undanhald á þessum vígstöðvum. Það er að vísu ekki liægt að ráða af lið- flutningi Þjóðverja frá Guar- ioliano-vígtöðvunum í áttina til Rómaborgar, hvort það sé gert vegna þess, að þeir sé að byrja undanliald’ þaðan. Hinsvegar síma blaðamenn, að héyi’zt hafi til stöðva handamanna í grennd við Cast- el Forte fimm miklar sprenging- ar, sem talið er að stafi af því, að Þjóðverjar liafi verið að sprengja upp skotfærahirgðir, til þess að ]>ær verði ekki fjand- mönnunum að gagni, þegar þeir láta undan siga. Appiavegurinn rofinn. Til Madrid hafa borizt þær fregnir frá Rómaborg, að fram- sveitir bandamanna hafi rofið Appiaveginn og sé nú stefnt til Latina-vegarins, sem er nokk- urum km. lengra inn í landi. Menntamál. ág.-—des.-hefti 1943, er nýlega komiS út. Efni: Sagan og börnin (Björn Sigfússon), Kennslueftir- litið (Snorri Sigfússon), Halldóra Bjamadóttjr (G.M.M.), Jón frá Flatey (G.M.M.), Orðið (Sig. Hclgason), Uppeldismálaþingið 1943, Vemdarenglarnir (Sig. Helgason), Sig. E. Guðmundsson (G.Á.), Menningarbarátta norskra kennara (G.M.M.). Á víÖavangi. Rafmagnsstjóri lcvaðst þó vona að um miðjan febrúar myni vera liægt að setja vélarn- ar saman, en það sem eftir væri mánaðarins myndi fara í það að reyna þær. Um eða upp úr mán- aðamótunum febrúar—marz, ’myndi svo verða hægt að auka rafstrauminn til bæjarins. Allir veigamQstu vélahlutirnir eru komnir til landsins og nú siðast spilin og lokurnar. Búið er að flytja lokurnar austur, en Smifandi pesf í kúm. Líkur eru til að komin sé npp ilíkynjuð smitandi pest i kúm bér á landL I fyrra kom upp illkynjaður sjúkdómur i kúm austur á Kárastöðum í Þingvallasveit. Lýsti hann sér i þvi, að kýmar lctu ltálfum löngu fýrir taL Lákur bentu til, að sjúkdóm- urinn væri smitandi, þvi að kýr, sem keypt var frá Kárastöðum að Grænuhlið í Fossvogi i fyrra, lét einnig kálfinum fyrir taí. Þetta varð til þess, að Rann- sóknarstofa Háskólans hóf rannsókn á þessum sjúkdómi í samráði við ameriska dýrlækna i setuliðinu, sérstaklega til að atliuga iivort um smitandi fóst- ulát á kúm (Bangs-bakterían) væri að ræða, en það er ill- kynjaðúr sjúkómur, sem land- lægur er í Ameríku og víðar og getur einnig komið fram sem liitasótl i mönnum. Þrátt fyr- ir margar blóðprufur, sem teknar voru, fundust ekki nein einkenni þessa sjúkdómþ, en vissara þótti þó að láta drepa allar kýrnar og voru aðrar kýr keyptar í staðinn. — Þær voru sjúkdómurinn kominn upp að nýju. Nú eru 3 af þessum aðkeyptu kúm á Káraslöðum bornar og hafa 2 þeirra gotið, en það sem þó er enn ískyggilegra er, að veiliin er komin á næsta bæ, Brúsastaði, og hafa kýrnar, sem bornar eru þar, gotið kálfunum. Visir hefir átt tal við Sigurð E. Hlíðar dýralækni um þennan sjúkdóm. Hann sagði að hér vææri ekki um hina illkynjuðu Bangs-bakteríu að ræða og þyrfti því ekki að óttast þennan sjúkdóm fyrir menn. Hinsvegai’ væri það álit lækna og þeirra sérfræðinga, sem hafa rann- sakað sjúkdóminn, að þetta væri engu að siður smitandi fósturlát, skylt hliðstæðum sjúkdómi, sein algengur væri í geitum og sauðfé. spilin eru enn ókomin þangað. Nokkurir erfiðleikar hafa verið á flutningum austur, en þó ekki valdið neinum tfum við vinnuna eystra. arðstrengirnir sem á að leggja frá Elliðaárstöðinni til bæjarins eru allir komnir til landsins og er unnið jafnt og þétt að því, að leggja þá. Vinnan gengur seint vegna tíðarfarsins en þó er ekki ástæða til að óttast að á henni standi. Rafmagnsaukning varla fyr en um önnur mán- aðamót. Nokkur dráttur hefir orðið á því að fá til landsins ýmsa hluti, sem þurfa til nýju vélasamstæðunnar hjá Lljósafossi, en þeir koma nú með hverju skipi, en'da þótt eitthvað sé enn- þá ókomið til landsins. Þetta veldur því að vélasamstæðan kemst ekki í notkun eins fljótt og búist var við í fyrstu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.