Vísir - 26.01.1944, Qupperneq 3
VtSIR
iönaöarins' í landinu. Þeim, sem
*ð iðnaði starfa ætti þessi upp-
lýsing að vera livöt til dáða og
fullkomnunar í störfum sínum,
eu valdhöfunum hending um
það hvert þróun atvinnulífs
jsjóðarinnar stefnir.
Ekki cr hægt að minnast iðn-
aðarins um þessi áramót svo að
Hitaveita Reykjavíkur verði
ekki nefnd. Hún er þessar sið-
astu vikur ársins að taka til
starfa og næstum 1/3 hluti
korgarinnár hefir fengið
Reykjavatnið til upphitunar.
Mitaveitan er langstærsta fyrir-
tsekið, sem stofnað hefir verið
kít hér á landi og þótt óhöppin
við framkvæmdirnar hafi verið
hlfinnanleg, þá mun hún þó
færa Reykvílcingum og þjóðinni
ailri stórkostleg þægindi, sem
•erhreyta munu lifsskilyrðum
fólksins, ef rétt verður á haldið.
Hún mun elclci hvað sizt hafa
örfandi áhrif á iðnaðinn í bæn-
mn. En til hvers er hægt að nota
aUar þær tug-milljónir hitaein-
inga, sem daglega verða afgangs
í vatnsgeymunum á Öskjuhlið
yfir sumarmánuðina ? Er hægt
að þurrka við þær fóður i stór-
um stíl, vinna salt úr sjó, eða
hvaða verkefni bíða þess hita-
magns?
Þegar Iitið er til þróunar iðn-
áðarins í landinu síðustu árin:
verksmiðjanna, vinnustofanna,
allra vélanna sem keyptar og
smíðaðar hafa verið og iðnaðar-
mannanna sem alizt hafa upp
og æfzt við iðnaðarstörf, er á-
stæða til að líta björtum augum
á framtið iðnaðarins í Iandinu.
Aldrei hefir neitt svipuð fram-
för átt sér stað á íslandi. Hinn
djarfhuga umbótamann, Skúla
Magnússon, mun aldrei hafa
áreymt um aðrar eins iðnaðar-
framkvæmdir. Og þörfin fyrir
iðnaðarstarfsemi hefir aldrei
verið meiri en nú. Lífsskilyrði
sjávarútvegs og landbúnaðar er
að iðnaðurinn eflist sem mest.
Afurðirnar þurfa að vinnast í
sem verðmætastar vörur, hús og
mannvirki að byggjast af sem
mestri hagsýni en nauðþurftir
|)jóðarinnar sjálfrar að tilreið-
ast sem mest í landinu sökum
eí'fiðleika á innkaupum þeirra
eiiendis frá
En þrátt fyrir öll þessi góðu
skilyrði byrjum við iðnaðar-
menn árið 1944 með ugg og
kvíða. Við óttumst efnisskort og
uggum uiA að dýrtíðin sem alm
hefir verið í landinu á annað ár,
verði ekki lagfærð fyrr en hagn-
»ður góðu áranna er horfinn út
í veður og vind, atvinnuleysi og
viðskiptastöðvun skollin yfir
alla þjóðina.
Stjórnmál þjóðarinnar eru í
megnasta öngþveiti og verð is-
lenzkrar framleiðslu i svo miklu
ósamræmi við vöruverð við-
skiptaþjóðanna að útlit er fyrir
að margskonar starfsemi stöðv-
ist hér á næstu mánuðum.
Sjávarútvegurinn berst nú
þegar í bökkum en ríkið greiðir
gífurlegar upphæðir mánaðar-
lega til að halda verði landbún-
aðarvaranna niðri. Þjóðina
vantar húsaslcjól og hefir
aldrei haft jafngóðar ástæð-
ur til að byggja sér vönduð
hús og góð, en hver sá sem nú
ræðst i húsabyggingar getur bú-
ist við að verða öreigi að ári.
Atvinnuleysi — þyngsta böl
Iiverrar þjóðar — blasir því við
og er þegar farið að gera vart
við sig. Dugnaður og bjartsýni
iðnaðarins í landinu hin siðari
ár, hefir ekki megnað að liamla
upp á móti örlagaþrungnum á-
hrifum stjórnmálanna. Flokk-
arnir i landhiu hafa barist um
völdin -— um atkvæði hvers ein-
asta kjósanda — án tillits til
velferðar þjóðarheildarinnar og
árangur þeirrar baráttu virðist
sá, að hvorki Alþingi eða rikis-
stjóna hafi völd i landinu.
Iðnaðarmenn hafa litinn
gttnm gefið stjórnmálunum, tal-
Þórður
Friðfinnson
vélstjóri.
Fœddur 12. júní 1913.
Fórst með Hilmi.
Hví drúpa fjöll við fjörðinn æsku minnar?
Frændi og vinur burtu þú ert horfinn.
Hlynurinn glæsti úr garði ættarinnar,
grátþrunginn harmur fast að þínum sorfinn.
Mundár á bak við Heljar tjaldið hljóða
hjálpin og vonin, sonarástin góða.
Ungur þú varst og bjart á þínum brautum
bernskunnar trú á vilja, dáð og hreysti.
Sýndir frá æsku ]>ol í öllum þrautum
þróttmikla vonin giftudögum treysti.
Sonarins elsku lielgað'var þitt hjarta
heimili þínu að tryggja framtið bjarta.
Hafið þig seiddi, tign þess, tónar þungu,
töfrar og máttur, ógnir þess og blíða.
Jafnvel er spár þér sorgar óða sungu
sagðist eitt vilja: köllpn þinni lilýða.
Vitnar það himinn, hetjuandinn sterki:
Helju þólt biðir, flúðir ei þitt merki.
Björt yfir liafsins gný og harma þunga
hefur sig trúin —r drottins vegu að skilja. —
Heimur þinn nýi hrausta sálin unga
hverjum mun bjóða starf að þínum vilja.
Þökk fyrir liérvist hjörtu vor þér inna.
Huggar oss vonin aftur þig að finna.
llitapokar
Dolkar
Foto Albnm
D ár»pennnr|
Nora'Magasín
Magnús Thorlacius
hæstaréttarlögmaður.
Aðalstræti 9. — Sími: 1876.
er miðstöð verðbréfavið-
skiptanna. — Sími 1710.
Bœjap
Næturvörður.
Ingólfs apótek.
Næturakstur.
Fellur niður í kvölcl vegna a'Sal-
fundar Hreyfils.
Drykkjuraannahælið
í Kumbaravogi verður hér eftir
rekið sem ríkisstofnun, en það var
Stórstúkan, sem stofnaði það og
annaðist rekstur þess allt til þessa.
Nú hefir rikisstjórnin skipað stjórn
fyrir hælið og eiga í henni sæti þeir
Kriktinn Stefánsson stórtemplar,
formaður, Friðrik Á. Brekkan rit-
höfundur og Sigfús Sigurhjartar-
son alþm.
Finnbogi Magnússon,
er var meðal farþega með m.s.
Laxfossi þegar það strandaði, fékk
í gær vitneskju um, að hann ætti
töskur merktar honum, er rekið
hefðu í Örfirisey, og að hann gæti
sótt þær þangað. Er Finnbogi kom
út í eyju fann hann töskurnar, en
tómar, og að því er hann sagði, voru
öll merki þess, að töskurnar hefðu
verið tæmdar áður en þær fóru í
sjóinn. Fannst Finnboga þetta áð
vonum kynlegt.
ið þau þýðingarminni en störf
sín, vélar og efniskaup. En þar
sem efnisútvegun þeirra og
starfshættir eru að verða æ meir
liáðir stjórnmálunum verða þeir
einnig að láta þau til sín taka,
svo að þeir geti af skynsemi
unnið nauðsynleg nytjastörf
fyrir land sitt og afkomendur.
Á gamlársdag 1943.
Sökum rúmleysis hefir grein
þessi orðið að bíða alllengi birt-
ingar og biðjum vér velvirðing-
ar á því. — Ritstj.
Útvarpstæki
lítið og gott, til sölu. Vestur-
götu 17 A, eftir ld. 7.
FJElAGSPRENTSniJM
£est\v*
Siúlku
vantar. — Uppl. á skrifstofu
rikisspítalanna. Sími 1765.
Málfundur
í kvöld kl. 8,30 í húsi Sjálf-
stæðisflokksins i Thorvald-
sensstræti 8.
2 stúlkur
geta fengið atvinnu við hrein-
legan iðnað.
Uppl. i sima 4134.
GÖTUSKÓR
nýkomnir.
VERZL.
H85.
Grettisgötu 57.
Vélstjórar
Vélstjóra vantar á inótorbát í V»vftcnunnaeyjum.
Uppl. i síma 5532.
og bílasmiðjan
VAGNINN
tekur að sér yfirbyggingar bíla, réttingar og víðgerðir á yfir-
byggingu. — Einnig allskonar trésmiði.
Verkstæðið við Brautarholt 28 Tungu).. —
Unglinga
vantar til að bera út blaðií*
víðsvegar um bæinn frá 3..
febrúar.
Talið strax við afgreiðsluna. —
Sími 1660.
ÐAGBLAftOEÐ VÍSIR.
Snndhettnr
fyrirliggjandi.
■ /
Líístykkjabúðin
Hafnarstræti 11. — Sími 4473.
Nokkrar saumastúlkur
'h\' , ■
vantar oklcur. — Eánnig stúlku við fóðurklippingar og fleira.
Klæðav. Andrésar Andréiianarhi.
Bezt aí anglfsa í Vísi.
Dugleg
stúlka
óskar eftir vinnu, lielzt við
iðnað. Tilhoð, merkt: „Dug-
leg“ sendist Visi fyrir n. k.
laugai-dag.
ox
seu birtast eiga í
Vísi samdægurs,
þnrfa að vera
komsar fyrir
kl. 11 árd.
Peysar og pil§
i miklu úrvali.
Tizk
□ n
Laugaveg 17.
Nokkrar stúlkur
geta komisl að í Garnaslöðinni við Raúðarárstíg.
Upplýsingar á' staðnuni og;
v, \:í4U> tik <•
; i
■"-“nu1;"
Tilkynning
Að gefnu tilefni vil eg taka fram, að mér hefir
aldrei komið til hugar að tgka Óskar Sólbergsson,
feldskera í vinnu til min, nema þá litillega til að
teygja skinn.
JÓHANN FRIÐRIKSSON,
f ramkvæmdarst j óri.
Grettisgötu 3.
• 'ji.nA '.w'-'
Tónlistarfélagið tilkynnir:
Samkór Reykjavíkur — Karlakérinn Ernír
Stjórnandi: Jóhann Tryggvason.
Sain§öng:ur
annað kvöld klukkan 11.30 í Ganila >Bió.
Síðasta sinn.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadöltar.
Allur ágóðinn rennur til
Tónlistarhallarinnar.