Vísir - 01.02.1944, Side 1
KHstjórar:
Kristján Guölaugsson
Hersteinn PáHsson
Skrifstofun
Félagsprentsmiðjan (3. hoeð)
Ritstjórar 1
Blaðamenn Simli
Auglýsingar 1660
Gjaldkerl 5 llnur
Afgrei&sla i • f •>
34. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 1. febrúar 1944.
25. tbl.
Japanir segja frá land-
göngu á Marshalleyj um
Mesti leiðangup
Bandaríkj&ima
á Kyrrahafi.
TY©aiei fréttastofan jap-
anska tilkynnti í gær-
kvetdi, að amerískt lið hefði
Sfengið á land á ýmsum Mar-
shall-eyjanna í fyrradag
siðdegis og stæði yfir harð-
ir bardagar. Þetta hefir ekki
verið staðfest í Washing-
ton.
Hiusvegar hefir aðalbækistöð
Niinitz flotaforingja i Pearl
I iarbor gefið út tilkynningu uni
þa% að ameríslcar flotadeildir
haíi gert dag- og næturárásir á
Marshalí-eyjar með stuðningi
flotaflugvéla síðan í dögun á
summdag. Ameríska flotadeild-
in hefir ekki sent skeyti um að-
gerðir sinar, þar sem ekki má
nota loftskeytatæki skipanna,
fyrr eaa séð er hver verður ár-
angarinn af leiðangri þeira.
1 Pearl Harhor hefir þó verið
skýrt frá þvi, að flugvélar
Bandari k ja m ann a muni hafa
gert margar árásir á stöðvar
Japana á eyjunum, en herskipin
hafi siðan siglt mjög nærri
landi og haldið uppi mikilli
skothrið á þessar sömu stöðvar.
J
• I
Afiraua.
Fregnir frá báðum aðilum
virðast benda til þess, að Banda-
rikjamenn tefli fram miklum
fjölda herskipa, þar eð árásirn-
ar era gerðar á mjög víðáttu-
mikinn eyjaklasa. Er gefið í
skyn í Pearl Harbor, að Banda-
ríkjamenn muni aldrei hafa
gert út eins mikinn leiðangur
á hendur Japönum, síðan byrj-
að var að berjast á Kyrrahafi.
27 árásip á
Rabaul i sið-
asta mánuði.
í janúarmánuði voru gerðar
samtals 27 árásir á Rahaul,
sumar mjög harðar. Flugvéla-
tjón Japana hefir verið mjög
mikið á suðvesturhluta Kyrra-
hafs á sama tima. Hafa þeir
misst 546 flugvélar, en banda-
menn misstu aðeins 97 flug-
vélar.
Japönsk blöð hafa skrifað
heldur áhyggjusamlega um
það, að nauðsyn beri til að auka
flugvélaframleiðslu landsins, en
bandamenn hafa komizt á snoð-
ir um það, að Þjóðverjar telji
sig ekki geta sent þeim vélar
til flugvélasmíða, sem Japani
vanhagar um.
Árás á Wake.
Amerískar flotaflugvélar
gerðu í gær árás á Wake-eyju.
Flugbátar af Coronado-gerð
gerðu þessa árás, en þeir eru
smíðaðir af sömu verksmiðjum
og Catalina-flugbátarnír, en
miklu stærri og fullkomnari.
Mikil árás flugvéla og her-
skipa var gerð á Wake í október
og var þá unnið tjón þar, sem
Bandaríkjamenn sögðu að
mundi taka marga mánuði að
hæta. Talið er að þessi árás
hafi átt að beina athygli Japana
frá árásinin á Mai-shall-eyjar.
Sviar gefa Grikkjum
matvæli
Tvö skip eru nú farin af stað
til Grikklands með matvæli
handa landslýðnum þar.
Skip þessi eru lilaðin ýmsri
björg, einkum saltfiski og þurr-
mjóllc, og eru þau gjöf frá Svi-
um til Grikkja. Ennfremur eru
sjö Sviar nýfarnir til Grikk-
lands á vegum sænska Rauða
Kixíssins, til þess að hafa um-
sjón með úthlutun matvæla
þessara.
Erfitt verk.
Mussolini hélt ræðn á föstu-
dag fjnrir Graziani og fleiri
ítölskum herforingjum.
Aðalefni ræðunnar, sem var
ekki aflient til birtingar á Norð-
ur-ítalíu fyrr en á sunnudag,
var um hlutverk fasismann fyr-
ir Itala. Kvað Mussolini svo að
orði, að nú yrði að hefja fas-
ismann til sama þreks og virð-
ingar og áður. En hann kanna-
ist við það, að það mundi verða
erfitt verk!!
Létt skriðdrekabyssa
Bretar eru byrjaðir að fram-
leiða nýja skriðdrekabyssu, sem
er ekki þyngri en svo, að einn
máður getur stjórnað henni.
Sprengjur liennar geta unnið á
allt að 10 þumlunga þykkum
stálplötum. Byssur þessar hafa
þegar verið reyndar á Ítalíu og
gefizt vel.
Ný rússnesk orustu-
flugvél.
Rússneska blaðið Rauða
stjarnan skýrir frá því, að tekin
hafi verið i notkun ný orustu-
vél. Er hún hraðfleygari en all-
ar aðrar flugvélar Rússa.
Fhigvél þessi er teiknuð af
einnm bezta flugvélasmið Rússa
og er hún sögð betri en allar
þær orustuflugvélar, sem þeir
hafa notað áður. Notaði hann
til að standast kostnað af smíði
fyrstu vélarinnar verðlaunafé,
sem hann hafði fengið fyrir
smlði fyrri flugvéla.
Rússar aðeins 15
km. frá Eistlandi.
Þeip sækja á lijá Dnjepfo-
petnovsk:, segja Þjóöverjap.
í gær sóttu Rússar fram um
10 km. fyrir vestan Leningrad,
á strönd Finnlandsflóa, og áttu
15 km. veg ófarinn vestur að
landamærum Eistlands, þegar
dagur var að kveldi kominn.
Barizt er i úthverfum Kingi-
sepp, sem er stærsta borgin á
þessum slóðum. Stendur hún á
eystri bakka Luga-ár, en Rúss-
ar hafa brotizt yfir ú vestri
bakka hennar fyrir sunnanborg-
ina og segir i fregnum frá
hlaðamönnum í Moskva, að
Innrásin á Bougainville.
Birgðir eru „handlangaðar“ á land úr amerískum innrásar-
báti éftir að innrásin hefir verið gerð á Bougainville-eyju, vest-
alega í Salomonseyjaklasanum. Bardagar hafa legið þar niðri
að mestu undanfrið.
framsveitir þeirra muni hafa
komizt framhjá vii-kjum Þjóð-
verja á fljótsbakkanum, án þess
að þeir yrðu þess varir.
| Enn er ekki með öllu búið að
j hreinsa til á svæðinu fyrir sunn-
j an og suðaustan Leningrad, en
í gær segja Rússar að þeir hafi
upprætt setulið í tveim borgum,
sem þeir liöfðu umkringt fyrir
fáeinum dögum.
i
Áhlaup í Ukrainu.
Rússar minnast elcki á neina
bardaga suður i Ukrainu, en
Þjóðverjar segja hinsvegar, að
Rússar sé byrjaðir hörð áhlaup
fyrir suðvestan Dnjepropet-
rovsk og í grennd við Kirovo-
grad. Þýzka herstjórnin segir
ennfremur, að hersveitir henn-
ar liafi getað lirundið öllum
þessum árásum.
I
Ungverjar
á austurvígstöðvunum.
Rússneska stjórnin liefir ráð-
izt á ungversku stjórnina fyrir
þjónkun hennar við Hitler. Seg-
ir hún, að enginn láti blekkjast
af þeirri staðhæfingu ungversku
stjórnarihnar, að eklcert ung-
verskt herlið sé á austurvíg-
stöðyunum, því að þar séu nú 11
fótgönguliðsdeildir og ein ridd-
araliðsdeild.
Amerískir kafbátar hafa sökkt
14 japönskum skipum á Kyrra-
hafi.
21.000 smál. sprengja hefir
verið varpað á Berlin.
Bandamenn við
úthverfi Cist-
erna.
2 Norðmenn bjarga 15 am-
erískum hermönnum hér.
Voru bjargarlausir i fönn i stórhríð.
Tveir Norðmenn, sem hér
eru, hjörguðu fyrir skemmstu
fimmtán amerískum hermönn-
um, sem mundu ef til vill
hafa orðið úti að öðrum kosti.
Blað ameríska hersins, Hvíti
Fálkinn, segir frá þessu afreki
Norðmannanna á laugardaginn.
Annar þeirra heitir Thorolf Ro-
herg, 21 árs að aldri, en hinn vill
að nafni sínu sé haldið leyndu,
vegna þess að foreldrar hans
eru enn í Noregi.
Frásögn norsku piltanna er
á þessa leið:
„Við voruni að brjótast gegn
storminum til stöðvar okkar,
sem er útvarðstöð, þegar við
rákumst á amerískan liðsfor-
ingja. Hann sagði, að amerísk-
ir herflutningabílar væri fastir
i fönninni um fimm kílómetra,
frá okkur og hann hefði farið
að leita hjálpar.
Við reyndum að fú bíl með
oklcur, en snjórinn var svo
djúpur og veðrið herti óðum,
svo að við sáum fram á, að við
mundum verða að fara á skið-
um. Klukkan var um sjö að
kveldi og skyggni var slæmt
vegna fannkomunnar, en við
vissum í hvaða átt mennirnir
voru og þótt færðin væri þung,
tólcst okkur að finna þá eftir
rúmlega tvær klukkustundir.“
Amerísku hermennirnir hiðu
í bílum sínum og bráðlega var
haldið af stað til herbúða Norð-
manna. Veðrið lierti óðum, svo
að Norðmennirnir tóku það
fangaráð að annar færi fyrir,
en liinn á eftir til þess að gæta
þess, að enginn heltist úr lest-
inni. Með þvi að halda hópinn
komust þeir heilu og höldnu til
lierbúða Norðmanna. Þegar
þangað var komið var „skálað“
i lútsterku, svörtu kaffi og varð
engum meint við volkið.
Þingvallaleiðin opn-
ast sennilega í dag.
Von er um að Þingvallaleiðin
opjnist í dag, og í gær og í dag
hafa flokkar manna unnið að
mokstri á báðum leiðunum
austur.
I gærkveldi var búið að ryðja
Þingvallaleiðina austur að
Bugðu og von um að það, sem
eftir er leiðarinnar yrði rutt í
dag.
Miklu meiri snjór er á Hell-
isheiðarveginum en Þingvalla-
veginum, og óvíst hvenær tekst
að ryðja hann.
Usmið að björgun
Laxfoss.
Unnið er nú af miklu kappi
að því að bjarga Laxfossi og
hafa 3 bátar verið á strandstaðn-
um í morgun til að reyna að
rétta skipið, við.
Ríður það á< miklu, að það
takist að rétta skipið, svo hægt
verði að komast að þvi að þélta
það á Jieirri liliðinni, sem það
liggur á.
Miklar loftárásir
Bandamenn hafa sótt lengra
upp á land frá Anzio ,og voru í
gærkveldi komnir að úthverf-
um borgarinnar Cistema,
Þjóðverjar sögðu í gær, að
þann dag hefði í fyrsta skipti
komið til verulegra átaka á
landgöngusvæðinu og hafi
bandamenn hafið sókn upp frá
Nettuno. En handamenn hafa
ekkert sagt um þetta enn.
Flugher bandamanna var
mjög athafnamikill í gær. Stór-
ar sprengjuvélar réðust á flug-
velli við Klagenfurt í Austur-
ríki og Udine á N.-Ítalíu. Var
mörgum flugvélum Þjóðverja
grandað.
Orustuvélar bandamanna fóru
i árásir á flugvelli Þjóðverja í
S.-Frakklandi aðfaranótt sunnu-
dags. Voru skotnar niður 1H
þýzkar vélar, en bandamenn
misstu fjórar.
Orustan um
Berlin senn
á enda.
Dr. Stelngrímnr J. Þor-
steinsson tekur við
kennslu í háskólannm.
Dr. phil. Steingrímur J. Þor-
steinsson annast kennslu í ís-
lenzkri bókmenntasögu við Hú-
skóla íslands þetta vormissiri, í
stað próf. Sigurðar Nordals, sem
leyfi hefir frá kennslustörfum til
að gegna ritstörfum, en hann
hafði s.l. haust verið prófessor
við Háskólann í 25 ár.
Þann 1. des s. 1. var Stein-
grímur sæmdur doktorsnafnbót
við jHáskólann fyrir rit sitt
„Jón Thoroddsen og skáldsögur
hans“, sem út ikorn í tveimur
bindum á sl. hausti.
I vetur kom út á vegum Bók-
menntafélagsins annað rit eftir
dr. Steingrím, um upphaf leik-
listar á íslandi.
Opzmnarhátlð
Ármanns
I gærkveldi hófust hátíðahöld
Glímufélagsins Ármann, í tilefni
af 55 ára afmælinu, með fim-
leikasýningum úrvalsflokka fé-
lagsins í Iþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar.
Opnunarliátiðin hófst með
þvi, að lúðrasveit lék, en í-
þróttaflokkar þeir, sem sýna
eiga í vikunni, gengu fylktu Lði
iun í salinn. Að því búnu hófst
sýning kvenflokksins og þar-á
cftir sýning karla. Sérstalca at-
liygli jöktu æfingar. kvenna á
slá og dýnustökk karla.
Stutt ávörp fluttu þeir Jens
Guðbjöriisson, formaður félags-
ii.ooo smál. varp-
að á Þýzkaland
síðan á fimmtud.
T) ótt ekki hafi verið Mtið
neitt uppi um það op-
inberlega í London, hversu
miklu sprengjnmagni hafi
verið varpað á Berlin, er
talið ekki fjarri sanni, að
Bretar hafi nú varpað á
borgina um 21.000 smál.
Lundúnablöðin í morgun rita
mikið um orustuna um Berlin
og Daily Express segir, að hún
sé brátt á enda með fuHkomn-
um ósigri Þjóðverja. Ennfrem-
ur segist blaðið hafa sönnur
fyrir þvi, að búið sé að ftytja
flest ráðuneytin til Breslaiu
Hernaðarsérfræðingar hafa
talið, að það þurfi um 30.000
smálestir af sprengjum til þess
að lama svo atvinnulif.Berfinar,
að borgin komi Þjójðverjum
ekki að notum í stríðinu. Virð-
ist þvi ekki þurfa að varpa nið-
ur nema 10.000 smálestum í
viðhót, til þess að þvi marki sé
náð, en því sprengjumagni geta
Bretar varpað niður i fjórum
eða fimm árásum.
í
11.000 smálestir ,
síðustu dagana.
Síðasta lota loftsóknarinnar
hófst ú fiinmtudagskvöldið eða
aðfaranótt föstudags með því
að Bretar gerðu harða árás á
Berlín. Síðan hefir hver stór-
árásin fylgt annarri og er álitið
i London, að bandamenn hafi
varpað 11.000 smálestum
sprengja á Þýzkaland eða þýzk-
ar stöðvar frá fimmtudags-
kveldi til mánudagskvelds.
Megninu af þessum sprengj-
uin var varpað á þrjár borgir,
Berlín, Brunswick og Frank-
furt.
f Síðasta árásin
á Berifn.
Bretar segja um siðustu árás-
ina á Berlín, að hún þafi verið
mjög íiörð og hafi Þjóðverjar
ekki getað hindrað hana að
neinu leyti, þvi að vörn þeirra
hafi verið mjög gloppótt. Ein
af sprengjuvélum Breta varð
fyrir 13 árásum orustuvéla yfir
borginni, en önnur sá aldrei
þýzka vél alla árásina. Enn
einn flugmaður tekm’ meira að
segja svo djúpt í árinni, að hann
liafi ekki einu sinni séð neina
loftvarnakúlu springa, meðan
hann var yfir Berlin.
Fjölmargir Rúmenar hafa
flúið til Tyrklands undanfarnar
vikur.
ins og Ben. G. Waage, forse
I. S. I.
í kvöld fer Skjaldarglima
frarn, sem einn liður hátíðahalc
anna, og verða þar 16 keppenc
ur, liver öðrum snjallari glími
inenn.