Vísir - 31.05.1944, Qupperneq 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
34.
Ritstjórar
Blaðamenn Simii
Augfýsingar I6Ó0
Gjaldkerl S linur
Afgreiðsla
ar.
Reykjavík, miðvikudaginn 31. maí 1944.
119. tbl.
Von er á allmiklu af land-
búnaðarvélum frá U.S.A.
Eftipspurnin ep mun meiri
en innflutningurinn*
Viðtal við Árna G. Eylands framkvæmastj.
Innflutningur búvéla fór
vaxandi öll árin fynr styrj-
öldina og enn er síaukin eft-
irspurn eftir hinum ýmsu teg-
undum landbúnaðarvéla.
Þessi 'árin er afar erfitt um
innflutning búvéla meðal ann-
ars vegna þess að flestar teg-
undir þeirra heyra undir styrj-
aldarframleiðslu. Vísir hefir
snúið sér til Árna G. Eylands
framkvæmdastjóra og innt
hann eftir horfum með inn-
flutning búvcla i ár á vegum
S. í. S.
Skýrði hann blaðinu svo frá:
I
Heyvinnuvélar.
— í ár hefir verið reynt að
fá eins mikið af allskonar bú-
vélum og hægt hefir verið frá
Bandaríkiunum til að fullnægja
sívaxandi eftirspurn bænda. Er
von á um 200 sláttuvélum, en
fyrirliggjandi er 391 heiðni, af
rákstrarvélum er von á 250, en
beiðnirnar eru 455. Snúnings-
vélar til heyþurrkunar af venju-
legri gerð fást ekki frá Ameríku.
Von er á 10 múgavélum en
beiðnir eru 21. Af öðrum tækj-
um 4il heyvinnu, svo sem ein-
járnnngum, ljáhlöðum og ljá-
hakkatein er nóg til. Varahlutir
í eldri búvélar verða vonandi
komnir í tæka tíð fyrir sláttinn
í sumar.
!
Jarðvinnzluverkfæri.
Loforð hefir fengizt fyrir
innflutningi 37 dráttarvéla.
Reynt hefir verið að fá inn-
fluttar beltadráttárvélar og voru
hinar fyrstu pantaðar í júlí í
fyrra. Enn er ekki fengið neitt
'oforð um innflutning þeirra
enda heyra þær eindregið und-
ir hergagnaframleiðslu. Nálega
100 beiðnir um dráttarvélar eru
fyrirliggjandi.
Hentugir hestplógar fást ekki
frá Ameríku. Herfi og ýmsar
tegundir garðyrkjuverkfæra
eru til eftir þörfum. Þá er tals-
vert væntanlegt af mjólkurskil-
vindum.
Allmikil vöntun er á ýmsum
liandverkfærum, svo sem
steypuskóflum, garðhrífum og
stunguhvíslum. Þá vantar til-
finnanlega varahluti í búvélar
af sænskri og þýzkri gerð. Ef til
vill flytja einhverjir aðrir aðilar
en S.Í.S. þessar vörur inn en
um þær birgðir eru mér ókunn-
ugt.
Sókn Japana.
Sókn Japa'na í Hunan er talin
hin mesta, sem þeir nokkru
sinni hafa byrjað í þessu fylki.
Byltingarsinnar í Ekvator
hafa sett á laggirnar hernaðar-
lega bráðabirgðastjórn.
Hull utanríkisráðherra
Bandaríkjanna ræddi við sendi-
herra Bretlands, Rússlands og
Kína í gær, og tjáði þeim að
Bandaríkjastjórn væri reiðuhú-
in til að hefja undirbnúingsvið-
ræður um alþjóðleg öryggismál
eftir styrjöldina.
Miklar endurbætur á
Þingvallaveginum og
m m
Öxarárbrú breikkuð.
Von á möpgum stópvipkum vega-
vinnuvélum til landsins.
Vegagerð er hafin víðsvegar um land, að því er Geir G.
Zoega vegamálastjóri hefir tjáð Vísi. Á bróargerðum er ekki
byrjað enn sem komið er, nema á Tungufljótsbrú. Vegagerð-
in á nú margar stórvirkar nýtízku vegavinnuvélar í pöntun,
sem enn eru þó ókomnar til landsins.
Sem stendur er mest unnið að
viðgerðum á vegum, en einnig
sumstaðar byrjað á nýhygging-
um. Nú er m. a. unnið af kappi
að endurbótum á Þingvallaveg-
inum og verður reynt að hraða
þeim svo að þeirh verði lokið
fyrir hátíðahöldin 17. júní n. k.
Sett verða ný handrið á brýrnar
á leiðinni og verða þau með
öðru sniði en áður, eða einskon-
ar lág — skáhandrið, viðari að
ofan og þvi síður hætt við á-
rekstrum á brúnum. Öxarárbrú
verður breikkuð, þannig að bíl-
ar eiga að geta mætzt á henni
og ennfremur verður gangveg-
ur annarsvegar á henni. í sam-
ræmi við brúarbreiddina er
fyrirhugað að breikka veginn
að henni, m. a. með þvi að
sprengja allmikið af klöppum.
Þá verða og ræsin breikkuð á
þeim hluta Þingvallavegar, sem
breikkaður var í fyrra.
Hafin er vinna á nýbyggingu
Krýsuvíkurvegar og Ölfusveg-
ar samkvæmt þingsályktun.
siðasta Alþíngis, þar sem heim-
ilað er að verja til þessara vega
500 þús. kr. umfram fjárveit-
ingu.
Á meðan brúin yfir Tungu-
fljót er í smíðum hefir verið
komið fyrir sérstöku neti, sem
Vegagerðin fékk hjá hernum, á
vaði í ánni, sem annars var ó-
fært vegna sandbleytu. Hefir
net þetta reynst ágætlega og
hafa bæði kjötflutninga- og
áburðarflutningabílar farið þar
yfir og gengið vel.
Von er á mörgum stórvirkum
vegavinnuvélum, sem munu
Iétta mikið undir allri vega-
vinnu og braða afköstuxn.
Ávarp frá lands-
nefnd lýðveldis-
kosninganna.
Landsnefnd lýðveldiskosn-
inganna vill hér með færa
öllum héraðsnefndum lýð-
veldiskosninganna, svo og
öðrum trúnaðar- og starfs-
mönnum, beztu þakkir fyrir
ágæta samvinnu og framúr-
skarandi fyrirgreiðslu við
lýðveldiskosningarnar.
Landsnefnd
lýðveldiskosning-
anna.
Þjóðverjar hefja stór-
árásir fyrir norðan
Jassy.
Rússar skýrðu frá því í gær-
kveldi, að Þjóðverjar hefðu
gert miklar árásir í gær fyrir
norðan Jazzy í Rúmeníu. Réðust
þeir fram með miklu liði og
skriðdrekum og tókst að reka
lítinn fleyg inri í víglínu Rússa,
en hiðu ógurlegt manntjón og
hergagna. Rússar segjast hafa
eyðilagt fyrir Þjóðverjum 50
skriðdreka. 36 þýzkar flugvélár
voru skotnar niður.
Talsmaður þýzku stjórnar-
innar sagði í gærkveldi, að
hundruð þýzkra steypiflugvéla
hefðu í gær ráðist á stöðvar
Rússa.
Að svo stöddu verður ekki
sagt hvort þessar árásir Þjóð-
verja eru upphaf mikillar gagn-
sóknar eða aðeins mikil tilraun
til þess að ónýta sóknarviðbún-
að Rússa, en hvað sem um það
er, er með þessum árásum rof-
ið sex vikna hlé, sem verið hef-
ir á stórbardögum á austur-
vígstöðvunum.
Stutt og laggoti
Kanadiskir tundurspillar hafa
sökkt þýzkum kafbáti á Norður-
Atlantshafi. Þrátt fyrir storm
og sjógang var nokkrum kaf-
bátsmönnum bjargað.
Sir Samuel Hoare er á leið til
Madrid í brezkri flugvél, hinni
fyrstu, sem þangað kemur í yfir
4 ár.
Curtin forsætisráðherra Ástra-
líu er kominn til Kanada og á-
varpar sambandsþingið í Ott-
awa á morgun. Blamey hers-
höfðingi, yfirmaður landhers
Ástralíumanna, er með honum.
Bandaríkjamenn hafa fram-
Ieitt 171.000 flugvélar frá þvi
Japanir réðust á Pearl Harbour.
1 Janúar 1940 nam flugvéla-
framleiðslan 267, en í marz í ár
9000. 1 ár verða framleiddar
100.000 flugvélar, eða helmingi
meira en Þjóðverjar og Japan-
ar í sameiningu geta nú fram-
leitt.
I fyrsta skipti í Nýju Guineu
styrjöldinni er nú barizt með
skriðdrekum. Er það á Biac-ey.
Bandaríkjamenn eyðilögðu 11
skriðdreka fyrir Japönum þar í
gær.
Winant sendiherra Banda-
ríkjanna kom til London í gær.
Hann hefir verið í Washington
að undanförnu til viðræðna við
stjórn sína.
Bandamenn tókit
6 kæt á italíii í «r
Dagárásirnar í gær:
smiOjur
!
fi
I.
Yfir 750 amerískar sprengju-
flugvélar, varðar yfir 1200 or-
ustuflugvélum, réðust í gær á
þrjár flugvélaverksmiðjur og 6
flugvelli í Þýzkalandi og á
stöðvar i Frakklandi og Belgíu,
aðallega járnbrautarstöðvar. 1
Þýzkalandi var ráðist á verk-
smiðjur og flugvelli við eftir-
taldar borgir: Dessau, Oschers-
leben, Halberstadt Munster,
Osnabruck og Hamborg. Ráðist
var á járnbrautarstöðvar við
Briissel, höfuðborg Belgíu.
Langflugs orustuflugvélar,
sem voru flugvirkjunum, Li-
beratorsprengjufliigvélunum til
verndar, skutu niður 58 þýzkar
flugvélar, en sprengjuflugvél-
arnar 8. — Bandaríkjamenn
misstu 11 sprengjuflugvélar og
9 orustuflugvélar.
Flugvélar af ýmsum öðrum
fferðum fóru til árása í gær á
ýmsar stöðvar í Frakklandi og
Belgíu, m. a. Typhoon-flugvélar
úthúnar rakettu-fallbyssum.
Hjúskapur.
í dag verða e:efin saman í hjóna-
band af sr. Garðari Svavarssyni
ungfrú Erla Bech (Eiríks Bech
framkv.stj.) og Haraldur Gunn-
Iaugsson. — Verða þau gefin saman
á heimili brúðurinnar, Viðivöllum
við Sundlaugavesr, en heimili þeirra
verður að Laufásveg io.
fsilenzkar þjóðsömir,
3. hefti er nvkomið út af safni
Einars Gðmundssonar. Safn þetta
hefir þegar náð allmiklum vinsæld-
um og hlotið mikla útbreiðslu. í
hessu hefti eru milli 30 og 40 sög-
ur, víðsvegar að. En lengst þáttur-
inn mun vera um skiptapann við
Vestmannaeyjar 16. maí 1901. Hf.
Leiftur gefur safn þetta út.
Leiðrétting'.
1 frásögn um ferðir Farfugla í
Vísi í gær stó<5, að hópur Farfugla
hefði dvalið í Valhöll um hvíta-
sunnuna, en átti að vera í Valahóli.
Stranmhvörf,
2. hefti II. árg., er nýkomið út.
Efni: Heilindi (Gunnar Gunnars-
son), Þióðarbúskapur á áætlunar-
crundvelli (Klémenz Trvggvason),
FramtiSarskipun landbúnaðarmála
fTóhann frá Öxney), Hlutskipti í
Stórútverð (Lúðvik Kfistjánsson),
Frá Einari Andréssvni í Bólu
(Gunnfríður Jónsdóttir) o. m. fl.
Rómaborg á valdi bandamanna
eftir nokkra daga.
Bandamenn tóku alls 6 bæi á Ítalíu í gær í námunda viS
seinustu varnarlínu Þjóðverja fyrir sunnan Rómaborg,
þar sem nú er augljóst orðið, aS ÞjóSverjar ætla aS
verjast þar til yfir lýkur.
YfirráS ÞjóSverja í Frosinone og Sora eru í mjög aukinni
hættu vegna sóknar áttunda hersins. Franskar hersveitir hafa
tekiS bæ, sem er 8 km. frá Frosinone. — Hersveitirnar vest-
ast á víglínunni, sem tóku Ardea, hafa tekiS annan smábæ aS
auki, og eru nú 23 km. fyrir sunnan Rómaborg.
Bandamenn hafa tekiS þorp suSaustur af Lanuvia. Ný-
sjálendingar eru 3 km. frá Sora.
2400 flugvélar bandamanna gerSu árásir í gær, og misstu
bandamenn aSeins 8, en af 30 þýzkum flugvélum, sem sáust
yfir vígstöSvunum, voru 15 skotnar niSur.
Lundúnablöðin í gær birtu þá
fregn undir stórum fyrirsögn-
um, að Mark Clark, yfrrmaður
fimmta hersins á Itak'u, hefði
komizt svo að orði, að áður en
margir dagar væru liðnir, ytði
Rómaborg á va’di bandamanna.
I ú tvarpsf yrirles t n, sem fluU-
ur var í London í gærkveldi,
var á það minnst, að þótt blöð-
in hefðu „slegið upp“ þessari
fregn, ættu menn að muna, að
höfuðverkefni herja banda-
manna væri að sigra heri Kessel-
rings, og eins og nú væri komið
miðaði hann vafalaust að því
framar en að halda Rómaborg,
að bjarga því sem bjargað yrði
af 10. hernum þýzka og þeim
14., en þegar svo er komið, að
þremur herfylkjum úr þessum
herjum liefir verið að kalla ger-
eytt, en önnur hafa goldið mikið
afhroð í bardögum að undan-
förnu. Sumir, sem um hermál
skrifa í þrezk blöð, líta svo á,
að þótt Kesselring kunni að
koma talsverðum hluta þess
liðs, sem eftir er, undan norður
á bóginn, muni mega telja víst,
að Kesselring geti ekki komist
hjá ægilegu hergagnatapi. I
einni fregn var sagt, að Þjóð-
verjar hefðu enn 100.000 manna
lið í Liridalnum.
Hermálasérfræðinglun her
saman um, að Þjóðverjar geti
ekki liaft veruleg not af þjóð-
vegi nr. 6 úr þessu, þar sem
bandamenn hafa aðstöðu til að
halda uppi skothríð á hann og
noti þá aðstöðu til hins itrasta.
Bardagar voru í gær harðastir
þar sem fimmti herinn sækir
fram. Árásir eru hafnar á stöðv-
ar Þjóðverja 25 ldlómetra fyrir
Hitler setur Búlgörum
úrslitakosti.
Fregnir hafa borizt um að Filov, fyrrverandi ráðherra, sem
á sæti í ráði því, sem nú fer með æðstu völd í Búlgaríu, hafi
farið á fund Hitlers. Ræddust þeir við í Berchtesgaden. Þar
setti Hitler að sögn úrslitakosti, sem eru á þessa leið:
Búlgarska stjórnin geri þegar í stað ráðstafanir til þess að allir
skæruflokkar verði upprættir og allri mótspyrnu gegn Þjóðverj-
um hætt. Búlgarar taki upp algera hernaðarsamvinnu við Þjóð-
verja og slíti stjórnmálasambandinu við Rússa.
sunnan Rómaborg. Þjóðverjar
höfðu þá enn Valmontone á sínu
valdi og Velletri, en brezlcar
hersveitir vestast á vígstöðvun-
nm við sjó frammi tóku þorp-
ið Ardia og sóttu fram þaðan.
I gærmorgun höfðu þessar her-
sveitir á valdi sínu veginn frá
Ardia til Campo Leone og járn-
brautarstöðina fyrir sunnan
þann bæ, en ekki bæinn sjálfan.
— I um það bil 50 km. fjarlægð
leiddi fall bæjarins Arce til þess,
að hersveitir úr áttunda hern-
um gátu sótt í áttina til Frosi-
none, og voru í gær um 16 km.
frá þessari mildlvægu sam-
göngumiðstöð. Nýsjálenzkar
hersveitir nálguðust bæinn Sora.
Dagskipan
frá Kesselring.
Bandamenn hafa komizt yfir
dagskipan frá Kesselring hers-
höfðingja til hersveita hans. I
dagskipan þessari segir Kessel-
ring, að allt sé í húfi, ef banda-
menn brjóti sér leið gegnum
varnabelti Þjóðverja fyrir sunn-
an Rómaborg.
Loftárásir.
3000 flugvélar bandamanna
frá stöðvum á ítalíu fóru til á-
rása í gær. Eru meðtaldar
sprengjuflugvélar þær, sem fóru
til árása á fimm verksmiðjur í
Wienerneystadt í Ansturríki. I
þrémur þeirra er unnið að sam-
setningu Messersehmidtflugvéla.
Wellingtoriflugvélar réðust í
fyrrinótt á flugvöll í nánd við
Vínarhorg. — Flugvirki réðust i
gær á járnbrautarstöðvar í Za-
greb, höfuðborg Króatíu, en
engar orustuflugvélar voru
flugvirkjunum til verndar. Lib-
eratorflugvélar réðust á her-
flutningalestir Þjóðverja víðs-
vegar í Júgóslaviu.
Búlgarar verða að svara fyrir
kl. 12 á miðnætti næsta. Afleið-
ing þess, að Rússar slitu stjórn-
málasambandinu við Búlgara
yrði án efa styrjöld við Rússa.
Uggur mikill er í Búlgörum.
Þjóðin, eða mikill meiri hluti
hennar er fmhverfur styrjöld
við Rússa og herinn er tviskipt-
ur.
Fregn frú Istambul hermir, að
nokkurir búlgarskir herforingj-
ar séu komnir til Tyrldands á
leið til Rússlands og ætli þeir að
ganga í lið með Rússum.
öhemju fiskbirgðir
landaðar í Bretlandi
Fregn frá Billingsgate lierm-
ir, að í gær hafi verið landað
meira af fiski en nokkurn tima
áður á einum degi það sem af cr
þessu ári eða 715 smálestir, eða
þrisvar sinnum meira en undir
venj ulegum krin gumstæðum.
Mikil ánægjá er ríkjandi yfir
því hve fiskurinn var í góðu
ásigkomulagi og hve lqndun
slíks fiskmagns gekk greiðlega
Skemmda varð aðeins vart i
ýsu, sild og ál, úr skipum frá
Aherdeen og Irlandi.