Vísir - 09.06.1944, Síða 3
VISIR
í dag er síðasti söludagur í 4. flokki.
Dappdrættið.
OLÍUVÉLAR
fyrirliggjandi,
aðeins örfá stykki.
Verzlonln Guðmundur H. Þorvarðsson
Öðinsgötu 12.
Sími 4132.
Handlaugar og W.C.
með öllu tilheyrandi.
A. EINARSSON & FIINK
Simi 3982.
2 stúlkur
vantar að Kleppjárnsreykjum nú þegar.
Uppl. í skrifstofu ríkisspítalanna.
Sími 1765.
Vatnssalerni. — Handlaugar.
Þeir, sem eiga pantanir hjá oss á ofangreindum
vörum, vitji þeirra sem fyrst.
1ÞORLÁKSSON 0 NORDMANN
Bankastræti 11. — Sími 1280.
Aug/ýsingar
sem birtast eiga í laugardagsblöðunum í
sumar, verða að vera komnar til blaðsins
fyrir kl. 7 á föstudagskvöldum, vegna þess,
að vinna í prentsmiðjunni hættir kl. 12 á
laugardögum.
DAGBLAÐIÐ VISIR.
Mismunadrif
eða drif complett í Hudson, smíðaðan 1939, óskast.
Upplýsingar í JÖTUNN H.F.
Sími 5761.
Adolf Galland.
Eins og kunnugt er, hefir
komið til mikilla árekstra milli
Hitlers og nazistaflokksins
annarsvegar og herstjórnar-
snillinga Þjóðverja hinsvegar,
og munu þessi átök hafa hafizt
nokkuru fyrir styrjöldina. Er
flestum í minni liinn sviplegi
dauðdagi von Fritz hershöfð-
ingja meðan á Póllandsstríðinu
stóð, en áður liafði von Blom-
berg fallið í ónáð. Nú heyrast
margir fremstu hershöfðingj-
ar Þjóðverja ekki lengur
nefndir á nafn, svo sem von
Brauchitsch, von List, von
Bock, og Ráder admiráll er
einnig fallinn í ónáð.
í desember 1942 var röðin
komin að flughernum, og féll
þá Löhr flughershöfðingi úr
sessi, en hann hafði verið yfir-
maður orustuflughersins. Við
embætti hans tók maður um
þrítugt, Adolf Galland, sem þá
var raunar orðinn lieimsfrægur
fyrir flugafrek sín og um sumt
illræmdur, því að liann liafði
verið foringi Kondor-flugliers-
ins, sem Þjóðverjar sendu til
Spánar á sinum tíma til að afla
verklegrar reynslu i flughern-
aði.
Adolf Galland er maður svo
ungur, að telja má að liann sé
liinn eini af meiriháttar herfor-
ingjum Þjóðverja, sem alizt
hefir upp við nazismann. Á
fyrstu árunum eftir heims-
styrjöldina mátti Þýzkaland
ekki hafa neinn flugher, og var
þá af hálfu herforingjaráðsins
gripið til þess ráðs að þjálfa
unga og efnilega flugmenn i
leyni. Eihn hinn efnilegasti og
duglegasti þessara manna var
Galland. Annar var Mölders
majór, sem fórst í flugslysi eft-
ir að hafa skotið niður á annað
hundrað óvinaflugvéla. Þegar
Galland hvarf frá virkum flug-
aðgerðum til flugstjórnar, var
hann miklu meiri methafi en
Mölders, og taldist þá hafa skot-
ið niður 135 flugvélar, en þá
voru einnig taldar þær vélar, er
hann skaut niður á Spáni. Það
lætur því að líkum, að hann
hafði frábæra reynslu til brunns
að bera, þegar liann tók til að
kenna listir sínar og útbúa flug-
stjórnarkerfi, sem þykir liafa
reynzt mjög vel.
Adolf Galland er snyrtimenni
í klæðahurði og fríður sýnum.
Til marks um ást hans á for-
ingja sínum er það haft að liann
hafi látið sér vaxa samskonar
yfirvararskegg. Kveðst liann
einnig vera mjög stoltur af að
bera sama skírnarnafn og Adolf
Hitler.
Samkvæmt þeim undirhún-
ingi, sem Galland hefir fengið
undir starf sitt, og þeim fá-
dæma dugnaði, sem hann hefir
sýnt, er ekki að efa, að hann er
„réttur maður á réttum stað“,
en hlutverk hans hefir síðan í
desember 1942 verið það að
skipuleggja varnir Þýzkalands
og Vesturevrópu gegn loftárás-
um bandamanna. En úr því
innrás er hafin, verður starfs-
svið hans miklu víðtækara.
Kemur nú til hans kasta að sjá
landhernum fyrir nægilegri
flugvernd og leggja til steypi-
flugvélar að granda innrásar-
liði bandamanna. Undir starfi
hans er mikið komið um afdrif
innrásarinnar.
En það verður sennilega
ennþá meira undir því komið,
að hann fái til umráða nægan
flugstyrk til að sinna því marg-
háttaða verki, sem nú bíður úr-
lausnar hans.
Taka Rómar:
íiionir eiio ð
Djlverja
Nú reynir á hjálparstarf-
semi bandamann.
Mesti kosturinn fyrir banda-
menn við töku Rómaborgar er
að þeir ná á vald sitt fjórum
stórum flugvöllum við borgina.
Þessir flugvellir eru svo stór-
ir, að frá þeim geta flogið allra
stærstu flugvélar, sem banda-
menn hafa yfir að ráða. Auðvit-
að mun líða nokkur tími þangað
til þessir flugvellir verða not-
hæfir, því að bæði hafa banda-
menn unnið tjón á þeim, svo og
hafa Þjóðverjar unnið þau spell-
virki, sem þeir máttu, áður en
þeir urðu að flýja frá þemi.
Hinar stóru flugvélar banda-
manna hafa hingað til þurft að
hafast við á flugvöllunum hjá
Foggia, en þær eru mun sunnar
en flugvellirnir við Róm og hafa
bandamenn þvi bætt aðstöðu
sína til árása á Norður-Ítalíu og
Þýzkalandi til muna.
Bandamenn halda áfram að
reka flótta Þjóðverja, en aðstað-
an er mjög óljós, ekki sízt af
því, að fregnir frá öðrum vig-
stöðvum en þeim við Ermar-
sund, sitja nú alveg á liakanum
af ksiljanlegum ástæðum.
Bezt að anglfsa I Tfsl
Ferðir til Þingvalla þjóðhátíðardagana
verða þannig:
Frá Reykjavik:
16. júní kl. 9, 13, 17 og 21.
17. júní kl. 7.30 og 10.30,
Frá Þingvöllum:
17. júní kl. 18, 22 og kl. 1 (um nóttina),
18. júní kl. 13, 17 og kl. 21.
Farseðlar verða seldir í Iðnskólanum frá 10.—14. júní
daglega kl. 10—12 og 13—19, á kr. 40.00 sætið báðar
leiðir. Lagt verður af stað frá Fríkirkjuvegi. Farseðlarnir
gilda aðeins fyrir þá ferð, sem þeir hljóða á.
t Nauðsynlegt er, að almenningur 'sýni lipurð við ferm-
ingu bifreiðanna. Að Kópar, sem ekki komast í sömu bif-
reiðina, skipti sér, og sömuleiðis, að fólk hafí farseðla
sína við hendina og afhendi þá bifreiðarstjóra viðkomandi
bifreiðar.
ÞJÓÐHÁTIÐARNEFNDIN.
ZlngÉLvify
vantar til að bera VÍSI nm
Kleppisholt
Dagrblaðið VISIK
Orðsending.
Sá, sem hefir gróðursett blóm á leiði Þorsteins heitins
Jóhannssonar, Nýlendugötu 22, er góðfúslega beðinn
að tala við Hannes Björnsson, pósthúsinu.
Leigugarðar.
Af sérstökum ástæðum eru nokkrir matjurta-
garðar lausir til leigu Kjá bænum.
Þeir, sem enn eiga eftir útsæði og áburð, ættu
því að snúa sér sem fyrst til ræktunarráðunauts
bæjarins, Austurstræti 10. Viðtalstími kl. 1—3
e. h., nema laugardaga.
BÆJARVERKFRÆÐINGUR.
Þökkum hjartanlega auðsýnda hluttekningu við frá-
fall og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa,
Jóns Ólafssonar.
Katrín Hallgrímsdóttir, Steinunn Eyvindsdóttir,
Ólafur H. Jónsson, Þorlákur Jónsson,
og börnin.
ISLENDINGAR!
wfc
'iZ) '
.i
'jq’J' .fúlji
-')
M
í .
:n i
Nú, þegar alvarlegustu tímamót í sögu íslenzku þjóðarinnar fara í hönd, er ekkert, sem gefur þeim raunhæfara gildi
en minningin um þann mann, er háði alla sína lífsbaráttu henni til handa, og lagði hornstein að mikilvægasta þætti okkar
þjóðfélags, — sjálfstæðinu. Og henm verður bezt við haldið með góðn mynd af manmnum, JÓNI SIGURÐSSYNI. —
Hún fæst í vandaðri útgáfu hjá okkur og kostar aðeins kr. 10.
Bókaverzlun Guðmundar Gamalíelssonar, Lækjargötn 6a — Sími 3263