Vísir - 12.07.1944, Blaðsíða 3
VISIR
«
isleg drög að slíku verld, þótt
ekki hefði hann hátt um það.
En efalaust er, að einmitt á
þessu sviði hefði hann getað
skapað merkileg listaverlc með
sínum sérstæðu gáfum, ef hon-
um hefði enzt aldur til.
Á unga aldri stundaði Emil
Thoroddsen einnig málaralist
og komst furðuvei niður í henni
með stuttu háskólanámi, en
hann hafði föndrað við mynd-
list frá æskuárum.
Um margra ára skeið var
hann listdómari og ritaði jöfn-
um höndum um myndhst og
tónlist. Hann var oft óvæginn
í dómmn, en hann mátti vel
við því, að gera háar kröfur,
því að í sínu starfi var hann
hinn vandvirkasti og aldrei
fyllilega ánægður með eigin af-
köst. — Þrátt fyrir óvægilega
dóma var hann mjög vinsæll
meðal listamanna, enda var
hann gæddur þeim persónulegu
töfrum, sem kallaðir eru
„charme“, og um góðvild hans
og hreinskihii efaðist enginn.
Hann var í mörg ár fastur
starfsmaður Ríkisútvarpsins og
reyndist þar hinn hugkvæmasti
og nýtasti starfsmaður, leikinn
í hinni sérstöku tækni útvarps
og afburða fyrirlesari og þulur,
þótt það væru aukastörf hans.
Kom þar fram hið sérkennilega
i fari hans, að honum veittist
mjög létt að semja sig að nýj-
um kringumstæðum og inna af
hendi vandasöm störf af með-
fæddri lipurð og smekkvísi.
Hér hefir aðeins verið minnzt
á helztu þættina í lífi og starfi
Emils Thoroddsens, og fer ekki
hjá því að öllum, sem til hans
þekktu, finnist þjóðin mun fá-
tækari við fráfall hans. Þau
verk, sem hann hafði af hendi
lokið, verða að vísu ekki frá
oss tekin. En hitt var miklu
meira, sem hann átti ógert, því
að hann lézt mjög um aldur
fram, þegar hann hafði nýlcga
varpað frá sér öðrum skyldu-
störfum en þeim, að helga sig
eingöngu þeim listum, sem
hæfileikum hans hentuðu bezt.
Hann var flestum mönnum
gáfaðri og frjórri. En hann átti
alla ævi við vanheilsu að stríða.
I vöggugjöf hlaut hann rika
hæfileika, en lífið rétti honum
beizkan bikar. Það var hetju-
saga hans, hvernig hann sigraði
i kapphlaupinu við dauðann og
lét eftir sig ævistarf, sem lengi
mun halda nafni hans á lofti.
En ógleymanlegastur verður
hann þó þeim, sem höfðu af
honum persónuleg kynni. 1
félagsskap hans leið stundin
fljótt, en skildi þó eftir ríkari
minningar og merkilegri en
tvær stundir með öðrum.
Bjarni Guðmundsson.
•
Emil Thoroddsen tónskáld var
fæddur 16. júní 1898 í Keflavík.
Sonur merkishjónanna Þórðar J.
Thoroddsens læknis og konu hans
Önnu Pétursdóttur Gudjohnsen.
Hann lauk stúdentsprófi við
Menntaskólann í Reykjavík árið
1917, en heimspekiprófi við Kaup-
mannahafnarháskóla árið 1918.
Nam einnig listasögu, málaralist og
hljómlist við sama skóla 1917-1920.
Fékkst síðan eingöngu við hljóm-
listarnám í Leipzig og Dresden
1921—1925. Emil var hljómsveit-
arstjóri Leikfélagsins 1925—'30.
Var í undirbúningsefnd tónlistar
fyrir Alþingishátíðina 1930. Hefir
verið aðalpíanóleikari útvarpsins
frá 1930, en lét af því starfi fyrir
fáeinum ármÚ. Emil var með
fremstu tónskáldum íslendinga.
Hann var kvæntur Áslaugu Árna-
dóttur.
2 afgreiðslo-
stiílknr
vantar á
Heitt Kalt
íþróttaf erðir Ármanns
og KR.
Ármenningar eru um þessar
mundir í sýningarför um Vest-
firði og hefir þeim hvarvetna
verið tekið með fádæmum vel.
S. 1. fimmutdag sýndu Ár-
menningar á Þingeyri, á föstu-
daginn á Flateyri, sunnudaginn
á héraðsmóti á Núpi í Dýrafirði,
á mánudaginn sýndu þeir á fsa-
firði og í gær á Hnífsdal.
Eru þeir allir við góða líðan
og ferðin gengur að ósltum.
Sundflokkur úr K. R. er nú á
Akureyri og er Jón Ingi Guð-
mundsson fararstjóri flokksins.
K. A. sér um dvöl flokksins á
Akureyri.
Á sunnudaginn sýndi sund-
fólkið í sundlaug bæjarins. Fór
þar m. a. fram innbyrðis keppni
i boðsundi, sundknattleik og
ýmsum öðrum sundiþróttum.
Önnur sundsýning var á mánu-
dagskvöld. í dag fara sund-
mennirnir í boði K. A. í
skemmtiferð í Vaglaskóg.
Frá Akranesi:
Mjög mikil vinna
í landL
Margir Færeyingar ráðnir á
skip frá Akranesi.
Nýlega eru 8 skip farin frá
Akranesi og munu þau öll
stunda síldveiðar í sumar.
Hefir að undanförnu verið
nokkrum erfiðleikum bundið að
fá menn á skipin, en óvenju-
mikið er nú að gera á Akra-
nesi, þvi hvort tveggja er, að
húsabyggingar eru nú með
mesta móti og bryggjusmiði
stendur þar einnig yfir. Til þess
að hæta úr þessari manneklu
Jiefir orðið að leita til Færey-
i inga, og hafa margir þeirra í'áð-
izt á sldp frá Akranesi, t. d. má
geta þess, að á einu skipi er
helmingur skipshafnarinnar
Færeyingar.
írbók frjálsíþrótta-
manua 1944 kemnr
út í dag.
I dag kemur á markaðinn hin
margeftirspurða Árbók frjáls-
íþróttamanna fyrir yfirstand-
andi ár. Er þetta önnur árbók-
in í röðinni; sú fvrsta kom út
í fyrra. Þessi bók er um 100
hls. að stærð og prýdd fjölda
ógætra rnynda. Af efni hennar
má nefna: Uppliaf frjálsra í-
þrótta á íslandi (Ól. Sveins-
son), Mótin í Reykjavík og úti
á landi 1943, Afrekaskrá ís-
lands og rabh um árangurinn í
fyrra (Sig. S. Ólafsson), Er-
lendar fréttir (Br.), Afrek ís-
lendinga erlendis (J. B.), Skrá
yfir íslandsmeistara í öllum
grdnuhi frjólsra íþróitta frá
byrjun (J. B.), Merk hlaup, Af-
reksmenn, Bæjakeppnin, Minn-
ingarorð (J. B.), Dómaranám-
skeiðið og loks skrá yfir ísl met,
Norðurlandamet og heimsmet.
Frágangur er ágætuú og virðist
hókin öll hin eigulegasta. Er
ekki að efa, að íþróttamenn
fagna útgáfu hennar. Bókin
mun verða til sölu á Allsherj-
armótinu i kvöld.
Préttatilkynning frá. milliþinga-
nefnd í skólamálum:
Milliþinganefnd í . skólamálum
heldur nú fundi hvern virkan dag,
og mun svo næstu vikur. Auk þess
skipta nefndarmenn með sér störf-
um og rannsaka nú þau svör, er
nefndinni hafa borizt varðandi hina
ýmsu skóla, svo sem t. d. barnaskóla,
gagnfræðaskóla, héraðsskóla og
menntaskóla. Svör þessi eru enn
mikils til of fá, og telur nefndin
það miður farið, ef ekki verður úr
því bætt.
Stutt og laggoti
Bernharð prins af Hollandi
hefir verið á ftalíu undanfarið
og gengið á fund páfa.
★
Stokkhólmsfregnir herma, að
undanfarna tíu daga hefir verið
sifelldur straumur lierliðs frá
Þýzlcalandi og Eistlandi til
Finnlands. Þó er ekki vitað með
neinni vissu, liversu mikið lið
hefir verið flutt þangað, en
liæstu ágizkanir eru þrjár her-
deildir. Aðrir telja þó, að ekki
muni hafa verið um meira lið
að ræða en tvær herdeildir.
Megnið af liðinu er fótgöngulið,
en auk þess er þarna um stór-
skotalið og skriðdrekasveitir að
ræða. Ilér virðist ekki um nein-
ar úrvalshersveitir að ræða.
★
Það er nú víst, að eigi færri
en ellefu menn biðu bana við
sprengingarnar í Árósum.
★
Þýzka útvarpið segir frá því,
að þegar Bandaríkjamönnum
tókst að brjótast vestur yfir
Cherbourg-skagann, hafi þýzk-
um liðssveitum þar fyrir norð-
an verið skipað að ryðjast í
gegnum víglínur handamanna
og sameinast aðalliernum. Þetta
tókst, segir þýzka útvarpið, eft-
ir fjóra daga. Voru bardagar
mjög harðir, því að þýzku sveit-
irnar brutust meira að segja i
gegnum horgir, sem voru á
valdi handamanna og tóku
fjölda fanga.
1 ★
Signr á Biak.
Bardagar eru nú að lieita má
húnir á Biak-eyju fyrir norður-
strönd Nýju-Guineu vestarlega.
Bandaríkjamenn náðu einum af
þrem flugvöllum eyjarinnar í
fyrstu lotu, en í nótt var til-
kýnnt, að hinir væri nú háðir
einnig á valdi þeirra.
Félagsdómur dæmir
verkfall ólöglegt. -
f gær dæmdi félagsdómur
mál Vinnuveitendáfélagsins, f.
h. Finnboga Guðmundssonar,
Gerðum gegu Alþýðusamhandi
íslands, fyrir liönd Verklýðs-
og sjómannafélags Gerða- og
Miðnesshrepps, út af verkfalli
i Sandgerði 27. jan. s.l.
Var Verklýðsfélagið sektáð
um kr. 200.00 og dæmt til að
greiða stefnanda kr. 1500.00 i
skaðabætur og kr. 300.001 máls-
kostnað, vegna þess, að það
átti sök á ólöglegu verlcfallí,
eða stöðvun róðrabátanna i
Sandgerði.
ST. LO.
Frh. af 1. síðu.
Bandaríkjamanna liófst, en það
gat ekki stöðvar þá.
I
Á austurhluta
vígstöðvanna.
í þríhyrningnum þar sem
Odon rennur i Orne, geisa mjög
harðir bardagar sem fyrr. Hafa
ýmsir staðir verið ýmist í hönd-
um bandamanna eða Þjóðverja.
Fyrir norðaustan Caen, þar sem
handamenn liafa liaft brúar-
stæði, siðan innrásin var gerð,
sóttu handamenn að suður-
liverfum Caen, en voru hraktir
aftur af nokkuru af því landi,
sem þeir höfðu telcið.
Horfur um beitisíld eru mjög
ískyggilegar, vegna þess að öll
íshús eru nú full af frystum
fiski og geta þess vegna eklci
tekið á móti síld til beitu.
Tilboða
er óskað í flutning, gröft og uppsetningu stólpa há-
spennulínu frá Hafnarfirði að Stapa. Utborðslýsing
og skilmálar afhent gegn 100,00 kr. skilatryggingu
á ski'ifstofu Rafmagnseftirlits ríkisins, Austurstr. 15.
Rafmagnseftirlit ríkisins, 11. júli 1944.
JAKOB GlSLASON.
Lokað
vegna sumarleyfa frá 15.—31. júlí.
Gufupressan Stjarnan
Kirkjustræti 10. ‘ g
Skeytaskipti forseta
Islands og Banda-
ríkjanna.
í tilefni ai 4: júlí. |
Forseti fslands, herra Sveinn
Björnsson, sendi lierra Franklin
D. Roosevelt, forseta Bandarikj-
anna þetta skeyti i tilefni af
þjóðhátíðardegi Bandarikjanna:
„I tilefni af sjálfstæðisdegi
Bandaríkjanna er mér ánægja
að því, að senda yður og þjóð
yðar hjartanlegar kveðjur frá
íslenzku þjóðinni og mér sjálf-
um. Vér erum allir þakklátir
yður og þjóð yðar fyrir vináttu
í garð fslands, ekki sízt í sam-
bandi við stofnun lýðveldisins.
Um leið get eg fullvissað yður
um að fslendingar meta mjög
samskiptin undanfarin 3 ár við
Ameríku, við fulltrúa yðar hér
á landi og ameríska herinn. Að
lokum sendi eg heztu óskir mín-
ar um heill og heilsu yður sjálf-
um til handa.
Sveinn Björnsson.“
Frá forseta Bandaríkjanna
barst forseta Islands þetta svar-
skeyti:
„Eg met mikils kveðjur yðar
á þjóðminningardegi sjálfstæðis
Bandarikjanna, og þakka yður
vinsamleg ummæli yðar um hið
einlæga samband, sem ríkir
milli íslenzku þjóðarinnar og
þeirra borgara þessa lands,
sem nú dvelja á fslandi. Eg er
sannfærður um að þau bönd,
er tengja lýðveldi okkar, muni
enn styrkjast á árunum eftir að
sigur hefir unnizt og sá amer-
íski her, sem nú er á fslandi,
snýr aftur liingað með endur-
minningar um alúð og gest-
risni, sem íslenzka þjóðin hefir
ávallt sýnt honum.
Franklin D. Roosevelt.”
Veiðimaður, sem hefir
háhjólaða bifreið, getur
fengið veiðirétt í Mið-
fjarðará frá 18.—28.
júlí.
Uppl. í síma, 1335.
Stúlka,
óskast í VALHÖLL á Þing-
völlum.
Upplýsingar í Hressingar-
skálanum.
Úívarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Hljómplötur : Óperulög.
20.30 Útvarpssagan (Helgi Hjörv-
ar). 21.00 Minning um Emil Thor-
oddsen: Tónleikar (plötur) : a) lög
eftir tónskáldið b) píanóleikur c)
syrpa af íslezkum þjóðlögum. 21.30
Erindi fyrir unglinga: Túnfífillinn
(Guðmundur Davíðsson. — Þulur
flytur). 21.35 Hljómplötur: Sym-
fónískir dansar.
K.R. á Akranesi.
Á sunnudaginn . kepptu tveir
flokkar K.R.-inga í dmattspyrnu á
Akranesi. i. f 1. K.R.-jnga vann
1. fl. Akurnesinga með 3 :2, en 3.
fl. Akurnesinga vann 3. fl. K.R.
með 2:0.
Hjónaefni.
í gær opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Jóhanna Þorsteinsdóttir,
Sólnesi, SuSurlandsbraut og Sigurð-
ur Jónsson verkam., Iðnskólanum.
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Guðrún Sigurjónsdóttir,
Smáragötu 2 og Óskar Ólafsson,
Kárastíg 10.
Skemmtifélag' góðtemplara
auglýsir í blöðunum, að hægt sé
að fá veitingar í Listamanaskálan-
um daglega frá kl. 2,30—6 e. h.
Selt verður þar kaffi og aðrar síð-
degis veitingar.
Allsherjarmót t.S.Í,
Bimr Ifisebf seíur
tllÖ ESlHÍSIlL
K.R. liæst að
stigatölu,
Allsherjarmót f. S. f. hélt
áfram á íþróttavellirium i gær
kveldi. Veður var gott og mjög
margt áhorfenda. Á mótinu i
gærkveldi gerðist það, að Gunn-
ar Huseby úr K.R. setti tvö ís-
landsmet, bæði í kúIuvarpL
Gunnar Huseby kastar kúlunnL
Ivastaði liann kúlunni meS-
liægri hendi 15,50 m., en með»
báðumjiöndum 26.78 m. og eru.
þetta hvorttveggja ný íslenzfe
met. Þá setti Óskar Jónsson úr
Í.R. nýtt drengjamet í 1500 m.
hlaupi.
Að öðru leyti urðu urslit sem
liér segir:
200 m. hlaup:
1. Finnbjörn Þorvaldsson f.
R. '23,4 sek.
2. Oliver Steinn F.H. 23,8 sek.
1500 m. hlaup:
l. Hörður Hafliðason Á. 4,16,6
mín.
2. Sigurgeir Ársælsson Á.
4,16,8 mín.
Þriðji var Óskar Jónsson úr
Í.R. Hljóp Iiann vegalengdina
á 4,17,4 mín. og er það nýti;
drengjamet.
110 m. ctrindahlaupt
1. Skúli Guðmundsson K.R.
17,0 sek.
2. Brynjólfu Jónsson Iv.R. 18,0
sek. — Timi Skiila er sami og
fslandsmet Ólafs Guðmunds-
sonar K.R.
Kúluvarp:
1. Gunnar Huseby K.R. 15,50,
m.
2. Jóel Kr. Sigurðsson fJK.
/13,65 m. — Þetta er íslandsmet
lijá Gunnari eins og áður var
sagt. Fyrra metið, 15,32 m. setti
hann sjálfur á 17. júní-mótinu.
Hdstökk:
1. Skúli Guðmundsson K.R..
1,92 m.
2. Oliver Steinn F.H. 1,75 m;.
10 km. ganga:
1. Sverrir Magnússon Á.
61,35,6 min.
2. Steingrímur Atlason F.Hl.
64,21,2 mín.
K.R. er nú hæst að stigatölu;.
hefir 64 stig, Í.R. hefir 53 stig,
F.H. 41 og Ármann 30 stig.
í kvöld heldur Allsherjar-
mótið áfram á íþróttavellinum
og hefst kl. 8,30. Þá verður
keppt i þessum íþróttagrein-
um: 4x100 m. boðhlaupi, spjót-
kasti, 400 m. hlaupi, þrístökki,
500 m. hlaupi og sleggjukasti.
EISENHOWER.
Frh. af 1. siðu.
kröftum sínum neins staðar til
sóknar.
Að vísu er ekki með öllu úti-
lokað, að siðferðisþrek Þjóð-
verja hresti einhvers staðar,
sagði hann ennfremur, en það
væri hin mesta léttúð, að búast
við sigri á þeim forsendum.
Þvert á móti verði að gera ráð
fyrir því, að bandamenn muni
eiga í hörðum bardögum á öll-
um vígstöðvum álfunnar.