Vísir - 13.07.1944, Side 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson 1
Hersteinn Pálsson
Skrifstofun
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn 1 Skmti i
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri Afgreiðsla 5 linur
34. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 13. júlí 1944.
155. tbl
St. Lo og
Lessay falla
þá og þegar
Bandaríkjamenn í Normandi
virðast nú vera í þann veginn að
taka tvo bæi, sem eru hernaðar-
lega mikilvægir, vegna þess að
þeir eru miðstöðvar í samgöngu-
kerfinu í þessum landshluta.
Þessir bæir eru St. Lo, þar sem
níu járnbrautir og þjóðvegir
mætast, og Lessay.
Bandaríkjamenn sóttu fram í
gær beggja vegna vð St. Lo og
voru þá að komast í aðstöðu til
að liefja lokaáhlaup á bæinn.
Sóttu þeir að bajnum á tvo vegu
og áttu ófarna þangað aðeins
2—3 kílómetra. — Hersveitirn-
ar sem tóku La Haye du Puits
fyrir skemmstu áttu ófarna í
gærkveldi 3 kílómetra til Lessay.
Bandaríkjamenn sækja nú
fram á 80 kilómetra viglínu.
Þeir eyðilögðu yfir 20 skrið-
dreka fyrir Bandaríkjamönnum
í gær — af um 35 skriðdrekum,
sem Þjóðverjar sendu gegn
þeim. Er það stærsti skriðdreka-
hópur Þjóðverja, sem Banda-
ríkjamenn í Normandi liafa átt
í höggi við. — Undanfarna daga
hafa verið eyðilagðir fyrir Þjóð-
verjum i Normandi um 120
skriðdrekar.
Bretar og Kanadamenn unnu
dálítið á í gær á sínum hluta
vígstöðvanna, og urðu þar ekki
teljandi breytingar. — „Hæð
112“ er áfram á valdi þeirra.
Orustan um
Livorno
Castiglioncello
hertekinn í gær.
David Brown, fréttaritari
Reuters, símaði í gær frá ítaliu,
að hersveitir úr finnnta hernum
sem höfðu létta skriðdreka til
umráða, liefði tekið hafnarbæ-
inn Castiglioncello, sem er 18—
19 ldlómetra fyrir sunnan
Livorno.
Bardagar liafa verið geisi
harðir að undanförnu fyrir
sunnan Livorno og liafa frétta-
ritarar likt þeim við bardagana
við Cassino, þar sem lengst var
tafið fyrir bandamönnum á leið
Jreirra til Rómaborgar. Ekki
bárust fregnir í gærkveldi um
hersveitirnar, sem eru að reyna
að komast norður fyrir Livorno.
Inni í landi hafa bandamenn
ekki sótt hratt fram, enda eru
varnarskilyrði víða góð og mót-
spyrna Þjóðverja öflugri en liún
hefir lengi verið. Liggur nú mik-
ið við fyrir Þjóðverja, að tefja
fyrir bandamönnum, meðan
þeir treysta varnir sínar á Pisa-^
Flórentz-Rimini víglínunni.
Pólsku hersveitirnar fyrir
sunnan Ancona hafa tekið 1700
fanga að undanförnu. og mikið
lierfang, m. a. um 80 fallbyssur.
Bergsaglieri-berflokkar (ítalsk-
ir) berjast með bandamönnum
á Odriahafsvígstöðvunum.
Hersveitir úr fimmta hernum
eru nú 12 kilómetra frá Livorno.
— Stórskotalið heldur uppi
skotbríð á liöfnina i Ancona.
Amerískar flugvélar hafa á
einu misseri skotið niður eða
eyðilagt á jörðu 8000 þýzkar
flugvélar. Ráðisl var á 89 flug-
vélar á saina tíma og 67 oliu-
vinnslustöðvar.
Sprengjum varp-
að á 1700 járn-
brautarvagna.
í fyrradag gerðu sprengju-
flugvélar bandamanna frá
stöðvum á Ítalíu árás á bæinn
Alessandria, en þetla er mikil-
vægur járnbrautarbær í Torino-
Genua-Milano samgöngukerf-
inu. Voru það flugvélar af með-
alstærð, sem árásina gerðu.
Þegar árásin var gerð voru 1700
járnbrautarvagnar og eimreiðir
í stöðinni. Varpað var niður
200 smálestum af sprengjum og
var öll stöðin brátt hulin revk
og er talið, að ægilegt tjón liafi
hlotist af árásinni. Einnig varð
skotfæraverksmiðja skammt frá
fyrir sprengjum og sprakk hún
i loft upp.
Óeirðir á Norður-
Italíu.
Fregnir frá Svisslandi herma,
að stöðugar verkfallsóeirðir séu
í helztu borgum Norður-Ítalíu,
einkum Genúa, Milano og Tor- |
ino. Færa frelsisvinir sig æ !
meira upp á skaftið, eftir því |
sem bersveitir bandamanna
nálgast meira. Þjóðverjar bafa
neyðst til þess að senda aukinn
herafla til fyrrnefndra borga.
I borginni Verona réðust
frelsisvinir á fangelsi Þjóðverja ]
og hleyptu út föngunum.
Allsherjarmót Í.S.t.
Eitt met sett í
gærkveldi.
Stutt og Iaggott
Henry Stimson hermálaráð-
herra Bandaríkjanna, sem að
undanförnu liefir vei-ið á Ítalíu,
er nú kominn til Englands til
þess að ræða við Eisenhower og
aðra herleiðtoga og stjórnmála-
menn. Hann mun og lieimsækja
herstöðvar Bandaríkjamanna á
Bretlandseyjum.
•
Yfir 1200 amerísk flugvirki
og Liberatorflugvélar réðust í
gær á Munchen. Orustuflugvél-
ar voru þeim til verndar. Amer-
ískar sprengjuflugvélar frá
Bretlandi réðust einnig á Miin-
chen. Orustuflugvélar voru
þeim til verndar. Amerískar
sprengjuflugvélar frá Bret-
landi réðust einnig á Miinchen í
fyrradag. 26 sprengjuflugvélar
komu ekki aftur.
Mótinu lýkur í kvöld.
Allsherjarmót l.S.I. hélt á-
fram á Iþróttavellinum í gær-
kvcldi. Þar gerðist það m.a., að
Kjartan Jóhannssoun úr Í.R.
setti nýtt met í 400 m. hlaupi.
Hljóp hann vegalengdina á 52,3
sek. Gamla metið setti Sveinn
Ingvarsson, K.R. 1938. Var það
52,6 sek.
Orslit urðu að öðru leyti sem
hér segir:
400 m. hlaup:
1. Kjartan Jóhannsson, I.R.
52,3 sek. 2. Brynjólfur Ingólfs-
son, K.R. 54,0 sck.
5000 m. hlaup:
1. Öskar Jónsson, I.R. 17:00,0
mín. 2. Indriði Jónsson, K.R.
17:06,0 mín.
4x100 m. boðhlaup:
1. A-sveit K.R. 46,8 sek. 2. A-
sveit I.R. 46,8 sek.
Þrístökk:
1. Skúli Guðmundsson, K.R.
13,64 m., 2. Oddur Helgason, Á.
13,31 m.
Spjótkast:
1. Jóel Sigurðsson, I.R. 54,29
m. 2. Jón Hjartar, K.R. 51,61 m.
Sleggjukast:
1. Gunnar Huseby, K.R. 37,86
m. 2. Vilhjálmru Guðmunds-
son, K.R. 36,65.
K.R. er nú langhæst að stiga-
tölu, hefir 117 stig. Næst er l.R.
með 87 stig, þá F.H. 42 stig og
loks Ármann með 38 stig.
Allsherjarmótinu lýkur í
kvöld og verður þá keppt í
10.000 m. hlaupi og fimmtar-
þraut.
45.000 innikróaðir japanskir
hermenn á Wevaksvæðinu á
norðurströnd Nýju-Guineu eru
nú taldir vera i þann veginn að
gera tilraun til þess að rjúfa
bring þann, sem bandamenn
bafa slegið um þá.
Mörg flugskeyti Þióðverja
voru skotin niður yfjr Suður-
Englandi í gær. Nokkurt tjón
varð af í'iugskeytaárásum, m. a.
í London. — Brezku konungs-
hjónin voru vitni að því i gær,
er þau voru stödd í loftvarna-
stöð, að flugskeyti var skotið
niður. I nótt varð hvorki flug-
véla eða flugskeyta Þjóðverja
vart yfi>- Englandi.
Rússar hefja nýja sókn
til Eystrasaltsríkj anna
Eftir loftárás á franskan flugvöll.
Mynd. þessi var tekin eftir loftárás á Hirson-flugvöllinn
í Frakklandi. Miklar skemmdir urðu á vagnabvrgjum og eim-
reiðum
306% hækkun á
byggingarkostnaði.
I nýútkomnum bagtíðindum
segir frá byggingarkostnaði
íbúðarhúsa í sveitum á síðasta
ári.
Teiknistofa landbúnaðarins
liefir reiknað lit byggingar-
kostnað þeirra íbúðarliúsa úr
steinsteypu, sem reist hafa verið
á hennar vegum frá 1. maí 1943
— 1. maí 1944.
Er hér miðað við að húsin séu
7—8 metrar, ein liæð og kjallari,
með 3 lierbergjum, eldhúsi og
forstofu á hæðinni, en snyrti-
lierbergi og geymslu i kjallara.
Reyndist kostnaður við bygg-
iligu slík'ra liúsa kr. 40.580 kr.
Er það 23% liækkun frá árinu
áður, en tæpl. 30% liækkun frá
1938— 39. Eftirfarandi yfirlit
sýnir hækkun byggingarkostn-
aðarins árlega síðan fyrir stríð:
1‘938—-39 .......... 10.000 kr.
1939— 4§.......... 12.500
1940— 41 ......... 17.500 —
1941— 42 ......... 19.975 —
1942— 43 ......... 32.875 -
1943— 44 ......... 40.580
Herriot látinn.
Þjóðverjar hafa birt fregnir
um það, að Edouard Herriot,
franski stjórnmálamaðurinn
víðkunni, sé látinn. Hann var 72
ára. — Herriot var þrívegis for-
sætisráðherra og einna kunnast-
ur allra róttækra franska stjórn-
málamanna á siðustu áratugum.
Hann var eindiægið þeirrar
skoðunar, að Frakkar æltu að
halda áfram styrjöldinni frá ný-
lendunum, eftir ósigrana beima
í Frakklandi. Yar hann harð-
snúinn andstæðingur Petains og
Lavals, og Þjóðverjar litu Iiann
illu auga, og eitt sinn voru bii t-
ar fregnir um, að þeir liefðu
flutt bann til Þýzkalands.
Myndin sýnir herdeild, sem
yfir á eina í Norður-Burma. Ei
í eru amerískir, brezkir, ldnver
u Japanir þarna á næstu grösum.
'skir og innfæddir hermenn, vaða
Árás á Mnnchen
f þnðja sinn á
þremur áögum.
Þýzka útvarpið skýrði frá
því nokkru fyrir hádegi, að
ameriskar flugvélar hefðu
gert mikla árás á Miincben
árdegis í dag. — Er þetta
þriðja stórárásin á Múnchen
á þremur dögum.
Lík Sigríðar Jóns
dóttir finnst.
IÁk stúlkunnar úr Hafnar-
firði, Sigríðar Jónsdóttur, sem
hvarf þar fyrir noklcurum dög-
um, fannst í Hafnarfjarðar-
höfn í gærdag.
Strax eftir að stúlkan hvarf
fannst kápa hénnar ú einni
bryggjunni i Ilafnarfirði, og
gátu menn sér þess til, að hún
myndi liafa farið þar fram af
og drukknað. Var kafari feng-
inn til að leita þar, en leitin bar
ekki árangur, mest vegna þess,
bve aðstaða öll var erfið, mik-
íð af vörum, rusli og leðju i
botninum umhverfis bryggj-
una.
I gær fannst líkið á floti á
þessum sömu slóðum og var
það há orðið allmikið skcmmt.
Sjrtriður heitin var 21 árs að
aldri o" var til heimilis á Hverf-
isgötu 41 í Hafnarfirði.
Taka iooo bæi
og þorp.
^talin birti nýja dagskipan
í gærkveldi og tilkynnti,
að Rússar hefðu byrjað nýja
sókn í áttina til Eystrasalts.
Það er annar baltneski her-
inn, sem hóf sókn þessa og
rauf varnir Þjóðverja á 144
kílómetra víglínu og sótti
fram yfir 33 kílómetra á
tveimur dögum og tók 1000
bæi og þorp.
Meðal helztu bæja, er teknir
voru, er jámbrautarbærinn
Idritza, en um hann liggur járn-
brautin frá Pskov til Polotsk, en
í Idritza sker hún járnbrautina,
sem liggur til hafnarborgárinn-
ar Riga við Eystrasalt.
Þjóðverjar minntust lítið
sem ekkert á hina nýju, miklu
sókn Rússa, í fregnum sínum
i gærkveldi. Þeir drápu aðeins
á það, að mikið væri barizt á
þessum slóðum.
Þjóðverjar skýrðu frá því í
gær, að barizt væri af kappi
fyrir austan Alytus, sem er
bær í Litháen. Þeir tóku að
vísu ekki fram, lfversu langt
fyrir austan þennan bbe barizt
væri, en Rússar hafa ekki
miimzt á bardaga svo vestar-
lega. Frá Alytus eru tæplega
80 kílómetrar til landamæra
Austur-Prússlands.
Af fregnum Þjóðverja í gær
er ljóst, að mjög er farið að -
dragá lir vörn setuliðs þeirra
í Vilna, þótt það hafi fengið
allmikinn liðsauka. Geta Þjóð-
verjar aðeins um bardaga í
vesturhverfum borgarinnar.
Kemur það heim við fregnir
Rússa. Virðist augljóst, að úr-
slitanna i Vilna sé skammt að
bíða. Hersveitir Rússa eru
komnar fram hjá Vilna læggja
vegna, og stefnir önnur fylk-
ingin til Kaunas, cn hin suð-
vestur á bóginn í áttina til Var-
sjá. Fyrir austan Grodno eru
Þjóðverjar á undanhaldi og
einnig fvrir vestan Barono-
vichi.
Brezkur útvarpsfyrirlesari
sagði í gærkveldi, að það væri
augljóst af því, hversu margir
þýzkir hershöfðingjar hefðu
fallið eða gefizt upp á austur-
vígstöðvunum seinustu vikur,
að tveir þýzkir herir að
minnsta kosti hefðu goldið svo
mikið afhroð í bardögum, að
þeir mættu heita gersigraðir.
1 fregnum frá Svíþjóð segir,
að finnsk skip leiti nú unn-
vörpum hafna i Sviþjóð, og er
þess til getið, að finnskir skipa-
eigendur séu að nota seinasta
tækifærið sem býðst til að
forða skipunum, en það, sem
þeir óttast, er, að Þjóðverjar
taki þau og noti til herflutn-
inga frá Eystrasaltsrikjunum.
I fregnum í morgun var frá
því skýrj, að Rússar hefðu enn
tekið nolckra bæi um 100 kíló-
metra frá landamærum Austur-
Prússlands.
Seinustu fregnir frá Rúss-
landi herma, að Rússar eigi
ófarna aðeins 55 kílómetra
að landamærum Austur-
Prússlands.