Vísir - 22.07.1944, Side 3

Vísir - 22.07.1944, Side 3
VISIR Útlit og þrifnaður bæjarins. Bolli TKoroddsen bæj arverkfræðingur boðaði blaðamenn á fund sinn nýlega og skýrði þeim frá ýmsum viðfangsefn- um, sem skrifstofur bæjarverkfræðings hefðu til meðferðar. Eru þau viðfangsefni ærið margvísleg og hefir bæjarverk- fræðingur og starfslið hans í mörg horn að líta, t. d. varð- andi þrifnað í bænum, sorphreinsun, útlit tjarnarinnar, við- gerðir og viðhald gatna, gangstéttir, nýlagningu og malbik- un gatna o. m. fl. Um þessi atriði ræddi bæjarverkfræðing- ur aðallega við blaðamenn og fer hér á eftir útdráttur úr skýrslu hans um þessi efni.. Þrifnaðurinn. Bærinn er nú hættnr að nota hestvagnana við götuhreinsun- ina. í stað þeirra komnir bilar. Unnið verður að því að halda hænum sem hreinustum á þeim stöðum, sem við eigum að sjá um, götum og torgum. Yonandi koma þá lóðaeigend- ur og leigjendur á eftir. í samráði við lögregluna er verið að koma upp vinnuflokki sem losa á iDæinn við ýmsa ó- skilamuni, sem liggja nú á göt- um úti. Er hörmulegt að sjá hvernig verðmæti, skilin eftir á almannafæri, liafa eyðilagzt, vegna þess að eigendurnir hafa ekkert hirt um þau. Sem dæmi má nefna verðmæta ófáanlega járnhita, stór tréð báta, vélar og önnur áhöld til ýmissa liluta. Verðmætu hlutirnar verða fluttir á nýtt svæði, sem lög- réglan hefir fengið til umráða inni við Elliðaárvog, hinu verð- ur hent. Nú er verið að ljúka við við- geðir á lóðum manna vegna skemmda eftir hitaveituna. GöturykiÖ liefir verið og er ein plága fyrir Reykjavík. Með- an göturnar eru í því ástandi sem nú er, er eina ráðið að hleyta þær nógu oft með sjó, þegar þurrt er. Bærinn hefir átt einn lítinn vatnsbíl, sem hef- ir verið látinn ganga eins og mikið og hægt hefir verið. Reynt hefir verið að fá full- kominn vökvunartæki í Amer- iku, en það ekki tekizt. Yar þá liorfið að því ráði að láta smíða tæki hér, og á næstunni verða liér 3 bílar til götuvökvunar. Þau tvö, sem við bætast taka tvö til þrefalt meira af sjó en gamli bíllinn, og ætti það að ver<5a einhver úrlausn í bili. Sorphreinsunin. Hún er mesta vandamál fyr- ir Iiæinn. í sumar hefir verið hreiiisað dag og nótt, og við nætuhreinsunina unnið ungir stúdentar, sem buðu mér vinnu í vor. Hafa þeir staðið sig prýði- lega. Inni við Viðeyjarsund er verið að byggja tilraunastöð til rannsóknar á sorpi, sorter- ingar, brennslu gerjunar o. fl. Nýlega er búið að loka sorp- haugunum fyrir óviðkomandi. Tekur þá vonandi fyrir þann Ijóta sið hjá fólki að ganga á haugana, tína þar einskis nýtt rusl, úr sem hvergi er geymsla fyrir nema á almannafæri. — iSóðaskapurinn vestast í bæn- um er mikið þessari tínslu að kenna. Tjörnin. Því miður verður ekki hæg't að lagfæra tjarnarbakkana og tjörnina í sumar. Göturnar heimta það vinuuafl, sem við liöfum til umráða. Þær tillögur sem fram hafa komið, svo sem að steypa tjanarhotninn næst bökkunum eða lagfæra, verða teknar til athugunar á teikni- stofum okkar áður en fullráðið verður hvaðj gera skal. GÖTURNAR. Eins og menn vita hefir um- ferðin um vegi og götur hæjar- ins margfaldazt síðastliðin ár. Bæði hefir farartækjum bæjar- búa fjölgað, svo bætist við hin mikla umferð hernaðarfarar- tækja setuliðanna. Þá hefir hitaveitan sett merki sín, á göt- urnar. Menn sjá því hvað mætt hefir á vegum og götum síðustu á(rin. Auk þess hefir vefrar akstur þungra farartækja farið illa með þær, keðjurnar átt sinn hluta í því. . i Viðgerðir og viðlxald. Tökum fyrst akbrautirnar; hægt er að segja að þær séu þrennskonar: malarhornar, púkkaðar og' malarbornar og svo malbikaðar. — Viðhald ttveggja fyrstu tegundanna er: bfaníburður með þjöppun og svo heflun. Bærinn hefir und- anfarandi ár eytt miklu fé i ofaníburð og' er nú nær ein- göngu notaður rauðamelur, hefir liann reynst bezt, en tek- ur tima að þjappast. Mikið hef- ir verið kvartað undan honum, sérstaklega fyrst eftir að hann er kominn i götuna og er það skiljanlegt. Hefhm liefir verið framkvæmd el'tir því, sem unnt liefir verið, og þjöppun einnig, en skýringar á þvi sem miður hefir farið í þessu fást síðar í greininni erfiðleikar. Malbik- uðu akbrautunum þarf að halda við með svokallaðri yfir- bikun, en það er slitlag, sem helzt þarf að nota í asfalt og sand, en fáist það ekki, þá með tjöru í slað þess. Þegar slitlagið er uppslitið, fer undirbygging- in sjálf að eyðileggjast og er þá allt í voða. Kannast Reyk- víkingar þannig vel við up- étnaiygötur. Undanfarandi ár höfum við eingöngu orðið að notast við tjöru í slitlag', asfalt verið ófáanlegt. Þær viðgerðir, sem nú er ver- ið að framkvæma á götum bæj- arins og byrjað var á i fyrra, eftir því sem hitaveitufram- kvæmdir leyfðu eru í því fólgnar að fjdla hitaveiturenn- ur, brjóta upp verstu göturnar og snúa malbikuninni og setja á yfirlag, slillag er sumstaðar tsett, en ekki nándar nærri á eins mörgum stöðum og þyrfti; undirbyggingin verður að 'ganga fjrrir. Gangstéttirnar. Óhernju verki hefir verið eytt í það, aðallega í fvrrasumar, að lagfæra gangstéttarkantana. Hitaveiturennurnar hafa skekkt og fellt þá eins og mönnum er kunnugt. Mikið var unnið að hellulagningu í 'fyrra og nú, en þannig eru gangstéttir bæjarins hugsaðar í framtíðinni. Ekki liefir verið ihægt 'að helluleggja eins og þurft hefði og því orðið að bera ofan i í staðinn. Salli er góður í gangstéttir, þegar hann er farinn að troðast. Nýlagningar. Auk viðhalds gatnanna fæst bærinn við nýlagningar. Það má alltaf deila um það, hvaða götur eigi að gera. Bæjarbúar eru ekkert öðru vísi en annað fólk, allir vilja láta gera eitt- hvað hjá sér. Snemma i vor var þetta spursmál tekið til athug- unar á skrifstofum okkar. Nýlagningar skiptast í: Vatns- og liolræsalagnir, vegna nýrra bygging'arhverfa eða endurnýjun á gömlum ræsum, og gatnagerð. Vinnu við ræsin er hentugast að láta fara fram á veturna, þegar illt er að vinna við gatnagerð vegna veðráttu. Þó liefir verið brugð- ið út frá þessu, þegar legið hefir á ræsunum, eins og t. d. melaræsið og ræsin i Klepps- holti. Þær götur sem teknar voru fjuár i sumar og verða teknar voru valdar með ýmislegt fjrr- ár augum. Umferðagöturnar (akbrautirnar) verða að olckar áliti að ganga fjæir. (Sólejrjar- gata, Tryggvagata o. fl.). Gang- stéttir koma þar á eftir. Skemmtilegast er að geta full- gert göturnar alveg, með mal- bikun og hellulagningu, og verður það reynt í framtiðinni eftir því sem föng verða á; en eins og áður er getið, ak- brautirnar verða a ðvera nr. 1 gangstéttirnar nr. 2, meðan bærinn er i sárum eins og nú. Malbikunin. Þó búið sé að púkka götu og bera ofan í rauðamel, er til- tölulega auðvelt að skafa hann í hurtu og malbika svo. Þegar ákveðið var, livað malbika ætti í sumar, var aðallega tekið til- lit til umferðar. Eg' veit að það væri.sárt fjrrir íhúa Ásvalla- götu, ef hún j'rði ekki malbik- uð. Nú verða þeir að bíða fram eftir sumri uppá von og óvon. Hún verður malbikuð, ef mögu- legt verður. Sumir spyrja, hvers vegna hætt hafi verið við Fréyjugötuna við Njarðargötu. Eg veit að Freyjugatan þarfn- ast malbikunar, og' er hún Iíka ofarlega á lista lijá okkur. Spottinn af Njarðargötunni frá Freyjugötu að Skólavörðustíg sem malbikaður var, sameinaði þó þessa tvær götur, þannig að malbikuð lei'ð fékkst niður í miðbæ. Eins og er verða við- gerðirnar að ganga fvrir. Vest- urgatan má ekki bíða lengur, enda alveg komið að viðgerð hennar. í vor og sumar hefir verið unnið að malbiksviðgerðum eftir því, sem föng hafa verið á, en ýmsir örðugleikar tafið. i Erfiðleikar. í fjárhagsáætlun bæjarins fjTÍr 1944 eru veittar 500,000,00 kr. til áhaldakaupa. Bærinn á nokkuð af áhöldum en ekki nóg. Það sem vantar aðallega er: Vegheflar, borvélar, þjapp- arar, mokstursvélar, kranar, ýtur, sorpb.ifreiðar o. fl. Allir krókar hafa verið hafðir úti til að fá þessi tæki, og veit eg ekki sem stendur, hvernig úr rætist. Erfiðleikar liafa verið á að fá vegtjöru að eg ekki tali um asfalt. Þó virðist vera að ræt- ast úr því núna. Bærinn á bik- unarvél, sem ekki hefir staðið sig sem skyldi, verið að smá- hila við og við, og eigum við allt undir henni komið að áætl- anir standist í sumar. Bjæjað er að smíða nýja hikunarvél og verður hún til að vori, og verða þá til tvær. Erfiðleikar hafa verið með að fá nógu mikið af fínum muln- ing í yfirlagsmalbikun, og hefir það tafið viðgerðarfram- kvæmdir en hann er eingöngu notaður í yfirlag. Tilraunir. Tilraunif hafa verið gerðar með að steypa nokkra götu- snúninga úr járnbentri „við- breraðri“ steinsteypu. Stej'pt- ar götur hafa enn ekki verið gerðar hér í bæ, enda hörgull verið á járni aðallega hvað sem síðar kann að verða. 1 Sól- eyjargölu er verið að gera til- raun með að stejrpa gangstéltar- kanta og rennur úr júrnbentri steýpu. Tilk.vimi Mg* Að gefnu tilefni, skal það tekið fram, að öll umferð óviðkomandi manna um sorphauga bæjarins á Eiðisgranda og allur brottflutningur þess, sem á haugana er kastað, er bannaður. Allir, sem flytja sorp á haugana, skulu snúa sér til varðmannsins, áður en þeir losa af bílunum. Reykjavík, 21. júlí 1944. Heilbrigðisfulltrúinn. Húrari óskast í vinnu. Uppl. í síma 4243 kl. 6/2 í eftirmiðdag. Þrjár deildarhjúkrunarkonur vantar í Kleppsspítalann 1. ágúst og 1. sept., og nokkrar aðstoðarhjúkrunarkonur. Einnig vantar saumakonu, vöku- konur og starfsstúlkur. Umsóknir sendist til yfirhjúkrunarkonunnar. Lokað vegna sumarleyfa til 8. ágúst. Fatagerðin. Lokað vegna sumarleyfa til 8. ágúst. ' HEILDVERZLUN ÞÚR0DDAR E. JÓNSS0NAR. miUIMKMito* Jarðarför mannsins míns og föður okkar Þorsteins Jóhannssonar, Sólvallagötu 70, fer fram frá fríkirkjunni þriðjud. 25. þ. m. og hefst kl. 2 e. h. Þórkatla Eiríksdóttir og börn. Minningarathöfn um kæru fósturmóður mína, Hallberu Jónsdóttur frá Kirkjubóli, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 24. júlí, og hefst með bæn að heimili hennar kl. 10 f. h„ Bergstaðastr. 17B. Hin látna verður flutt til Isafjarðar með e.s. Súðinni, og jarðsett þar. Fyrir hönd oltkar fósturbarnanna Guðrún Kristmundsdóttir. --------------------------------i Jarðarför dr. Guðmundar Finnbogasonar, sem andaðist 17. þ. m., fer fram frá dómkirkjunni mánu- daginn 24. júlí, og hefst með húskveðju á heimili okkar, Suðurgötu 22, kl. 4 e. h. Laufey Vilhjálmsdóttir og börn. Jarðarför míns hjartkæra eiginmanns og föður Jóns Ólafssonar fér fram frá dómkirkjunni mánudaginn 24. þ. m., og hefst með húskveðju á Kirkjuteig 5 kl. 1 e. hád. Fyrir hönd dætra minna og annarra vandamanna Þórey Jónsdóttir. Páll Guðjónsson bifreiðastjcri á Stokkseyrl verður 40 ára að aldri á niorg- un, sunnudaginn 23. þ. m. Hér er um óvenjulegan rnann að ræða, svo ungur sem hann er að aldri. Afrek hans og dugnaður svo frábær, og þá eigi síður hjálpsemi hans og lipurð í um- gengni hans og viðskiptum við fjölda manna, að lofsorði er & það lokið af þeim öllum, undan- tekningarlaust. Kona Páls Guðjónssonar, fru Hulda Guðmundsdóttir er manni sínum samhent mjög, og er orð á því gert, hversu góð- söm þau eru og hjálpfús í garð annara manna. Sé þar um einhverjar fram- kvæmdir að ræða og nýungar, byggðalagi þeirra til framfara og umbóta á ýmsurn sviðum, eiga þau hjónin oftast frum- kvæðið að þvi, að liafizt sé handa með að koma þeim á. ekki þó seint og síðar meir, heldur strax, og nema þau þá eigi við neglur sér fjárframlög, allrífleg, í því skyni að Iirinda þeim af stað svo fljótt og vel sem verða má. Bygging liins mjmdarlega gistiliúss á Stokks- ejrri, smíði hins vandaða milli- ferðaskips, er annast mann- flutninga milli StokksejTar og Vestmannaej ja oft í viku hverri með rnarga farþega innanhorðs báðar leiðir, hvort heldur er að nóttu til eða á degi, og Ioks kaup á nýju og vönduðu orgel- harmonium í StokksejTar- kirkju. — Allt er þetta o. m. fl. greinilegur vottur hugðarmála hjóna þessara, því fyrir atbeina þeirra og riflega þátttöku i koslnaðinum við að koma þeim' fljótt og vel í framkvæmd munu þau eiga mestan heiður- inn skilið fjrir það, þótt ýmsír aðrir héraðsbúar hafi brugðizt vel við og stutt drengilega að því með þeim. Hafa þau, hjónin og aðrir héraðsbúar sýnt með þessu og ýmsu fleiru, að fé- lagsandi sá, sem vakinn var til lífs á þessum stöðum ineðal ungra manna austur þar fyrir 60—70 árum, liefir eigi kulnað út með öllu, heldur endurvakn- að á ný og glæðst furðu fljótt og vel; er. gott til þess að vita, og þeim Páli Guðjónssjmi og hinni mætu konu hans, er vel trúandi til að efla alla góða viðleitni og glæða þann holla anda og halda honum við. Son einn eiga þau hjónin, er Hilmar heitir, 9 ára að aldri, efnilegt barn og vel siðað. Af fyrra hjónabandi á frú Hulda dóttur eina og er hún gift hált- settum kénnara við flugherskóla í Ameríku. Er hún listfeng kona, vel að sér og geðþekk mjög i sjón og reynd. Móðir hennar, frú Ilulda er og frábærilega listfeng hannjrðakona, vel málifarin og greind; heimili þeirra er eit: hið prýðilegasta sem hugsazt getur. Eins og kunnugt er, hefir Páh Guðjónsson haldið uppi, og að öðrum þræði um langt skeið, mannflutningum á þjóðveginura milli Reykjavíkur, Stokkseyrar og Evrarbakka. Lipurð lians, greiðvikni við farþegana, góð regla og skilsemL á fgrangri þeirra og nákvæm stundvísi eru Frh. á 4. síðu. *

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.