Vísir - 02.08.1944, Page 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 16 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Stjórnmál
án stefnu.
STJ ÓRNMÁLAB ARÁTTAN
er háð á ýmsan hátt. Bar-
ist er og deilt um dægurmálin,
en þær deilur mótast tiðast af
heildarstefnu flokkanna, enda
velja mönn flokka í milli vegna
þeirrar stefnu, en ekki auka-
atriðanna, sem oft og tíðum
kann að vera nokkur ágreining-
ur um milli manna í sama
flokki. Slíkt er ekki óeðlilegt.
Hitt er hættulegra og óþolandi
með öllu, þegar horfið er frá
heildarstefnunni, henni vikið til
hliðar þegar semja þarf um úr-
lausn dægurmála og þannig
skapað algert los. Stokkið er
öfganna á milli, eins og til dæmis
kommúnistar gera i umræðum
um utanríkismálin frá degi til
dags, þótt oftast séu þeir samir
við sig i niðurrifsstarfseminni
inn á við. Menn brosa að því er
kommarnir gera ýmist að lof-
syngja samninga Stalins og Hitl-
ers eða Stalins og Iýðræðisríkj-
anna, allt eftir þvi á hvorn bóg-
inn hann telur lienta að halla sér
i það og það skiptið, — en allt
er gott, sem gerði hann þrátt
fyrir það. Utanríkisumræður
lcommanna eru ljóst dæmi um
algert stefnuleysi, og þær mega
heita meinlausar inn á við, en
hitt er miklu lakara þegar borg-
aralegu flokkarnir, sem fyrst og
fremst ber skylda til að standa
vörð urn þjóðleg verðmæti, láta
sig afdrif jieirra engu skipta.
Síðustu fjögur árin liafa
flokkarnir yfirleitt tekið, þátt í
stjómmálum, án þess að virða
stefnu sína að nokkru. Samning-
ar til vinstri og hægri hafa ein-
kennt þetta tímahil og ekkert
hefir verið svo heilagt að úr vegi
væri að Ijá máls á samningum
um það. Nýlega lýsti t. d. einn
af þingmönnum eins flokksins
yfir því, að flokkurinn hafi verið
reiðubúinn til að láta af stefnu-
málum sínum og vilja til þess
að mynda stjórn með hinum
flokkunum, en hvers virði er
slíkur flokkur og hvers má af
honum vænta ef rétt er með far-
ið? Er ekki kominn tími til að
slíkt stefnuleysi hverfi úr sög-
unni og snúist sé við vandanum
af fullri festu, einlcum þar eð
upplausnin heldur stöðugt á-
fram þar til stefnufesta í stjórn-
arháttum ræður hug á henni,
sem vonandi verður fyrr en
varir?
Öllum má það Ijóst vera að
öfgastefnur hafa því aðeins get-
að rutt sér til rúms víða um
heim, að algert los, stefnuleysi
og ráðleysi hefir verið ríkjandi
í þeim löndum, sem einræðis-
öflin hafa að lokum sigrað í og
brotist til valda. Á Ítalíu var t.
d. ráðleysið svo algert að stjórn-
arvöldin horfðu á fascista halda
í skrúðgöngu frá Milano til
Rómar án þess að nokkuð væri
aðgert. Enginn hreyfði legg eða
lið og fascistarnir höfðu náð
töglum og höldum áður en menn
gerðu sér- nokkra grein fyrir
hættunni. Worm-Miiller pró-
fessor skýrir frá þvi að Norð-
menn gerðu sér ekki grein fyrir
háskanum af hernámi Þjóðverja
fyrr en það var um seinan og
litlu máttí muna að slíkt and-
varaleysi liefði svipt þá öllum
skilyrðum til andstöðu. Þannig
mætti lengi telja ýmis dæmi til
sönnunar skaðsemdar andvara-
Ieysis og stefnuleysis með hverri
þjóð, og nú á íslenzka þjóðin um
það eitt að velja að standa á
verði vegna þjóðlegra verðmæta
og lýðræðis, eða að láta öfga-
stefnu kommúnistanná glejqpa
sig með húð og hári. Samvinna
við kommúnista í innri málefn-
um kemur ekki til greina. Hún
er fyrirfram dauðadæmd og
leiðir jafnvel til falls eða veru-
legrar skaðsemdar. Borgara-
legu flokkarnir þ. e. a. s. allir
einstaklingar, sem vernda vilja
sjálfstæði þjóðarinnar og bjarga
vilja þeim verðmætum, sem
þjóðin hefir aflað með erfiði og
þrautseigju verða að skipast i
eina sveit og gera allt til að
bjarga því sem bjargað verður.
Slíkt er auðvelt ef vilji er fyrir
hendi, og án nokkurra tilfinnan-
legra óþæginda fyrir almenning
er unnt að byggja hér upp heil-
brigt fjárhags og atvinnulíf, en
sem nú er á hraðri leið til hruns
vegna aðgerða kommúnista. I
bili ráða þeir lögum og lofum
innan verkalýðshreyfingarinn-
ar, en það er óþarfi að láta þá
gera það. Verkamenn vilja engu
síður en aðrir koma í veg fyrir
allsherjarhrun, en þeir krefjast
þess eins að vonum, að eitt
verði látið yfir alla ganga, og að
þeim séu sköpuð viðunandi af-
komuskilyrði. Ekkert er sann-
gjarnara og sjálfsagðara. , Það
þarf ekki einungis að tryggja
verkamönnum sæmileg laun,
heldur og örugga atvinnu, þann-
ig að þeir þurfi ekki að óttast at-
vinnuleysi í framtiðinni. Þetta
er hægt að gera, liafi menn
skilning á þeirri nauðsyn að
fórna minni verðmætum fyrir
meiri, —- fórna verðmætum ein-
staldinganna fyrir almennings-
heill að svo miklu leyti sem þörf
gerist, —■ enda yrðu ráðstafanir
til viðreisnar gerðar í þágu allra
einstaklinga og þjóðarinnar sem
heildar. Til verulegra fórna fyr-
ir einstaklingana þarf ekki að
koma, —i þeir þurfa í rauninni
engu öðru að fórna en þröng-
sýninni í dægurmálunum. Heild-
arstefna borgaralegu flokkanna
er og verður að efla hag ein-
staklinganna og tryggja lýð-
ræðið í landinu. Við þá stefnu á
að miða allar aðgerðir, en ekki
endilega viðhorfin eins og þau
eru í dag eða verða á morgun,
heldur viðhorfin til langframa.
Horfast verður í augu við þá
staðreynd, að annaðhvort er að
duga eða drepast, annaðhvort
að lirökkva eða stökkva. Sókn
er hetri en vörn og raunar bezta
vörnin oft og einatt. Svo mun
enn reynast i þeirri hagsmuna-
baráttu, sem fyrir höndum er
og hefjast verður nú í haust i
síðasta lagi. Stjórnmál án stefnu
eru höl hvers þjóðfélags. Af þvi
höli höfum við haft of mikið að
segja síðustu árin, enda er svo
komið að lýðræðisflokkarnir
hljóta að hverfa frá tilgangs-
Iausum deilum um dægurmál,
en sameinast um heildarstefn-
una til bjargar þjóðarheildinni
án tillits til einstakra stétta eða
augnablikshagsmuna, en um-
fram allt mega menn ekki láta
stjórnast af ótta við kommana
og lenda þannig í algjöru
stefnuleysi.
Unglingabók.
Nýkomin er á bókamarkað-
inn í ísl. þýðingu lítil bók, sem
heitir Blómakarfan, saga fyrir
börn og unglinga, eftir Chris-
oph v. Schmid.
Bókaútgáfan Norðri h.f. gef-
ur bókina út. Hún er 96 bls. í
þægilegu broti, innbundn. Frá-
gangur er allur hinn snotrasti.
200 km. gönguför
um Vatnajökul.
Hringferð um landið um Vatnajökul.
yíSIR hefir átt tal við Skarp-
héðinn Jóhannsson, sem
er nýkominn úr ferðalagi
austur á Vatnajökul. Var
hann, ásamt þremur félögum
sínum, í átta daga á jöklinum
og fóru þeir um 200 km. leið
á honum.
För þeirra félaga var raun-
verulega hringferð um landið,
þótt lienni væri hagað öðru visi
en menn gera að jafnaði. En
hezt er að gefa Skarphéðni orð-
ið og hefst liér frásögn hans:
„Við félagar héldum héðan úr
bænum snemma morguns þ. 14.
júlí og fórum landveg norður og
austur til Egilsstaða. Ferðin tók
sólarhring, eða 26 tíma, og fór-
um við það í einni lotu.
Frá Egilsstöðum fórum við
með bifreið að Hóli í Fljótsdal,
en þaðan lögðum við upp á
hestum sunnudaginn 16. júlí.
Fjdgdarmaður okkar var Her-
mann Ágústsson frá Amalds-
stöðum; prýðilegur náungi. Við
tjölduðum austan undir Snæ-
felli um kvöldið, en héldum
næsta dag áfram, þar eð ekki
gaf á Snæfell, og fórum inn
Maríutungur, í krikann milli
Eyjabakkajökuls og Brúarjök-
uls.
Skíðasnjó fengum við strax
við jökulröndina. Tókum við
þegar að undirbúa skíða- og
sleðaferðalagið og fórum 8 km.
upp jökulinn þann dag. Vorum
við þá komnir upp fyrir öll
krapalón og allan, vatnselg, sem
var í jökuljaðrinum.
Þriðjudaginn 18. júlí héldum
við áfram í stefnu á Kverkfjöll.
Þau ganga inn í Vatnajökul að
norðanverðu og eru mikil um
sig og stórlega fögur. Tjölduð-
um ca. 12 km. fyrir austan þau.
Miðvikudaginn 19. júlí geng-
um við svo á þau, upp skrið-
jökul, sem gengur suður úr
þeim, niður á hjarnbreiðu
Vatnajökuls.
Fimmtudaginn 20. júlí var
enn haldið af stað og ferðinni
nú heitið til Grimsvatna. Þau
liggja inn á miðjum Vatnajökli,
s. v. af Kverkfjöllum. Til Gríms-
vatna fórum við félagar í fyrra,
fórum þá upp á Vatnajökul að
sunnan, vorum óheppnir með
veður og sáum því lítið hvernig
þar er umhorfs. Við Grímsvötn
dvöldum við í hálfan annan sól-
arhring í skínandi veðri. Þar er
stórkostlegt um að litast og auð-
séð að breytingar verða þar ár-
lega miklar, eftir þeir lýsingum
að dæma, sem við höfðum af
staðnum.
Frá Grímsvötnum fórum við
laugardagskvöldið 22. júlí og
tókum nú stefnu á Öræfajökul,
og vorum 8V2 tíma að Morsár-
jökli, það var fljót ferð og
framúrskarandi skemmtileg, —
við notuðum tjaldið sem segl á
sleðann og sigldum langleiðina.
Niður af jöklinum fórum við
vestan við Morsárjökul og var
það mjög sæmileg leið að fara,
gátum borið allan farangurinn
niður í einni ferð. Að Skafta-
felli í Öræfum komum við 2.
júlí.
Ferðalagið um Vatnajökul
mun liafa verið um 200 km. og
var í alla staði mjög ánægjulegt,
enda veður með ágætum alla
dagana, kannske helzt til heitt,
svo maður finni eitthvað að því.
Við voruin fjórir saman:
Egill Kristbjörnsson, Friðþjófur
Hraundal, Alfreð Karlsson og
,eg. Þetta er þriðja Vatnajökuls-
ferð okkar Friðþjófs, önnur ferð
Egils og fyrsta ferð Alfreðs, en
allir höfum við farið nokkrar
styttri jökulferðir.“
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Hljómplötur: Óperu-
söngvar. 20.30 Útvarpssagan:
„Silfurnælan" eftir Þórunni Magn-
úsdóttur (Höfundur les). 21.00
Taki'Ö undir! (Þjóðkórinn . Páll
ísólfsson stjórnar).
Næturakstur:
B. S. R. Sími 1720.
Reykjavikurmótið:
Fiam — Valui:
Jaíntefli, 0-0.
Víkingur og Fram
keppa annað kvöld.
I gærkveldi fór fram fjórði
leikur Reykjavíkurmótsins og
kepptu þá Fram og Valur. Veð-
ur var heldur óhagstætt, hliðar-
vindur.
Leikurinn var frekar daufur.
Fram hóf mikla sókn í fyrri
hálfleik og munaði oft litlu að
þeim tældst að skora. I síðari
hálfleik sóttu Valsmenn af
mesta kappi, til að reyna að ná
marki, en Framarar létu sig
ekld og voru ákveðnir að gefa
sig ekki að þessu sinni. Enda
lauk leiknum með því, að hvor-
ugur skoraði, — endaði með
0—0.
Nú fera að líða að úrslitum
mótsins. Otkoman er sú, að Val-
ur hefir 3 stig, Víldngur 2, KR
2 og Fram 1 stig. Næsti leikur
mótsins fer fram annað kvöld,
milli Fram og Víkingus. En á
föstudag keppa KR og Valur.
Vezkfall hjá 69
fyzirtækjam.
Eitt víðtækasta verkfall, sem
sögur fara af hér á landi, hófst
kl. 12 á miðnætti aðfaranótt
þriðjudags sl.
Nær verkfall þetta til 68 fyr-
irtækja hér í Reykjavík og eins
fyrirtækis á Siglufirði, en um
1000 manns samtals vinna við
þau. Öll eru fyrirtækin i Félagi
íslenzkra iðnrekenda.
Áður en verkfallið hófst
snéri stjórn Iðnrekendafél. sér
til verðlagsstjóra og spu'rði
hann, livort iðnrekendum
myndi leyft að liækka verð á
framleiðslunni í samræmi við
hið nýja kaup, ef gengið yrði að
kauphækkun. Verðlagsstjóri
neitaði þessu.
Sáttasemjari rikisins í vinnu-
deilum hefir að undanförnu
haft mál þetta til meðferðar, en
árangurslaust reyndist að koma'
á sáttum, áður en verkfalliðj
átti að hefjast. |
Hvítai
dömublússui,
dömu-spoitbuxui
og
sport-fatnaðui,
nýjasta tízka.
KJ0LABUÐIN
Beigþóiugötu 2.
Stúlka
óskast í Valhöll á Þingvöll-
um. — Uppl. í Hressingar-
skálanum.
Ung stúlka
óskar eftir atvinnu við
skriftir eða þessháttar,
um óákveðinn tíma. —
Hefir góða menntun. —
Tilboð sendist til afgr.
blaðsins fyrir helgi,
merkt „19 ára“.
Vikuieinangiun
ávallt fyrirliggjandi.
Vikuisteypan
Lárus Ingimarsson.
Sími 3763.
Plötusafn.
Plötusafn með 200 ný-
tízku hljómplötum til
sölu strax, vegna brott-
flutnings. — Einnig út-
varpstæki. Uppl. Njáls-
götu 71, kjallarinn, frá
kl. 7—9 í kvöld.
JIclcLcÍVl OdllMMHÍnfyS ]
£
Scrutator:
Jurtakynbætur.
Margvíslegar ráðagerðir hafa
verið uppi hér á iandi um að taka
upp tilraunir með jurtakynbætur.
Ungir menntamenn dvelja um þess-
ar mundir erlendis, — einkum í
Vesturheimi, — og kynna sér helztu
nýjungar í þessari grein einkum
með tilliti til þess, sem íslandi má
að gagni koma síðar. í Rússlandi
eru menn komnir mjög vel á veg
i rannsóknUm þessum og hafa menn
ræktað þar alls kyns afbrigði jurta,
sem henta misjöfnu veðurfari. Eru
t. d. jarðepli ræktuð þar miklu
norðar en áður hefir þekkzt og gefst
ræktun þeirra vel þótt ekki sé nema
skóflustunga niður á klaka. Sama
er að segja um trjágróður. Þar
hafa tilraunir gefizt ágætlega og
tekizt hefir að rækta harðger tré,
sem eru einskonar kynblendingar.
í garði einum hér í bænum hefir
það fyrirbrigði gerzt alveg sjálf-
krafa og án utan að komandi að-
stoðar, að reynir hefir fest rætur á
stofni birkitrés og þrífst þar ágæt-
lega. Hefir reyniber sennilega fallið
í krika við útskot greina, en þar vex
reynitré nú og er orðið allstórt.
Virðist það judfast ágætlega á birki-
trénu, en eftir er að vita hver áhrif
þetta kann að hafa á það. Garð-
yrkjumaður, sem umsjón hefir með
garði þessum, telur að ekki sé á-
stæða til að óttast um birkitréð, —
það muni þola þessa raun, — og
ætlar að lofa reyninum að vaxa
þarna í friði. Hinsvegar vill hann
ekki gefa upp hvar garður þessi er
í bænum af ótta við að skemmdir
verði unnar á trjánum af forvitnum
áhorfendum. Væri mjög fróðlegt að
vita hvdrt flcirj slík fyrirbrigði
kunna að hafa gerzt í görðum, svo
og ef men hafa gert hér einhverjar
tilraunir með jurtakynbætur, sem
gefið hafa árangur.
Gróðurhús.
Margir hafa gert sér miklar von-
ir um ræktun neyzlujurta í gróður-
húsum hér á landi og vafaláust fer
sú ræktun mjög í vöxt. Rannsóknir
sem gerðar hafa verið vestan hafs
sanna hins vegar a ðt. d. tomatar,
sem ræktaðir eru í gróðurhúsum eru
miklu fjörefnasnauðari en hinir,
sem ræktaðir eru úti. Mun svipaður
árangur hafa orðið af öðrum sams-
konar raiinsóknum. Hins vegar
horfir málið við þannig hér á landi
að þjóðin er í bætiefnasvelti mik-
inn tíma árs, með því -að ávextír
hafa ekki fengist til landsins, sum-
part og þá einkum áður og fyrr
vegna innflutningsbanns á þeim, en
nú síðar sökum þess, að ekki hefir
fengist hentugt skipsrúm fyrir á-
vextina, en þeim er hætt við
skemmdum á langri leið. Vafalaust
mætti þó finna svo harðgera ávexti
t. d. epli, sem þyldu flutning án
þess að skemmast og þótt þau væru
geymd í venjulegum lestarrúmum.
Höfum við þegar fengið nokkra
reynslu í þeim efnum þannig að
kaupsýslumönnum mun vera kunn-
ugt, hvaða tegundir er helzt unnt að
flytja þannig til Iandsins. Þótt gróð-
urhúsaávextir séu fjörefnasnauðari
en hinir sem ræktaðir eru úti, á slík
ræktun vafalaust góða framtíð fyr-
ir sér hér á landi, vegna erfiðleika
þeirra, sem eru á flutningi ávaxta
hingað og brýnnar þarfar þjóðar-
• innar á neyzlu ávaxta. I Vestur-
heimi hafa verið gerðar tilraunir
með að frysta margskyns grænmeti
og er talið að þær tilraunir hafi gef-
ist vel. Hefir þetta mikla þýðingu
að því leyti, að unnt er að dreifa
grænmeti og ávöxtum á markaðinn
eftir þörfum neytenda og tryggja
jafnframt sölu árið allt og jafn-
framt örugga afkomu framleiðenda.
Með öllum þessum tilraunum þurf-
um við íslendingar að fylgjast,
þannig að við getum hagnýtt okkur
þá reynzlu sem fæst, á hinn hag-
kvæmasta hátt. Hver veit nema að
við getum þá oðrið sjálfum okkur
nógir í þessu efni, enda verði jafn-
framt unnið að áframhaldandi um-
bótum og rannsóknum við fram-
leiðsluna. \
Þjóðviljinn
hneykslast mjög á, að Vísir skuli
hafa rætt um boðaða baráttu Hitlers
„allra gegn öllum, þar sem komm-
únisminn uppskeri ávextina.“ Þetta
hefði ekki þurft hneyksli að valda
hefðu blaðamennirnir fylgst með j
því, sem gerst hefir í heiminum og I
sem Hitler hefir beinlínis boðað
hvað eftir annað í ræðum sínum.
Hér var ekki um frumlega upp-
götvun Vísis að ræða, svo sem hlut-
aðeigendur hefðu vafalaust getað
1 gert sér ljóst, en grein úr blaðinu
Cavalcade (15. júlí) var birt í út-
drætti og þvínæst vikið að henni
lítillega í leiðara án þess að nokkru
verulegu væri við bætt og alls engu
tíl að draga úr afrekum rauða
hersins. En svona eru þeir nú við-
kvæmir við Þjóðviljann fyrir sumu
því, sem ekki er íslenzkt.
TELPUKJÓLAR.
Kr. 16.50, 36.75.
E R L A, Laugaveg 12.
Búsíniir
Klapparstíg 30. - Sími: 1884.
KolviðaihólL
Tekið á móti dvalar-
gestum í lengri og
skemmri tíma.
Einnig veizlur og sam-
kvæmi.
Veitingahúsið Kolviðarhóll.
Heitavatnsdunkur
(hitadunkur)
250 lítra, til sölu.
A. v. á.