Vísir - 12.08.1944, Side 2
VISIR
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Iðnaðtu og aíköst.
^erulega bjartsýni þarf til að
ráðast í ný iðnfyrirtæki um
þessar mundir, þegar ekki
gengur á öðru en kaupkröfum
og verkföllum og ekki sér fyr-
ir endann á slíku. Kaupgjald er
þó nú þegar orðið það hátt,
miðað við það, sem gengur og
gerist á Norðurlöndum yfir-
leitt, að það gefur litlar vonir
um að við munum reyhast sam-
keppnisfærir á flestum sviðum,
er ófriðinum lýkur og þjóðirn-
ar taka að gefa sig að friðsam-
legum? störfum. Þó er ljóst, að
ef þjóðin hyggst að lifa hér
menningarlífi, dugar ekki að
halda að sér höndum eða láta
sér nægja að eta upp þau verð-
mæti, sem kunna að hafa afl-
azt. Kyrrstaða leiðir óhjá-
kvæmilega til hruns, og við
verðum i lengstu lög að leitast
við að verða sjálfum okkur nóg-
ir, eða geta leyst þau aðkallandi
vandræði, sem kunna að bera
að höndum i atvinnuvegum
okkar og unnt er að ráða fram
úr með nokkurri fyrirhyggju.
Hér í blaðinu í gær var get-
ið um nýtt fyrirtæki, sem ætl-
að er að hafa mcð, höndum
starfsemi i þágu útgerðarinn-
ar. Ástandið í þeirri grein er
nú svo hér á landi, að lítt er
við unandi, enda fyrirsjáanlcgt
að skipaviðgerðir verða ekki
framkvæmdar hér eftir striðið,
nema að gerbreyting verði\ á
starfstilhögun allri. Kaup járn-
iðnaðarmanna er hér hærra en
annarstaðar, aðstaðan öll óhæg-
ari og það, sem mestu veldur,
að hér er miin minni og ófull-
komnari vélakostur en í nokk-
uru menningarlandi öðru. Fyr-
irsjáanlegt er að atvinnurek-
endur Yerða að fara inn á þá
braut, er kaupið fer stoðúgt
hækkandi, að nota vélaaflið svo
sem frekast er unnt, sumpart til
að hraða verkefhunum, en að
öðru Ieyíi til að spara hið óhóf-
lega mannakaup, sem nú ér
goldið fyrir lítil afköst, vegna
ófullnægjandi vinnuskilyrða.
Til þess að iðnaðarfyrirtæki
geti borið hækkandi kaup verða
þau að geta áukið að sama
skapi afköstin, en í þvi efni er
lausnin aðeins ein, og hún er
að leita ásjár véláaflsins og af-
kastanna mun meir en gert hef-
ir verið.
Þótt fullkomnustu tæki verði
fengin til framleiðslunnar, er
samt scm áður vafasamt, að at-
vinnan haldist í landinu. Aukið
hágræði útgerðarinnar við að
fá skipaviðgerðir framkvæmd-
ar hér, vegur að vísu nokkuð
á móti þeim verðmismun, sem
sennilega hlýtur að verða á við-
gerðum framkvæmdum hér og
erlendis, en takmörk eru fyrir
því, hve miklu má muna á verð-
laginu, einkum þegar svo er
komið, að útgerðin berst í
bökkum og verður að spara
hvern eyri til þess að allt geti
flotið. Hinsvegar hefir það
mikla þjóðhagslega þýðingu, að
ekki sé goldið fé út úr landinu
fyrir verk, sem unnt er hér að
vinna. Verður þó að gæta alls
hófs í því af opinberri hálfu,
Nýjar kartöflur koma í verzlanir um
þessa helgL
Uppshernhorfnr heldur góðar. '
Stutt viðtal við Jón ívarsson, framkvæmdarstjóra.
yisiR
Mikil ös í skáverzl-
unum.
átti sem snöggvast tal
við Jón Ivarsson, fram-
kvæmdarstjóra Grænmetis-
verzlunarinnar, og innti hann
frétta af kartöfluuppskerunni
og hverjar horfur væru um
hana í sumar og haust.
Sagðist framkvæmdastjóran-
um svo frá, að horfur virtust
heldur góðar með kprtöfluupp-
skeruna og væri fólk nú þegar
byrjað að taka nokkuð upp af
kartöflum til eigin nota, liér í
Reykjavík og nágrenni bæjar-
ins. Kvað liann uppskeruna
byrja heldur í fyrra lagi, enda
hefði tíðarfarið í sumar fylli-
lega gefið tilefni til þess.
— Hvenær koma nýjar kart-
öflur í búðirnar?
— Eg geri ráð fyrir, að verzl-
anir byrji að selja nýju kartöfl-
urnar núna um þessa helgi og-
upp úr því eru líkur til að nóg
verði af þeim á boðstólum,
þannig að markaðinum verði
fullnægt.
— Verður nokkuð áf kartöfl-
um keypt erlendis frá?
— Nei, að minnsta lcosti ekki
fyrst um sinn, því gera má ráð
fyrir, að innlenda framleiðslan
.fullnægi eftirspurninni og aulc
þess er þrotin fyrra árs upp-
skera erlendis, að minnsta
kosti þar, sem við fengum kart-
öflur frá.
^— Hvað um rófuuppskeruna?
— Kg býst við, að liún verði
lítil sem engin liér í bænum,og
nágrenninu, frekar en undan-
farin ár, því kálmaðkurinn lief-
ir alveg komið i veg fyrir, að
slík framleiðsla tækist, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir garð-
yrkjumanna til þess að vinna
hug á þessuin vágesti.
Ríkisstjórnin hefir ákveðið,
að verð á kartöflum skuli verða
talsvert Iægra en Verðlagsnefnd
Grænmetisverzlunar ríkisins á-
kvað.
Nefndin hefir ákveðið, að
heildsöluverð kartaflna skyldi
vera 190 kr. hver 100 kg., en
smásöluverð kr. 2.35 livert kg.
eða 45 aurum hærra hvert kg.
En samkvæmt heimild í lqgum
um dýrtíðarráðstafanir hefir
nú verið ákveðið, að verðið
megi ekki vera hærra en kr.
2.44 livert kg. í smásölu og kr,
160 hver 100 kg. í heildsölu.
Gamla verðið á kartöflunum
var 80 aurar per kg., en þá var
lika eingöngu um innlenda og
erlenda fyrra árs framleiðslu að
ræða, en nú er aðeins um nýjar
kartöflur.
að halda slíkri vinnu hér í
landinu ,með því að iðnaðurinn
getur orðið baggi á frumfram-
leiðslunni og hann svo þungur,
að hann ríði algerlega bagga-
muninn um afkomuna.
Allt *þarf þetta að vega og
meta á hverjum tíma, en hinu
má ekki gleyma, að mjög er
það aukið öryggi fyrir atvinnu-
vegina að hér komi upp iðnað-
ur, sem getur 'sinnt þörfum
þeirra að fullu. Við, sem nú lif-
um og erum búnir að slíta
barnsskónum, munum tvær
heimsstyrjaldir, sem svo nærri
hafa sorfið þjóðinni, að við lif-
um mennigarlífi fyrir náð og
miskunn, en ekki af hinu, að
við höfum sjálfir tryggt okkur
svo gegn slíkum hormungum,
að við gætum klórað í bakk-
ann og bjargað okkur á þurrt
land af eigin rammleik, þótt
við höfum getað haldið nefinu
rétt fyrir ofan vatnsskorpuna.
Þjóðin hefir beðið stórtjón
vegna erfiðra vinnuskilyrða hér
í landi og algerlega ófullnægj-
andk Skip hafa orðið að liggja
í höfn vikum, mánuðum og árs-
fjórðungum saman til þess að
bíða eftir viðgerð, — í sumum
tilfellum óverulegri viðgerð,
sem þó hefir hamlað því frá
veiðum. Hve sííkt aflatjón hef-
ir numið miklu i krónum talið,
er erfitt um að segja, en það
mun reynast æði há upphæð,
komi öll kurl til grafar. öll við-
Ieitni til aukinna framfara er
lofsverð, en illt væri til þess að
vita, ef hún yrði kyrkt í fæð-
ingu vegna þröngsýni eða öfga
eða þá hvorttveggja, þótt mót-
sagnakennt kunni að þykja.
Menn geta verið þröngsýnir í
öfgunum og það eru þeir menn
fyrst og fremst, sem sjá ekki
annað en stundarhag, en gera
sér enga grein fyrir, að til lang-
frama eru þeir að vinna gegn
eigin hagsmunum og hag al-
þjóðar.
FJELAG S PRENTSHIÐIUKNAR
-ÖfSTlF.
Bezí að angl/sa í Vísi
Til að haupa
gúmmískófatnað.
Gúmmískófatnaður kom í
skóverzlanir bæjarins í gær og
var víðast gríðarleg ös.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Vísir hefir fengið hjá
\riðskiptaráði, fengu skóverzl-
anir landsins, sem gera innkaup
sín í sameiningu, tæplega 10.000
pör af karlmannaskóhlífum —
nánar tiltekið 9864 pör — auk
unglinga- og barnaskóhlífa með
síðustu skipum. Mun eftir-
spurnin Iiafa verið einna mest
eftir skófatnaði barna.
Undanfarið hefir verið mikill
skortur á skólilífum og gripu
menn því tækifærið, til að gera
,kaup á þessari nauðsynjavöru
áður en haustrigningar hefjast.
Mót sjálfstæðis-
manna úr 3 sýslum.
Glæsilegt héraðsmót Sjálf-
stæðismanna verður haldið á
morgun í Ölver í Hafnarskógi
fyrir ofan Akranes.
Mót þetta er fyrir þrjár sýsl-
ur, Kjósar-, Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslur og hefst það kl. 2
e. h. Þrjár ræður verða fíuttar
og eru ræðumenn þessir: Ólafur
Thors, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Friðrik Þórðarson,
framkvæmdarstjóri í Borgar-
nesi og Pétur Ottesen alþingis-
maður.
Auk þess verður margt til
skenmitunar, svo sem kórsöng-
ur, fimleikasýning, skemmti-
þáttur Alfreds Andréssonar og
dans.
Meistaramót I.S.I.
Aðalhluti Meistaramótsins
hefst á Iþróttavellinum í dag
kl; ý- Þeir, sem fylgzt hafa með
frjálsíþróttamótum í sumar
vita, að nokkur hluti Meistara-
mótsins (boðhlaupin og fimmt-
arþrautin) er þegar útkljáður;
hafa afrek þátttakenda í þess-
um greinum verið birt í blöð-
unum. En sá hlutinn, sem
skemmtilegastur er og mest
spennandi, verður háður hér á
íþróttavellinum í dag og á
morgun.
Senda sjö íþróttafélög 67
keppendur til leiks í 15 íþrótta-
greinum. Meðal þessara kepp-
enda eru allir fræknustu
íþróttamenn landsins á vett-
vangi frjálsíþróttanna, því að
auk allra hinna kunnustu
íþróttamanna Reykvíkinga,
keppa þarna fræknustu íþrótta-
menn Austurlajids og Vest-
mannaeyinga, en í þeim lands-
hlutum eru beztu íþróttamenn
utan Reykjavíkur og nágrennis.
Einnig er ágætur keppandi frá
Umf. Skallagrími í Borgarnesi.
Félögin, sem senda keppendur
á mótið, eru: Reykjavíkurfélög-
in Ármann, I.R. og K.R. (send-
ir ílesta, 24 kejipendur), Fhn-
leikafélagHafnarfjarðar, Knatt-
spyrnufélag Vestmannaeyja,
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands og Umf. Skalla-
grímur.
I dag verður keppt í 200 m.
lilaupi, hástökki, kúluvarpi,
800 m. hlaupi, spjótkasti, 5000
m. hlaupi og langstökki.
Urslit eru mjög óviss í ýms-
um þessara greina, þó skal
reynt að segja að nokkru fyrir
um úrslit sumra þeirra. Þrjár
þeirra má telja nokkurn veginn
vissar livað- sigurvegarann
snertir. I 200 m. hlaupi má bú-
ast við að í úrslit komis.t Finn-
björn Þorvaldsson, I.R., Árni
Kjartansson, Á., Guttormur
Scrutator:
e*
Meinlausár aðfinnslur
geta valdið persónulegum deilum,
en þær eru alltaf frekar óviðkunn-
anlegar og sem betur fer komnar úr
móð i íslenzkri blaðamennsku að
heitið getur. Blöðin hafa þó heirnil-
að mönnum að svara fyrir sig, auð-
vitað á þeirra eigin persónulegu
ábyrgð og tjaldar þá hver því, sem
hann á til. Umræðurnar um kirkju-
garðana eru orðnar leiðinlegar, enda
ekki sömu því svarað, sem ástæða
væri til. Felix Guðmundsson hefir
beðið Vísi að birta eftirfarandi:
Jón Arnfinnsson heldur heim.
Og sér nú væntanlega að ver var
farið en heima setið. Þegar hann
Iagði af stað í leiðangurinn gat
hann vel vitað að málstaðurinn var
vonlaus. Hann vissi að trén í kirkju-
garðinum höfðu verið /sprautuð.
Hann vissi að gerðar höfðu verið
þær ráðstafanir og framkvæmdir,
sem hægt var til þess að verja trjá-
gróðurinn skemmdum. Hann vissi
að árlega er unnið að trjárækt, í
kirkjugörðunum, undir umsjón
skógfræðings, sem þekktur er að
natni og samvizkusemi. Hann mun
varla sjálfur hafa trúað því að trjá-
gróðri bæjarins stafaði hætta af
trjánum í kirkjugarðinum,. (varla
svo fáfróður). Sennilega hefir
hann lika vitað, að menn þeir er
hann aðallega deildi á, voru ekki
í bænum, og því lítilla andsvara
von. Þá hefði hann átt að þekkja
fortíð sinnar eigin starfsemi í þess-
um umrædda garði. Það er óvand-
að framferði að fara af stað í blaði
með átölur sem höfundurinn veit
að eru ósannar. Og það er eymdar-
leg ómennska af manni sem slíkt
hefir gert og hlotið makleg svör
fyrir, að ætla þá að reyna að koma
sökinni á þann, sem svara verður
hinum ósanna söguburði. Hrópa og
kvarta Um árásir og álitshnekki.
I-Iver var tilgangurinn með skrifum
Jóns? Auðvitað sá að ófrægja þá
menn er unnu við og báru ábyrgð
á starfseminni við þá stofnun er
^JOudAJbi (xlhoruBommqs
um var rætt. Hefði tilgangurinn
verið góður og miðað að umbótum,
þá hefði maðurinn rætt málið við
rétta aðila, og notfært sér þær upp-
lýsingar er honum voru gefnar í
stað þess að láta sem hann aldrei
hefði heyrt þær og fullyrða hið
gagnstæða. Það þýðir ekki að sýna
manntegund þeirri er Jón telst til
(annars kann hann að vera einstakt
afbrigði) neina linkind. Þess vegna
svaraði eg honum í þeim tón sem
eg taldi við eiga. Og vorkenni hon-
um ekki hót, þó hann emji undan
hirtingunni. Það eru til óþrif, sem
uppræta verður, þó svo það valdi
sársauka, og sé ógeðfellt verk. Um
skoðanir Jóns á mér, finn eg ekki
ástæður til að ræða. Eg hefi lýst
því áður, hversu eg tel skoðanir
hans á mönnum og málefnum að
mikíu hafandi.
Að síðustu þetta, hafi Jón Arn-
finnsson undan einhverju að kvarta
útaf svörum mínum, þá ér honum
opin leið til málssóknar. Eg hefi
ekkert á móti því að dómstólarnir
meti okkar rök. Auk þess myndi
Jón hafa gott af því að vera á-
minntur um sannsögli.
Felix Guðmundsson.
Afi ranessferÖir.
Farþegar kvarta undan því að
erfitt sé að komast um borð og
frá borði í bát þeim, sem flytur far-
þega milli Akraness og Reykjavík-
ur. Báturinn liggi oft á óheppileg-
um stöðum t. d. utan á skipum,
sjávarföll valdi því að stundum
þurfi menn að klifra niður á bryggj-
una, en stundum upp á hana, en
stigaumbúnaður se lelegur og alger-
lega ófullnægjandi. Hefir Vísir
verið beðinn um að koma Jjeirri
málaleitan á framfæri við rétta
aðila að þeir bæti um stigaum-
bunaðinn, þanni^ að menn fái
sæmilegar tröppur.til umferðar nið-
ur á Jiilfar eða niður á bryggjur
eftir - því sem á stendur. Gamal-
menni og börn eiga einkum óhægt
með að klöngrast um borð eða frá
borði svo sem tíðkast hefir, auk
J
þess Sem menn óhreinka föt sín og
hendur algerlega að óþörfu. Þetta
kostar, ekki mikið fé, en er til mik-
dla þæginda fyrir farþega og aðra
Þj, sem komast þurfa um borð í
bátinn eða i land úr honum.
Minkaveiðar
tíðkast nú mjög við Elliðavatn og
í hrauninu þar um kring. Eru dýrin
allsstaðar á ferli, — jafnvel á þjóð-
veginum um miðjan daginn, — og
gengur misjafnlega að ráða niður-
lögum þeirra, enda fer það nokkuð
eftir vopnabúnaði. Segja gárung-
arnir þá sögu að fólk í einum sum-
arbústað hafi vaknað við að mink-
ur var þar kominn. Snaraðist hús-
ráðandi fáklæddur gegn minkinum
og barst leikurinn alllanga leið frá
húsinu og að læk einum. Minkur-
inn skauzt þar í holu, en húsbónd-
inn tók það ráð að kalla á hjálp og
streymdi fólk að hvaðanæfa. Tókst
því sameiginlega að ráða niðurlög-
um minksins. Var síðan haldið á-
fram veiðum þann dag allan og
veiddust fáeinir minkar hér og þar
og eftir allharða 'viðureign flestir.
Erfiðleikar munu vera á að ná í
skotvopn, en ntikilf hugur er í
mönnum um kaup á þeim til minka-
veiða. Munu vera greiddar þrjá-
tíu krónur fyrir hvert skott, sem
komið er til skila hjá hlutaðeigandi
skrifstofu, og telja menn Iildegt að
minkaveiðar verði arðvænlegri en
nokkrar aðrar veiðar um he'iðar og
hraun.
ísland — Frakkland.
Svo sem frá var skýrt hér í blað-
inu í fyrradag hefir íslenzka ríkis-
stjórnin formlega viðurkennt sendi-
imann Frakklands hér sem fulltrúa
bráðabirgðastjórnarinnar og stjórn !
de GauIIe þar með sem bráðabirgða- !
stjórn Frakklands. Bretland og
Bandarikin hafa ekkii viðurkennt
stjórn de GauIIe að forminu til og I
höfum við íslendingar því orðið j
fyrri til og er það ekki ómerkilegur 1
atburður. Á undan 'okkur hafa geng-
ið Holland, Belgía Noregur og
ráðstjórnarríkin.
Þormar., U.I.A. og Jóhann Bern-
hard, K.R. eða Brandur Brynj-
ólfsson, I.A. En óvíst nijög er
hver verður meistari. — Há-
stökkið vinnur Skúli Guð-
mundsson, K.R., auðvitað, en
hitt er óvissara, hvort hann
bætir hið ágæta met sitt frá 19.
júní. Þó getur hann það vel, ef
aðstæður verða skaplegar. Oli-
ver Steinn, F.H. verður að lík-
indum næstur. — Kúluvarpið
vinnur Gunnar Huschy auðvit-
að með venjulegum yfirlmrð-
um og afbragðsafreki á alþjóða
mælikvarða. Jóel verður vafa-
lítið næstur. Þarna keppa samt
ágætir íþróttamenn, eins og
Bragi Friðriksson, K.R. og Þor-
varður Árnason UlA, sem vel
gætu reyjizt Jóel hættulegir
keppinautar. — 800 m. Iilaupið
vreður mjög spennandi, því þar
mætast óvanalega góðir og
jafnir keppendur. Ef gott verð-
ur að hlaupa, gæti vel farið svo,
að nýtt met verði sett. Aðal-
keppnin verður að líkindum
milli þeirra Harðar Hafliðason-
ar, Á, Brynjólfs Ingólfssonar,
KR, og Kjartans Jóhannssonar,
IR, og óvisst um „hver skjöld-
inn ber“. Maður saknar þarna
Sigurgeirs Ársælssonar, margra
fyrri ára meistara, sem hefir
verið slæmur í fæti í sumar. —
I spjótkasti eru úrslit. óviss,
enda þótt Jóel liafi með afreki
sínu á Allsherjarmótinu, —-
54.29 m. —i sýnt, að hann hef-
ir mikil líkindi til sigurs. Kepp-
endur eru þarna margir ágætir,
t. d. Jón Hjartar, KR, fyrra árs
meistari á 53,19, og þeir bræð-
ur Tómas og Þorvarður Árna-
synir frá UlA, sem háðir kasta
talsvert yfir 50 m. Ef veður
verður gott, verður mjög gam-
an að sjá þessa keppni. — 5000
m. hlaupið ætti Öskar Jónsson,
IR, að haf& hafa mikil líkindi
til að vinna — og kannske á
allgóðum tíma. — Langstökldð
vinnur Oliver Steinn, FI4, að
líkindum; Skúli Guðmuiidsson,
KR, næstur. Þó getur þetta far-
ið öðruvísi, því matgir ágætir
keppendur eru þarna, sem gætu
sýnt óvænta getu.
Á morgun verður keppt í
þessum greinum: 100 m. hlaupi,
stangarstökki, 1500 m. hlaupi,
kringlukasti, 110 m. grinda-
hlaupi, sleggjukasti, þrístökki
og 400 m. hlaupi.
I 100 m. hlaupi eru 16 kepp-
endur. Meðal þeirra eru flestir
beztu spretthlauparar Reykvík-
inga# Islandsmeistarinn Oliver
Steinn, FH, og þrír ágætir
spretthlauparar utan af landi.
Gunnar Stefánsson, sigurvegari
í 100 m. á þjóðhátíð Vestm.-
eyja, Höslculdur Skagfjörð, er
vann 100 m. á Borgarfjarðar-
leikmótinu, Guttormur Þorm,
ar, er vann 100 m. (á 11,4) á
íþróttamóti Austurlands nú ný-
lega. Mega reykvískir sprett-
hlauparar búast við harðri
keppni af hálfu þessara manna
og virðist mjög óvisst um úr-
slit, því að i sumar liafa Reyk-
víkingar verið heldur slakir á
100 m. sprettinum. — Stangar-
stökkið má telja fyrirfram tap-
aða grein fyrir Reykvíkinga, en
þar verður mjög skcmmtileg
keppni, því að hæði núverandi
methafi (Guðjón Magnússon)
og fyrrverandi (Olafur Erlcnds-
son), báðir frá K.V., kcppa, áuk
margra annara 3-metra manna.
Er óhætt að segja, að jjetta
verður mesta stangarstökks-
keppni, sem hér hefir nokkurn
tíma sézt. — 1 1500 m. hlaup-
inu keppa 5 ágætir hlauparar.
Á Allsherjarmótinu vann Hörð-
ur Hafliðason hlaupið á 4:16,6
mín. Má telja hann líklegan til
sigurs, þótt hann hafi skæða