Vísir - 15.08.1944, Side 1

Vísir - 15.08.1944, Side 1
Ritstjórar: Kristján Guðiaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofun Félagsprentsmiðjan (3. hæð) 34. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 15. ágúst 1944. Rítstjórar Blaðamenn Slmii Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 llnur Afgreiðsla 182. tbl. Emtrá'S i 'vm Rétt eftir klnkkan tín í iuorgmi vai* gefin út tiflkynning1 iini það í aðitllueliÍNtöðviiiii kandamanna við Riðjarðarhaf, §em ini kafa verið flnttar til Italíu, að innrás væri kafin í Siiðiir-Frakkland. ■pilkynningin um innrásina var mjög stuttorð og hljóðaði á þessa leið: „I morgun snemma hófu amerískar, brezkar og franskar hersveitir innrás í Suður-Frakkland. Hersveit- irnar nutu verndar sterkra sveita herskipa og flugvéla.“ Til- kynningin var ekki lengri, en fregnir verða birtar af innrás- inni jafnótt og þær berast. Þegar þessi tilkynning hafði verið lesin á fjölda tungumála, var lesið ávarp frá Sir Henry Maitland-Wilson, yfirhershöfð- ingja bandamanna við Miðjarðarhaf. Hét hann á Frakka að duga nú sem bezt í baráttunni fyrir frelsinu. Þær fregnir hafa síðan bor- ætlað að ná, Idukkustund eftir að innrásin hófst. Þjóðverjar bjuggust við innrás í S.-Frakkland, Miklar loftárásir á þau héruð. izt, að fyrstu tvo tíma innrás- arinnar hafi sjö fylkingar land- gönguliðs verið sendar á land, eftir að hnndruð flugvéla höfðu 'haldið uppi gríðarlegum skot- árásum á strandvirki Þjóð- verja, en jafnframt héldu her- •skip líka uppi mikilli skothríð. E|n hefir ekki verið skýrt frá því, hvar landgangan var framkvæmd, en gert er ráð fyr- ir því, að það sé meðal annars beggja vegna við Marseilles. Fallhlífalið bandamanna var látið svífa til jarðar um 3 km. uppi í landi nokkru fyrir dög- un, en þegar dagur rann hófst skothrið herskipa banda- manna. Þegar klukkan var átta renndu fyrstu bátarnir upp i sandinn á ströndinni, sem valin hafði verið fyrir inn- rásina. SfÐUSTU FREGNIR: V Hersveitir bandamanna tólcu fyrstu stöðvar, sem þeim var 800 innrásarskip. Fregnir, sem bárust eftir kl. 12 herma, að 800 skip hafi verið notuð við innrás- ina í Suður-Frakkland og hafi verið gengið á land milli Nizza og Marseilles. Á undan fóru flugvélar fullar af her- mönnum og er þess sérstak- lega getið, að aldrei hafi far- ið fram meiri herflutningar i lofti. Brezkur blaðamaður, sem flaug yfir innrásarsvæðið, er innrásin var að hefjast, segir, a ðsvo sem engin mótspyrna hafi verið veitt. Flogið var lágt, en samt var aldrei skotið á flutningavélarnar, og hvergi sást þýzk flugvél á lofti. f fregnum í gærkveldi sagði svo: Þjóðverjar virðast nú búast við því, að bandamenn hyggi til landgöngu í Suður-Frakk- landi og er rætt um það í fregnum frá Þýzkalandi. Hermálafræðingur Trans- ocean-stofunnar, Sertorius, hef- ir látið svo um mælt, að það sé ekki liklegt að fjandmenn- irnir leitist við að komast á land í Liguriu, því að þar sé landið svo hálent, að illt sé að berjast þar. Hinsvegar megi gera ráð fyrir því, að þeir geri innrás á suðurströnd Frakk- lands, þar sem aðstæður allar eru betri. Árásir eru harð^ri. Það er eitt, sem getur bent til þess, að þessi tilgáta Sertorí- usar sé ekki fjarri sanni, nefni- lega hinar harðnandi loftárásir bandamanna á suðurströnd Frakklands. Nú um helgina voru mörg hundruð stórar sprengjuflug- vélar í árásum á ýmsar stöðvar Þjóðverja í Suður-Frakklandi, allt frá landamærum ítalíu og vestur fyrir Rónar-ósa. Einnig hefir tíðum verið ráðizt á flug- vclli í Rón-dalnum. Meðal ann- ars fóru Lightning-flugvélar í árás á flugvöll einn 150 km. fyrir norðan Marseilles í fyrra- dag. 1. - Matvælasendingar til Florensbúa. Bandamenn hafa flutt mjög mikið af matvælum inn í Flor- ens, síðan þeir náðu á vald sitt þeim hverfum, sem eru á suð- urbakka Arno-fljóts. Mikið er af þýzkum leyniskyttum í norðurhverfum borgarinnar, og urðu allir þessir flutningar að faar um Vecchiobrúna, sem er yfirbyggð. ★ Itölsk blöð ræddu það mjög, hver áhrif koma Churchills til Rómar kunni að hafa á gang atburða við Miðjarðarhaf. Það hefir verið upplýst í Bretlandi, að manntjón af völd- um rakettusprengja Þjóðverja sé nú þriðjungi minna en fyrst eftir að skothríðin hófst. A&- Þeir stjórna innrásinni. Sir Ilenry Maitland-Wilson, Sir Harold Alexander. Ilerliví votir yfii* 100-150 þn§. iiiiiiina þý/.liii liði. Undanhaldsleid Þjóðverja þreng- ist óðum. Nýr ameriskur her kemur til sögunnar. Leið Þjóðverja til undan- halds úr „pokanum“ í Nor- mandie, milli framsveita Kan- adamanna og Bandaríkja- manna, verður æ þrengri og örðugri. Brezk blöð bollaleggja nú mjög um það, hversu mikið lið það sé, sem þarna er í vaxandi hættu. Sumir telja það um 150 þúsund, en aðrir fara varlegar í saldrnar og telja það varí meria en 100 þúsund manns. Vart hefir orðið við menn úr samtals 20 herdeildum, en sum- ar hafa goldið mikið afhroð og aðrar hafa ekki fullan mann- afla af ýmsum ástæðum. Undanhaldsleiðin verður æ brengri. Um hádegi í gær liófu Kan- adamenn sókn. Flugvélar gerðu árásir fyrst, m. a. 700 stórar brezkar sprengjuflugvélar, og vörpuðu þær niður um 4000 smálestum sprengja á stöðvar Þjóðverja. Síðan hófst sóknin, undir vernd flugvéla og gerfi- reyks. Þegar síðast fréttist af Kan- adamönnum voru þeir 5 km. frá Falais. Engar fregnir hafa komið af sókn Bandaríkjamanna sunnan frá Argentan, en þó er talið, að þeir hafi ekki verið með öllu aðgerðarlausir. En þótt kreppi að Þjóðverj- um verjast þeir engu verr en áður og þess sjást ekki merki, að alger flótti sé brostinn í lið- ið. — Nýr amerískur her. I gær var það gert uppskátt í fyrsta sinn, að þi’iðji amer- íski herinn er farinn að berjast í Normandie. Það var hann, sem brauzt suður yfir Bretagne- skaga á dögunum og er nú að slá hring um þýzku hersveit- irnar. (iöb)bcl§ sendir menn i herinn. Göbbels heldur áfram að fækka mönnum í ýmsurn at- vinnugreinum Þýzkalands og taka bá í her eða verksmiðjur. Nú hefir hann og dr. Oline- ; sorge, sem er einn fti ráðherr- j unura, gert.áætlun um hvernig spara megi mannafla í póst- þjónustunni og er sú áætlun þegar komin í framkvæmd. Þá hefir Tierhach dómsmálaráð- herra undirhúið einfaldari starfsreglur fyrir sína mcnn og fækkað þeim að mun. Hljomleikaför til Westf jarða. Frá fréttaritara Vísis. Patreksfirði í gær. 1 gærkveldi (sunnudag) hélt Hallgrímur Helgason tónskáld kvöldsöng hér í Eyrarkirkju. Voru þetta hljómleikar með íslenzkum lögum, en auk þess Bretar munu berjast með U.S.A. gegn Japan. Bretar fullvissa Bandaríkja- menn enn um það, að þeir muni standa við hlið þeirra í stríðinu við Japana. Halifax lávarður, sendilierra Breta i Wasliington, hefir liald- ið ræðu þar vestra. Kvaðst hann geta fullvissað Bandarilcjamenn um það, að Bretar mundu leggja fram alla krafta sina við hlið Bandaríkjanna, er búið væri að leggja Þjóðverja að velli og röð- in kæmi að því að sigra Japana. Hitler hefir sett SS-mann, Jungklaus, sem er ekki í hern- um, yfir selidið Þjóðverja og Gestapo í Belgíu. var flutt stutt erindi til skýr- ingar og loks var söngur. Ann- aðist faðir tónskáldsins söng- inn. Hallgrímur fór héðan til Bíldudals. Rússar ná mikil- vægri borg. Útvirki A.-Prúsalands. Rússar hafa náð á vald sitt einu af aðalvirkjum Þjóðverja fyrir suðaustan Austur-Prúss- land. Þetta er borgin Osovitz. Mikilvægi borgarinnar er meðal annars fólgið í því, að um hana liggur járnhrautin frá Bialistok, norðvestur á bóginn og yfir Masurisku vötnin, til Lyck, fyrstu borgarinnar innan landamæra A.-Prússlands. Þetta voru liclztu fregnir frá austurvígstöðvunum í gær. — Annars staðar var víðast barizt af sama ofsa og áður, en leik- urinn virðist nú vera orðinn svo jafn um sinn, að hvorugur vinn- ur verulega á. Þjóðvcrjar gera mikil gagnáhlaup fyrir austan Varsjá og einnig á brúarstæði Rússa fyrir vestan Vistulu, suð- ur á móts við Krakow. Norður í Eistlandi sækja Rússar jafnt og þétt á, en liafa TTmi uppreistarimar er kominn - De Oaulle De Gaulle hefir ávarpað frönsku þjóðina og hvatt hana til uppreistar gegn Þjóðverjum og handbendum þeirra. 1 ræðu sinni sagði De Gaulle meðal annars: „Franska þjóð! Tími lausnar- innar er kominn. Nú verður þú að risa upp og skipa þér sem einn maður í fylkingar hersins, sem berst gegn Þjóðverjum að baki vígstöðvum bandamanna og allir verða að fylgja skipun- um þeim, sem hinir kjörnu for- ingjar hersins gefa þeim.“ De Gaulle beindi einnig orð- um sínum sérstaklega til verka- manna og hét á þá að liefja þeg- ar allslierjarverkfall. Loítárásir á eyjar við Japan. Bandaríkjamenn gerðu enn í gær árás á Kuril-eyjar norður af Japan. Japanir liafa reynt að efla varnir sínar þarna, en elcki tek- izt að hindra árásis Bandaríkja- manna og er tjón þeirra jafnan hverfandi. Amerískar flugvélar hafa einnig gert harða árás á Bonin- eyjar, sem eru 4500 km. fyrir sunnan Kuril-eyjar, en aðeins um 1000 km. frá Japan sjálfu. Yfirmaður pólska leyniliers- ins liefir gefið öllum mönnum sínum skipum um að halda til Varsjár, til að hjálpa, við að taka horgina frá Þjóðverjum. • Þjóðverjar liafa kallað heim flotafulltrúa sinn í Stokkliólmi, en liann er grunaður um að hafa haft samband við uppreistar- herforingjanna þýzku. Gunnar Björnsson skattstjóri selur blað sitt. Eigendaskipti hafa orðið á ameríska blaðinu „Minneota Mascot“. Gunnar Björnsson, sem átt hefir ldaðið frá því fyrfir alda- mót, liefir selt það Vestur-Is- lendingnum Ragnari Guttorms- syni. Svnir Gunnars, Hjálmar, Valdimar og Björn hafa allir verið ritstjórar hlaðsins hver af i öðrum, er þeir útskrifuðust úr j skóla. ekki tekið neina stórborg eða mikilvæga samgöngumiðstöð.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.