Vísir - 14.09.1944, Page 2
VISIR
VÍSIF?
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritatjórar: Kristján GnSIangsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Simar: 16 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánnði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Miklir í máli, —
minni í verki.
J|ú er setið á rökstólum, og
setið er senn meðan sætt
er. Ríkisstjórnin hefir lýst yfir
því, að hún muni víkja frá
völdum hafi samkomulag ekki
náðzt milli þingflokkanna um
lausn dýrtíðarmálanna eftir
daginn í dag. Stjórnmálaflokk-
arnir telja það alger óartugheit
hjá ríkisstjórninni, að veita
þeim ekki lengri frest til samn-
ingaumleitana, þótt þeir hefðu
átt að öðlazt nægilega kristilegt
hugarfa^ til samstarfs á tveim
blessuðum jólahátíðum og vax-
ið ásmegin i tveim sumarfríum
til að ryðja þeim björgum úr
brautu, sem í veginum stóðu
fyrir samstarfi. Nú gráta blöðin
krókódílatárum yfir fráför
stjórnarinnar og lýsa harmi sín-
um og kvíða vegna framtíðar
þjóðarinnar. Og hvað gerir Al-
þingi nú, — þessi stofnun, sem
stendur á fornri frægð, — eins
og eitt blaðið orðar það?
Er eklci von að menn vikni?
Það hefir víst enginn búizt við
að stjórnin myndi segja af sér,
er loku var fyrir það slcotið að
henni tækist að leysa þau mál,
sem hún lýsti yfir í öndverðu
að hún teldi hlutverk sitt að
leysa. Lausn sjálfstæðismálsins
er lokið. Lausn dýrtíðarmál-
anna tryggir sjálfstæðið til
langframa. Þessi mál verður að
leysa. Þau gefa ekki lengri um-
hugsunarfrest. Nú er það þing-
ið, sem á leikinn, — og það hefir
leilcnina, enda elcki talið þörf á
aðstoð ríkisstjórnarinnar í þeim
sölcum. Það hefir hafnað öllu
samstarfi qg nú ber því skylda
til að sýna hvers það er megn-
ugt. Ráðherrastólarnir geta
staðið auðir á hvaða mínútu
sem er, og það ætti ekki að
verða neinn hörgull á ráðherra-
efnum. Alþingi hefir búið svo
vel í haginn fyrir þá, að lítil
hætta er á að góðir menn ljái
ekki máls á að talca sessinn og
annast framkvæmdirnar. Það
er ef til vill ekki viðeigandi að
nefna snöru í þessu sambandi,
— en komið hefir fyrir að stór
risi hefir verið að velli lagður
með slíku tæki, — og það var
nú það, sem eg ætlaði að segja.
Á morgun koma fram nýir
menn, sem taka að sér foryst-
una. Danskurinn talar um
,Store Ord — smaa Gærninger".
Þingflokkarnir munu sýna að
slíkt á ekki við. Sumir tala um
„hristing". Það kvað ekki vera
neinn kjarnadrykkur. Gömul
og góð íslenzka segir: Með illu
skal illt út drífa, — og hver
veit nema hrinstingurinn eigi
nú eftir að bjarga íslenzku
þjóðinni. Sumir eru nú svo
svartsýnir að telja þann mögu-
leika fyrir hendi, að þótt mál-
pípurnar geti verið miklar í
máli, vilji oft verða minna úr
verki, en það eitt er víst, að
þeir svíkja engan, sem engar
kröfur eru gerðar til og menn
búast ekki við afrekum af. Og
gerið þið svo vel, — nú eru
ráðherrastólarnir lausir.
Urgur.
Jðnverkamenn eru margir
hverjir sáróánægðir yfir
Kvikmyndafélagið §aga ætlar
að bygrgja iiýtt lelkhúi í Rvík.
Hefur beðiö um lóð og ennfremur
um leyfi til kvikmyndaeýninga.
J^vikmyndafélagið Saga h.f., sem stofnað var hér í bænum
á síðasthðnu vori, hefir ákveðið að koma upp leikhúsi
í Reykjavík og í því skyni sótt um byggmgarlóð til bæjar-
ins. Jafnframt hefir félagið óskað eftir að fá leyfi til kvik-
myndasýninga í þessu húsi.
Félagið hyggst að byrja á húsbyggingunni strax og leyfið
er fengið, en gert er ráð fyrir að í henni verði sýningarsalur,
er rúmi um 600 manns, sérstalcur veitingasalur og auk þess vinnu-
salir og skrifstofur félagsins.
Kvikmyndafélagið Saga telur j aður er svo mikill, að félaginu
fulla þörf á nýju leikhúsi í jafn j þótti ekki tiltækilegt að taka
stórum bæ og Reykjavík er, og
það eigi að síður þótt þjóðleik-
húsið komist von bráðar upp.
Byggingu nýs leikhúss telur fé-
lagið elclci gerða í samkeppnis-
skyni við Leikfélagið né þjóð-
leikhúsið, heldur sé það vegna
þess, að eitt leilchús mundi á
, engan hátt full'nægja leikhúss-
þörf jafn stórs bæjar og Reykja-
vík er orðin. Auk þess er bær-
inn í mjög hröðum vexti og
þörfin því enn meira aðkallandi.
Kvikmyndafélagið Saga vill
með starfsemi sinni leggja fram
sinn skerf til menningarstarf-
semi höfuðstaðarins, svo og
landsins í heild, og það telur
sig gera það að nokkru með
því að efla leiklistina í landinu
þessum boðum, en hefur hins-
vegar ákveðið að kaupa 16 mm.
kvikmyndavélar með hljóm-
upptöku.
Allverulegur þröslculdur í
vegi fyrir kvilcmyndafram-
leiðslu hér á landi eru hinir
háu tollar, sem eru á mynda-
vélum og filmum. Væri ekki úr
vegi, að hið opinbera endur-
slcoðaði afstöðu sína til þessar-
ar tollalöggjafar, því að mynda-
tökur og kvilcmyndir geta engu
að síður verið menningartæki
en t. d. bækur, sem þó eru toll-
frjálsar. íslenzku þjóðinni er
það blátt áfram nauðsyn, að
menning hennar sé kynnt á er-
lendum vettvangi og ekkert er
betur til þess fallið en einmitl
Heimsókn f orseta
í Hafnarfjörð.
FRÉTT ATILK YNNIN G
frá utanríkisráðuneytinu.
Forseti Islands kom til Hafn-
arfjarðar lcl. 6 á þriðjudag. —
Bæjarfógeti, bæjarstjóri og bæj-
arstjórn kom til móts við hann.
Síðan var elcið í Hellisgerði, sem
var fagurlega skreytt. Þar bauð
bæjarstjóri forseta vellcominn
með ræðu, að viðstöddum fjölda
og sýna þess á milli úrvals kvik- | kvikmyndir. Nú er það m. a.
myndir. Og þar sem félagið hef- | eitt af aðalhlutverkum hins ný-
stofnaða félags, að taka slíkar
kvikmyndir af atvinnuháttum,
menningu og þjóðlífi voru, og
mun að því verða hinn mesti
fengur, bæði til að lcynna Island
út á við og líka til að' geyma
sem sögulega heimild fyrir
þjóðina sjálfa.
I þessu sambandi má geta
þess, að íslendingur cinn, sem
búsettur er erlendis, hefir skrif-
að hingað heim, er hann frétti
af stofnun kvilcmyndafélagsins,
og látið ánægju sína í ljósi yfir
henni, jafnframt því, sem hann
lcvartar mjög undan því, að
ekki skuli vera neinar kvnning-
armyndir til af Islandi hjá
sendiráðunum ytra til að sýna
þær útlendingum.
Stofnendur kvikmyndafélags-
ins Saga voru 11 að tölu. For-
maður félagsins er Haraldur Á.
Sigurðsson, en framkvæmda-
stjóri þess er Sören Sörensen.
ir ekki ætlað sér að fara fram
á neinar styrkbeiðnir, hvorki
frá ríki né bæ, telur félagið það
ekki nema sanngjarnt, að
Reykjavíkurbær hjálpi þvi um
lóð undir hús.
Fyrirhugað er að leika bæði
sígild leikrit og eins gamanleiki
eða revýur í leikhúsinu og má
ætla að með þessu áukist leik-
starfsemin til muna og að henni
vaxi fiskur um hrygg hér í höi'-
uðstaðnum. Þá yrði byggmg
þessi einnig að sjálfsögðu höf-
uðbælcistöð fyrir stai’fsemi fé-
lagsins.
Kvilcmyndafélagið hefir
spurzt fyrir um kaup eða út-
vegun á lcvikmyndatækjum
ytra, en það er mjög erfitt að
fá stór, eða 35 mm. upptöku-
tæki, og alls ekki öðruvísi
en leigð. En leigan er ekkert
smáræði, því að stofngjaldið
eitt er hvorki meira né minna
en 24 þúsund dollarar, en auk
þess er svo krafizt 10% hagn-
aðar af hverri kvikmynd, sem
telcin er af félaginu. Þessi kostn-
framferði þeirra manna, sem
þéir hafa falið forystu mála
sinna. I mánuð hafa þeir geng-
ið atvinnulausir og njóta einsk-
is styrks af hálfu félagsins sér
til lífsuppeldis. Konur, sem áð-
ur hafa unnið í ákvæðisvinnu
hjá iðnfyrirtækjunum, hafa
innunnið sér yfirleitt nokkuð á
annað þúsund krónur, — og
það munar um minna. Ekki er
annað sjáanlegt, en að verkfall-
ið hljóti að halda áfram enn
um skeið, og safnast þegar sam-
an kemur, — en enginn lifir á
því, sem glátað er með öllu. Sín
í millum kvarta menn sáran yf-
ir framferðinu, en fólkið þörir
ekki að rísa upp í móti brodd-
unum, — býst við ofsóknum og
ofbeldi frá þeirra hálfu. En þá
er að sýna samtakamáttinn,
varpá þessum mönnum fyrir
róða og fela öðrum að leysa
deiluna. Það er auðvelt að leysa
hana, standi öfgamenn ekki í
veginum og rísi gegn öllu sam-
komulagi. Til deilunnar var í
upphafi stofnað af fyrirhyggju-
leysi og henni er haldið áfram
á sama hátt. Sumir menn hafa
gaman af slíku, — einkum ef
þeir geta látið dálítið á sér bera,
— en þetta er of dýrt gaman
fyrir iðnverkafólkið og fyrir
þjóðina alla.
60 ára
er í dag Bjarni Bjarnason frá
Björgum á Skagaströnd, nú til heim-
ilis á Breiðholtsvegi 22.
Forseti talar í Hellisgerði.
Ljósm.: Magnús Bl. Jónsson
fólks. Síðan hélt forseti ræðu.
Lítil stúlka afhenti honum
blóm. Karlakór söng undir
stjórn séra Garðars Þorsteins-
sonar.
Þá afhenti Kristján Magnús-
son, formaður Magna, forseta
fallega ljósmynd af Hellisgerði
að gjöf frá framkvæmdastjórn
Hellisgerðis. Síðan-var ekið að
Flensborg. Þá var slcoðað hið
nýja ráðhús bæjarins. Síðan
vár sundlaug bæjarins skoðuð.
Þar tók Hallsteinn Hinriksson
á móti forseta og afhenti hon-
um með stuttri ræðu fallegan
blómvönd.
Þá heimsóttu forsetahjónin
bæjarfógeta og dvöldu þar um
stund. Um kvöldið sátu forseta-
hjónin kvöldverðarboð bæjar-
stjórnar og sýslunefndar. Undir
borðum héldu þessir menn
ræður: Bcrgur Jónsson bæjar-
fógeti, Björn Jóhannesson for-
seti bæjarstjórnar, forseti Is-
lands, séra Garðar Þorsteinsson,
Emil Jónsson alþingismaður og
Bjarni Snæbjörnsson s læknir.
Að kvöldverðinum lolcnum
fylgdi bæjarstjórn forsetahjón-
unum til Bessastaða.
JZ
Scrutator:
XjaAAbi <AbrY\&jM\iy\jty&
„Þannig er það annars staðar.“
Eg fékk í gær hugvekju frá „ís-
lendingU, og hefir hann allt á horn-
um sér, sem erlent er, en sér ein-
ungis gott í því, sem er íslenzkt.
Þat5 er nú allt gott og blessað og
er eg að mörgu leyti sammála bréf-
ritaranum, en á öndverðum meiði
að öðru leyti.
„íslendingur“ kemur víða við,
enda er af mörgu að taka i þessu
efni, en af því að hann er eklci
kröfuharðari um birtinguna en svo,
að hann segist gera sig ánægðan
með að tekið sé aðalatriði bréfsins,
því að hann geri sér ljóst að í
heild sé það alltof langt, þá ætla
eg að notfæra mér það tilboð hans.
Hann segir m. a.: „Hér á landi
er margur þeirrar skoðunar, að ekk-
ert sé gott, nema það sé innflutt
frá öðrum þjóðum og á eg þar bæði
við varning og ýmis konar áhrif
menningarlega. Þegar menn berjast
fyrir einhverju máli, þá er oft við-
kvæðið, að svona sé þetta eða hitt
haft erlendis og þess vegna hljóti
það að vera gótt.
Margt verra erlendis.
Eg fæ yfirleitt ekki séð, hvernig
þeir menn, sem þannig tala, geti
haldizt hér við stundinni lengur. Is-
land og það, sem íslenzkt er, þykir
þeim til einskis nýtt og hlaupa upp
til handa og fóta, ef spyrnt er við
því, sem þeir vilja innleiða. Eg held
satt að segja, að við íslendingar
höfum haft litið gott af því, sem við
höfum fengið frá öðrum. Það, sem.
þjóðin hefir skapað með sér sjálf,
hefir jafnan reynzt bezt við eig-
andi í íslenzku umhverfi."
Nú held eg, að eg hafi birt nóg
af þessu bréfi, til þess að menn geti
gert sér nokkra hugmynd um það
allt. Og þegar svo er komið er eg
að hugsa um að leggja sjálfur hér
orð í belg.
Ekki gleypt við öllu.
Eg held, að mér sé óhætt að
segja, að „Islendingur" fari nokk-
uð geyst í sakirnar. Eg held, að
enginn sé eins fullur af aðdá-
un á því, sem erlent er, og hann
vill vera láta, nema ef vera skyldi
einhver af kunningjmn hans, sem
hann er þá að gefa ádrepu með
þessu skrifi.
Hins vegar gera mjög margir sér
Ijóst, að við getum margt nytsamt
lært af öðrum þjóðum og þá fyrst
og fremst á sviði tækninnar. Því
getur „íslendingur“ varla neitað og
hann mun heldur ekki geta borið á
móti því, að menn reyna eftir mætti
að sporna við ýmsum óheilnæmum
áhrifum frá öðrum. Þar munu allir
góðir Islendingar standa fast sam-
an, en hitt væri fásinna að vilja
loka sig inni með öllu, því að það
er í raun og veru fyrsta skrefið á
leiðinni aftur á bak.
Guðrún Guðlaugsdóttir:
Iðja nndir stjórn
kommnntsta.
Iðja, félag verksmiðjufóllcs,
hóf verkfall 1. ágúst s.l. Verk-
smiðjufólkið er því búið að
ganga atvinnulaust í einn og
hálfan mánuð, og getur engan
undrað, þó að sumt af því fari
að hugsa á þá leið, að hér sé
um vafasaman greiða að ræða
af hendi þeirra manna, sem
telja sig sjálflcjörna leiðtoga
hinna vinnandi stétta. Ekki er
vitað enn sem komið er að nein-
ar samningaumleitanir hafi far-
ið fram á milli vinnuveitenda
og launþega, og virðist því
horfa noklcuð þunglega um
samkomulag milli þessara
tveggja aðila. Meðal verk-
smiðjufólksins er hópur kvenna
sem vinnur í álcvæðisvinnu.
Hlýtur því óhjákvæmilega að
verða mjög tilfinnanlegt tap
lijá þeim stúlkum, sem álcvæð-
isvinnvi stunda, því að eklci bíða
þeirra neinar lcjarabætur, svo
að orð sé á gerandi.
Yfirleitt virðist fólkið vera
mjög óánægt með þetta verk-
fall, og margt af því telur sig
ekki geta viðurkennt réttlæli
þess, og liggja til þess margar
orsalcir. Fundurinn, sem hald-
inn var til samþylcktar verk-
fallinu, var illa sóttur eða inn-
an við 100 manns, en Iðju-fé-
lagar munu vera í lcringum 800
—1000 að tölu. Fyrirlcomulag
atkvæðagreiðslunnar fer þannig
fram, að tillögur, sem fram
koma, verða að afgreiðast með
opinberum handauppréttingum.
Fólk þorir því elcki að greiða
atkvæði. Það situr þegjandi hjá,
án þess að vera samþylckt því,
sem er að gerast. Það veit sem
er, að þeir, sem lýsa sig andvíga
forkólfunum, verða oft og ein-
att píslarvottar og slcoðaðir sem
svikarar við stétt sína.
Iíommúnistar hrópa hátt um
það, að þeir vilji réttlæti fyrir
hinar vinnandi stéttir. En er
þetta réttlæti? Að gera fóllc at-
vinnulaust mánuðum saman og
skapa þannig fátækt og örbirgð
innan heimilanna í stað vel-
megunar. Vonandi fer verlca-
fólkið að sjá, að hér er eklci
um að ræða umhyggju fyrir
því, hcldur virðist vera mark-
vist stefnt að, því að slcapa al-
gert öngþveiti í atvinnumálum
þjóðarinnar.
Mér virðist því, að fyrsta
skilyrðið til þess að verkafólk-
ið geti látið skoðanir sínar í
ljósi í atvinnumálum sínum, sé
það að fá kosningafyrirkomu-
laginu breytt þannig, að það
fari fram eftir sömu reglum og
til dæmis eru viðhafðar við Al-
þingiskosningar, þ. e. a. s. séu
leynilegar kosningar, svo fólk
■ þurfi ekki að eiga á hættu að
verða hundelt fyrir skoðanir
sínar, svo sem mörg nærtæk
dæmi eru fyrir.
Eg er þess fullviss, að ef
verkafóllcið fengi sjálft að ráða,
án íhlutunar pólitískra „spelcúl-
anta“, myndi hagsmunum þess
bezt borgið.
Reylcjavík, 14. sept. ’44.
Nýr doktor.
Nýlega hefir borizt fregn um
það hingaÖ til lands, aÖ Magnús
SigurÖsson hafi fyrir skömmu lok-
iÖ doktorsprófi við háskólann í
Leipzig. Magnús fór til .náms í
Þýzkalandi árið 1938 og stundaÖi
nám í verzlunarfræði í Leipzig.
Prófi lauk hann í þessari grein ár-
ið 1942, en hefir síðan unnið að
dolctorsritgerð sinni. . Magnús er
sonur Sigurðar Björnssonar frá
Veðramóti og konu hans Sigur-
bjargar Guðmundsdóttur.
Næturlæknir
Læknavarðstofan, sími 5°3°-
Næturvörður
er í Laugavegs Apóteki, sími
1616.
Næturakstur
E f n i
telpu-skólakjóla
1 og
telpukápur
fyrirliggjandi
í miklu úrvali.
Niels Carlsson & Co.
Sími 2946.
Laugavegi 39.
Athugið!
Hefi opnað slcóvinnu-
stofu á Slcólavörðustíg
13 A, balchús. Allar við-
gerðir fljótt og vel af
hendi leystar.
Zophonías Benediktsson.
STÚLKA
óskast í
Kópavogshælið
1. október. Uppl. hjá
yfirhjúkrunarkon-
unni.
F ó s t n r.
Óska eftir að koma 1
árs dreng í fóstur hjá
góðu fóllci. — Tilboð
leggist inn á afgr.
blaðsins, merlct „Gott
fólk“.
. -^rjálsiþrbttamanncL
Fæst ennþá
í bókaverzlunum.
Karlmanna-
axlahönd
úr teyju.
H. T0FT
Skólavörðust. 5. Sími 1035
Stúlka,
vön matreiðslu og
saumaslcap, óskar eftir
ráðslconustöðu eða ann-
ari vinnu. Húsnæði á-
skilið. — Sími 2419.
Kjóla-
saumaverkstæði,
með góðum lager og vélum,
í góðu húsnæði, til sölu nú
þegar. Tilboð merlct „Sauma-
verkstæði", leggist inn á af-
greiðslu blaðsins fyrir föstu-
dagskvöld.