Vísir - 14.11.1944, Síða 1
R!tst)6rar
Blaðamenn
Auglýsingaf
Gjaldkerl
' Afgreiðsla
Slmli
1660
5 llnur
229. tbl.
Ruhr og Rínarlönd
undir alþjóða-
stjórn
Fregnir frá París herma,
að Churchill og De Gaulle
hafi orðið á eitt sáttir um
það, að setja verði Ruhr og
Rínarlönd undir alþjóða-
stjóm að stríðinu loknu, til
þess að gera Þjóðverjum ó-
mögulegt að hefja stríð.-Þetta
mundi á engan hátt tákna, að
héruð þessi yrðu lögð undir
Frakka, þótt þeir mundu
hafa hönd í bagga með stjórn
þeirra ásamt Bretum, Banda-
ríkjamönnum og Rússum.
Þá er Churchill sagður hafa
fallizt á það fyrir sitt leyti
við De GauIIe, að Frökkum
verði falin setuliðsstjóm
tiokkurs hluta Þýzkalands
eftir stríð.
Reynt að finna varnir
gegn þýzku rakett-
unum.
Færustu vísindamenn Breta
starfa nú að því dag og nótt að
finna vamir gegn hinu nýja
vopni Þjóðverja.
1 fregnum frá opinb. heim-
ildum segir, að fyrir löngu hafi
verið gerðar ráðstafanir til þess
að veita móttöku slíku vopni
af Þjóðverja hálfu, en erfiðasta
viðfangsefnið sé að finna aðferð
til að verða skeytanna var, þeg-
ar þau steypast ofan úr háloft-
unum.
Ólíklegt er talið, að Bretar
gefi fyrst um sinn nokkrar upp-
lýsingar um tjón það, sem rak-
ettur þessar valda.
Síðan stríðið hófst hafa sam-
tals 10,6 milljónir enskra her-
manna verið fluttir út um heim
sjóleiðis. Aðeins 3000 hafa far-
izt í flutningum.
í áttundu árásinni, sem banda.
menn gerðu á orustuskipið Tirp-
itz, tókst loks að sökkva því í
Tromsö-firði.
Það voru Lancaster-vélar,
sem liöfðu sex smálesta sprengj-
ur að vopni, sem réðu að lokum
niðurlögum skipsins og hafði
þó tvisvar áður verið ráðizt á
það með „landskjálftasprengj-
um“ eins og Bretar kalla þessi
vopn sín. En áður hafði ekki
tekizt að granda því og í árás-
um flotaflugvéla, brezkra og
rússneskra kafbáta hafði það
varla sakað.
f I
Þrjár sprengjur
riðu því að. fullu. .
Flugmennirnir segja, að
fyrstu sprengjurnar hafi lent
skammt frá skiipinu, en síðan
lentu þrjár næstu sprengjur á
því, sú fyrsta miðskipa, önnur
frammi við stafn og sú þriðja
aftur á skut.
Loftvarnabyssur skipsins
höfðu slcotið ákaflega, þegar á-
rásin hófst en hættu með öllu,
þegar fyrsta sprengjan hafði
Ovíst um farm
Goðafoss.
Ekki er vitað með vissu hvaða
vörur Goðafoss hafði innan-
borðs í síðustu för sinni, því að
skipsskjölum varð ekki bjargað.
Sögur hafa gengið um það, að
í skipinu hafi verið m. a. mildð
vörumagn til vefnaðarvöru-
innflytjenda og einnig talsvert
af smjöri, sykri og vélum. En
engar þessara fregna er hægt
að staðfesta eins og sakir
standa, fyrr en fregnir hafa bor-
izt vestan um haf um farm
skipsins.
Japanir hafa misst
alls Z500 skip,
Síðan Japanir réðust á Pearl
Harbor 7. desember 1941, hafa
þeir misst 7500 skip á Kyrra-
hafi.
Meðal skipa þessara eru 9 or-
ustuskip og tuttugu og tvö flug-
stöðvarskip, en annars eru
þarna talin öll smáskip, sem
sökkt hefir verið fyrir Japön-
um, innrásarbátar o. þ. h.
Bandríkjamenn segjast á
sama tíma hafa misst 2700 skip
af öllum stærðum og gerðum.
Stálinu stappað í
Þjóðverja í Póllandi.
Himmler og Guderian hafa
haldið ræðu til þýzku landnem-
anna, sem settir voru niður í
Póllandi árið 1939.
-Sagði Himmler, að þýzki her-
inn mundi bráðum sækja út fyr-
ir landamæri Þýzkalands aftur
og vinna það landrými, sem
þýzku þjóðinni er nauðsynlegt
til að geta lifað. Sagði hann, að
það væri rétt að minna fólk á
þetta nú, er illa virtist horfa
í málum Þjóðverja.
Guderian, sem er yfirmaður
foringjaráðsins þýzka, sagði að
þýzka heimavarnaliðið hefði
komið upp stórkostlegum víg-
girðingum í Austur-Prússlandi.
liæft og eftir það var engu skoti
skotið. En eftir að sprengjurnar
höfðu lent á sínum stað, sáu
flugmennirnir margar spreng-
ingar í skipinu og eina stórkost-
lega, síðan ljómaði allt um-
hverfið af eldinum í þvi og loks
tók það að hallast.
Hvolfir.
Árásarflugmennirnir sáu ekki
afdrif sldpsins, en njósnaflug-
vél, er kom skömmu síðar, sá
það greinilega að skiþinu hafði
livolft og sást mikill hluti kjal-
arins upp úr. Lundúnablöþin
birtu í morgun myndir af
þessu.
Cliurchill hefir sent yfirmanni
sprengjusvéita Breta heillaósk-
ir og liann hefir aftur þakkað
flugmönnunum sjálfum.
45.000 smálestir.
Bretar telja, að. Tirpitz hafi
verið eigi minna en 45 þús. smál.
að stærð. Skipinu var hleypt af
stokkunum 1939 og var full-
smíðað árið 1941, skömmu eftir
að Bismarck var sökkt. 1500
menn voru á sldpinu.
III SæuRi sekkur út
ai HauwÉ.
Menn bjargast.
Um kl. 9 í gærmorgun skeði
á sá atburður, að vélbáturinn
Sæunn sökk. Var Sæunn stödd
út af Haganesvík, er þetta skeði.
Mannbjörg varð.
Sæunn var i flutningum fyrir
Kaupfél. Skagfirðinga og var á
leið til Hofsóss frá Siglufirði
með kol og olíu. Gott veður var.
Þegar báturinn var staddur út
af Haganesvík hrökk kúplingin
í sundur og þegar vélin snerist
af fullum krafti án viðnáms
skrúfunnar, varð liristingurinn
svo mikill, að mikill leki kom
brátt að bátnum. Skipverjar á
Sæunni fóru í báta og réru að
bátnum Særúnu, sem lá þar fyr-
ir festum. Báðu þeir Særúnu
um að draga $æunni á grynnra
valn, en er þeir komu á stað
þann, sem þeir höfðu yfirgefið
Sæunni, var báturinn sokkinn.
Vélbáturinn Sæunn var eign
Jóhanns Ásmundssonar, Ár-
skógssandi. Báturinn var
tryggður lijá Vélbátaábyrgðar-
félagi Eyfirðinga.
Barizt í Skoplje
og Tirana.
Götubardagar eru nú bæði í
Skoplje í Jugoslavíu og Tirana í
Albaníu.
J ugoslavar hafa hreinsað
þann liluta Skoplje, sem er á
hægri bakka Vardar-fljóts, en
skæðir bardagar eru á vinstri
bakkanum. Jugoslavar hafa
járnbrautarstöðina á sínu valdi,
en henni verða Þjóðverjar að
ná, ef þeir eiga að komast
lengra norður á bóginn.
Albanar hafa þrjá fjórðu
liluta Skoplje á valdi sínu.
Murmanskleiðin
orðin örugg.
Ekkezt kaupskip ferst.
Fyrir nokkru kom til Eng-
lands skipalest, sem farið hafði
til Murmansk og til baka, án
þess að verða fyrir tjóni.
Þjóðverjar gerðu samt marg-
ar tilraunir til að tvístra skipa-
lestinni og sökkva skipum úr
henni, en kaupförin komust öll
heilu og höldnu báðar leiðir.
Hins vegar tókst Þjóðverjum
að sökkva einu fylgdarsldp-
anna, en þau sökktu tveim kaf-
bátum og löskuðu aðra, auk
þess sem ein flugvlé var
skotin niður.
Til samanburðar er þess get-
ið, að einu sinni komust aðeins
fimm skip til Rússlands af 34,
sem lögðu af stað þangað.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.20 Tónleikar Tónlistar-
skólans: Strengjasveit leikur undir
stjórn dr. Urbantschitsch: a) Ov-
erture úr „Messíasi" eftir Hándel.
b) Preludio og Fúga eftir Karl O.
Rnuólfsson. c) Adagio og Fuga
eftir Mozart. 20.45 Erindi: Of sótt-
ut sjór, III.: Vitnisburður fiski-
rannsóknanna (Árni Friðriksson
mag.). 21.10 Hljómplötur: Píanó-
lög. 21.15 Islenzkir nútímahöfund-
ar: Halldór Kiljan Laxness les úr
skáldritum sínum. 21.40 Hljóm-
plötur: Kirkjutónlist.
Þrjár sprengjur riðu Tirpitz að fullu.
Þeim var varpað í átfundu árásinni á skipið.
Bandamenn taka hvert
Metz-virkið af öðru.
fluttur í
Memendnr yfir lOO.
1’ónlistarskólinn hefur nú skipt um húsnæði, flutt úr Hljóm-
listarskálanum við Tjörnina í nýtt og betra húsnæði í Þjóð-
leikhúsinu. •
Hefir Tónlistarskóhnn nú til
sinna umráða 5—6 kennslu-
stofur og auk þess lítinn sal.
Með' þessu liafa starfsskilyrði
skólans gjörhreytzt til batnað-
ar, enda var orðinn full þörf á
þvi. Enn er að vísu eftir að
gaijga frá ýmsu í 'nýja liúsnæð-
inu, en þó byrjað að kenna þar
fyrir nokkuru.
Enda þótt húsnæði þetta sé
lil mikilla bóta frá því sem ver-
ið hefir a(ð undanförnu, er þetta
þó ekki neitt fullnaðarhúsnæði
og markmiðið er að sjálfsögðu
eftir sem áður tónhstarhöll, þar
sem bæði verður hægt að halda
uppi kennslu og halda hljóm-
leika við fullkomin sldlyrði.
Nemendafjöldi er nú meiri
en nokkuru sirnii áður við Tón-
listarskólann eða yfir 100 að
tölu, fyrh- þó utan barnanám-
skeiðin, sem haldin eru á vegum
skólans. 1 fyrra voru nemend-
ur 85 að tölu, og var það þá
meira en áður voru dæmi til.
Sýnir þetta hinn vaxandi áliuga
ahnennings fyrir tónhst, enda
virtist í saimléika sagt ekki van-
þörf á því.
Dr. Edelstein annast barna-
námskeið Tónlistarskólans, en
þar eru lielztu námsgreinarnar
nótnalestur, hlokldlautuleikur
og fleira. Geta slík námskeið
liaft geipi þýðingu fyrir hljóm-
listarlíf þjóðarinnar í framtíð-
I inni, einkum þar sem um er að
I ræða listamannaefni.
Þrjú eru á
valdí þeirra.
Götubardagur
í Thionville,
segja Þjóðverjar.
Sókn Pattons í Lorraine er
nú að byrja að sýna
fyrsta verulega árangurxnn.
Banclaríkjamenn eru farnir
að ná virkjunum umhverfis'
Metz á sitt vald.
Framsveitir Bandaríkja-
manna liéldu inn i þrjú virkj-
anna i gær og er eitt þeirra,
Fort Verny, sérstaldega öflugt,
en' annars er virkjunum sldp-
að þannig, að ef eitt þeirra er
tekið, þá eru þau næstu í mikilli
hættu.
Þjóðverjar fóru úr þessum
þrem virkjum án hardaga í gær
og þeir hafa ekki notað hinar
stóru fallbyssur þeirra, sem geta
skotið 16 km.
*•
Reykjavíkurbær hefir eignazt ný grjot- og
Þau eru allt að þrisvar sixmum afkastameiri en
þau gömlu,
1 morgun voru fréttamenn
blaða og útvarps boðnir til
þess að sjá ný grjót- og sand-
námstæki, sem bæjarsjóður á
og tekin voru í notkun nú á sl.
sumri. í fylgd með frétta-
mönnum voru bæjarverk-
fræðingur, Bolli Thoroddsen
og Árni Daníelsson verkfræð-
ingur, en hann hefir umsjón
með öllu grjót- og sandnámi
bæjarins.
Standa tæki þessi austan
Elliða-árósa og blasa við veg-
farendum, sem fara austur
Suðurlandsbraut.
Tæki þessi vinna betur úr
efninu en áður var gert og eru
afkastameiri. Brezka setuliðið
hefir grjótmulningstældn á
leigu um nokkurra mánaða
skeið, svo að yfirlit um rekst-
ur þeirra er ekki fyrir héndi.
Bærinn liefir liinsvegar sjálfur
haft með höndum rekstur sand-
námstækjanna og er komið í
ijós, að þegar notuð er yél-
skófla, sem tekin liefir verið á
leigu, því að hún fylgir eldd
sjálfum sandnámstækjunum,
þá eru afköstin tvöföld til þre-
föld á við afköst gömlu tækj-
anna.
Gömlu sandtækin hafa verið
lögð niður, enda úr sér gengin.
Gamla grjótnámið ofan við
Tungu við Suðurlandsbraut
hefir verið starfrælct í sumar
jafnldiða því nýja. Skv. samn-
ingum bæjarins við brezka setu-
liðið um það, fær bærinn visst
magn af mulningi, en það liefir
eklci verið nóg. Þegar hærinn
yfirtekur nýja grjótnámið, er
ráðgert að reyna að mylja
púkkgrjót í þv'í gamla og draga
sem mest úr handsundurslætti
á grjóti.
1 gamla grjótnáminu hefir,
auk mulnings í sumar, verið
framleiddur kantsteinn fyrir
gangstéttir og brústeinn í götu-
rennur. í haust var sú starf-
ræksla flutt inn í Laugarás.
í gamla grjótnáminu er vél
til að hika mulning í. Nýja mal-
bikunarvélin, sem úú er verið
að smíða, verður sett upp inn-
frá. *
Staðurinn, sem nýju tækjun-
um hefir verið valinn, er mjög
heppilegur. Sand- og grjót-
hirgðir til margra ára lýhð við
hlið. Grjótið einnig betra, nokk-
urslconar millitegund af blá- og
grágrýti.
Starfrækslur þessar heyra
undir bæjarverkfræðing. Árni
Daníelsson, verlcfr., hefir reikn-
að út og teiknað hurðargrindup
tækjanna, sem eru úr járnbentri
steinsteypu. Hann hefir einnig
annast yfirumsjón með uppsetn-
ingu tækjanna og sér um rekst-
urinn. Vinnur hann nú m. a., að
því að rannsaka sandinn, korna-
stærð o. fL, er að gagni má
koma, þegar dæma á um hæfni
lians sem byggingarefni. Tækin
ganga fyrir rafmagni.
r
Askorun
til Alþingis
Alþingi hefir borizt áskorun
frá 76 prestvígðum mönnum
hér á landi um að stofna nýtt
dósentsembætti við • guðfræði-
deild liáskólans til handa séra
Birni Magnússyni prófafti á
Borg.
Þrír vegir
frá Metz.
Þótt bilið milli fylkinga
Bandaríkjamanna, sem leitast
við að slá Iiring um Metz, 'fari
smám saman minnkandi, hafa
Þjóðverjar þó enn þrjá góða
vegi opna út úr „pokanum",
sem á að veiða þá í.
Fregnum ber ekki saman um
það, livort Þjóðverjar sé farnir
að flytja lið sitt á brott úr borg-
inni, en hingað til hafa þeir
jafnan kosið að verjast til
þrautar.
Götubardagar
í Thionville.
Þýzkar fregnir hermdu í gær-
kveldi, að Bandaríkjamenn
hefði brotizt inn í Thionville og
væri harizt þar á götunum.
Þetta hefir ekki verið staðfest
af handamönnum, en amerískur
hlaðamaður símaði í gærkveldi,
að framsveitum liefði tekizt að
ná á vald sitt éinu virki við
borgina.
Á þessum hluta vigstöðvanna
liafa Bandaríkjamenn farið yfir
Moscl á enn eiuum stað.
Stutt og laggott.
Japanir hafa gengið á land á
smáeyju lijá Peleliu í Palau-
klasanum. Bandaríkjaliðið á
eynni fór þaðan.
★
Churchill hefir heimsótt 1.
franska herinn á vígstöðvum
hans í Vogésafjöllum.
★
Rússar eru að hyí-ja að vinna
olíu úr botni Kaspialiafs. Er
verið að hora fjæsta brunninn.
★
Brezldr tundurspillar hafa
enn sökkt þýzkum kafbáti á
Eyjahafi.
Bazar
Kvenfélags Nessóknar er á föstu-
daginn kemur. Munum yeitt mót-
taka í síðasta Iagi á fimmtudag.
Nánari upplýsingar gefur formað-
ur Bazarnefndar. Sími 4644.