Vísir - 02.12.1944, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofun
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
34. ár.
Ritstjórar
Blaðamenn Slmli
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 Unur
Afgreiðsla
Reykjavík, laugardaginn 2. desember 1944.
244. tbl.
Meginheraíll ÞjoSverja i Horegi og
Danmörira flnttm á brott?
Fregnir frá Stokkhólmi
herma, að danska blaðaþjón-
ustan (sem stríðandi Danir
standa á bak við) hafi það
eftir áreiðanlegum heimild-
um, að Þjóðverjar séu byrj-
aðir að flytja á brott úr Nor-
egi og Danmörku meginher-f
afla sinn, og verði aðeins skii-
ið eftir lið, sem mannar helztu
virki á ströndum Noregs og
Jótlands, og verði þetta setu-
lið eins konar baksveitir, sem
eiga að verjast meðan auðið
er og tefja fyrir því, að
bandamenn nái þessum lönd-
um á sitt vald.
Áður en Þjóðverjar liófust
lianda um þennan mikla brott-
flutning, lögðu þeir hald á
fjölda mörg dönsk skip og hafa
danskir frelsisvinir þegar eyði-
lagt mörg þeirra. Alls hefir 11
dönskum skipum, sem Þjóð-
verjar tóku til herflutninga,
veiáð sökkt, þar af 8 á einum
sólarhring. Meðal skipanna
voru tveir tundurspillar og
flota-dráttarbátur, og var skip-
um þessum sökkt í flotahöfn-
inni í Kaupmannahöfn.
Brezki flotinn er og vel á
ÞúsnndirÞjóðverja
drukkna við Noreg,
Brezka flotamálaráðuneytið
tilkynnti í gærkveldi, að flug-
vélar frá brezkum flugvéla-
skipum hefðu s.l. mánudag gert
harða árás á þýzka skipalest við
Noreg. Eldur kviknaði í að
minnsta kosti fimm skipum og .
var suirium rennt á land, en 3
munu hafa farizt. Sökkt var
stóru herflutningaskipi og
munu þúsundir hermanna hafa
drukknað. Árásir flugvélanna
voru gerðar við mjög slæm veð-
urskilyrði. Flugmennirnir sáu
glöggt, er þýzku hermennirnir
reyndu að hjarga sér upp á
fleka eða upp í björgunarbáta,
en fæstir muriu hafa getað
bjargazt þannig. Talið er að
þúsundir liermanna hafi farizt.
Hátíðahöld stúdenta
í gær.
Hátíðahöld stúdenta fóru í
livívetna vel fram í gær. Klukk-
an 1V2 fylktu þeir liði við há-
skólann og gengu i skrúðgöngu-
að Alþingishúsinu, en af svölum
þess hélt dr. Einar Ólafur
Sveinsson ræðu. Á eftir lék
lúðrasveit þjóðsöginn.
Samkomur voru haldnar í Iiúá
tíðasal háskólans og Tjarnarbíó
og voru þar fluttar ræður og á-
vörp, ennfremur skemmt með
söng og hljóðfæraslætli. Að Hó-
tel Borg vár haldið hóf með
dansleik á eftir svo sem venja
hefir verið til. Undir borðum
hélt Magnús Jónsson prófessor
ræðu, Halldór. Kiljan Laxness
rithöfundur las upp, Guðmund-
ur Jónsson söngvari söng, Stúd-
entakórinn söng, en á eftir voru
frjáls ræðuhöld.
Ágóði af merkjasölu stúdenca
rennur til skíðaskála þeirra. Þá
var og Stúdfentablaðið selt á
götum bæjarins í gær.
verði og gerir árásir á skip
Þjóðverja, er færi gefst, einnig
flugvélar flotans og flugvélar
frá landstöðvum í Bretlandi.
Orusluskíp með
„rafmagnsaugum".
Verður seut gegn jap-
anska flotanum.
Tilkynnt er í Bretlandi, að
hleypt hafi verið af stokkunum
í norðlægri höfn á Bretlands-
eyjum orustuskipi, sem verði
voldugasta orustuskip heimsins.
Um smálestatölu og fallbyssu-
styrkleik lierskipsins og annan
útbúnað hefir ekki verið látið
neitt uppskátt, nema að það sé
útbúið fullkomnum rafmagns-
tækjurn, svo að það geti farið
allx-a sinna ferða og beitt sér
við hernaðaraðgerðir í svarta-
þoku og niðamyrkri, enda sé
þetta „orustuskipið með raf-
magnsaugun“.
Elisabeth prinsessa hleypti
skipinu af stokkunum. Flota-
málaráðherra Bretlands hefir
gefið í skyn, að slcipið verði
sent gegn Japönum.
Norðmönnum
vottuð samúð.
Á fundi sem var haldinn 23.
nóv. s. 1. samþykkti stjórn B. S.
R. B. að votta sendiherra Norð-
manna hér vegna hinna hörmu-
legu atburða, sem nú gerast í
Norður-Noregi' dýpstu samúð
sína. Einnig hét stjórn B. S. R.
B. að styðja eftir megni hvers-
konar viðleitni til hjálpar hinu
bágstadda norslca fólki.
Stutt og laggott.
Skoskar hersveitir úr fjárt-
ánda hernum hafa tekið Pinwe
í Burma.
Loftárás var gerð í gær á
Karlsrueh.
1 loftárásum nú í vikunni á
Leuna-olíuvinnslustöðvarnar
skammt frá Leipzig urðuBanda-
ríkjamenn fyrir allmiklu flug-
vélatjóni. Fyrst var tilkynnt, að
86 flugvélar væru ókomnar
heim, en af þessum fjölda skil-
uðu 33 sér heim aftur daginn
eftir.
I loftárásinni á Duishurg í
fyrrinótt var varpað niður 2000
smálestum af sprengjum og
voru þar á meðal 130.000
ikveik j usprengj ur.
Bandaríkjamenn liafa hrund-
ið mörgum „sjálfsmorðsgagn-
árásum“ Japana á Ormokvig-
stöðvunum á Leyte-ey. i
Japanar Iialda áfram sókn í
Kwangsi. í Cliungkingfregn seg-
ir, að kínverskar hersveitir hafi
hörfað til nýrra varnarstöðva á
mörkum Kwenthow-fylkis.
Á ítalíu he/ir áttundi herinn
tekið Alhereto norðaustur af
Faenza.
2000 brezkir hermenn frá
Miðjarðarhafsvígstöðvum eru
komnir heim til Bretlands í
leyfi.
Bæjap
íréffír
Messur á morgun.
Dómkirkjcm: Messað kl. n f. h.,
síra Friðrik Hallgrímsson. Kl. 1,30
e. h., síra FriÖrik Hallgrímsson;
barnaguðsþjónusta kl. 5 e. h., síra
Bjarni Jónsson, altarisganga,
Hallgrímssókn: Kl. 11 f. h. barna-
guðsþjónusta í Austurbæjar barna-
skólanum. Kl. 2 e. h. messað á sama
stað, síra Sigurjón Þ. Árnason i
V estmannaey j um.
Nesprestakall: Messað í Mýrar-
húsaskóla kl. 2.30 e. h., síra Jón
Thorarensen.
Laugarnesprestakall: Messað kl.
2 e. h., síra Garðar Svavarsson.
Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h.
Frjálslyndi söfnuðurinn: Messað
i Fir.kirkjunni kl. 5 e. h., síra Jón
Auðuns.
Fríkirkjan: Messað kl. 2 e. h.,
síra Árni Sigurðsson. Unglingafé-
lagsfudur í' kirkjunni kl. 11 f. h.,
o. fl.
Messað á Elliheimilinu kl. 10.30
f. h., síra Þorgrímur Sigurðsson að
Staðarstað prédikar.
1 kaþólsku kirkjunni í Reykja-
vik: Hámessa kl. 10; í Hafnarfirði
kl. 9.
Lágafellskirkja. Messað kl. 12.30,
síra Hálfdán Helgason.
Síra Sigurjón Árnason messar á
morgun kl. 2 í Hallgrímssókn. —
Messunni verður átvarpað.
Minningargjöf — barnahæli.
í gær afhenti frú Sigríður Ein-
arsdóttir, Ásvallagötu 1, borgar-
stjóra að gjöf kr. 50.000,00 — til
minningar um látinn mann hennar,
Magnús sál. Benjamínsson, úr-
smíðameistara, og skal verja þess-
ari rausnarlegu f járhæð til bygging-
ar barnahælis.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskukennsla, 1. fl.
19.00 Enskukennsla, 2. fl. 19.25
FÍljómplötur: Samsöngur. 20.00
Fréttir. 20.30 Kvöld Ungmennafé-
lags Islands: Á.vörp og ræður, kór-
söngur og upplestur. 22.00 Fréttir.
22.05 Danslög til kl. 24.
Næturakstur.
Bifreiðstöðin Hreyfilþ.sími 1633,
í nótt og næstu nótt.
Næturlæknar.
Læknavarðstofan, sími 5030.
Næturvörður
er í Laugavegs Apóteki.
Helgidagslæknir.
Ólafur Jóhannsson, Njálsgötu 55,
sími 4034.
Börn,
unglingar og roskið fólk óskast nú
þegar til að bera Vísi til kaupenda.
Gerið svo vel og gefið ykkur fram
við afgreiðslu blaðsins strax.
Útvarpið á morgun.
Kl. 8.30 Morgunfréttir. 11.00
Morguntónleikar (plötur) : Operan
„Rigoletto" eftir Verdi, 1. og 2.
þáttur. 12.10—-13.00 Hádegisútvarp.
14.00 Messa í Hallgrimssókn (síra
Sigurjón Árnason, prestur í Vest-
mannaeyjum). 15.15—16.30 Mið-
degistónleikar (plötur): Oþeran
„Rigoletto“ eftir Verdi, 1. og 2.
þáttur. 18.30 Barnatími (Pétur Pét-
ursson 0. fl.). 19.25 Hljómplötur:
Dansar eftir Schulhoff o. fl. 20.00
Fréttir. 20.20 Samleikur (Óskar
Cortes og Fritz Weisshappel) : Són-
ata í D-dúr eftir Hándel. 20.35 Er-
indi: Jóhannes skírari (Eiríkur Al-
bertsson, dr. theol.). 21.00 Kirkju-
kór Laugarnessóknar syngur (Krist-
inn Ingvarsson stjórnar) : a! „Dvel
hjá oss, er dagur hnígur“ eftir
Weyse. b) „Atburð sé ég anda mín-
um nær“ eftir Áskel Snorrason. d)
„Stjarnan" eftir Sigvalda Kálda-
lóns. e) „Þitt orð, vor guð“ eftir
Bortniansky. ) „Nú fjöll og byggð-
ir blunda“, raddsett af Bach. 21.25
Upplestur: Kafli úr „Don Quixote"
eftir Cervantes (Jón Norðfjörð
leikari). 21.50 Hljómplötur: Klass-
iskir dansar. 22.00 Fréttir. 22.05
Danslög til kl. 23.
Jörgen Beck Simony, lög-
reglustjóri í Vedersö í Dan-
mörku, hefir andazt í þýzkum
fangabúðum.
Sókn Rússa til Austuríkis.
Eden ver stjórnina,
í gær voru gerðar nokkrar
fyrirspurnir til hrezka stjórnar-
innar á fundi í^neðri málstof-
unni, varðandi stefnu liennar
gagnvart Belgíu og Ítalíu, en
þar hefir eins og kunnugt er ver-
ið um allmikla stjórnmálaerf-
iðleika að ræða, og verður ekki
enn séð hversu úr rætist, a. m.
k. ekki á Ítalíu, þar sem komm-
únistar og socialistar gagnrýna
Bonomi harðlega fyrir, að hafa
sent Umberto lausnarbeiðni
sína á dögunum, en ekki se>«-
flokkanefndinni, þ. e. flokkanna
sem studdu ríkisstjórn hans.
Pjerlot virðist hinsvegar hafa
bægt hættunum frá og vera all-
sterkur á stjórnmálasvellinu.
Fyrirspyrjendur í málstof-
unni fundu að því, að brezka
stjórnin skyldi vera að liafa af-
skifti af þvi hver yrði utanríkis-
ráðherra Ítalíu, en brezka
stjórnin lýsti yfir vanþóknun
sinni á útnefningu Sforza greifa
í það embætti, ef til kæmi. Þetta
gæti ekki samrýmst því, að aðr-
ar þjóðir ættu að ráða málum
sínum sjálfar. Eden svaraði því,
að ítalir hefðu gefist upp skil-
yrðislaust og þeir væru ekki
bandamenn Breta eða samherj-
ar þeirra — og Ítalía væri enn
hernaðarsvæði. Afstaða Breta
gagnvart Italíu væri því öll önn-
ur en gagnvart Belgiu, en um
stuðning Breta við Pjerlot-
stjórnina væri þess að geta, sem
allir ætlu að vita, að stjórn
Pjerlots væri lögleg rikisstjórn
Belgíu og hefði hún yfirgnæf-
andi meirihluta þjóðþingsins að
baki sér. En annars væri stefna
Breta í meginatriðum:
Að lögum og reglu sé
lialdið uppi bak við víglin-
una.
Að þjóðirnar sjálfar velji
sér þing og stjórn, að styrj-
öldinni lokinni. ,
Téxilistarfélagið flvtur
Jóiaóratoríum eftir
Bach á næstunni.
Á vegum Tónlistafélagsins
verðuV Jólaoratorium eftir Jo-
hann Sebastian Bach flutt hér í
fyrsta sinn undir stjórn Yiktors
von Urbantschitsch einhvern-
tíma í þessum mánuði.
Áttatíu manns aðstoða við
uppfærzlu verksins, þar af er
um 50 manna blandaður kór og
30 manna hljómsveit. Daníel
Þorkelsson syngur aðalein-
söngshlutverkið, en' aðrir ein-
snögvarar verða Guðmundur
Jónsson, Kristín Einarsdóttir og
Guðrún Ásgústsdótlir. Einleilc á
orgel annast Páll fsólfsson.
Von Urbantscvhitsch liefir
notað gamla og nýja íslenzka
sálmatexta við þetla tónverk
Bachs, á svipaðan hátt og liann
notaði íslenzkan texta við Jó-
hannesarpassiuna í fyrra.
Danmörk hefir nú verið tek-
in í tölu landa, sem njóta munu
aðstoðar UNRRA-stofnunarinn-
ar til viðreisnarhjálpar.
Cohn deildarstjóri hefir ver-
ið útnefndur fulltrúi Dana.
Hann er um þessar mundir
vestan hafs, en þangað til tek-
ur Rewentlow greifi, sendiherra
Dana í London, sæti hans á
fundum stofnunarinnar. (Frá
skrifstofu sendiherra Dana).
3. herínn kominn
að Saar-ánni.
Hersveitir Pattons brutust í
gær gegnum víggirðingar Þjóð-
verja fyrir vestan Saar-ána og
ruddu sér braut að lienni á 4
stöðum, m. a. nokkra lrilómetra
fyrir norðan Merzig, sem er að
mestu austan árinnar. Banda-
ríkjamenn tóku 2 þorp vestan
árinnar, sem raunverulega eru
úthverfi Merzig, en þótt Banda-
ríkjamenn séu nú í aðeins 800
metra fjarlægð frá miðhluta
horgarinnar, er yfir Saar-fljót
að fara, og það er í vexti. Og
þýzku hersveitirnar vestan ár-
innar hörfuðu skipulega austur
yfir ána og sprengdu í loft upp
brú, sem þarna er á ánni, að baki
sér.
Stórsókn í aðsigi.
Tveir Bandaríkjalierir, sem
sækja norðan, sá 9. og .1.,
unnu noklcuð á i gær, en yfir-
leitt liefir lítil breyting orðið á
hernaðaraðstöðunni seinustu
2—3 dægur fyrir austan Aachen
og á þeim slóðum, þótt mikið sé
barist. Sama er að segja á Venlo-
vígstöðvunum. Bretar tóku þar
tvær varnarstöðvar Þjóðverja
vestan árinnar. Frá þeim hjara
vakti mesta athygli í gær frétt
um að Eisenllower hefði hrugð-
ið sér norður þangað og rætt við
Dempsey yfirmann 2. brezka
hersins og heimsótt vígstöðvarn-
ar. Er talið að rætt hafi verið um
nýjar hernaðaraðgerðir, sem
standa fyrir dýrum, en skilyrðin
til stórsóknar á þessum slóðum
inn í Ruhrhérað batna við það,
ef bregður til frosta sem ekki er
ólíklegt, þar sem komið er fram
i desember, og nú hafa birgða-
leiðir bandamanna verið styrkt-
ar um nokkur hundruð kíló-
metra við það, að höfnin í Ant-
werpen hefir verið telcin í 110tk-
un en því var lýst í brezka út-
varpinu í gær, er fyrsta skipa-
lest sameinuðu þjóðanna kom
þangað með hergagnabirgðir og
matvæli.
Á suðurhluta vígstöðvanna
sækja bandariienn allhratt
fram fyrir sunnan og norðan
Strassbourg. Horfir æ ískyggi-
legar fyrir Þjóðverjum þar
syðra.
Fregnir í morgun herma, að
miluð sé barizt við vesturenda
brúarinnar yfir Rín hjá Kehl
(skammt frá Strassbourg). —
Það voru stöðvar Þjóðverja
þarna sem Frakkar reyndu að
hertaka í misheppnuðu skyndi-
áhlaupi, er þeir tóku Strass-
bourg. — Þjóðverjar liafa við-
búnað til að sprengja- brúna í
loft upp, er þeir haldast ekki
við lengur vestan árinnar.
Forustan í heimsvið-
skiptum eftir stríð.
Bandaríkin ætla að verða
mesta verzlunarþjóð heimsins
eftir stríð.
Þar í landi er starfandi eins-
I konar skipulagsnefnd atvinnu-
vcganna, sem hefir lagt fram á-
lit sitt á tilhögun atvinnuveg-
anna eftir stríð og leggur hún
til í þessu áliti, að gcrðar verði
breytingar á utanríkisviðskipt-
um, til þess að tryggja forustu
Bandaríkjanna i heimsviðskipt-
unum.
Sóttu fram yfir
30 km' frá
Pets í gær.
“pilkynnt var. í Moskvu í
gær, að hersveitirnar,
sem fóru yfir Dóná í SuSur-
Ungverjalandi og tóku Pets
(Pecs), hefðu í gær sótt fram
yfir 30 kílómetra í áttina til
landamæra Austurríkis. Pets
var vestasti staðurinn í Ung-
verjalandi, sem Rússar voru
búnir að ná á sitt vald í fyrra-
dag. I sókninni í Suður-Ung-
verjalandti hafa Rússar — og
Júgóslavar, sem taka þátt í
sókninni með þeim, tekið yf-
ír 3000 þýzka og ungverska
hermenn höndum.
Það virðist koma æ greini-
legar í ljós, að Rússar hafa að
undanförnu lagt á það megin-
áherzlu að sækja fram sunnan
og norðan Budapest, hvort sem
tilgangurinn er sá einn, að
tryggja sig gegn hliðarárásum
eða að loka hringnum alveg
fyrir vestan borgina. Þess er og
að geta, að aðstaða Rúspa eflist
mjög við það, að þeir hafa náð
á sitt vald mikilvægum sam-
göngumiðstöðvum norðaustur
af Budapest, svo sem Eger, og
að áframhald er á sókn þeirra
í Slóvakíu, en þar tóku þeir í
gær 12 bæi og þorp, eítir að
hafa farið yfir ónafngreint
fljót í vexti.
1 síðari fregnum er sagt frá
miklum bardögum við Misk-
holc, norðaustur af Budapest.
Undangenginn hálfan mánuð
hafa Rússar teldð 3000 Þjóð-
verja höndum í Slóvaldu.
Þjóðverjar hafa undanfarna
daga verið að skýra frá mikl-
um viðbúnaði Rússa til nýrrar
sóknar á landamærum Austur-
Prússlands.
Hjörfui Hansson lætur
af framkvæmdasfjóra-
störfum fjársöfnunar-
nefndar Hallgríms-
kirkju.
Framhald af áður birtum gjöfum
og áheitum, afhent á skrifstofu
„Hinnar almennu f jársöfnunar-
nefndar" Hallgrímskirkju, Banka-
stræti 11: MO.L.Ó. (áheit) 50 kr.
G.S. (áheit) 50 kr. K.Þ. (áheit) 20
kr. Stúlka (gamalt áheit) 20 - kr.
J.B. (áheit) 100 kr. S.H. (áheit)
20 kr. A.B. (áheit) 20 kr. G.P. (á-
heit) 50 kr. K.S.G. (áheit) 50 kr.
Gömul kona (áheit) 10 kr. Guðrún
(áheít) 10 kr. S.A. (áheit) 20 kr.
J.B. (áheit) 100 kr. S.G. (áheit)
10 kr. S.K. (áheit) 50 kr. N.N.
(áheit) 20 kr. Skaftfellsk kona (á-
heit) 15 kr. Stúlka 10 kr. G.G.G.
(áheit) 200 kr. N.N. (áheit) 10 kr.
Samtals 835 krónur. Áður birt kr.
120.090,21, eða alls samtals: Kr.
120.925,21. Kærar þakkir. . F. h.
„Hinnar alm. f jársöfnunarnefndar"
Hjörtur Hansson.
1 sambandi við ofanskráða skila-
grein tilkynnist, að ég vegna ann-
ríks, hefi látið af framkvæmdar-
stjórastörfum fyrir „Hina almennu
fjársöfnunarnefnd“ Hallgríms-
kirkju, og flytjast störf mín yfir
á skristofu herra biskups Sigurgeirs
Sigurðssonar. Samt sem áður geta
þeir/ er finnst það hægra, komið
gjöfum eða áheitum eftir sem áður
til mín, á vegum „Hinar alm. fjár-
söfnunarnefndar", er ég riú hefi
verið skipaður í.
Hjörtur Hansson,
Bankastræti 11.
9
1