Vísir - 20.04.1945, Page 4
4'
VISIR
Föstudaginn 20. apríl 1945.
VlSIR
DAGBLAÐ
Ltgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H/F
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
Símar 16 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 5,00 á mánuði.
Lausasala 40 aurar. ,
Félagsprentsmiðjan h/f.
Drengor íellur út
úr sfrætisvagni.
Hann var að tuskast við
annan pilt í vagninum.
f fjTrakvöld vildi það slys
til í Suðurgötu, að ungur
drengur féll út um afturdyr
á Skerjafjarðarstrætisvagni
cg slasaðist mikið. Var hann
fluttur meðvitundarlaus á
Landspítalann. Drengurinn
heitir Grétar Norðfjörð til
heimilis á Fálkagötu 26.
í skýrsiu, sem rannsóknar-
lögreglan hefir lekið af eiij-
um farþeganna, er voru í
vagninuin segir svo ura þenn-
an atburð, að vagninn hafi
verið fullsetinn fólki-er liann
fór af Lækjartorgi. Strax
og vagninn var lagður af
stað fóru tveir drengir að
tuskast og liafa önnur ólæti
í frammi. Bæði bifreiðar-
sljórinn og , farþegar báðu
drengina livað eftir annað að
hætta þessum ólátum en þeir
lctu sér ekki segjasl við það.
I>egar vagninn kom í Suður-
götuna lientist annar dreng-
urinn allt í einu á afturhurð
vagnsihs. Ilurði nlét undan
falli drengsins og hentist
drengurinn við það út á-göt-
una. Hinn drengurinn, sem
var að tuskast við þann er út
féll, var nærri kominn úl
líka, en gamall maður, er sat
þar rétt hjá, náði í hann og
hélt honum unz vagninn
stöðvaðist.
Samkvæjmt heimildum,
sem blaðið fékk hjá Land-
spítalanum í morgun, mun
drengurinn vera úr hættu en
hafa fengið mjög slæman
heilahristing við fallið.
Þótt ekki vrði alvarlegra
slys af þessu tiltæki drengj-
anna, en raun varð á i þétta
sinn, rifjar þetta atvik upp
fyrir mörgum, hvilíkur ósið-
ur ólæti unglinga eru í al-
menningsvögmmum, Auk
þess að vera mjög lil óþæg-
inda fyrir alla, sem með
vögnunum ferðast, geta hlot-
i/.t alvarleg slys af þessu
framferði, ef ekki er unnt að
ráða bót á þvi.
Verldn tala.
lUförgum þótti á illt vita, þegar aðalatvinnu-
vegur þjóðarinnar var settur undir yfirráð
kommúnista. Enginn atvinnuvegur er ver fall-
inn til þjóðnýtingar og þess vegna er hætt við
skakkaföllum, þegar viðvaningar fara að ann-
ast slíkan rekstur fyrir hönd ríkisins. Enda
eru nú verkin farin að tala í sambandi við fisk-
flutninga ríkisins.
En til þess að breiða yfir axarsköftin og
fálmið í fiskflutningunum, birta stjórnarblöðin
nú með stórum fyrirsögnum, að útgerðarmenn
og sjómenn hafi grætt 2Vk miiljón króna fyrir
atbeina stjórnarinnar, þegar ísfiskverðið var
Iiækkað um 15%. Þau gleyma að geta þess, að
jiessi gróði gerir lítið betur en að standa und-
ir verðhækkuninni á olíúnni. Þau gleyma líka
að geta þess, með hverjum hætti þessi „gróði“
hefir náðzt. — Hann hefir náðzt með því að
hækka svo verðið á fiskinum, að íslenzku
flutningaskipin hafa siglt án hagnaðar í vet-
ur. Og hann hefir náðzt með því að láta rik-
issjóð taka tap á sínum flutningum, tap, sem
enginn veit enn hvað verður mikið. Verð-
hækkunin á að greiðast, þótt ríkissjóður tapi
milljónum króna á flutningunum. Hér er því
ekki allt sem sýnisf, þótt sjóménnirnir séu
vel að því komnir að fá sinn hlut bættan.
„Lygalaupar afturhaldsins :-ætla sér að
þegja staðreyndirnar í hel“ segir Þjóðviljinn,
málgagn sannleika og velsæmis. Það er óþörf
hræðsla. Staðreyndunum verður haldið á loft.
En ekki er ólíklegt að þær verði nokkuð á'
annan veg en kommúnistarnir og stallbræður
jieirra gera sér vonir um.
Stjórnin tók á leigu 63 færeysk skip. Reynd-
ir nienn i þessum.gfnum töldu leigusamning-
inn fávíslegan. Skíþin hafa legið hér í stór-
hópum. Flest munu hafa farið eina ferð með
fisk, en selt yfirleitt illa. Eitt jieirra sneri við
eftir- tíu daga útivist og kom hingað í fyrra-
<Iag. Fiskurinn var settur hér á land illa út-
lítandi. Margir spáðu því, er færeysku skipin
voru tekin á lcigu, að ríkissjóður myndi tapa
á þeim miklu fé, jafnvel milljónum króna.
Ekki er ólíklegt, að þeir spádómar rætist.
Fiskflutningar verða ekki reknir svo vel
sé nema með árvekni, þekkingu, dugnaði og
nákvæmni. Það er því ekki við góðu að búast,
þcgar pólitísk ríkisstofnun á að sjá um mestu
fiskflutninga, sem hér hafa verið reknir á
einni hendi. Mest cr hættan á því, að Iiirðu-
leysi sé ríkjandi um gæði fiskjarins og ísun.
Lagarfoss (og Selfoss) er á leigu hjá ríkis-
stjórninni. Hann tók hér fisk fyrir skömmu
*og var gengið hart eftir að fá farminn, þótt
frystihúsin væri aðgerðarlaus og vantiiði fisk.
Skipið var Icngi að lilaða. Nú er það komið
til Bretlands. 250—300 tonn af farminum
var kastað í sjóinn, jiegar þangað kom. Fisk-
nrinn var. orðinn ónýtur. Ef þessi fiskur hefði
farið í frystihúsin, hefði margur'fengi atvinnu
við að verka hann. -— En hver ber ábyrgð á
þessum mistökum? Hér hlýtur að vera um
stórkostlegt hirðuleysi eða vanþekkingu að
ræða. Tapið er mikið, cn þó er verri sá áíits-
hnekkir, scm þtta veldur, ekki sízt þegar allir
.vita, að ríkið stendur að flutningunum. Sagt
cr að tapið á rekstri Lagarfoss nemi nú mörg-
lim hundruðum þúsunda.
Rússar —
Framh. af 1. síðu.
ingu Rússa í gær. í fyrri
fregnum var sagt frá því, eft-
ir fréttariturum, sem fylgj-
ast með hersveitum Rússa,
að þeir hefðu tekið tvo
bæi Rothenburg og, Muk-
au. Rússar minnast ekkert
á það í herstjórnartilkynn-
ingu sinni, hvaðg bæi jjeir
bafi tekið, en telja hersveit-
irnar vera um 80 km. frá
Dresden. Þýzkur útvarpsfvr-
irlesari, sem lalaði um sókn
Rússa á austurvígstöðv-
unum í gær, var mjög böl-
sýnn út af ástandinu og taldi
bann framsókn Rússa mjög
hættulega á þessuin slóðum
og sagði lieri Rússa vera
komna yfir Spree skammt
frá Bautzen og vera miklu
nær Dresden en Rússar
halda sjálfir fram.
Búizt er við að Rússar og
bandamenn muni bráðlega
mætast. í Saxlandi, vegna
framsóknar Réissa í áttina
til Dresden og hinnar l.röðu
sóknar. Pattons að vestan.
Frá norður hlula vigslöðv-
anna segja Þjóðverjar þær
fréllin að Rússar ge.ri gifur-
legar árásir á varnarstöðv-
ar jieirra fyrir vestan Oder
skammt fyrir sunnan Stcltin.
Fréttir frá I.S.Í.
íþróttakvikmyndir.
Iþróttasamband íslands
hefur i vetur beitt sér fyrir
sýningum íþróttakvikmynda.
Hefur þar verið um að ræða
fræðslu- og kennslumyndir,
og myndir frá ýmsum mót-
um, bæði innlendum og er-
lendum. Kvikmyndabúsin í
Reykjavík og llafnarfirði
hafa sýnt sambandinu þann
mikla velvilja, að lána húsin
endurgjaldslaust.
Ný íþróttabók.
I marz konm út á vegum
ISl nýjar tennis- og badmin-
lonreglur. Geta l>eir, sem
vilja cjgnast; jæssar rcglur,
snúið sér til gjaldkera sam-
bandsins, Kristjáns L. Gests-
sonar.
Nýtt sambandsfélag’.
Nýlega hefir Héraðssam-
band ungmennaféiaga Vest-
fjarða gengið í ISI. Form.
jæss er Halldór Kristjánsson
á Kirkjubóli.
Landsmót í íþróttum.
Ákveðið er, að Sundmeist-
aramót Islands fari fram í
Rvík dagana 27. og 30. apríl.
Meistaramót Islands í.hand-
knattlcik kvenna úti er á-
kveðið að fari fram í júlí-
mánuði á Isafirði. Iþrótta-
bandalag Isafjarðar sér um
mótið.
Sérráð hætt störfum.
Knattíeikjaráo Reykjavik-
ur liefir nýlega verið Íeyst lrá
störfum.
Ævifélagar ISl.
Tveir ævifélagar hafa ný-
lega bætzt við: Guðfinna
Mathiesen og Soffía Mathie- .
sen, báðar í Hafnarfirði. Ævi-
félagar ISÍ eru nú 292 að'
tölu.
Staðfestur íþróttabúningur.
Ijjróttabúningur Iþróttafél.
Grettis á Flateyri befir verið
staðfestur; Blár búningur
með hvítum skáborða yfir
brjóst. Merki félagsins á
brjósti. Hvítt belti, livitir
sokkar og skór.
Samstarf ISl og ÍBR.
Stjórn ISI liefir haldið
fund með stjórn Iþrötta-
bandalags Reykjavíkur, l'or-
mönnum íþróttaráða og
íþróttafélaga i Reykjavík. Af-
benti stjórn íþróttasam-
bandsins IBR ýmis málefni,
sem áður voru í höndum ÍSl,
t. d. læknisskoðun íþrótta-
manna í Rvík.pg Slysatrygg-
ingarsjóð íþróttamanna í
Rvík, ldutdeild í stjórn í-
Jmóttavallarins og yfirstjórn
íþróttaráðanna í Rvík.
Löng og erSið viðuz-
eígn við Japani.
Blamey, yfirhershöfðingi
ástralska hersins, hefir varað
Ástralíumenn við að búast
við skjótum sigri yfir Jap-
önum.
Hann sagði við blaðamcnn
í bækistöðvum sínum ekki
alls fyrir löngu, að bardagar
mundu vcrða harðir á Kyrra-
hafi, mannfall mundi vcrða
mikið, áður en takast mundi
að koma Japönum á kné. Það
hefði komið í ljós í bardög-
um á Bougainville og á N,-
Guineu upp á síðkastið, að
japönsku hermennirnir væru
alveg jafn grimmir í bardög-
um og áður, jjótt þeir hcfðu
ckki hal't samband við lieima-
laridið langan tíma.
Hreingerningar. SumariS, er komið — ertu bú-
inn að gera hreint eftir vet-.
urinn, lesari góður? Jæja, það er einkamál,
hvort þú ert búinn að þvi, en hitt kemur okk-
ur háðum við, hvort bær og .ríki eru búin
að gera lxreint hjá sér. Við skulum láta okk-
ur nægja að athuga þá hliðina, sem út snýr
hjá þeim aðilum. Nú er húið að rífa annað
loftvarnaskýlið við Lækjargötu og hitt fer sömu
leið næstu daga. En það er ekki búið að ganga
svo frá hlettinum, að sæmilegt sé. Það þarf
að þekja ha.nn allan, svo að hann verði sem
fyrst grænn og skemmtilegur, eins og hann
var áðjar en hyrgið var gert á honum. Nú er
hann eins og ljótt, opið sár. Þannig má hlett-
urinn ekki vera í sumar.
*
Sóleyjargatan. Næst þyrfti. að taka Sóleyjar-
götuna. Henni Var ekki fylíi-
lega lokið, þegar vinnu var að mestu hætt við
hana s.l. haust, en það virðist ekki vera mikið
eða Igngvinnt, sem eftir er. Því þyrfti að Ijúka
sém fyrst, og endilega þarf að endurreisa
Hljómskálagirðinguna, til þess að bæjarbúar
geti haft verulegt yndi af að koma þangað í
góða veðrinu í sumar. Eins og hann er núna,
nær hann alls ekki tilgangi sínum. Og í sam-
bandi við þetta mætti enn einu sinni minna
á bakka tjarnarinnar. Lagfæring þeirra ætti
að vera sjálfsagt vor-verkefni.
*
Göturnar. Viðgerð gatnanna ætti líka að vera
sjálfsagður hluti vorhreingerninga
bæjarins, en<ia mun verða byrjað fyrir alvörU
á aðgerðum í þeim efnum innan skamms. Um-
ferð bil.a er nú allmiklu minni en löngum áð-
ur, og ætti því góð viðgerð að geta borið betri
árangur en þá, svo að ekki fari að sjá eins
ftjótt á götunum aftur. Það hefir viljað brenna
við að undanförnu. Eg sé, að byrjað er a<5
gera við syðri gangstéttina við Laugaveginn
neðst, og er það ágætt, því að gangsléttir víða
um bæinn eru í slæniu ástandi, einkunx þar
sem ekki hefir verið fyllilega gert við þær,
síðan hitaveitan var í smíðum.
*
Þörf á fleira. „Það er svo margt, ef að .er.gáð,
sem um er þörf að ræða.“ Tii
dæmis mætli mjnna á Ilringbrautina. Eg sá
i veíur, að eitthvað var fanð að hrófla við
en<lum grasrejtanna, en síðan var ekki meira
að gerf. Það mætfi iíka minna á holurnar i
f.iölförnustu götp bæjarins, Austurstræti. Og
eg gæti haldið lengi áfram í þessum dúr. En
eg Jæt þetta nægja núna.
*
Ódaunn við Góðkunningi. minn, sem oft fer
Sundlaug- í Sundlaugarnar, leil inn til min
arnar. í fyrradag. Hann hafði „Hannes
á horninu" í vasanum, dró liann upp — eins
og vasapela — og breiddi úr honum á borð-
in fyrir framan mig. Ivunningi minn ætl-
aði að benda mér á ólyktina hans Hannesar,
þ. e. ólyktina, sem hann Iiannes var að tala
um J)á um morguninn. Ekki svo að skilja, að
það væri ó.lykt af honum sjálfum, bara Óriítil
prentsverlulykt, en hún gengur nú næst rósa-
ilm í mínum augum, afsakið, nefi. En svo að
komið sé að efninu, þá vill kunningi minn, að
eg taki undir með Hannesi um ódauninn við
Sundlaugarnar.
*
Svín leggja ódaunn þessi stafar, af áburði und-
til áburð. an svínum, sem borinn hefir ver-
ið á tún vifj Sundlaugarnar. Áð-
ur fyrr fannst fýlan af þessum ágæta áburði
aðeins þegar vindur var af vissri átt, en nú,
segir kunningi minn, er nokkurn veginn sama
á hvaffa átt hann er, alltaf finnst lyktin. Eru
það eindregin tilmæli hans, og liann mælir
vafalaust fyrir munn mjög margra sundlauga-
gesta, að áburður þessi verði ekki notaður
þarna, því að í rauninni sé mönnum meinað
að fara í sundlaugarnar, meðan þessi angan
svífur þar yfir vötnunum.
*
Ekki eins Það er ekki eins dæmi, að slikur
dæmi. áburður sé notaður á túnbletti eða
aðra ræktaða skika í nágrenni bæj-
arins. Fiskúrgangur allskonar er ágætur til á-
hurðar, þótt ckki sé lyktin alltaf góð, en menn
hafa jafnan látið slikt afskiptalaust, af þvi
að þeir, sem hafa notað slíkan áburð, hafa
jafnan sjálfir orðið að þola íyktina. Vegfar-
endur hafa hinsvegar aðeins fun<Iið hana þá
stundina, sem þeir hafa verið á ferð framhjá.
En það fer ekki hjá þvi, að kvartanir sé franx
bornar, þegar þetta er gert í námunda við
svo fjölsóttan stað sem Sundlaugarnar.