Vísir - 22.12.1945, Side 4
4
V 1 S I R
Laugardaginn 22. descnibcr 1945
VBSIR
D A G B L A Ð
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H/F
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
Símar 1660 (fimm línur).
Verð kr. 5,00 á mánuði.
Lausasala 40 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
JÓL.V
Wyrir nokkrum árum töluðu menn um jóla-
* helgi og jólafrið. Þetta átti vel við. ísland
var einangrað, — menn lifðu í fásinni, dýrk-
uðu drottin og létu sig atburði heimsins litlu
skipta. Nú leikur hringiða heimsviðburðanna
um þetta land. Tækni nútímans hefur séð svo
um, að hingað berast tíðindi svo að segja um
leið og þau gerast, en jafnframt eru órafjar-
Jægðir fortíðarinnar að engu orðnar. Þess-
vegna gæti Island verið miðdepill heimsins,
eins og hvert annað land, og þar geta borið
við stórtíðindi. í alþjóðaefnum. Þessu ber ekki
að fagna, en við verðum að horfast í augu
við staðreyndir og viðurkenna þær, Við vilj-
um lifa í friði,‘en fáum það ekki lengur en
stórþjóðunum lízt.
Nútímakynslóðin mun sízt vantrúaðri en
forfeðurnir voru, en hún ber ekki trú sína
utan á sér. I sex jól höfum við notið jóla-
helgi, en ekki jólafriðar. Heimurinn liefur
staðið í báli. Fornar dyggðir og fegurstu verð-
mæti hafa verið borin fyrir borð. Þrátt fyrir
það hefur kristnin eflzt stórlega í öllum lönd-
um, og á guðstrúin vafalaust sterkari rætur
í hverju hjarta. en gekk og gerðist fyrir hinn
hörmulega leik síðustu sex ára. Nú gera menn
ekki gys að guðshugsjóninni, svo sem alsiða
var um og eftir aldamótin. Nútíminn ber virð-
ingu fyrir henni og lætur sér ekki sæma að
draga úr eða reyna að hafa áhrif á trú með-
bræðra sinna, með því að trúin er persónu-
leg eign hvers einstaklings, sem aðra varðar
ekki hætishót, en sízt má eyða þeirri guðs
gjöf með óvarfærni í orðum eða gerðum.
En hvernig stendur á því, að trúin eflist,
er mestar hörmungar dynja yfir? Væri ekki
eðlilegra að hún rifnaði upp með rótum, eins
og voldugustu mannanna verk? Nei. Almenn-
ingur sér og skilur, að ekkert er að sækja til
efnishyggju, sent eyðir sjálfri sér. Eitthvað
æðra og meira er úrlausn framtíðargæða ver-
aldarinnar, — ekki út af fyrir sig efnislegra
gæða, heldur verður andinn að vera ofar efn-
inu, til þess að varanleg veraldargæði skap-
ist. Sagan um gullkálfinn stendur ennþá
í fullu gildi. Gullið er harðstjóri, sem hefur
ráðið heiminum miskunnarlaust og þjóðirnar
hafa tilbeðið og tilbiðja. Gegn því getur að-
eins einn máttur staðið, en það er guðstrúin,
sem sýnir sig í verkunum. Mönnunt kann að
finnast þetta hugarórar, en spyrji hver sig
og svari spurningunni: Hvar er að finna rnátt,
sent staðið getur gegn eyðingaröflunum?
I jólahelgi og jólafriði þessa árs hafa menn
gott af að kasta mæðinni lítillega í kapp-
hlaupinu um veraldlegu gæðin og gera sér
}tess fulla grein, hversu varanleg þau eru, ef
andinn er ekki settur ofar efninu? Hvers-
vegna blæðir heiminum nú? Hversvegna
hrekjast menn í tugmilljónatali stað úr stað,
til þess eins að bíða hungurdauða? Það er
ekki vegna skorts á efnishyggju, heldur af-
leiðing af of mikilli efnishyggju, en skorti á
trú, sent göfgar og græðir. Heimurinn verð-
ur að snúa við á helgöngunni, til nýs lífs í
andanum, þar sem ríkir frelsi, jafnrétti og
hræðralag.
PARKER lindarpennar, sett og stakir
LJÓSMYNDA-ALBÚM í góðu úrvali
Bréíseínakassar
BÓKASTOÐIR úr málmi, sérstaklega fallegar
Veski og buddur
SKJALATÖSKUR og skólatöskur
Litir og litabækur
JÓLASERVIETTUR og DREGLAR
JÓLAMERKIMÍÐAR og UMBÚÐAPAPPÍR
JÓLAUMBÚÐAGARN og LlMBÖND
VERZM.UNÍN
BJÖRN KRISTJÁNSSON
Aðgöngumiðar
að
jóíadansleik
annan jóladag og'
áramótadansleik
á gamlárskvöld í INGÖLFSCAFÉ seldir og afhent-
ir (pantanir) á Þorláksmessu, sunnudaginn 23.
desember, frá kl. 4 síðdegis.
NÝJU DANSARNIR BÆÐI KVÖLDIN.
Sími 2826.
KONUR! KONUR!
Tökum upp í dag MAGABELTI
Y vrzlunin VÆ MiMÍÆ JV
Laugaveg 60.
Nýjung í PELSUM
Örfáir módel-pelsar seldir í dag.
Verjl. (jimli
Laugaveg 1,.
útvarpið Bergmáli hefir borizt bréf frá út-
gagnrýnt. yarpsnotanda, sem er eklci alls kost-
ar ánægður með dagskrá útvarpsins
nú um jólaleytið, eða kannske öllu heldur einn
lið, sem auglýstur var fyrir íslenzka hlustendur,
og telur hann að sá liður komi þeim ekkert við.
Iíann biður „Bergmál" að koma gagnrýni sinni
á framfæri og fer bréf hans hér á eftir:
*
Jólakveðjur „Eg vil leyfa mér að hiðja „Berg
tifl Grænlands, mál“ að koma á framfæri fyrir
mig gagnrýni á dagskrá út-
varpsins, sem eg er að einu leyti óánægður með,
cn það er liðurinn „Endurvarp frá Ðamnörku.
Jólakveðjur til Grænlands“. Mér er spurn:
Hvernig gelur þetta verið liður á dagskrá ís-
lenzka útvarpsins? Eg hygg, að stjórn Rikis-
útvarpsins veitist örðugt, að gera grein fyrir
þessu útvarpsefni til handa íslenzkum hlustend-
um. Sannléikurinn er sá, að þetta útvarp á jóla-
kveðjúm frá Danmörku til Grænlands, á alls ekki
heima í dagskrá útvaupsins.
Kemur okkur Þetta útvarp kemur islenzkum
ekkert við. hlustendum ekkert við. Það er
augljóst mál, að það á ekkcrt
erindi til þeirra. Það mætti jafnvel með tölu-
verðum rökum segja, að það væri harla ósmekk-
legt að auglýsa útvarp, sem frekast sýnist vera
algert einkamál þeirra, sem þar eiga hlut að
máli, þ. e. sendenda og viðtakenda. Það álti
því að auglýsa dagskrárlok áður en þetta út-
varp liófst, og slita þar með islenzku útvarps-
dagskránni.
*
Sjálfsögð Hitt er annað mál, að eg skal
greiðasemi. ekkert lasta þá greiðascmi íslenzka
útvarpsins, að greiða fyrir þessum
jólakveðjum með endurvarpi, en álit aðeins
smekkleysu, að auglýsa nokkuð um þetla út-
varp.“ Þannig endár bréfið. „Bergmáli“ fannst
sjálfsagt að koma þessari gagnrýni á framfæri,
og álílur, að það sé töluvert til í því, sem þréf-
ritarinn segir, og beinir síðan kvörtuninni til
hlutaðeigandi aðila.
*
Velrarhjálpin. Nú eru aðeins tyeir dagar til
jóla, helztu hátíðar ársins, þegar
aílir, scm tök hafa á, reyna að liafa það sem
hezt og hvila sig í algerðri ró, Það er athug-
andi í þessu sambandi, að kjör manna eru mis-
jöfn og hefir oft verið minnzt á það áður. Sum-
ir eru þannig staddir, að þeir geta ekki af cig-
in rammleik veitl sér þær skemmtanir og ánægju-
slundir, sem alltaf hafa verið nátengdar jólun-
um og ölluni finnast sjálfsagðar.
*
Allir vi'lja Því nær allir, sem eitthvað hafa af-
lijálpa. lögu, eru fúsir til þess að leggja
eitthvað af mörkum til hjálpar hág-
stöddum, en almenningur veit ekki hvar þörfin
er mest. Þess vegna er Óhjákvæmilegt að hafa
stofnun eins og Vetrarhjálpina, til þess að fylgj-
ast með, hvar þörfin er hrýnust. Til hennar
koma umsóknir og hún tekur á móti gjöfunum,
sem almenningur lætur af hendi rakna. Tím-
inn er naumur nú, skrifslofa Vetrarhjálparinn-
ar í Bankastræti 7 verður opin á morgun lika,
þótt annarsstaðar sé lokað.
Mæður önnur starfsemi er hér í bænum, er
styrktar. vinnur að því að styrkja fyrirvinnu-
lausar mæður, sém hafa fyrir hóp af
börnum að sjá.-Mæðrastyrksnefndin starfar allt
árið, en fyrir jólin hefir hún sérstaka söfnun lil
þess að gleðja bágstaddar mæður og börn þeirra,
sem annars yrðu ekki aðnjótandi jólagl^ðinnar.
Ivonur, sem bundizt hafá þessum samtökum til
þess að styrkja efnalaus heimili, liafa heðið blöð-
in að minna bæjarhúa á sig og hiðja alla þá
ei' þess eru megnugir að senda Mæðrastyrks-
nefndinni peningaupphæð eða fataböggul fyrir
jólin. Nefndin sér siðan um að koma .gjöfun-
úm lil þeirra mæðra, scm mest þurfa á þeim
að halda.
Gleðileg jól. í dag er síðasti dagurinn, sem Vís-
ir kemur út fyrir jól, cn hann
verður liinsvegar fyrsta blaðið, sem kemur út
eftir jól. „Bergmál" óskar þess vcgna öllum les-
endum sinum gleðilcgra jóla. í þetta sinn kem-
ur blaðið ekki út í fjóra daga í röð, því uð á
Aðfangadag er aðeins unnið fjórar klukkustuiid-
ir, svo að ekki verður hægt að koma blaðinu
út þa.nn dag, eins og þó hefir verið venja undan-
farin ár. Vonandi cndist jólablað Vísis lesend-
um fram yfir jól. í jólablaðilm eru margar sög-
ur, þýddkí- og frumsamdar, og auk þess !mörg
Ijóð og ýmislegt annað efni.