Vísir


Vísir - 23.01.1946, Qupperneq 2

Vísir - 23.01.1946, Qupperneq 2
2 V I S I R Miðvikudaginn 23. janúar 194ff Cjii&inLUidur ddb>aníeisíon: til suðiirs* Og loksins hafði mister Lodge kennl mér' nóg. Eg var útiærður, útskrifaður og út- blásinn. Eg var orðinn sér- fræðingur í skáldskap, í liljónilist, i radar- og atom- sprengjuvísindum, í pólitík, í uppeldismálum, í menn- ingarástándi Bandaríkja- þjóðarinnar og heimsins yfir höfuð, — eg vissi allt! — Eg sá hið ósvnilega og skildi ];að, sem var óskiljanlegt, — eg var ofurmenni í einu 'orði talað, eins og íslendingum er ii 11. — Æ, þvilikur léttir að* vera búihn að ljúlca námi, -— að vera orðinn stúdent og magister og doktor, allt á einum mánuði, og mega nú leggja undir sig heiminn. Hvert skal halda? Hvert álti eg annars að ? _ Eg var búinn að hermsækja Ivennararskólann í f’lattsborg og liáskólann i íþöku og búinn að skrifa frægar ritgcrðir um báða ];essa staði, en þetta var ekki neilt. Eg yrði að heimsækja lielmingi fjarlægari staði og skrifa hundrað sinnum stór- kostlegri ritgerðir. — Eg greip landakorlið og renndi yfir það augunum — eins og örn. Florida — Mexikó, Kali- fornía, Kanada! — Orðin glitruðu fvrir sj.ónum mín- um, — dönsuðu og glitruðu eins og gimsteinar, — eins og stórir safírar i liálsmeni. Þetta voru blessuð nöfn, sem eg hafði Stunduni leikið mér að i draumi, en aldrei leyft mér i alvöru að tengja veru- leikanum, — nöfn, sem sjálf voru .draumur og ofar allri speki. Gat það annars verið, að eg væri enn svona ungur, — að állur minn’ virðulegi lærdómur undanfarinn mán- uð leysist upp í sólblik og æfintýri og æsku strax og eg liti á eitt landabréf? — Jæja, það varð að Iiafá ]>að, -— það varð að liafa það. Sennilega nógur tími til að verða vitur og gamall síðar — til þess að devja og cignast gröf. — Og eg iieyrði fjar- lægðina kalla, og.hún kallaði á mig há.stöfum. Af stað. „Eg' kem,“ svaraði eg. Eg lagði af slað morguii- inn 4. september í „Grey- hound“-bifreið. Þessháttar bifreiðir taka þrjátíu farþega og eru i förum á öllum veg- um Bandaríkjanna. Þær bafa þægileg sæti og æja á tveggja til þriggja klukku- stunda fresli svo farþegarnii geti rétt úr sér og fengið sér „pæ“. Það var ætlun mín að ferðast með þeim i rúma tvo mánuði, og eg Iiafði keypt farseðil, sem giíti fyrir alll ferðalagið. Afgreiðslumaður- inn, sem seldi mér hann sagði, að nú ætli eg lengsta farseðihnn i öllum Banda- ríkjunum og óskaði mér til hamingju með hann, eins og eg hefði eignazt kærustu. „Þakka yður fyrir, og ver- ið þér sælir,“ sagði eg. Thors og Truman. Viðílagðum ofi stað klukk- an 10: • Við ætluðum til Washinglon í dag, þangað sem Thors er og Truman býr, og þangað sem Stalin kikir, þegar hann gáir lil veðurs. — Á neðri stöðinni í New York'kom ný lcerling í bilinn og settist lijá mér. Það var dauðlúin manneskja. Hún talaði ekki oi’ð og hengdi niður höfuðið eins og gamall hestur. Eg var að vona, að hún ætlaði bara til Jersy- horgar hinum megin við fljótið, því það er svo leið- inlegt að silja lijá eyðilagðri mauneskju, cn mér varð eklci ttð því, — hún sat lijá mér allan (íaginn. Við rcnndum okkur inn í Hollandsjarð- göngin, sem liggja undir Iludsonfljótið, og eg hélf þau ætluðu aldrei að enda. Loks enduðu ]iau samt og við vor- um komin inn í annað ríkí, Nýju-Jersey. Eg hafði kom- ið þangað áður, þegar eg fór til íþöku, en þá höfðum við farið í gegnum Linkolnsjarð- göngin, sem eru ný og glæsi- Íeg. í Jieirri ferð hafði eg tvisvar komið til borgarinn- ar Skranton í Pennsyívaniú. Það er hörmulega leiðinleg borg, full af Ijótum járn- vinnsluverksmiðjum með há- um strompum og sóti. Eg kveið fyrir því, ef eg yrði nú í þriðj'a sinn að horfa upp á þá forsmán og tók upp tíma- töfluna, sem gilti til Was- hington, og laS nöfnin á við- komustöðunum. Nei, Skran- lon var hvergi nefnd. Eg glotti í kampinn, og kerling- arþýslin sá það útundan sér og hélt víst að eg væri að hlæja að sér. En því fór fjarri, eg var að glo.tta framan í liana Skranton gömlu, ]ivi nú hafði eg skotið henni ref fyr- ir rass. — En eg þurfti að ná mér betur niðúr á henni, fannst mér, og viti menn, — þarna rennur upp úr mér heilt kvæði um borgarólánið, og á prent skal það komast, og liérna er það: Fór skáld úr norðri um Skranton-stræti, einn Skallagrímur Kveldúlfsbur. Á stálbrú einni hann staklc við fæli. „Hæ, stanzið!“ æpti liann — „maður livur. — Sjá tárast sor'g, hevr tralla kæti, þér tartarar og hofróður! Eg trúað hef að tímar batni, hef tárazt, þegar hani gól, gist lilátraborg að sorgarsjatni og sungið fullur „Heims um ból“, hef lagzt til sunds i lífsins vatni og leikið mér að tungli og sól. IJef villlur reikað einn um álfur og áttum týnt og drottni gleymt, i vöku gefizt hlutur hájfur, mig hcfir þúsund sinnum dreymt eg væri skáld — eg væri sjálfur það ivald, sem næsta Faust er ge}rmt,“ : * 4 ísí í .fci >v;í; Heyr skáld úr norðri, Skrantons gestur, hér skilur engin sál þitt tal,“ — einn málmturn æpti á máli blæstur, — „hér metum vér það óráðshjal. Ilér rikir vél, — og ljóðaleslur er langt frá því, sem koma skal. Ilver trú þín er, livar til þú finnur hvert tjón þú beiðst, hvern vinning Jilauzt, hvort öll þín stríð eða ekkert vinnur, hvort einhvern lilekk úr fjötri braúzt, það skiplir engu Skranton lcvinnur, þær skarta í vor og — deyja i hausl!“ Mcira vannst mér elcki tími lil að vrkja, því það var Grikki í bílnum. •— Eg varð ekki var við hann alvcg strax, tók ekki eftir lionum samstundis, en í fyrsta á- fangastað okkar sá eg liann, — Iivar hann sat á grasbekk bak við stöðvarhúsið, ber- liöfðaður, gráhærður maður um fimmtugt, Rrangalega vaxinn, og var að virða fyrir sér umhverfið. Ilann horfði ekki á það eins og listamað- ur eða náttúruskoðari samt sem áður, hann horfði á það eins og kaupmaður, eða kannske eins og bóndi, — eg sá það á augunum í honum. Augun í honum voru eins og tveir kqparskildingar, sem glitti á í sólskininu. Enginn vafi, að hann var að hugsa um peninga, að hann var að meta til verðs, það sem hann sá. Ekki af því hann ætlaði sér að gera boð í það, heldur af heilbrigðri og meðfæddri kaupmannsnáttúru. Eg nam staðar rétt hjá honum og fór að horfa líkt og hann. Hann tók samstundis eftir því og dró mig þegar í sinn dilk, — fékk á mér góðan bifur sem sagt. / Rætt við Grikkja. „Þeir rækta maisinn hérna," sagði hann. „Þeir rækta helvítisfælu af maís, og verðið er gott. Þeir stór- græða allir.“ „Það er gefið,“ svaraði eg. „Það er ekki að spyrja að því á stríðstímum, þá moka framleiðendur saman pen- ingum og eignast milljón.“ Eg var Jiegar búinn að uppgötva, að þessi maður var ekki upprunninn hér. Ilann bar ensku sína fram með rífandi errhljóði og kvað fastar að öllu en hér- lendir. Það sama var reynd- ar um mig að segja. „Hvaðan ert þú?“ spurði liann allt í einu. „Þú ert ekki amerískur, — erlu? — Þú talar, með rússneskum hreim eða spönskum.^ Eg sagði honum hvaðan minn lireimur væri kynjaður og innti hann sjálfan eftir þóðerni. „Eg er grískur, já, frá Grilddandi — frá Spörlu, fæddur þar — alinn upp í Spörtu — búinn að vera fimmtán á& hér.“ Hann talaði ij < I 'jtví f j liátt og hratt, vaggaði kollin- um og naut þess að láta mig horfa á sig — „Eg heiti Dous- manes,“ Iiélt hann áfram. „Blómasali. Nr. 389 við 5. Avenue New York. Hérna er nafnspjaldið milt.“ Hann fékk mér spjaldið, og eg renndi yfir það áugunum og skildi á öllu, að eg yrði að vera mjög þakklátur og stinga þvi á mig. Höfðingi. „Stingdu því á þig,“ sagði hann og brosti og vaggaði kollinum og var grískur — og var griskur höfðingi. — Eg þakkaði gjöfina og lineigði mig. Nú var kominn tími til ]>ess að fara í bílinn aftur, en Dousmanes var ekki á þeim buxunum að slíta strax jafn ágætum félagsskap og mín- um. Hann skipti um sæti og settist í næsta sæti fyrir aftan mig. Þegar bíllinn var kom- inn á ferð, laut Grikkinn fram yfir bakið á stólnum mínum og sagði: „Grikkir eru hraustasta þjóð í lieimi, en þeir eru of fáir. Ef við værum fimmtíu milljónir, mundum við hreinsa óit ú'r Evrópu, Þýzka- land o,g allt heila helvítis móverkjð, — lireinsa lit úr Evrópu, eimf og fjósi! — Manstu hvernig við fórum með ílali í ^Albaníu?" — Eg mundi ]>að, og Grikkinn blómstraði. — „Arislóteles,“ sagði liann. „Oh!“ „Leonídas,“ svaraði' eg. „Hann var frá Spörtu,“ sagði Grikkinn. „Þið unnuð Trjóu,“ sagði eg. „Maður lifandi!. Við fór- um í tréhesti, — göbbuðum þá, sjáðu.“ „Mikið einstaklega var Hónjer nú laglega hagmælt- ur,“ sagði eg. Stalin. „Og það var nú djöfull." „Hvernig líkar ]iér við Englendinga og Rússa?“ spurði eg. „Minnstu ekki á þá,“ svar- aði Dousmanes. „Helvizkiír Englendingurinn og bölvað- ur Rússinn. Þeir drápu Met- axas, —• og gæti trúað í fé- lagi. Þér að segja, það eru allir' Rússar Gyðingar.“ „Og Slalin líka?“ spurði „Já, bágt að.vita, en þ níætti segja mér það. — N Grikkir, þeir eru cngir ai lóðar. Til dæmis liérna Ameríku. Grikkir í öllu beztu stöðunum, beztu lic elin rekin af Grikkjui beztu búðirnar eign Grikkj Allir Grikkir græða peninf alls staðar. En striðið f bölvanlega með okkur lieim Það voru fjörutíu og fim þúsund íbúar í Spörtu fyi stríð, nú eru þeir ekki nen fimmtán þúsund. -— En þc ná sér upp1 aftur, vertu viss Hann hálfstóð á fætur, la énn lengra fram yfir stólba ið og sýndi mér með han leggshreyfingu hvern Grikkir voru í raun og Ver Þeir voru hetjur og bissnes menn og vitringar, en héfc þurft að vera fimmfíu mill "nir- “ a úm'Oi Rétt í ]>essu iiam gráhund- urinn staðar, þvi við vorum komnir inn á stöðina í Phi- ladelfiu. Grikkinn ætlaði ekki lengra. Hann greip töslui sína og rétti mér liendina. „Vertu sæll,“ sagði hann, „þú heimsækir mig i nóvem- ber og borðar mcð mér kvöldverð, —- stóran ærlegan lcvöldverð. — Ddusm.anes, — þú manst. 389 Fifth Avenue.“ Eg liorfði á eftir honum út um dyrnar, manni liins barnalega stolts, manni suð- ursins, og mér fannst eg hafa þekkt Iiann síðan hann var lítill, — hafa riðið með hon- um í Landréttir í haust, liitt bann á Þjórsártúninu í vor. Og við höfðum rakið ætlir okkar til konunga, rifjað upp Njálu og bölvað liund- Tyrkjanum og dönskum. — Eg leit út um gluggann, en eg sá ekki Dousmanes framar. Ilann var Iiorfíim í ólgandi mannhaf milljónaborgarinn- ar, — eins og' dropi. — Halifax, .1. des. 1915. i bri, rt i ió ') Ó'ji.i 'i i 'T w ( * > , | * miuni) i

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.