Vísir - 30.07.1947, Blaðsíða 8
Næturvörður: Lyfjabúðin
Iðunn, — Sími 7911.
WISIR
Miðvikudaginn 30. júlí 1947
Lesendur eru beðnir að
Wrtié i ~
athuga að smáauglýa
I n g a r eru á 6. síðu. —
Norrænir þingmenn í
boði bæjarstjórnar.
4500 Gyðingar neita að
fara á land í Frakklandi.
Matarskorfur er á skipunusu
og aðbúnaður siæmur.
Borgarstjóri og bæjar-
stjórn Reykjavikur efndu til
niannfagnaðar í gærkveldi í
Sjálfstaéðishúsinu og var
þangað boðið fulltrúuin, seni
þingmannafundinn sækja og
nokkurum öðrum gestum.
Munu liafa setiö liófið um
150 manns.
Borgarstjóri stjórnaði hóf-
inu og bauð gesti velkomna.
\ra raf orset i iiæj ars t j órna r,
Hallgrímur Benediktsson al-
]nn., flutti ræðu fyrir minni
þingmannasambandsins. Vék
hann að landnámi Reylcja-
vikur og rakti þróun bæjar-
ins í stórum dráttum, en á-
varpaði því næst þingmanna-
sambandið á þessa leið:
Þingmannasamband Norð-
urlanda var einmitt stofnað
fyrir fjörutíu árum í þeim til-
gangi að efla norræna sam-
vinnu, auka og efla samstarf
í atvinnu- og menningarmál-
imi til gagnkvæms hagnaðar
fyrir Norðurlönd. Og þannig
lief eg ávallt skilið það starf,
sem unnið hefir verið í þágu
norrænnar samvinnu, að það
yæri ekki eingöngu gert í
ræktarsemi við sameiginleg-
an uppruna, í ræktarscmi við
fortíðina, heldur og lil gagns
og hags í nútið og framtíð
fyrir þær þjóðir, sem i sam-
vinnunni taka þátt. Það liafa
verið lialdin mörg mót og
margir fundir til að efla nor-
ræna samvinnu, en við engan
fund er hægt að tengja ineiri
vonir um raunverulega og
hagnýta norræna samvinnu
og fulltrúafund norræna
þingmannasambandsins, því
að þálltakendur i honum eru
fulltrúar löggjafarsamkomu
livérs lands. -— En það er
sameiginlegt aðalsmerki allra
Norðurlanda, að þjóðkjþrin
Togaraflotinn
býzt á veiðar.
Togaraflotinn, sem legið
hefir í höi'n undanfarið, er
nú að búast til ísfiskveiða.
Eins og skýrt var frá i Yísi
i gær hefir verulegur hluti
togaraflotans legið í liöfn
sökum þess að löndunar-
stöðvun er í Englandi á tíma-
bilinu frá 1.—-7. ágúst n. k.
vegna almennra frídaga
(Bank Holydays), cn er nú
aö fara á veiðar aftur.
Dr. Evatt utanríkisráð-
lierra Astralíu cr kominn til
Jaþan lil þess að heimsækja
stöðvar ástralska liersins þar.
samkoma ræður, liver sluili
vera lög í landi.
Landvarnarráðlierra Svía
A. Vougl liafði orð fvrir lún-
um erlendu gestum, og bar
ræða lians vitni um að liann
bafði ærna kynningu af þró-
un íslandsmála í fortíð og nú-
líð. Ræddi lrann einkum um
að þjóðinni befði tekist að
varðveita tungu sína, þannig
að mælt mál í dag vseri hið
sama og gekk og gerðist fyr-
ir þúsund árum og erlend orð
hefðu ekki verið lekin i þjón-
ustu tungunnar. Ræddi hann
einnig um verklegar fram-
farir, sem orðið liefðu í landi
héi*.
Er borðhaldi var lokið
söng Karlakór Reykjavikur
nokkur lög við mikla brifn-
ingu áheyrenda undir sljórn
Sigurðar Þórðarsonar. Söng
Guðmundur Jónsson einsöng
í sumum lögunum, prýðilega
svo sem vænta mátti. Var þvi
næst dans stiginn og mun
öllum bafa þótt jietta góður
mannfagnaður.
Sýxiingar á Englands-
íörunam hefjasi
annaiÖ kvöld.
Annað kveld verður byrjað
að sýna kvikmyndina „Eng-
landsfararnir‘‘ fyrir almenn-
ing í Tjarnarbíó.
Ifefst sýningin ld. 9, en
áður cn aðalmvndin liefst
verður sýnd aukamynd, sem
er landslagsmynd frá Nor-
egi í eðlilegum litum. Þar
sem fólk mun vera frekar ó-
vant því að heyra norsku tal-
aða, gefst því lcostur á að
kaupa ítarlega efnisskrá.
Verð miða er heldur liærra
en venjulega, en menn ættu
að hafa það hugfast, að öli-
um tekjum af sýhingum á
myndinni verður varið til að
stofna sjóð, er lijálpi norsk-
um slúdentum við Háskói-
ann hér.
Sprengingin í Brest orsak-
ar jarðhræringar í Bret-
landi.
Eins og skýrt var frá i
Vísi í gær varð varl við jarð-
hræringar í Cornwaíl í
fyrradag.
Talið er nú, að jarðhrær-
ingar þessar hafi stafað frá
sprengingunni i Brest á
Frakklandi. Sprengingarinn-
ar varð vart um allt Suður-
England.
Vittorio Smanuel Orlando er
orðinn 86 ára að aldri. Hann
nýtur ennþá mikillar vin-
sældar sem stjórnmálamaður
á Italíu. Hann var einn hinna
fjögurra stóru eftir fyrri
lieimsstyrjöldina. Hinir þrír
voru Clemensau, Wilson og
Lloyd George.
50- 60 skáfar
að IJIfSfótsvatni.
A Skátaskólanum á Úlf-
tjóismitni eru nú milli 50 og
60 skátar, og nokkuð jafn
margar stúlkur sem drengir.
Skólinn liófst 8. júní s.l.
cn þá komu skáfadrengir,
viku seinna, eða þann 15.
komu skátastúlkurnar.
Hver deild starfar sjálf-
slætt og út af fyrir sig.
Drengir búa i tjöldum, en
matast í skála, en stúlkurn-
ar sofa í svefnskála. Á dag-
inn er unnið við liverskon-
ar skátastörf. Forstöðumað-
ur drengjaskólans er Björg-
vin Magnússon, en forstöðu-
kona kvenskátaskólans frú
Llrefna Tvnes.
Skólinn stendur til 22.
ágúst, en i september verð-
ur foringjaskóíi að IJlfljóts-
vatni á vegum Bandalags ís-
lenzkra skáta.
Gyðingarnir '/500, sem
fluttir voru til Frakkiands
frá Palestinu, liafa neitað að
fara í land og dveljast nú
um horð í skipumim.
Gyðingarnir fóru frá
Frakklandi fyrir þrem vik-
■ um síðan og ætluðu að reyna
að komast til Palestinu, en
j er jieir komu til Haifa neit
I uðu Bretar þeim um land-
vistarleyfi.
Fluttir til baka.
Bretar létu þá siðan fá 3
Gromyko veld-
ur hneyksli í
öryggisráðinu.
Fréttamenn segja, að fund-
nr öryggisráðsins í gær-
kveldi haafi verið mjög al-
vöniþriinginn, er Gromyko
fulltrúi Rússa beitti neitua-
arvaldi sínu í 11. sldpti.
Nokkurrar gremju varð
vart í garð Gromykos, ekki
sérstaklega vegna þess að
,hann beitti neitunarvaldinu,
heltiur vegna þeirra aðferða
er hann notaði. Gromyko sat
hjá við atkvæðagreiðslu, er
greitt var atkvæði um ein-
staka liði tillögu Bandaríkj-
anna um eftirlitsnefnd á
landamærum Grikklands, en
ier hún var borin upp í lieild,
beitti liann neitunarvaldi
sínu. Með þessu tafði hann
störf öryggisráðsins að
óþörfu.
flutningaskip til þess að
liomast aftur til Erakklands,
ien Frakkar íiöfðu ákveðið
að leyfa þeim að setjast þar
að aftur. Nú neitar fólkið að
yfirgefa skipin, en þau liggja
i iiöfn í smábæ skannnt frá
Marscilles í Suður-Frakk-
landi.
Aðlninaður slæmur.
Aðbúnaðurinn á skipun-
um er mjög slæmur og mat-
arbirgðir litlar. Frönsk
hjálparstofnun liefir gert
ráðstafanir til þess að scnda
fólkinu matarbirgðir um
borð í skipin til þess að bæta
úr mestu neyðinni.
Maður finnst
örendur á
Grenimel.
Nú í morgun fannst ör-
endur maður í kjallaratröpp-
um hússins nr. 6 við Greni-
mel.
Maður þessi, sem hét Al-
freð Dan Sigurbjörnsson og
var til heimilis í húsinu, lá i
morgun á kjallaratröppum
hússins eins og fyrr er sagt.
Ilöfuð lians vissi niður og
var mikið sár á hnakkanum.
Maðurinn liafði, að þvi er
virtist, fallið niður tröppurn-
ar og rotazt.
Þeir, sem kunna að hafa
liitt mann þenna í gærkveldí
eða nótt, eru vinsamlegast
beðnir að snúa sér til Rann-
sóknarlögreglunnar.
Agnar Kofoed-
Hansen flug-
vallarstjóri
ríkisins.
Agnar Kofoed-Iíansen, lög-
reglústjóri, hefir verið skip-
aður flugvallarstjóri ríkis-
ins frá 1. ágúst að telja.
Eins og kunnugt er var
ákveðið í lögum, sem sett
voru á síðasla þingi, að starf
flugvailarstjóraa sé að ann-
ast rekstur og viðhald flug-
valla rikisins undir stjórn
flugráðs. Flugráðið var ný-
lega slcipað og er Agnar for-
maður þess.
Síðasti leikur Norðmann-
anna verður háður í kvöld.
Þriðji og síðasti leikur norska landsliðsins hér að þessu
sinni fer fram á íþróttavellinum í kvöld og hefst kl. S'/i*
Verður hann við úrval úr Reykjavikurfélögunum og
má búast við spennandi keppni.
Liðin í kvöld verða þannig skipuð:
NOIÍÐMENN
Thorgeir Thorgei-sen
Erik Holmberg- Egil Jevanord
Gunnar Hansen Thorbjörn Svenssen H. Boye-Karlsen
Gunnar Thoresen Knut Bryr.ildsen
Odd War:g-Sörensen Knut Dahlen Björn Spydevold
•
Ellert Söivason Hörður Óskarsson Ríkaið Jónsson
óli B. Jónsson Guiinl. Lárusson
Sveinn Helgason Birgir Guðjónsson Sæmundur Gíslason
Sigurður Ólafsson Karl Guðmundsson
Hermann Hermannsson
ISLENDINGAR