Vísir - 03.01.1948, Blaðsíða 4

Vísir - 03.01.1948, Blaðsíða 4
V I S I R Laugardagiim 3. janúar 1948 <a ÐAG BLAÐ Úigefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H/F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Fékgsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. Símar 1660 (fimm línur). ■ Lausasala 50 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Fram til dáða! Enn eitt árið „er liðið í aldanna skaut“. Það kemur ekki aftur og ártalið 1947 mun ekki sjást framar, nema þegar talað er í liðinni tíð. Atburðirnir, sem gerðust á þvx ári, geta hinsvegar endurtekið sig, svo sem máltækið segir og að öllum líkindum gera þeir það að meira eða minna jeyíi, hvort sem við viljum eða ekki. Við þurfum ekki að kvarta, þótt sumir þeirra endurtaki sig. Við höfum sannarlega ekki mikið á móti því, að það, senx gott er þjóðinni og nauðsynlegt, hendi hana aftur og aftur og i æ í’íkara nxæli. Um hitt eru menn yfirleitt sammála, að allt verður að gei’a, sem unht er, til að koma í veg fyrir að það endurtaki sig, sem þjóðinni er í óhag eða til ein- hvers haga. Það hefur sjaldan vei'ið sannara en nú, og okkur hefur sjaldan verið rneiri naúðsyn en nú á því að geta haft sem mestan liemil eða rnest áhrif á viðburðina á hinum ýmsu sviðum. Við höfum undanfarið látið í’eka á reiðan- um i möi'gum efnum og það hefur leitt til þess, að jafnt og þétt verður erfiðara að snúa við, cf allir eru ekki ein- huga um að leggjast á eitt og standa saman. Við höfum að vísu haft forsjálni i að afla góðra og mikilvirkra at- vinnutækja, en á forsjálni okkar hefur skort að þvi leyti, að ekki hefur verið hugsað um að gera mönnum unnt að reka tækin, láta þau skila nauðsy-nlegum ai'ði. Við höf- um ekki verið nógu duglegir við austurinn, svo að bátinn hefur verið að fylla. Nu'urn áramótin verða nokkur þáttáskipti í þessu efni. I fyi’sta skipti liafa stjórnmálaflokkarnir sýnt af sér næga djörfung og manndóm til að hætta að fara eftir því, sem fólkið hélt að því væri fyrir beztu. Þeir eru nú að. byrja að sýna því íram á, að til yar önnur lcið, sem vár hin cina rétta, þótt að þjóðin hafi ekki gelað eða viljað koma auga á hana, meðan hún hélt að aðrar væru slarkfærar. Einn hópur manna er þó. andvígur því, að snúið sé við. Það éríi kommiinistar. eir vilja að svo verði siglt áfram sem fyrr. Vita þeir þó ekki síður en aðrir, að stefna þeirra getur aðeins leitt til ófarnaðar. Það eru og mikil meðmæli með hinni nýju stefnu, að kommúnistar skuli vera henni andvígir, þótt óvíst sé, hvérsu langt þeir þora að ganga í andstöðu sinni af ótta við fólkið, sem er nú óðum að vakna til veruleikans um dýrtíðina og skrípa- leik skilnaðarmannanna. Eitt vei’ða þó allir að gera sér ljóst, að fyrsta skrcfið krefst hins annars og þriðja, ef ekki á að verða um stöðvun á þróunarbrautinni. Fyrsta skrefið er i því fólgið, að verðþenslan sé stöðvuð. Hin næstu verða að færa hana niður. Engum dylst lengur, að mikið er hægt að gei'a til að lagfæra það, sem aflaga hefur farið i fjái-gróðavímu síðustu óra, ef allir standa saman. Menn verða líka að hafa það hugfast, að þær ráðstafanii', sem komu til fram- kvæmda um áramótin samkvæmt frumvarpi ríkisstjóm- arinuar uiii baráttu gegn dýrtíðinni, eru aðeins upphafið, ef vel á að vera.-En nú er stefnt á rétta átt, svo langt sem það nær og þar verður vonandi ekki látið staðar numrð. FRA HÆSTARETTI Hafii rétt til að reisa girðingu eftir veginum. Ekki sennað9 að vegurinn ætfi að haisiasf. Dómur hefir verið kveðinn upp í hæstarétti í málinu Páll Bjarnason gegn Þorkatli Þorleifssyni. Máli þessu er svo lxáttað, að málsaðilar eru nágrannar. Búa þeir á erfðafestulöndun- um, Bústaðablelti 8 (Hreiðri) og Bústaðabletti 9 (Læk), en lönd þessi liggja sanian. Erfðafestúhafar þeir, sem reistu hús þarna 1932 komu sér saxnan um að leggja sam- eiginl. braut lieim undir íbúð- arhúsin á lóðamörkum. Not- uðu þeir síðan veginn báðir. Voru lóðamörk sem næst á niiðju brautar þessarar. Erfðafestuhafar þeir, er sið- ar eignuðust eignir jxessar notuðu brautina sameigin- lega. Er þeir Páll og Þorkell voru orðnir eigéndur 1945 vai'ð ósamkomulag þeirra á milli urn notkun brautarinn- ar og reisti þá Þorkell girð- ingu á mörkum lóðar sinnar eftir miðjum vegi og breikk- aði siðan þann hluta brautar- imiai', senx á bans landi ligg. ur. Páll taldi lionum þetta ó- heimilt, þar sem brautin væri sameign beggja eign- anna og báðum heimil til umferðar, og lét lxann girð- ingu Þorkels ekki standa í vegi fyrir umferð urn upphaf- legu brautina. Þorkell vildi ekki una þessu og liöfðaði því mál ]>etta og krafðist þess að Páli væi’i óheimiluð för um land sit. Gekk dómufinn Þorkeli í vil og segir svo í forsendum dómsins: Það liafa ekki kornið frarn i máli þessu sannanir fyrir því, að fyrri eigendur greindra ei’fðaleigulanda hafi berum orðum eða á annan hátt samið svo með séi', að vegur sá, sem í málinu grein. ir, skyldi lialdast franivegis til sameiginlegrar hagnýting- ar ábúendum greindra lendna, og að stefntla hafi átt að vera kunnugt um slíka gerninga, þegar hann eignað- ist Bústaðablett 9. Þá verðúr ekki talið, að vegur þessi sé slíkt mannvirki, að stefnda hafi átt af ummerkjum veg- arins að vera ljóg lilvisl slíkra gerninga. Loks liefir stefndi ekki nxeð samningum bundið sig til að hlíta sanxeiginleg- um vegi um land sitt. Sanxkvæmt þessu ber að staðfesta það ákvæði héraðs- dónxs, að áfrýjanda sé óheini- il umfex’ð um land* stefnda. Eftir atvikum þyltir rétt, að málskostnaður í liéx’aði og fyrir hæstai’étti falli niður. Hi’l. Gustaf A. Sveinsson flutti nxálið af hálfu Páls, en Sigurgeir Sigurjónsson af hálfu Þorkels. Miklar gjafir fii sjóðs. H’okkuð á annaS hundrað manns hafa síðustu dag- ana gerzt fastir styrktar- menn Landgræðslusjóðs með 50-—100 króna legu framlagi hver. ar- Auk þess hafa margar ó- skilorðsbundnar gjafir borizt og er sú stæi'sta þeirra fi'á manni, sem ekki vill láta nafns síns getið, að upphæð 10 þús. kr. Samtals hafa safnazt rúnx- lega 430 þús. kr. í Land- græðslusjóð, og hefir hann vaxið á s. 1. ári um 40 þús. kr. eða unx nærri 10%. Sjóð- urinn þarf hinsvegar að ixema‘1 millj. króna, áður en hægt er að veita úr honum, samkvæxxit þeirri skipulags- skrá sém lionum er ætlað að stai'fa eftir. í viðtali, sem Vísir hefir átt við Ilákon Bjarnason skógi’æktarstjóra, sagði hann að ef jafnjiárri fjárupp- liæð væri veitt í eitt skipti fyrir öll til Landgræðslu- sjóðs eins og veitt hefir verið til bifreiðakaupa á s. 1. ári einu, myndi sjóðn- unx verðá borgð urn aldur og ævi og árlegir vextir af hon- um myndu nenxa svo hárri uppliæð að duga myndi ár- lega til stórtækra og raun- liæfra framkvæiiHla. 's’erksvið Landgræðslu- sjóðs er hverskonar land- græðsla og gróðui’vernd, en þó lögð aðaláherzlan á skóg- rækt, enda eðlilegt þar senx skógurinn er sá gróðurinn sem bezt getur verndað jai’ð- veginn fi’á tortimingu. Þess skal getið að söfnunin til Landgræðslusjóðs heldur stöðugt áfiam og er tekið við snxæx’ri og stærri fjárgjöfunx á skrifstofu Landgræðslu- sjóðs á Klapparstíg 29, en hún mun senn flytja á Borgartún 7. — BE BfiMAL —♦—— Sldpið sekkur. £Já atburður gerðist hér í höfninni snenxma á nýársdags- morgun, að veiðiskip, scm var komið inri fyi'ir fáein- um stundum, sökk þar sem það lá við bryggju, án þess að menn fengju að gert. Ekki verður sagt með vissu, hvað var hin beina orsök jiess, að skipið sökk, en vitanlega verður jxað iannsakað nákvæmlega. Unx hitt blandast mönnum þó varla hugur, að Ideðsla skipanna er oft svo mikil, að þau og áhöfn eru í stórum aukinni liættu. Virðist ærin ástæða lil þcss, að ákvæðum um hleðslu skipa sé stranglega framfylgt, jafnvel þótt siglt sé stuttar vega- lengdir og „innan skerja“, ef svo má að orði kveða. Of seint er að iðrast eftir að slysin verða-. -.....— Hin þöglu öfl. „Siguröur Kristinn" hefir sent mér eftirfarandi hugleiö- ingar: „Oflugustu kraftar nátt- úrunnar eru þögulir. Ljósiö er hljóölaust, en hyer sólargeisli verkar meö undraveröu afli. Frostið vinnitr I kyrrþei; en framleiöir þó ísfjöll. Þegjandi sogar hitinn vatnsgufuna úr sjónurn, og safnar henni samán í loftinu —■ þahgað til regniö fellur yfir fjöll og dali — og stórfljótin þúsundum sarnan streyma aftur til sjávar. Störf hjartans. Hljóölaust og án þess að vita af því, sendir tíjartáð sína hlýju lífsstrauma um æðarnar, og vér liftuxx, hugsum og störfum. Hugsunin er þögul. Stjórnvitr- ingurinn situr í kyrrþei i her- bergi og leggur grundvöll þeirrar stjórnnxálastefnu, er yerður til að lxefja eða steypa heilum þjó'ðunx;.'A- titíaunastpíu sinni ræðir efnaíræðingurinn án oröa við náttúfuna, er hljóðlega fræðir lxann um hina duldu fjársjóöi. Árstíðirnar. Náttúran framkvænxir sitt mikla starf steinþegjandi. Árs- tíöirnar koma. og fara, Sólin þræðir braut sina eftir himnin- um. Skógar og ekrur skrýðast grænunx og gullnum skrúða, ávöxturinn þróast og veröur íullþroska — allt sarnan eins kyrrlátlega og morgunroðinn. Þegar nxusteri Salómons var byggt, heyröist ekkert hamars- hljóð. Allt var unnið í kyrrð. En það var fagnaróp, þegar síöasti steinninn kórónaði verk- ÍÖ' ^ ^ Illjóðar byltingar. Byltingar sögunnar hafa ekki gerzt eingöngu nxeð há- reysti fallbyssuskotanna, eöa sk-elfingaun-bítrdaganna.-StjÓFn-. arbyltingar eru ekki aðeins hávaðaupphlaup. Frelsið hefir unnið í leyni. Það hefir barizt við hinn sterka á nóttu sorg- anna, þar til sigur var fenginn. Guð hefir ekki oft talað til mannanna með heyránlegri röddu. Mannlegt eyra heyrir sjaldan hinn almáttuga guð talá. Krafturinn sjálfur er ekki heyranlegur. Hann er æðri oþ- inberun. Hið kyrrláta orð, hirin ósýnilegi andi — talar. Sínáis þrumurödd heyröist aðeihs einu sinni, en hið lxljóða, þögula orð hefir læst sig gegnum allar aldir. Trúin er þögul. Trú — og lxjartað endurfæð- ist, svo að nxaðuriixn verður ný skepna í Jesú Kristi. Hið vold- uga náttúruafl syndarinnar bugast. Myrkrið flýr. Synda- byrðinni er létt af. Friður guðs fær að ríkja í sáluimi. Jesús er • ..... Frh. 4 7, síSu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.