Vísir - 28.07.1948, Side 4
4
V I S I R
Miðvikudaginn 28. júlí 1948
'(4
DAGBLAÐ
Ctgefandi: BLAÐAUTGAFAN VlSJR H/F,
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn FáLsson.
Skrifstofa: FélagsprentsmiðjunnL
Afgreiðela: Hverfisgötu 12. Símar 1660 (fimm línnr).
Félagsprentsmiðjan hJ.
Lausasala 50 aurar.
í dag
cr miðvikudagur 28. júli, — 210.
dagur ársins.
Sjávarföll.
Árdegisflóð var kl. 10.40. SiS-
degisflóð kl. 23.05.
Næturvarzla:
Næturvörður cr í Lyfjabúðinni
IÖunni þessa viku, sími 7911.
Næturlæknir hcfir bækistöð i
Læknavarðstofunni, sími 5030.
Nætúrakstur i nótt annast Litla
bilástöðin.
Veðrið.
Mestur liiti i gær 13,9 stig. —
Minnstur liiti i Reykjavik í nótt
10 stig. Úrkoma var engin i gær,
en 0,0 nim í nólt. Sólskinsstndir
i gær voru 11.
Veðurlýsing: Um 300 km. suð-
vestur af Reykjanesi er lægð á
lireyfingu norður öða norðaust-
ur eftir.
Vcðurhorfur: Suðaustan og
sunnan eða suðveslan átt, stinn-
ings kaldi eða allhvass. Rigning1
öðru hverju.
Heimdallur,
féiag ungra Sjálfstæðismanna,
efnir til skemmtiferðar austur á
Siðu dagana 31. júli—2. ágús.t. —
L'pplýsingar varðandi ferðina og
farseðlar fást i skrifstofu Sjáíf-
stæðisflokksins.
Áfengisverzlunin
auglýsir að nú kaupi hún all-
ar tómar vinfiöskur á 50 aura
stykkið. Menn ættu að athuga, að
þetta verkar scm verðlækkun
lijá þessari l'rægu stofnun. Ef
Mynd þjóðhöfðingjans.
Alsiða var það 'fyrr á árum, ciukum i svcitinni, aö myndir
af erlcndum þjóðhöfðingjum hengju á veggjum við
liliðina á ,,-Drottinn hlcssi hcimilið“, eða öðru útsaumuðu
slássi. Hitt mun hafa verið einstakt, að brjóstmyndir slikra
manna stæðu í stofum, steyptar í Varanleg efni, á við
postulínskýr eða postulinshunda. Venjulega voru konunga-
mýndirnar keyptar upp á stáss einvörðungu, en ekki vegna
])éss að kaupendurnir væru sérstakir aðdáendur hlutað-
eigandi þjóðhöfðingja, en slíkt kom þó fyrir. Var slík
veggskreyting öllum að meinfangaláusu, enda engin ástæða
til að amast við.
Islenzka ríkið hefur komið sér upp vísi að listaverka-
safni, sem geymt er í kjöllurum hér í höfuðstaðnum og
skólum úti um land. Aðallega er hér uin málverk að ræða,
en eitthvað hefur líka verið keypt af höggmyndum. Til
slíkra kaupa mun lítt eða ekki liafa verið leitað út fyrir
landsteinana, og myndir af erlendum þjóðhöfðingjum
munu ekki vera í eigu safnsins, jafnvel þótt sumir Dana-
konungár hafi reynst þjóðinni það vel, að vert gæti talist
að þeirra yrði að einhverju minnst.
Á árunum 1944—1946 var Brynjólfur Bjárnason, for-
maður kommúnistaflokksins, menntamálaráðherra. Lista- .
safn rikxsms hefur væntanlega hcyrt undir stjornardeild*,^^^ f. þch. cina fll]la j
hans. Var hann um sumt framkvæmdasamur í emháettinu, staðínn, og gætu þá byrjað að
ekki sízt í embættisveitingum við skólana, svo scm frægt safna aftur.
er orðið. Ráðherrann virðist einnig hafa hugsað sér, að
endurbæta listasafnið á viðunandi veg og auðga það af
crlendum snilldarverkum. Er þannig fra því skýrt i ensku
heimildarriti fyrir árið 1947, að íslenzka ríkisstjórnin hafi
samið við erlendan listamann um að búa til höggmynd
af Stalin, en jafnframt er í greindu riti birt mynd af lista,
manninum og lirjóstmynd hlutaðeigandi þjóðhöfðingja.
Sýnist verkið vel af licndi leyst eftir myndum að dæma.
Allt til þessa hefur mönnum verið ókunnugt um áhuga
menntamálaráðherrans fyrir höggmyndalistinni, og ekki
hefur þesS heldur orðið vart að brjóstmynd Stalins fyrir-
finnist í listasafni ríkisins. Hinsvegar verður að ganga út
frá því sem gefnu, meðan ekki reynist annað sannara, að
ofangreind hrjóstmynd liafi verið keypt á vegum íslenzka
ríkisins og þá væntanlega einnig greidd mcð skilum í
brezkum pundum. En hvar er myndin niðurkomin? Ekki
veit nema að kommúnistaflokkurinn gcymi hana vegna
húsnæðisleysis þess opinhera? En þá ætti flokkurinn að
hafa myndina til sýnis fyrir almenning. Hið opinbera á
myndina, og sú skýrjng er gefin á kaupunum, að hún
eigi að vera á „stöðugri sýningu“. Þetta mál þarf nánari
athugunar við og væntanlega verður fullnægjandi skýr-
ing á því gefin,
Það getur verið gaman að eiga góða mynd af Stalin,
enda er hann nú orðinn svo aldurhniginn að óvíst er hversu
margar höggmyndir verða af honum gerðar i lifandi lífi.
Heilsu hans kvað hafa hrakað mjög síðustu árin, aðal-
lega vegna of mikillar áreynslu á styrjaldarárunum, að
því er talið er. Ekkert er á móti þvi að almenningur fái að
sjá andlitsdrætti þessa austræna þjóðhöfðingja, og listin
á rétt á sér í hvaða mynd, sem hún birtist. Islendingum
hefur að vísu verið annað betur gefið, en þjóðhöfðingja-
dýrkun, en þjóðin er svo frjálslynd að hún amast á engan
hátt við myndum af slíkum einstaklingum, hvort sem þær
eru eftirlíkingar af málverkum, eða höggnar i stein. Hitt
mun almenningur kunna betur við, ekki sé verið að
fara í felur með slík listaverk og það, sem hér um ræðir
og hafi kommúnistar samið á vegum ríkisins um mynda-
gerðina, ber þeim að standa skil á myndinni, en leggja
hana ekki undir sig eða slá á hana eignarhaldi.
Islenzka listasafnið er svo fátækt af snilldarverkum,
að ekki er vert að svifta það nokkru því verki, sem keypti
befur verið á vegum þess, jafnveí þótt einstakir stjórn-
Jtnálaflokkar kunni að ágirnast það.
VISI R
FYRIR 3D ÁRUM
Laugardaginn 27. júlí 1918 er
eftirfarandi auglýsingu að finna
á fyrstu síðu Visis:
„Ungur íþróttainaður, sem van-
ur cr islenzkri gliinu, gctur feng-
ið atvinnu við iþróttasýníngar
Jóhanncsar Jósefssoriar í Amcr-
iku. Uinsækjandi þarf að fara
nicð næstu skipum. Allar nánari
uþplýsingar gefur Einar Péturs-
son, Hafnarslræti 18, Reykjavik.“
Þá er og önnur auglýsing i
blaðinu, scin segir að tveir menn
geti fengið far með bil til Þing-
valla.
Sextugur
er í dag Kristinn Eyjólfsson frá
Bíikkárholti i Ölfusi, nú til lieim-
ilis i Lónshúsum i tíarði.
Islenzkt met
í loftflutningum var sett i gær.
Fluttu Skymastcrflugvélar okkar,
Geysir, Gullfaxi og Hekla, 111 far
þegar til Prestxvick, Lundúna og
Kaupmannahafnar.
V'örður
lieldur alniennan dansleik i
Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 9.
Aðöngumiðar verða seldir i and-
dyri hússins frá kl. 8 í kvöld.
Kvikmyndahúsin.
Tripolibió hefir nú opnað aft-
ur eftir alllangt lilé. Austurbæj-
arbíó hefir hins vegar lokað uni
óákveðinn tíma. Gamla Bíó er
ennþá lokað.
Jón forseti
cr 28. nýsköpunartogarinn, scm
við íslendingar höfum keýpt. —
Mun liann leggja. af stað til Rvík-
ur í dag' eða á morgun. Ilinn gam-
alreyndi skipstjóri, Guðnnindur
Markússon fyrrum skipstjóri á
I Hannesi ráðherra og Jóni Ólafs-
| syni mun verða skipstjóri.
Útvarpið í kvöld.
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón-
lcikar: Lög Icikin á banjo. og
balalaika (plötur). 20.30 Útvarps-
sagan: „Jane Eyre“ eftir Char-
lotte Bronte, XXIL (Ragnar Jó-
hannesson skólastjóri). 21.00
Tónleikar: „Petroushka“ eftir
Igor Stravvinsky (endurtckið).
21.35 Erindi: Postulínsborgin frá
Saxclfi; niinriingar frá 1925 (Sig-
riður Eiriars frá Munaðarnesi).
22.00 Fréttir. 22.05 Danslög (plöt-
rir). 22.30 Veðuríregnir.
Nýir kaupcndur
Vísis fá blaðið ókeypis til næstu
mánaðamóta. Hringið í síma 1660
o£ tilkynnið nafn og heimilisfang.
Fréttabréf frá
fföfn.
Fréttabréf frá Ivaupm.höfn.
Nú stendur ferðamanna-
ttmabilið sem hæst hér í
landi og er gert ráð fyrir
því, að fjórðungur milljónar
manna fró öðrum löndum
komi ó þessu ári hingað.
Er þar einungis átt við þá,
sem eru hér nætursakir
lengri eða skemmri tíma, en
ekki liina, sem koma með
ferju frá Svíþjóð og standa
aðeins við einn dag. Gera
menn ráð fyrir, að Danir fái
um 70 milljónir lcróna í er-
lendum gjaldeyri frá ferða-
mönnuni þessum. Tveír af
hverjum fimm munu vera
frá Svíþjóð, fimmti liver frá
Noregi og fimmti hv£r frá
Bandaríkjunum. Englend-
ingar koma síðan nieð um
15 af hundraði. — Mr. Qúíck.
Mikið ber á erlendum ferða-
níönnum í Reykjavík þcssa dag-
ana. Að visu ekki nándar nærri
eins mikið og fyrir stríð, eins og
vonlegt er, en meira en verið
hefir, síðan því lauk. Er þetta að
sjálfsögðu gleðilegt og vonandi,
að af þessum feðamannastrauin
geti sprottið lífvænlegur atvinnu-
vegur, því að ekki veitir okkur af
að hagnast af fleiru en sjávaraf-
urðum, ekki sizt ef sildvciðai*
ætla að bregðast að þessu sinni.
*
Það hefir oft verið á það
minnzt, að til þess að geta tek-
ið á móti ferðamönnum og
hvatt þá til íslandsfarar, þurfi
hér fleiri gistihús og yfirleitt
betri aðbúnað fyrir slíka
gesti. Er þetta hverju orði
sannara og skal ekki rakið
frekar hér að sinni.
*
En það er fleira en gistihús og
gildaskálar, sem máli skipta, er
ferðamenn koma liingað. Allir
vita, að erlendir ferðamenn vilja
gjarna hafa heim með sér ein-
hvern grip til minningar uni
korauna hingað, einhvern hand-
hægan, ódýran og smekklegan
„souvenir", eins og það er kall-
að. En það er eins og þeir, sem
urn mál þessi eiga að fjalla, séu
með öllu hugniyndasnauðir um
þessa hluti, eða hafi ekki látið
sér detta i hug þessi hlið málsins.
*
Sumar verzlanir í miðbæn-
um hafa ýmiskonar varning á
boðstólum, sem ætlazt er til, að
erlendir ferðamenn girninst
sem eigulega gripi til minning-
ar m ísland. Og hvað sjá hinir
erlendu ferðamenn í gluggun-
Þcir sjá isbirni, fugla og ketti
úr keramík, ósmekklega „vegg-
platta“ og rándýrar borðflagg-
stengur. Hvenær hafa kettir,
fuglar eða ísbirnir verið táknræn
fyrir ísland? Hvernig væri, ef t.
d. Ferðaskrifstofan, eða einliver
anriár aðili reyndi að koma á
meiri og sannari fjölbreytni í
þessum efnum? Það skaðar ekki
að reyna.
5 kyldu
síðbúnar slulkur klæða
sig eftir nýju tízkunni.
Það herbergi, sem einna
erfiðast er að fá aðgang að í
Washington í dag, er leiðin-
lega grámálað, fullt af alls-
konar senditækjupi, raf-
magnsþráðum, ritvélum og
skrifhorðum,
Þarna vinna einkum kon-
ur, útataðar i bleki og blett-
aðar af „kalki“pappír.
Þetta herbergi er, „dul-
málsherhergi“ utanrikisráðu-
neytis Bandaríkjanna, og
þar er unnið nótt og nýtán
dag. í þessu herbergi er fjall-
að um hin Iielzlu leyndar-
mál, sem berast til og frá
æðstu embættismönnum
Bandaríkjanna.
Strangur ýörður er hafður
um þetta herbergi og atferli
sérhvers starfsmanns, hvort
sem það eru stúlkurnar, sem
annast rilvélastöi-f, hraðrit-
arar, verðir eða viðgerðar-
menn.
Hér eíu afgreidd allflest
íeyndarmál Bandaríkja-
sfjórnar. En leikmenn munu
fæstir botna í þvi, sem þar
fer fram.
Sá heitir Reed Harris, sem
þarna hefir yfirstjórn. Haim
er hæglátur maður, dálítið
farinn að grána í vöngum.
Hann greinir frá því, að
oft sé send út skilaboð, seni
virðist ákaflega saklevsisleg
en sé þó mjög mikilvæg. —
Þannig gæti jafn sakleysis-
legt orð og „John“ þýtt „bylt-
iiig^l
Ýmislég tæki eru þarna,
scm leikmönnum eru næsta
ókuim og hægt að senda
með þeim alls konar skila-
boð, sem enginn botnar í,
nema þeir, sem eiga að fá
þau. Til dæmis mætti senda
orðið „Ámerica“ sem „Huyd-
lo“. Þá gætu hinir dularfullu
stafir R-F-Q-5 þýtt „scndi-
ráðið þarfnpst meiri sápu“.
Ennfremur gæti liin óskilj-
anlega orðasamsetning
HGTURNIL, táknað stjórn-
málalega atómsprengju.
Fimm menn vinna í þessu
herhcrgi og hafa vökuskipti
allan sólarhringinn. Yfir-
maður þeirra hefir mikit
Frh. á 6. síðu.