Vísir - 30.03.1949, Side 2
VI
39. árg.
Miðvikudaginn 30. marz 1949
73. tbl.
annað kvöld.
/. /?. efnir til sundmóts í
Sundhtíllinni anncið kvöld og
fösiudagskvöklið.
Iveppt verður í l(i sund-
greinuin alls, ]). e. 8 hvort
kvöld. Þátttakendur eru 84
frá.6 félogum og er þátttak-
an niest frá Ægi, sem sendir
24 keppendur.
Auk þess keppa svo tveir
þekklir sænskir sundmenn,
Rjörn Borg og Rune Hell-
gren og eru þeir væntanleg-
ir til lándsins í dag.
Atllee tilkynnti í gær, að
forsætisráðlierrar samveldis-
landa Breta myndu koma á
l'und í London þann 21. apríl.
Hnefaleikameistaramót ís-
lands fer fram ftístudaginn
8. apríl n. k.
i Hnefaleikaráð Reykjavik-
ur sér uin mótið og skulu
I þátttökutilkynningar vera
komnar í h'endur formanns
þess, Guðmundar Arasonar,
fyrir .3. april n. k. Þátttaka
er lieimil öllum félögum inn-
an I. S. í.
Verðlaun verða veitt fyrir
sigra og auk þess fyrir mesta
leikni.
Islandsmeistarinn í þunga
vigt er Jens Þórðarson úr
Ármanni. Á Áriuann alla
meistarana nema i veltivigt,
en í þeim þyngdarflokki er
Birgir Þorvaldsson K. R.
meistari.
í gaerkvddi
í AlfiitigishúsÍEiis sg SjálfstæSishásinM.
Skrílslæti kommúnísta
á þingtundí í morgtin.
Einar Olgeirsson ærist,
blótar og formælir.
Kommúnistar gerðu nokk-
urn hávaða í morgun, er
fundur lwfst í Sameinuðu
þingi á 11. tímanum.
Bar forseti Sþ. ■— Jón
Pálmason — fram tillögu
um að 2. uinræða um till. um
að ísland gerist aðili að At-
lantshafsbandalaginu, en
hana átti nú að taka fyrir,
skyldi takmörkuð við 3
klukkustundir. Gerðu komrn
únistar óp að forseta og varð
Einar Olgeirsson alveg óður,
Er ]iað eðlilegt, þar sem
kontmúnistar vilja tefja
framgang málsins með mál-
æði og þófi. Orgaði Einar, að
]>etta væri löglcysa, vitleysa
og margt annað, en palla-
gestir hlógu að æði lians.
Nafnakall fór frátn um
tillöguna, cn ýmsir komm-
únistar héldu langar ræður,
undir því yfirskyni, að þeir
væru að gera grein fyrir at-
kvæði sinu. Krafðist Sigfús
An'nes ]icss, að
málið væri rætt dtígum
saman mcð hógværð og
stillingu.
Mun mörgum þykja nóg
um liræsni guðfræðingsins.
Trylltastur allra varð þó
Einar Olgeirsson, sem sagði
forsætisráðhérra að þegja í
æði sinu og kvaðst vera að
halda uppi heiðri Alþingis
og sæmd með framferði
sinu. Hefir aldrei sésl annar
eins strákskapur og ósvífni í
sölum Alþingis. Bölvaði
hann og ragnaði, svo að
margir munu efast um and-
lega heilbrigði lums.
Voru nefndarálit utanrik-
ismálanefndar loks tekin
fyrir kl. 10.10 og ákveðið,
að framsöguræður með álit-
unum skvldu standa hálfa
klukkustund. Tók Ólafur
Thors fyrstur til niáls fvrir
hönd meirihlula nefndai'-
innar.
Benti liann m. a. á þann
fyrirlitlega skrípaleik komm
únista og handbcnda þeirra,
er þóttust allt vita um banda
lagsmálið, cr ekkert var um
það vitað. En svo brá við,
er það lá ljóst fvrir, að þá
þóttúst þeir ekkert vita.
Noregur ali
Atlantshafsh
ianini!.
Lange óskar eftir fjáttlóku
íslands.
Norska Stórþingið sam-
þykkti í gær með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða, að
Norðmenn skytdu gerast að-
ilar að Atlantshafshandalag-
inu.
103 þingmenn greiddu al-
kvæði með þátttöku, en að-
cins 13 voru andvígir henni
og voru það 11 kommúnistar
og 2 jafnaðarmenn.
Lange og btaðamenn.
Halvard Lange ræddi við
hlaðamenn i gærkveldi og
skýrði frá þvi, að hann
myndi fara til Washington
flugleiðis á mánudaginn og
verða viðstaddur undirskrift
sáttmálans. Lange kvaðst
fagna þeirri ákvörðun
danska þingsins, að Danir
ælluðu að gerast aðilar að
Atlantshafsbandalaginu og
óskaði þess einnig eindregið
að íslendingar gerðu slíkt
liið sama.
Atlantshafs-
bandalagið
samþykkt.
Um kl. 2,30 í dag var
lokið atkvæðagreiðslu
um bátttöku Islands í
Atlantshafsbandalagjnu,,
sem verið hefir til um-
ræðu i dag í Sameinuðu
l>ingi.
Atkvæði féllu þannig,
að 37 sögðu já og 13
nei (kommúnistar, Gylfi,
Hannibal og Páll Zóf.)
en 2 sátu hjá (Hermann
og Skúli).
SEé'sti ísi óiösjit>@]}S'Z3 &stiiszsidm
ísí MÞagsbs'&ít* o<r/ fttiiís'sk&i-
rtsði vet'kstitjösióisssjftsst stss
ttse é el&isj. iii þ&ss tsö ótjstss
JíÍBttjL
£|rangurinn af starfssemi kommúnista og hióðvarnar-
manna kom að nokkru í ljós í gærkveldi, er band-
óður skríll réðist með grjótkasti að Alþingishúsinu og
síðar Sjálístæðishúsinu við Austurvöll. Broinsr voru
allmargar rúður í báðum húsnnúm, án þess að nokkur
tilraun væri gerð til þess að hefía .,sjálfstæðisbaráttu“
þessa íýðs, sem háð var af yfirlögðu ráði, þar eð fólk
þefta kom hlaðið grjóti á vettvang og með alla vasa
fulla.
| gærmorgun vakti það athygli að lögregluvörður liafði
tekið sér stöðu utan við Alþingishúsið, um það leyíi, sem
þingmenn komu þangað til funda. Voru lögregluþjónnr
búnir kylfum og með stálhjálma. Friðsamir vegfarendur
námu staðar, til þess að fylgjast með því, sem fram færi,
en ekki bar til tíðinda daginn allan, fyir en þingfundum
var lokið og myrkt var orðið. Safnaðist þá hópur götu-
stráka og' ungkommúnista utan við Alþingishúsið og lióf
grjótkast, með þeim árangri að nokkrar rúður voru brotn-
ar á þingsalnum sjálfum, í dyrum hússins og gluggum á
neðri hæð þess.
gjarni Benediktsson utanríkismálaráðherra og Ólal'ur
Thore héldu frá þinghúsinu til Sjálfstæðishússins. en
er lýðurinn varð þess var safnaðist hann að því húsi og
hóf grjótkast enn að nýju. Þeir Bjarni og Ólafur húgðusfc
að ganga iit úr húsinu til bifreiðar sinnar, en þá ærðust
ungkommúnistarnir og unnu það aí'rek að brjóta allmargar
rúður á efri hæð hússins og neðri hæð, og var þar gengið
öllu ákafar til verks, en við Alþingishúsið. Má það furðu-
legt heita að lögreglan hafðist ekki að, en var þó nærstödd.
með því að hvað er hennar hlutverk annað, en að koma í
veg fyrir slík spellvirki og strákapöa-, jafnvel þótt til
þeirra kunni að vera stofnað í politísku augnamiði?
JJommúnistablaðið Þjóðviljinn reynir í dag að afsaka fram-
ferði flokksmanna sinna, en á sama tíma sendir verka-
mannafélagið Dagsbrún og fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
út fundarboð, þar sem mönnum er stefnt saman við
MiðbæjaiTarnaskólanna, urn það leyti, sem g'ert er ráð
fyrir að annari umræðu um Atlantshafssáttmálann kunni
að verða lokið. Ekki hefur verið sótt um leyfi til slíks
fundarhalds til lögreglustjóra, svo sem lög gera þó ráð
fyrir, og ekki hafa stjórnendur barnaskólans heldur verið
beðnir urn leyfi, en fri er ekki í skólanum og' verður þar
því stunduð kennsla svo sem að venja lætur.
yerður slíkt framferði kommúnista ekki skilið á annan
veg en þann, að þeir hyggist að efna til óeirða enn að
nýju, en Þjóðvarnarfélag'ið er ekki við þetta fundarboð
riðið og mun þykjast hafa unnið nóg. Þessir aðilar báðir
virðast vilja láta bandóðan skríl móta utanríkismálastefnu
íslendinga og hæfir þar skel kjafti. Allur þorri þjóðariiuiar
hefur andstygð á öllu þessu framferði, en það mega kom-
Frh. á 8. síðu.