Vísir - 28.04.1949, Blaðsíða 7
7i
Fimmtudaginn 28. april 1949
Stefna
Alþýðuflokksins.
. Framli. af 5. síðu.
Hvar er bjargráð
Alþýðuf lokksins ?
Þingmaðurinn segir að til-
lögur minar séu „hreinar
íhaldstillögur og hrein
ihaldslausn'4 á vandamálum
dýrtíðarinnar. Það er svo. Ef
lil vill eru það einmitt
,.ilialdstillögur“ sem þarf til
að lagfæra ástandið. Iív. þm.
er sérmenntaður í þcssum.
Hafa nokkrar tillögur kom-
ið frá honum? Engar. Hafa
nothæfar tillögur komið frá
flokki hans? Engar. Hefir
flokkur hans nokkra skoðun
í Jiessu máli aðra en þá að
fljóta í kviksyndinu?
Alþýðufl. scgist vilja ó-
breytt ástand. Það er ekki
hægt að halda óbreyttu á-
standi eða jafnvægi i þjóð-
félagi, sein skortir alla efna-
hagslega kjölfestu. En þann-
ig er ástatt hjá okkur i dag.
Flokkur hans hcfir stjórnar-
forustuna. Skortir liann hug-
rckki til þess að gera það,
sem hann álítur rélt og nauð
synlcgt? Eða hefir liann ekk-
crt að legga til málanna, þeg-
ar skútan er að sigla i
strand? Það er oft erfitt að
ná skipinu út aftur þegar
það cr koniið upp i ldetta.
Eg skal vera með hvaða
bjargráði, sem hv. þm. legg-
ur til eða flokkur hans, öðru
en gengisskerðingu, sem eg
tel neyðarúrræði, ef það
bjargráð leggur léttari byrðar
á almenning en nær sama
árangri og gengislækkun.
Hvert er það bjargráð? Það
stendur vafalaust ekki á
Alþ.fl. að koma með það?
FIM-
LEIKA-
STÚLKUR
ÁRMANNS.
Áríöandi er, aö allar þær
stúlkur, sem hafa æft meö
II. fl. kvenna í vetur, mæti á
æfingu í kvöld.
KNATT-
SPYRNU-
FÉLAGIÐ
FRAM.
Knattspy rnumcnn: I .ækni s-
skoöun í dag kl. 6.30 í Póst-
hússstræti 7. — Nefndin.
Knattspyrnufél. Fram.
Æfirtg í kvöld kl. 7,30 fyr-
ir 2. og 3. fl. á Framvellinum.
HAND-
KNATTLEKS-
DEILD
í. R.
heldur spila- og. skemmti-
kvöld í kvöld kl. S.30 i
Tjarnarcaté. Sameiginteg
kaffidrykkja. — Sumar-
starfiö rætt meöan kaffi er
drukkiö. * Félagsvist. Dans.
Í.R.-ingar, fjölmenniö og
takið kunningjana meö.
Nefndin.
K.R. KNATT-
SPYRNUMENN! —
2. og 3. fl. Æfing í
kvöld kl. 7,30—8,30 á
-Grímsstaöaholtsvellinum. —
Mjög áríðandi aö allir
mæti. —
rr—: ;— rr——. 1, 1 . ...;
FÓTAAÐGERÐASTOFA
mín, Bankastræti 11, hefir
síma 2924.
Emma Cortes.
IMærf öt
í mjög fallegu úrvali á hagkvæmu verði, útvegum við
frá Englandi. — Sýnishorn fyrirliggjandi.
##- Ótafsson ék Bemhöft
Mófor
Compl. mótor í Interrtational módel 1942—1946 íil sölu.
Uppl. í verzlun h. f. Stillir, Laugaveg 168.
Ðlaðburöur
VISI vantar börn, unglinga eða roskið fóík
til að bera blaðið til kaupenda um
TJARNARGÖTU
ÞÖRSGÖTU
TÚNGÖTU
Dagblaðið VÍSItt
» Sími 1660.
vi s m
AUGLÝSING
0
um skoíun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur
Samkvæmt bifreiðalögum tilkynnist hér með, að aðalskoðun bifreiða
fer fram frá 2. maí til 3. júní n.k., að báðum dögum meðtöldum, svo sem
hér segir:
Mánud. 2. maí R. 1- - 150 Miðv.d. 1. júní R. 3151—3300
Þriðjud. 3. — R. 151- - 300 Fimmtud. 2. — R. 3301—3450
Miðv.d. 4. — R. 301- - 450 Föstud. 3. — R. 3451—3600
Fimmtud. 5. — R. 451- - 600 Þriðjud. 7. — R. 3601—3750
Föstud. 6. — R. 601- - 750 Miðv.d. 8. — R. 3751—3900
Mánud. 9. — R. 751- - 900 Fimmtud. 9. — R. 3901—4050
Þriðjud. 10. — R. 901- -1050 Föstud. 10. — R. 4051—4200
Miðv.d. 11. — R. 1051- -1200 Mánud. 13. — R. 4201—4350
Fimmtud. 12. — R. 1201- -1350 Þriðjud. 14. — R. 4351—4500
Föstud. 13. — R. 1351- -1500 Miðv.d. 15. — R. 4501—4650
Mánud. 16. — R. 1501- -1650 Fimmtud. 16. — R. 4651—4800
Þriðjud. 17. —■* R. 1651- -1800 Mánud. 20. — R. 4801—4950
Miðv.d. 18. — R. 1801- -1950 Þriðjud. 21. — R. 4951—5100
Fimmtud. 19. — R. 1951- -2100 Miðv.d. 22. — R. 5101—5250
Föstud. 20. — - R. 2101- -2250 Fimmtud. 23. — R. 5251—5400
Mánud. 23. — R. 2251- -2400 Föstud. 24. — R. 5401—5550
Þriðjud. 24. — R. 2401- -2550 Mánud. 27. — R. 5551—5700
Mið.vd. 25. — R. 2551- -2700 Þriðjud. 28. — R. 5701—5850
Föstud. 27. — R. 2701- -2850 Miðv.d. 29. — R. 5851—6000
Mánud. 30. — R. 2851- -3000 Fimmtud. 30. — R. 6000
Þriðjud. 31. — R. 3001- -3150 og þar yfir.
Enn fremur fer fram þann dag skoðun á öllum bifreiðxim, sem eru í notkun
í bænum, en skrásettar eru annars staðar.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sínar til bifreiðaeftirlits-
ins, Borgartúni 7, og verður skoðunin framkvæmd þar daglega kl. 9.30—
12 og kl. 13—17.
Þeir sem eiga tengivagna eða farþegabyrgi á vörubifreið, skulu koma
með þau um leið og bifreiðin er færð til skoðunar, enda falla þau undir
skoðun jafnt og sjálf bifreiðin.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskír-
teini.
Ógreiddur bifreiðaskattur, skoðunargjöld og vátryggingariðgjald öku-
manna fyrir tímabilið 1. apríl 1947 til 31. marz 1948 verða innheimt um
leið og skoðun fer fram. Séu gjöldin ekki greidd við skoðun eða áður, verð-
ur skoðunin ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd.
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið
sé í gildi.
Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bifreiða skulu ávallt vera
vel læsileg og skal þeim komið fyrir og vel fest á áberandi stað þar sem
skoðunarmaður tiltekur. Er því hér með lagt fyrir þá bifreiðaeigendur,
sem þurfa að endurnýja eða lagfæra númeraspjöld á bifreiðum sínum, að
gera .það tafarlaust nú, áður en bifreiðaskoðunin hefst.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verð-
ur hann látinn sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögum, og bifreiðin tekin úr
umferð, hvar sem til hennar næst. Ef bifreiðareigandi (umráðamaður) get-
ur ekki af óviðráðanlegum ástæðum fært bifreið sína til skoðunar á réttum
tíma, ber honum að koma á skrifstofu bifreiðaeftirlitsins og tilkynna það.
Tilkynningar í síma nægja ekki.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli, til eftirbreytni.
Tollstjórinn og lögreglustjórinn í Reykjavík, 27. apríl 1949.
Torfi Hjaríarson Sigurjón Sigurðsson