Vísir - 24.04.1950, Blaðsíða 4

Vísir - 24.04.1950, Blaðsíða 4
VI S I R Mánudagnm %4. april 1950 DAGBLA0 %4 Ctgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VISIR H/E, Ritstjórar: Ivi'istján GuÖIaugsson, Hersteinn Pálsson, Skrifstofa: Austurstræti 7. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12, Símar 1660 (fimm línur). Lausasala 50 aurar, Félagsprentsmiðjan h.f. Versnandi horfnr. Acheson utanríkismálaráðherra Bandaiúkjanna hefur ný- lega látið ])á slioðun í ljós, að horfur í alþjóðamálum hafi yersnað til stórra muna síðustu dagana. Deiluatriði jaailli stórþjóðanna cru vissulega mörg, og hefðu sum valdið friðslitum fyrr á árum, þótt þjóðirnar hafi nú Iært svq mildð af hörmugum tveggja heimsstyrjalda, að þær efni ekki til ófriðar fyrr en í síðustu lög. Því verður þó ekki .•neitað, að sumar stórþjóðirnar virðast láta sig litlu sldpta þótt til friðslita komi, jafnvel þótt þær telji það henta að heita friðarhjali í áróðri sínum og láta málpípur sínar gera það víða um heim. Fyrir fáum dögum vildi sá atburður til að amerísk flugvél, scm var á leið frá Wiesbadcn til Kaupmannahafnar, var skotin niður yfir Eystrasalti. Rússar þirtu fyrstir þá fregn, að vopnuð amcrísk lugvél hefði flogið inn yfir strendur Lettlands í njósna- • kyni, en rússneskir flugmenn hafi þá í fyrstu ætlað að nýja hana til lendingar, en því næst skotið á flugvélina g hafi hún luddið á haf út og horfið sjónum. Fyrstu : regnum, sem af atburði þessum bárust, létu Rússar í það - kína, að flugvélin liefði verið skotin" íiiður, en síðari 'regnir gefa í skyn að með öllu sé ókunnugt um afdrif lugvélarinnar. Bandarikjastjórn kannast ekki við að licrvædd flugvél ir flugflota þeirra hafi verið á flugi yfir Eystrasalti um þessar mundir, en gcta þess að óvopnuð flotaflugvél með : 0 mönnum innanborðs hafi, svo sem áður segir verið á ið til Wiesbaden til Kaupmannahafnar og sé hennar- eaknað. Flugvélin Iiáfi verið með öllu óvopnuð og hafi íví ekki getað svarað skotliríð, sem á hana kunni að liafa erið hafin af flugmönnum Ráðstjórnarríkjanna. Virðast Uar likur benda til að það sé rétt, sem Rússar héldu 'ram í fyrstu að flugmcnn þeirra hafi skotið flugvélina iiður, enda herma fregnir að einhverjir þeirra hafi fengið feiðursmcrki í sainbandi við atburð þennan, og virðist Jað ekki benda til að sérstakur harmur ,sé ríkjandi í Rgð- -1jórnarríkjunum yfir honum. I orðsendingum, sem farið hafa á milli Bandaríkjastjórnar ogRáðstjórnarinnar, halda Bandaríkin því fram að Ráðstjórninni beri að beiðast af- ökunar á atburði þessum og greiða bætur fyrir tjón það, em rússneskir flugmenn hafi unnið á verðmætum og nannslífum. Visliinsky er hinsvegar ekki á þeirri skoðun svari sínu, en gefur hinni amerísku l'lugvél alla sökina. Lét Aehesou svo ummnit í því sambandi, að vegna þess- rar framkomu ráðstjómarinnar hefði horfur í alþjpða- málum stórlega vcrsnaö'. Tryggve Lie framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna min dveljasi í Evrópu um þessar mundir og hyggst að ækja heim ýms lönd, lil þess að eiga viðræður við stjórn- nálamenn. Lét hann þess getið vio burtför sína, að horfur alþjóðamálum hefði sjaldan verið þvngri cn nú, og gerði hann ekki ráð fyrir miklum árangri af för sinni. Ilin's- egar lét liann þá von í ljós, að Sameinuðu Þjóðunum nyndi enn takast að afstýra vandræðum, þótt aldrei hafi amtök þeirra verið i mciri hættu, þannig að óvíst væri im allt þcirra framtíðarstarf. Ivalda stríðið er háð um heim allan, en ckki þarf nema íiinn neista til nð tendra ófriðarbál. Kommúnistar nota riðarvilja og umburðarlyndi vestrænná þjóða, til þess ð sækja fram með vopnavaldi í Asíu, en láta jafnframt lokksbræður sína í vestrænum löndum vinna þar kemmdastörf og efna til ócirða þár, sem því verður yið ’iomið, Forseti Frakka sá einnig ástæðu til, nú um helgina, ið hvetja þjóð sína til samheldni, en skoraði jafnframt á >au öfl, sem að skemmdastarfsemi ynni, að láta af henni þannig að þjóðin fengi vinnul'rið og gæti eflt framleiðslu ína og þjóðarbúskap. Gagnvart kommúnistum hafa slíkar ■‘skoranir litla þýðingu, en þær bregða upp mynd af á- íandinu, þar sem völd þeirra eru mest, og ættu þá jafn- íramt að geía orðið öðrum þjóðum til lærdóms og við- rvörunnar. pjvÍieikktíAil Eitir *¥óhðtsin SitjMtrjjénsson Fjalla-Eyvindur nefnist leikritið á íslenzku, en „Bjærg-Ejvind og hans Hustru“ á dönsku. Á þessu er skýranlegur eðlismunur. Fjalla-Eyvindur er vel kunn íslenzk þjóðsagnapersóna og festist því það nafn hér á landi viö leikritið, en höfund urinn sjálfur hefir áreiðan- lega ekki ætlast til þess í upphafi. Leikritiö snýst nefnilega fyrst og fremst um Höllu, — fylgikonu Eyvind- ar, — og sálarlíf hennar og er því danski titillinn rétt- mætari, þar sem gefið er til kynna, að í leikritinu séu henni gerð' skil engu síður en honum. í viðræðunum viö Arnes segir Halla setningu, sem leikritið allt snýst um, en hún hljóöar eitthvaö á þessa lund: „Eg hefi gefið manninum mínum allt, — samvizkuna líka. Eg get lif- áð lífinu áfram, þótt hann elski mig ekki alltaf jafn- heitt, en þegar eg elska hann ekki lengur, — þá dey eg“. Ást stórbrotinnar fornnor- rænnar konu er krufin til mergjar á þann hátt, sem meistarar exnir gera, enda er það viöurkennt af gagnrýn- endum, allt frá því er leik- ritið kom fyrst fyrir almeim- ingssjónir og til þessa dags. Georg Brandes komst svo að orði, að í reikritinu birt- ist háleit skáldgáfa í alvöru- þunga, hi’júfum ki’afti og djúpstæðu tilfinningalífi. Efni leiksins hefði höfund- urinn alveg á valdi sínu, en formið svaraði í einu og öllu til efnisins. Mönnum kom saman um áð leikritiö væri þrungið af frumlegri anda- gift, gætt ljóðrænni fegurð, en orðskipti ljós og hnitmið- uð að hætti íslendinga- sagna, Kunnur gagnrýn- andi franskur, Leon Pineau segir í „La Revue“: „í þessu leikriti er ekkert óljóst lík- ingamál, ekkert þokukennt hugmyndaflug, engin hneykslanleg tilhneiging, ekki einu sinni ný liststefna, ekkert annaö en skáldskap- ur. Ekki skáldskapur orð- anna, sem er ymdislegur og heillandi, ekki hrynjandin eða blindandi hugsjónaeld- ur, sem lætur okkur gleyma, öllum áhyggjum, — en hin háleita skapandi skáldgáfa, sem leiðir fram manneskjur, holdi og blóði gæddar, eins og við erum sjálf, — mann- legar verur, sem skáldið hef- ir gætt sinni eigin sál.“ Pró- fessor Sigurður Nordal segir í leikskránni: „Með Fjalla- Eyvindi tylltu íslenzkar bók- menntir frá síðustu sex öid- um (þ. e. yngri en fornritin) 1 fyrsta sinni tá í lifandi bók menntum umheimsins.“ All- ar þessar umsagnir ættu að sanna hvílík snilldarverk Fjalla-Eyvindur er frá höf-1 undarins hendi, en þegar þar við bætist að innan heild arinnar leynast leiftrandi setningar, sem móta öðrum' frekar lífsviðliörfið, sálar | stríðiö, innri og ytri baráttu, en á framsögn slíkra setn-; inga veltur hvort leikendur j hafa tök á hlutverkunum; eða ekki, þá skyldu menn j ætla að engir nema færustu I leikendur treystust til að gera hlutverkunum viðeig- andi skil, en aðrir óreyndari legðu ekki í þau og yrðu held ur ekki valdir til slíks. Svo einkennilega bregöur við að þessu sinni, að tveir tiltölulega óreyndir leíkend- ur fara með hlutverk Eyvind ar og Höllu. Er það Róbert Arnfinnsson, sem leikur Ey- vind, en mjög virðist þar skorta á þann glæsibrag, sem höfundur ætlast til að Eyvindur hafi til brunns að bera, sem „konungur fjall- anna“, er hrífur hug og hjarta fagurrar og stórbrot- innar konu, sem á þó á ýmsu betra völ en útlegö og harð- rétti öræfanna. Inga Þórð- ardóttir leikur hinsvegar Höllu, en hún hefir oft sann- aö hún er dugandi leikkona, sem tekur listina alvarlega. Þrátt fyrir það gerir hún Höllu ekki full skil, sem varla er heldur von, þar sem svo ptamdir frumkraftar brjót- ast um 1 sál hennar, að öðr- um en snillingum er ekki ætl andi aö bera hlutverkið uppi. Með þessu er ekki fullyrt að frú Inga Þóröardóttir geri hlutverkinu ekki góð skil, en það vantar þó herzlumun- inn, — gæfumun góðrar og mikillar leikkonu. Haraldur Björnsson leikur Arnes, en hefir jafnframt leikstjórn á hendi. Hann fer vel með hlut vei’k sitt, ekki sízt 1 öræfun- um, er órói hefir gripiö hann og ást til Höllu, en hlutverk hans ræður engum úrslitum um heildarmynd leiksins, en sama máli gegnir um öll önnur og smærri hlutverkin . Þau eru í rauninni aðeins til uppfyllingar. Þorsteinn Ö. Stephensen leikur Björn hreppstjóra mjög þokkalega, en hlutverkið getur ekki tal- ist tilþrifamikið. Lárus Ing- ólfsson má teljast góður í gervi Arngríms holdsveika, en röddin er frekar klökk og berst ekki allskostar vel um salinn. Aðrir leikendur fara allir laglega með hlutverk sín, en Vegna niistaka birtist „Bær- inn okkar" ekki i dag — mánu- dag — eins og venjuíega. I-Iann mun birtast á morgun. r göröunum í Reykjavík er margt að gera þessa stundna. „Vorið er komið, og grund- irnar gróa“, eins og þar stendur. Það er vissulega gaman að ganga um bæinn þessa morgna og sjá, hvað menn eru að hafast að, þar sem túnblettur er, eða garð- hola. Seg-ja mætti mér, aiS verðlatm þau, er veitt vortt í fyrra íyrir snyrtjlega garða, hafi átt sinh þátt í þessu, en þó ekki. Sann- leikurinn er sá, aö ínenn hafa yfirleitt öðlazt þá „garSmennt- un“, ef svo mætti segja, án nokkurrar tilstilli annarra aðila. Hér gengur maiSur undir manns hönd um þaö aS hlúa sem bezt aö garðitium sínum, hversu lit- ill sem hann er, og er þetta vissulega menningarauki, sem viö öíl getum tékið ttndir. Fjöl-j margir menn, sem oft standa í j stríöu, hafa liaft „Hobby“ eða j dundur, eða jafnvel tómstunda-' vinnu, hyernig sem það orð er lagt út á íslenzktt. $ Það er ekki ósjaldan, að maður sér, í grandalsysi, j áhriíamenn þjóðfélagsins,1 vera að dunda við garðinn1 sinn. Þeir ertt aö moka ,,skít“, eins og það er kallað, og er þá átt við húsdýraáburð, sem heppilegt þykir að nefna slíka hluti, ef mkð.ur er „fínn með sig“, en það er annað mál. r * ' Hérna um daginn sá eg manh, sem án efa hefir vorhug í brjósti. Hann var að láta nokk- ura menu dernba mold og grjót inn á lóðina sína, á bárublikki. Eg staldraði við augnablik og var að velta fyrir mér, hvort fleiri myndu slíkir hér í bæ. Auðvitað sá eg í hendi mér, a’ð íleiri væru þeir menn, sem væru farhir aö' dytta að garðhqlum sinttm. Þetta var nú annars éng- in garðhola. lieldur myndarlegt tún og með tilheyrahdi blóma- beðttm. En eg segi frá þesstt, ei ske kynni, aö þaö yröi einliver hvatning öllum þeim, sem eru syo lánsamir að eiga túnblett eða garöholuna tnargumræddu. Reykvíkingar rnega miklast af því, að hér liefir bóksfaflega sprottið Upp „garömenning", á síðustu iárttm, virðing fyrir blómum og fögr.um jurtum, sem gera manni Íífið þægilegra og skemmtilegra í hinum gráa hversdagsleik. * Þetta kann allur aímenn- ingur að meta, sem betur fer. Og þa.ð mætfi hnýta því aft- an í þessar hugleiðingar, að allir fagna slíku, sem vel er gert í garðrækt hér í bænum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.