Vísir - 21.04.1951, Blaðsíða 1

Vísir - 21.04.1951, Blaðsíða 1
41. árg. Laugaráagliin 21. 91. tbl. I pessari viku hafa eftir- taldir togarar komið til Reykjavíkur og lagt afla smn á land: Á mánudag . Akurey meS 155 lestir af ísuðum fiski, á þriðjudag Haliyeig FróSa- dóttir meö 130 lestir af ísuð- uð fiski, og á miðvikudag Ingólfur Arnarson með 113 lestir,. en hann fiskar í salt. ísaði fiskurinn fer í verk- smiðjur. Akurejr kom aftur inn í gær, svo og Tryggvi gamli. Gæftir eru fremur óstöð- ugar og afli misjafn. Tvek togarar eru á útleiö meö ágætisafla eftir skamma ► útivist, Röðull með um 260 lestir eftir 10 daga útivist, og Askur með 235 lestir eftir 9 daga. Fimm íslenzkir togar- ar munu selja í Bretlandi 1 næstu viku, einn á dag frá mánudegi til föstudags, að báöum meötöldum. Togararnir veiða nú fyrir Bretlandsmarkað, í verk- smiðjur eða í salt, en engir í bræðslu. Faxaverksmiðjan er hætt að taka á móti í bili. ÖIIu óhætt, ef fljótt batnar. Fréttaritari Vísis á Blöndu ósi símaði á síðasta vetrar- dag, að um síðustu helgi hefði verið par iðulaus stór- hríð — frá laugardegi til þriðjudags. Færð spilltist þó ekki veru lega 1 vestursýslunni, en hins vegar varð Langidalur ófær með öllu. Ifross gengu enn úti á Þingi og Ásum, því að svo hvasst hafði verið, að snjó reif af næstum jafn- haröan. Menn verða ekki í neinum vandræðum með hey í Húnavatnssýslum, ef bata gerir fljótlega, en inni til dala sér ekki í holt eða mela. X ' Agæt sala Geirs. B..v. Geir seldi afla sinn í Grimsby í morgun. Var hann með 3619 kit eða fæplega 230 lestir fyrir 14,115 jsterlingspund og er það ágæt sala. Bandaríkjamenn eru mestu brúasmiðir heims. Um þessar mundir er verið að smíða 3ja km. ianga brú yfir Delawáre- fljót í austurhluía landsins. Er gert ráð fyrir, að 4 millj. fcíla muni fara um brúna árlega. Myndin sýnir tvo smið- anna við vinnu sína. (B Afli línubáta, sem fóru á sjó í gær var nijög tregur. Er nú svo komiS, að flestir línubátanna eru ýmist hættir eða að hætla. Meðal þeirra, sem hættir eru, eru „Stewi- unn gamla“ og „Svanur“ og ei’u þeir nú að búa sig á luðu- veiðar. „Ingvar Guðjónsson" kom af fúðuveiðum í gær með rösklega 300 lúður. „Hvítám“ kom af togveið- um í gær með ágætan afla, eða röskar 30 lestir eftir að- eins 2ja sólarhringa útivist. filaut „Sumargjöf u Uthlutað hefir verið „Sum argjöf Birtingaholts“ og hlaut hana að pessu sinni Jakoö Thorarensen skáld. Efu þetta verðlaun úr sjóði, sem Magnús Helgason skólastjóri stofnaði meö erfðaskrá simii og fer úthlut- un fram annað hvert ár, en verðlaunin fær ljóðskáld, er þykir skara fram úr öðrum. Áður hafa Guðmundur Friö- jónsson, Davíð Stefánsson, Tómas Guömundsson og Jón Helgason prófessor hlot !ið verðiaun þessi. Talsverf er Ssai'izt i fjrencl við £ Konmiúnistar verjast Aðalátökin í Kóreu eru nú á Chonoonvígstöðvunum. Undanfarna daga hefir verið mest barizt í grennd við þá borg, sem er mesta birgðastöð kommúnista á svæðinu norðan 38. breidd- arbaugs, um miðbik skag- ans. Kommúnistar leggja aðal I morgun var alls staðar sunnan eða suðvestanátt á landinu og hvarvetna frost- laust í byggð á láglendi. Hér sunnanlands var yf- irleitt 4—6 stiga hiti í morgun, en frá frostmarki og upp í 5 stiga hita norðan- lands og austan. Kaldast mældist á Grímsstöðum á Fjöllum, 1 stigs frost kl. 1 í morgun. Hér í Reykjavík var þá 3.9 stiga hiti. Vísir átti tal við Veður- stofuna fyrir hádegi í dag og var þá tjáö, að búast mætti við áframhaldandi hláku hér á Iandi,' a. m. k. næsta sólarhringinn. í nótt snjóað'i sums staðar nyrðra, svo sem á Nautabúi 1 Skagafirði og Hrauni á Skaga, en þar var komin rigning i morgun. Standa því vonir til um áframhaldandi hlýindi, fyrst í stað að minnsta kosti. PíbH ®i° ákæa*í fyrir anisBswta nppfiiaiaáiigsir. Brezkur verkfræðingur og uppfinningamaður hefir haf- ið umfangsmikið skaðabóta- mál gegn Ford-verksmiðjun- um amerísku. Maður þessi er Harry Fer- guson, sem fundið hefir upp dráttaryól með sama nafni og margvisleg landbúnaðar- tæki, sem hægt er að tengja við dnáttarvagn þenná og nota með lionum án breyt- inga. Hefir svo verið frá skýrt við réttarhöldin, sem hafin eru í máli þessu í New York} að Ferguson og Ford gamli hafi á sínum tíma gert með sér munnlegt samkomulag um framleiðslu drátíarvélanna og annarra tækja, sem nota má í sam- bandi við þær og framleiðsl- an verið svo xnikil, að árið 1946 hafi Ford-Ferguson- samsteypan selt r.úman fjórð- ung allra dráttarvéla nndir 30 hestöflum. Ferguson hlaut hundraðshluta af hagnaðin- um, enda þótt.Ford sæi um framleiðsluna. En þegar Henry Ford hætti stjórn fyrirtækisins og sonarsonur hans — Henry Ford — íók við yöldum í þyi> var úti um samkomulágið, því að Ferguson .íelur, að bola sér alveg úr fyrirtækinu. Slitnaði upp úr samvinnunni, en þnátt fyrir það héldu Ford- verksmiðjurnar áfram að framleiða. Ferguson-tæki, en greiddu honum ekki eyri af liagnaðinum. Ferguson krefst mi 341.6 millj. dollara skaðahóta af Ford, en málflulningsmenn verksmiðjanna' hafna öllum kröfum lians. Málaferli þessi vekja talsverða athygli í Bandarílijununij eins og næiTÍ má geía, því að um mikla upphæð er að tefla* ' áherzlu á varnirnar þarna, bæði vegna þess að ef Chor- won félli, mundi þaö mjög auðvelda hersveitum Sam- einuqu þjóðanna sókn lengra norður á bóginn og allt til Pyongyang, ef herstjórnin heldur þá sókninni áfram svo langt norður, en um það atriði liggur ekkert fyrir enn, — og svo er hitt, að kommúnistar hafa dregið að sér feikna birgðir í Chorwon, ssm átti ao vera miöstöð x gagnsókn þeirra. Undanfarna daga hefir veriö barizt mikiö í grennd við borgina og m. a. beitt eldvörpum. Iðulega hefir verið barist í návígi. — Ann- ars staoar á vígstöóvunum hefir allt verið meö kyrrari kjörum. — Flugvélar Sam- einuðu þjóðanna hafa sig stöðugt mikið í frammi og varpa einkum sprengjum á flugvelli, brýr og birgðastöðv ar. Sofnaði út frá sígarettu. Klukkan rúmlega hálf þrjú í nóít var slökkviliðið kvatt að húsinu nr. 87 við Lauga- veg} vegna reykjarstybbu, er þar hafði orðið vart í kjall- aranum. Maður, sem býr þar í kjall- aranum, liafði sÓfnág á legu- bekk sínum út frá sígarettii og hafði glóðin læst sig í legubekkinn. Varð af þessu íalsverður reykur, og var því kallað á slökkviliðið, sem slökkti fljótlega í hekknum, án þess. að aðrar skemmdir yrðu .eða manninn sakaði. — Óþarft ætti að vera að minna fólk á, hversu háskalegt það gcíui’ verið að re.ýk.ja í rúm- inu, - af því hafa Iilotizt hörnndég slys. Sem heluV fór, kom þetta ekki að verulegri sök í þetta sinn. W'ísité&lí&'m 135. Vísitalan hefir nú verið reiknuð út fyrir apríl-mán- uð og reyndist hún 135 stig. Er það þriggja stiga hækk un frá síðasta útreikningi og stafar hún af hækkun á fatnaði, húsnæði, eldsneyti, garðávöxtum og mjólkur- vörum, auk ýmissa smærri liða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.