Vísir - 06.07.1951, Síða 2
isia
Föstudaginn 6. júlí 1951
Hitt og þetta
í>ví hefir verið haldið fram,
að seglskip fari hraðar en vind-
urinn, sem knýr þau áfram, en
þetta er rangt. Það er allt of
mikið mótstöðuafl í vatninu til
þess að svo geti orðið. En litl-
um kappsiglinga-hátum getur
tekizt þetta á lensi. f raun-
inni fara þeir aðeins eins hratt
og vindur leyfir, er þeir fylgja
vindáttinni. En ef þeir sigla á
ská fara þeir lengri leið á sama
tíma.
Kennarinn: „Bolinn og kýrin
er í haganum. Nonni, getur þú
sagt mér hvað er skakkt í þess-
ari setningu?"
Nonni: „Það á að nefna ekki
frúna á undan.“
Bernhard Shaw segir svo í
hréfi til stórblaðsins Times:
„Því meira sem eg vinn mér inn,
því meira hverfur af efnum
mínum í ríkisfjárhirzluna. Það
er mér hið mesta: áhyggjuefni,
að einhver af hinum mörgu að-
dáendum mínum taki upp á
þeim óvanda, að deyja og arf-
leiða mig að milljón eða ein-
hverri stórri upphæð, því að
þá er eg þar með kominn ó
hreppinn."
Eg var af þeirri tegund barna,
sem móSir mín vildi ekki að eg
léki mér við. (Jack Poar).
Sjúkrahús í Rio Janeiro
sendi út áskorun til manna, um
að gefa blóð sitt í blóðbankan-
um þar. Paulo Quadros fór
jafnskjótt er hann sá áskorun-
ina, því hann vildi verða í hópi
þeirra fyrstu, sem yrði við á-
skoruninni. Næsta dag féll hann
af sporvagni og fótbrotnaði svo
illa, að taka varð af honum fót-
inn. Lífi hans var bjargað með
blóðgjöf frá honum sjálfum.
Föstudagur,
6. júlí, —- 186. dagur ársins.
Sjávarföll.
ÁrdegisflóS var kl. 7.35. •—
SíSdegisflóð verður kl. 19.55.
Næturvarzla.
Næturlæknir er í LæknavarS-
stofunni; sími 5030. — Nætur-
vörður er í Ingólfs-apóteki;
sími 1330.
Lausar kennarastöður
eru auglýstar í síSasta Lög-
birtingablaði viS barna- og
gagnfræðaskólana í Reykjavík.
Fjárhagsráð
hefir ákveSiS nýtt hámarks-
verS á benzíni og olíum. Kostar
benzínlíterinn nú kr. 1.54.
Gullborg,
83 tonna bátur, hefir veriS
keyptur til landsins. Eigandi
hans er Sigurjón SigurSsson,
f ramk'væmdarstj óri
CiHU JÍHH/ VaK~.
6. júlí 1921 segir Vísir m. a.
frá þessu;
Álafosshlaupið.
Þátttakendur í hlaupinu voru
sjö. Klukkan um 3.45 kom
fyrsti maSurinn, Þorkell Sig-
urSsson, inn á íþróttavöllinn og
var honum tekiS meS dynjandi
lófaklappi og hvatningarhróp-
um. Hann hljóp i/2 hring á
vellinum meS lárviðarsveig á
hálsinum, og kom að markinu
í góSu líkamsástandi. I-Iafði
hann þá hlaupiS vegalengdina
á 1 klt. 6 mín. 52.6 sek, og ver-
iS fremstur alla leiðina. Fjórir
fyrstu mennirnir voru í ágætu
ástandi og fimmti allgóSur.
Hinir tveir kornu ekki aS mark-
inu. Vegalengdin upp aS Ála-
'fossi mun vera talin um 17
kílóm. neSan úr MiSbæ. Ef þaS
er rétt, er þetta hlaup liðugir
18 kilóm. og er tíminn þá fyrir-
tak. *
Hvanneýrarprestakáíl
í SiglufirSi var nýlega aug-
lýst laust til umsóknár, þar sem
sóknarpresturinn þar, sr. Óskar
Þorláksson hefir gerzt prest-
ur við Dómkirkjuna.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.30 Útvarpssagan : „FaS-
ir Goriot“, eftir Honoré de Bal-
zac; VII. (Guðmundur Daníels-
son rithöfundur). — 21.00 Sam-
rtörræna sundkeppnin: Ávörp,
erindi, upplestur og tónleikar.—
22.00 Fréttir og veSurfregnir.—
22.10 íþróttaþáttur. (SigurSur
SigurSsson). — 22.40 Dag-
skrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip: Brúarfoss var í
Antwerpen í fyrradag; fer þaS-
an til Hull og Rvk. Dettifoss
er í New York. GoSafoss og
Gullfoss eru í Rvk. Lagarfoss
er á jeiS frá Húsavík til Gauta-
börgar. Selfoss er x Rvk.
Trölíafoss var í Hull í gær; fer
þaSan til London og Gauta-
borgar. Barjama fermír í Leitlx
á næstunni til Rvk.
Katla var væntanleg til Aal-
börg í gærkvöldi, 5. júlí.
tíreMcfátaHK 1368
Lárétt: 2 Festa, 6 spíra, 7 síl,
9 vó, 10 veiðitæki, 11 frjókorn,
12 tónn, 14 bardagi, 15 ama, 17
tætir.'
LóSrétt: 1 AuSir blettir, 2 á
fæti, 3 velgju, 4 tónn, 5 varkár,
8 fugl, 9 gruna, 13 ástralskur
fugl, 15 forsetn., 16 ending.
Lausn á krossgátu nr. 1367.
Lárétt: 2 Kames, 6 úSi, 7 af,
9 óg, 10 urS, 11 all, 12 gá, 14 ii,
15 áli, 17 rosti.
LóSrétt: 1 Draugur, 2 kú, '3
aða, 4 mi, 5 sigling, 8 frá, 9 Ólí,
13 alt, 15 ás, 16 ii.
Flugferðir Loftleiða.
í dag er ráSgert aS fljúga til
Vestm.eyja, Isafjarðar, Akur-
eyrar, SiglufjarSar, SauSár-
króks, Hólmavíkur, BúSarclals,
Hellissands, PatreksfjarSar,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar
og Keflavíkur (2 ferSir). Frá
Vestm.eyjum verður flogiS til
Hellu og Skógasands. Á morg-
un er áætlaS aS- fara til Vestm.-
eyja og Keflavíkur (2 feröir).
BúnaðarblalSið Freyr,
júlíhefti, hefir borizt blaSinu.
Þessar greinar eru í heftinu:
’Heysendingar á harSindasvæS-
in, eftir Sæmund Friðriksson.
„OrS í belg“, eftir Stefán Kr.
Vigfússon. Gömlu mánaSaheit-
in, eftir Ólaf SigurSsson. Vikur
sem einangrunarefni og bygg-
ingarefni í sveitunum. HúgleiS-
ingar urn garnaveiki, eftir Sig-
urS Lárusson. Þá er grein um
mjólkurmælingavél, húsmæðra-
þáttur, minningargreinar o. fl.
greinar, er einkum varöa bænd-
ur. Ritstjóri er Gísli Kistjáns-
son.
Ríkisskip: Hekla er á leiS frá
Rvk. til Glasgow. Esja er á
AustfjörSum á norSurleiS.
HerSubreiS var væntanleg til
IsafjarSar í gærkvöldi. Skjald-
breiS er á Húhaflóa. Þyrill er á
leiS til NorSurlands. Ármann
var í Vestrn|eyjum í gær.
Flugfélag íslands
áætlar flugferSir til Akureyr-
ar. (kl. 9.15 og 16.30), Vest-
mannaeyja, Blönduóss, Sauðár-
króks, ísafjarSar, Egilsstaða,
SiglufjarSar og frá Akureyri til
SiglufjarSar. — Gullfaxi fer
væntanlega til Grænlands í
kvöld nxeS birgSir til leiSang-
urs Paul-Emíl Victors.
I fyrramáliS fer flugvélin til
K.hafnar og væntanleg þaSart
aftur á sunnudagskvöld.
Hvassafell losar salt á Skaga-
strönd. Arnarfell lestar saltfisk
á ísafirSi. Jökulfell er á leiS-
inni frá Guayaquil til Valpara-
iso í Chile.
Veðrið.
VeSurhorfur. Faxaflói: Aust-
an og norSaustan gola. SkýjaS,
en úrkomulaust aS mes'tu.
60 ára
er í dag Elín Jónsdóttir,
ekkja Ólafs heitins Eyvinds-
sonar, Sörlaskjóli 34.
Fjáröflunarnefnd
HallveigarstaSa heldur bazar
í Spörtu, GarSastræti, sem
verSur opinn kl. n—7 í dag 0g
mánudag. Þar geta konur gert
kaup á barnafatnaSi viS hálf-
virði og ennfremur fást þar
D.M.C. munsturblöS.
Ole Lökvik,
aSalræSisniaSur Islands í
Barcelona á Spáni, kom hing-
aS til lands flugleiSis i gær-
kveldi. Lökvik er íslendingum
aS góSu kunnur og hefir hann
veit mörgum þeirra ómetanlega
aSstoS, sent til Spánar hafa
kómið. Hann mun dvelja hér
unt stund og býr aS Hótcl
Bore-.
Shell \-100
hefnr forustnna
Vísindin ruddu veginn!
A hverju ári er milljónum króna varið til hinna
ýmsu rannsóknarstöðva Shell víðsvegar um heim.
Þannig hafa heilir bæjir, þar sem eingöngu er unnið
að olíurannsóknum, risið upp.
Árangurinn, sem náðst
hefur í stöðvum
hefur þó réttlætt
Shell X-100
y 1
111
IsOTOSOB
hefir leitt smurtæknina inn
á nýjar brautir til hags-
bóta fyrir milljónir bifreiða
— og bifreiðaeigenda um
allan heim. Orvals smurn-
ingsolía var ,,bætt“ með
sérstökum bætiefnum. —
SHELL X-100 yísar veginn!
H.F. SHELL Á ÍSLANDI.