Vísir - 26.04.1952, Side 8
ÍÆKNAR O G LYFJABÚÐIR
Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í
Læknavarðstofuna, sími 5030.
Vörður er í Lyf jabúðinni Iðunn, sími 7911.
WE
Laugardaginn 26.
LJÓSATÍMI
bifreiða og annarra ökutækja er kl. 21.55—■
5.00. Næst verður flóð í Reykjavík kl. 19.55.
Iðnrekendur telja nauðsyn breyt-
inga á skatta- og tollalögum.
Ársþing þeirra samþykkti
áðyktanir í þá átt.
Á nýafstöðnu þingi Félags
ísl. iðnrekenda voru ýmsar
ályktanir samþykktar, þ. á. m.
nm breytingar á skatta- og
tolla - lögg j öf inni.
Helztu ályktanir þingsins
voru þessar:
„Ársþing iðnrekenda telur
að grundvallarskilyrði fyrir
heilbrigðri og eðlilegri þróun
verksmiðjuiðnaðarins sé að
skattalögunum verði breytt
þannig:
Að skattur af framleiðslu-
fyrirtækjum sé hlutfallslegur,
en ekki stighækkandi eins og
hann er nú.
Að ekki sé heimilað í skatt-
lögum eða öðrum lögum að
leggja á framleiðslufyrirtæki
veltuskatt eða veltuútsvar, sem
byggður sé á framleiðslumagni
eða umsetningu fyrirtækjanna,
heldur grundvallist skattar og
útsvar á raunverulegum skatt-
skyldum tekjum.
Að engar hömlur séu lagðar
á afskriftir af vélum, sem not-
aðar eru til iðnaðarframleiðslu
í verksmiðjum.
Að hlutafélögum sé heimilt
að draga frá skattskyldum tekj-
um allan arð, sem greiddur er
hluthöfum af hlutafjáreign
þeirra, og arðurinn eingöngu
talinn tekjur þeirra, sem hluta-
bréfin eiga.“
Þá var samþykkt eftirfarandi:
„Ársþing iðnrekenda beinir
eindregið þeim tilmælum til
háttvirtrar ríkisstjórnar að nú
þegar verði látin fara fram
endurskoðun á tollálöggjöf
landsins og tollunum breytt í
það horf, að tollarnir verði
stighækkandi þannig, að óunn-
in hráefni séu tollfrjáls, lítið
unnin efni lágt tolluð og síðan
fari tollurinn hækkandi eftir
því sem varan er meira unnin
og fullunnin iðnaðarvara ávallt
með hæsta tolli. í tollalögum sé
ákvæði, sem heimilar tollayfir-
völdunum að falla frá toll-
greiðslu á vélum, sem nota á
til iðnaðarframleiðslu í inn-
lendum verksmiðjum, ef sarns-
konar vélar eru ekki fram-
leiddar í landinu.
Ákvæði sé í tollalögunum
um, að þegar iðnaðarvara er
seld úr landi skuli endui’greiða
þann innflutningstoll, sem
j greiddur hefir verið af hráefn-
um, sem notuð hafa verið í
vöruna.“
Húsmæðrafélagið
heldur bazar.
Húsmæðrafélagið heldur baz-
ar 1. maí til styrktar hinni marg
þættu starfsemi sinni og þá
einkum húsmæðranámskeið-
junum, sem hafa gefið sérstak-
lega góða raun.
j Stjórn félagsins heitir á fé-
, lagskonur og aðra vini félagsins
jað láta eithvað af hendi rakna,
^og eru það vinsamleg tilmæli
að gjöfunum verði komið til frú
Jónínu Guðmundsdóttir, Bar-
| ,
onsstig 80, eða í Borgartún 7,
þar sem félagið rekur starfsemi
síria.
-cJCffi'
Mar&t er shfitió
Daaskír víkingar safna skeggi.
Víkingahátíð iialdin árlep í Frederikssund.
ry
Gestir, sem koma til dönsku
borgarinnar Frederikssund,
reka upp stór augu, hafi þeir
ekki verið aðvaraðir áður.
Þannig er nefnilega mál með
vexti, að tveir af hverjum fimm
körlum borgarinnar — sam-
tals 600 — eru að safna al-
skeggi og hafa gert í nokkrar
vikur, en skeggið ætla þeir að
ganga með fram yfir miðjan
júní, nánar tekið til 16. dags
þess mánaðar.
Á götum og vinnustöðum í
borginni má sjá skegg af öllu
tagi, og með margvíslegum lit-
um. Járnsmiðir eru með sót í
skegginu, múrarar með sement
og þar fram eftir götunum, en
skrifstofumenn eru með hreint
og strokið skegg. Og það er haft
fyrir satt, að borgarstjórinn og
ýmsir lögreglumenn hafi fal-
legastan skeggvöxt, svo að þar
jafnist enginn við.
En hvað er um að vera —
er hér eitthvert verkfall á ferð-
inni gegn háu verði á raktækj-
um eða rakstri hjá rökurum
staðarins? Nei, ó-nei, hér er
allt annað á ferðinni, nefnilega
það, að' í júnímánuði efna
Frederikssunds-búar til ár-
legrar víkingahátíðar, og það
eru upprennandi víkingar, sem
eru að láta sér vaxa skegg. Og
þann 16. júní kemur Skjöldur
konungur til borgarinnar. Hann
hefir legið í víking, og snýr nú
heim aftur eftir góða ferð. Og
þegar hann gengur á land,
kemur víkingaskari, sem
komst ekki að heiman, á móti
honum og fagnar hónum í fjör-
unni.
Rökurum er vitanlega mein-
illa við þenna hátíðarundir-
búning, en ljósmyndarar stað-
arins styðja hreyfinguna eftir
mætti, því. að þeir hafa nóg
að gera við myndatöku af vík-
ingunum. 1 v
Getraunimar
grípa um sig.
Æuhnintfin t/t'ii'
Þátttakan í getraununum óx
að krónutölu um 55,4% í vik-
unni sem leið, en þátttakénda-
fjöldinn öllu meira.
í fyrstu vikunni voru tekj-
urnar rúmlega 6000 krónur, en
að þessu sinni urðu þær 9426,50
kr. Þátttakendur urðu alls 1542
í fyrstu vikunni, en urðu nú
númlega 2500. Hér í bænum
tóku 1352 þátt í vikunni sem
leið, en 2055 nú, en annars-
staðar meira en tvöfaldaðist
þátttakendafjöldinn, úr 190 í
rúmlega 400. Má ekki sízt
þakka dugnaði umboðsmann-
anna, sem eru þegar orðnir vel
heima í starfi sínu .
í næstu viku bætast þrír
staðir við, þar sem getraunirnar
starfa — Borgarnes, þar sem
umboðið verður í pósthúsinu,
Akureyri og Rangárvallasýsla.
Þá verða tveir leikir hér í bæn-
um í keppninni, auk útlendra
leikja.
Þegar Vísir átti í morgun tal
við Jens Guðbjörnsson um
þessa miklu aukningu og áhuga
almennings fyrir getraununum,
sagði hann: „Menn eru búnir
að taka bakteríuna“.
—- ■- ♦---
Ferguson fékk miklar
skaðabætur.
Málaferlunum milli Harry
Fergusons og Fordverksmiðj-
anna er nú lokið, og voru þær
dæmdar til skaðabótagreiðslu.
Vísir hefir áður skýrt frá
málavöxtum, sem voru þeir, að
Ferguson taldi Ford-verksmiðj
urnar nota uppfinningar sínar
í heimildarleysi, og höfðaði mál
er hann fékk ekki þóknun sína
greidda. Voru Fordverksmiðj-
urnar dæmdar í 9.25 millj. doll-
ara skaðabætur.
- 4----
Mliill auknliig
flsiifrystlugar*
Þ. 1. apríl var freðfiskfram-
leiðslan orðin um 40% meiri en
á sama tíma í fyrra.
í ár hafði verið fryst í sam-
tals 496 þús. kassa, en á sama
tíma í fyrra nam framleiðslan
357 þús. kössum. Afskipað hafði
verið rúmlega helmingi fram-
leiðslunnar.
-----------
Papagos vill nýjai
kosningar.
Aþena. (A.P.). — Þjóðfylk-
ing Papagos, fyrrum liershöfð-
ingja, krefst nýrra kosninga í
Grikklandi.
Hefir fyrsta ársþing flokks-
ins samþykkt ályktun þess efn-
is, að flokkurinn taki ekki þátt
í samsteypustjórn. .
Sprengíhætta engin í santbandi
við framleiðslu áhuriar.
Einungis ókunnuleik veldur óttanum við
sprengihættuna.
Með því að fjallað hefir verið
á opinberum vettvangi að und-
anförnu um sprengihættu í
sambandi við staðsetningu
Áburðarverksmiðjunnar, ásamt
meðferð og flutning tilbúins
áburðar (ammonium nitrat),
þá hefir upplýsingum verið
aflað varðandi þetía mál.
Samkvæmt upplýsingum veit-
um af hr. Eilif Platou, yfir-
manni sprengiefnaeftirlitsstofn-
unar ríkisins í Noregi, þar sem
framleiðsla á þessum áburði
var hafin fyrir fyrri heims-
styrjöld, hefir aldrei komið fyr-
ir neitt óhapp, hvorki spreng-
ing' né annar bruni' í sambandi
við meðferð, flutning eða
geymslu á ammonium nitrati.
énda keraur það ekki undir
norskar reglur um sprengiefni.
í Noregi eru sérstöku laga-
ákvæði um meðferð á sprengi-
efnum og eldhættum efnum,
staðsetning bygginga eða
geymslna, sem innihalda slík
efni, en þessi lagaákvæði taka
ekki til verksmiðja, sem fram-
leiða eða geyma ammonium
nitrat. Hinar einu verksmiðjur
Norsk Hydro, sem lúta slíkum
ákvæðum, eru þær, sem nota
„Karbyd“ í sambanai við fram-
leiðslu sína.
Engar almennar reglur gilda
um flutning á ammoniu nitrati
með skipum innan Noregs, og
engar sérreglur varðandi flutn-
ingi með járnbrautum innan-
lands.
í Svíþjóð, samkvæmt upplýs-
ingum veittum af Sprengiefna-
eftirlitsstofnuninni, er ammon-
ium nitrat ekki í flokki
sprengjulegra efna.
Hr. Platou kveðst ekki vita
um neina stórsprengingu í
heiminurh, þar sem um hafi
vei’ið að ræða hreint ammoniuna
nitrat, nema sprenginguna í
Oppau 1921, þar sem þó var
ekki hreint ammonium nitrat
að ræða, heldur ammoniunt
sulfat-ammonium nitrat (amm-
oniumsulfasaltpeter, * Leuna
saltpeter), svo sem talað er um
í „Eksplosivstoffer“ og Circular
no. 719.
Með tilliti til þess, sem að
framan er rakið, verður að ætla,
að ókunnleiki hafi að miklu
leyti valdið þeim ugg', sem fram
virðist hafa komið í sambandi
við fyrirhugaða starfsemi Á-
burðarverksmiðjunnar, og ekki
virðist, sem betur fer, eiga næg-
an grundvöll, þegar tillit er
tekið til meðferðar tilbúins á-
burðar hjá öðrum þjóðum.
--- ♦------
Malan svarar
Malan fullum
hálsi.
LONDON. (A.P.). —■ Kynd—
illinn, félag uppgjafahermanna
í S.-Afríku, hélt fjöldafund í
Höfðaborg í gær og mótmælti
stefnu Malans í kynþáttamál-
um.
Að kalla eingöngu uppgjafa—
hermenn af hvítum uppruna.
sóttu fundinn. Leiðtogi her-
mannanna, Malan (frændi for—
sætisráðherrans), flutti aðal-
ræðuna, og sagði að háð yrði
skelegg barátta til þess að
knýja stjórnina frá lögleysu-
stefnu sinni, beitt yrði lögleg-
um aðferðum, en hart látið
mæta hörðu, ef í það færi.
í félagsskapnum eru um
135.000 uppgjafahermenn í 500
félagsdeildum um land allt.
JFminfnB’ÍB* * foúíasBaseðnwBB:
Svefnvagn sníMur fyrir leii-
ina Reykjavík — Akureyri.
Tefeur 30 manns — fullgerður eftir mánuð.
í Bílasmiðjunni h.f. í Skúla-
túni er í smíðum nýtízku Iang-
ferðabíll, sem mun vekja mikla
athygli og væntanlega valda
gerbrcytingu í gerð langferða-
bíla hér á Iandi.
Bíllinn er smíðaður fyrir
Norðurleiðir h.f. og er ætlaður
fyrir 30 farþega. Verður bíll-
inn glæsilegur og . útbúinn
þægindum, sem menn hafa ekki-
haft af að segja í langferða-
bílum hér. M. a. er þannig frá
stólunum gengið,- að hægt er
að setja þá í 3 stellingar,
venjulega, miðlungs eða með
nokkrum halla, og þannig, að
menn geti lagt sig og sofið
þægilega, með höfuðið á svæfli
þægilega skorðað.
f þessum bíl verður ný teg-
und bensínhreyfils — og hefir
hreyfill þessarar tegundar
aldrei fyrr verið settur í bíl
hér á landi. Er hann framleidd-
ur af Reo-verksmiðjunum.
bandarísku, sem hafa framleitt
slíka hreyfla í 3 ár, en aðeins
fyrir herinn, þar til nú, að þeir
eru komnir á markaðinn vestra.,
Er því haldið fram af verk-
smiðjurini, að nýja gerðin sé
37 af hundraði sparneytnari
en eldri gerðir, endingarbetri
og kraftmeiri en líka dýrari.
Hreyflár þessir nefnast Gold
Comet.
Langferðabíllinn, sem að of-
an um getur, er nú það langt
á veg kominn, að hann verður
sennilega tilbúiriri' í lok rtíáí.