Vísir - 10.12.1952, Síða 1
VI
42. árg.
Miðvikudaginn 10. desember 1952
284. tbl.
Bægsíagangur stjómarandstöB-
unnar hjaina&i undir lokin.
Vmdmum hleypt úr „ættjarðarvininum46
Einari Ofgeirssyni og Þórsgötufólkinu.
Eidhúsumræðunum lauk í
gærkveidi, og mótaðist mál-
færsla stjórnarandstöðunnar
enn sem fyrr af gífuryrðum, en
fulltrúar stjórnarflokkanna
beittu rökum.
Aðalforsprakkar kommún-
istá og krata, þeir Einar Ol-
geirsson og Hannibal Valdi-
marsson áttu erfjtt með að hafa
stjóm á skapsmunum sínum.
Einar kom fram í hinu gamla
gerfi foðurlandsvina frá Þórs-
götu 1, fór með kvæði, og end- son.
urtók þvætting sinn um, að
stjórnin „sæti á amerískum
'byssustingjum“. Eysteinn Jóns-
son fjármálaráðherra, sem tal-
aði á eftir honum, hleypti úr
honum vindinum umsvifalaust.
Hannibal dró enn úr fullyrð-
ingum sínum, er hann viðhafði
á Lækjartorgi, en það er erfitt
verk, sem vonlegt er, því að
mikill mannfjöldi hlýddi á hann
þar, og stoða því lítið „skýring-
ar“ hans í útvarpinu.
Fyrir stjórnarflokkana töl-
uðu Sjálfstæðismennirrúr
Björn Ólafsson viðskiptamála-
ráðherra, Sigurður Bjarnason
qg Magnús Jónsson, en af hálfu
Framsóknar þeir Hermann
Jónasson og Eysteinn Jónsson
ráðheiTar, og Skúli Guðmunds-
Við umræður þessar
sannaðist enn, að auðvelt er að
gaspra um alvarleg mál af á-
byrgðarleysi, eins og kommún-
istar og kratar gerðu, og veittist
ræðumönnum stjómarílokk-
anna því auðvelt að sýna fram
á veilurnar í málflutningi
hinna.
Var 7 sólarhringa til New York,
þótt skrúfan væri beygluB.
Óvenjulega fljót ferð
Goðafoss kom til New York
kl. 9 (N. Y. tími) á sunnudags-
kvöld eftir óvenju fljóta ferð
héðan.
Var skipið, sem var tómt,
ekki nema 7 sólarhringa og 5
stundir á Ieiðinni, og liggur við,
að það sé met á þessari leið. Er
þess fljóta ferð skipsins þeim
mun merkilegri, sem það var
með beyglaða skrúfu. Svo er
mál með vexti, að fyrir nokkru
snertu skrúfublöð „kantinn"
við innsiglingu til Vestmanna-
eyja og beygluðust. Er skipið
var hér á dögunum, tók Hamar
að sér að gera við skrúfuna til
bráðabirgða, eða eins og unnt
var, án þess að skipið væri tek-
ið í þurrkví. Var það gert með
þeim hætti, að skipið var létt
að aftán með þvi að dæla sjó
milli botngeyma þess, og stóð
skrúfan þá upp úr. Voru blöðin
rétt eins og hægt var.
Goðafoss mun nú fara í þurr-
kví í New York, þar sem fulln-
aðaraðgerð fer fram á skips-
skrúfunni. Fljótasta ferð Foss-
anna milli New York og Reykja-
víkur eða öfugt, mun vera tæp-
ir 7 sólarhringar.
Pinay nýtur trausts
þingsins.
Stjórn Pinay’s fékk trausts-
yfirlýsingu samþykkta í gær-
kvöldi í fulltrúadeild franska
þingsins, er fjárlögin voru til
umræðu.
Allir stuðningsmenn De
Gaulle’s greiddu atkvæði gegn
henni og allir þingmenn komm-
únista. Með stjórninni greiddu
300 atkvæði en 291 á móti.
Goðafoss vestur um haf.
Varðhöfld í
Casahflanca.
París (AP). — Herflokkar í
brynvörðum bifreiðum voru
stöðugt á sveimi í gær um göt-
urnar í Casablanca.
Landstjóri Frakka í Marokko
kom tiICasablanca í gær til þess
að kynna sér allt af eigin reynd.
Hann heimsótti og særða menn
í sjúkrahúsum.
Grotewohl rek*
ur ráðherra.
Berlin (AP). — Grotewohl
forsætisi'áðherra Austur-Þýzka
lands hefur vikið frá birgða-
málaráðheria landsins og nán-
asta samstarfsmanni hans.
Eru þeir sakaðir um að hafa
vanrækt að sjá um, að næg
matvæli væri á markaðnum,
aðallega feitimeti, og í sambandi
við smjörlíkisskortinn talar
Grotewohl um „beina skemmd-
arvei'kastarfsemi“.
Grotewohl gerir grein fyi'ir
brottvikningunni og þessum
málum í gi'ein, sem birt er í
öllum blöðunum, og er hér um
óvanalega aðferð að ræða, til
þess að tilkynna að ráðherra í
mikilvægu embætti sé vikið frá
störfum.. Öll er gx'einargerð
Gi'otewohls í viðvörunartón og
m.- a. vegna atburðanna í Tékk-
óslóvakíu að undanförnu, er nú
um það spurt, hvort á uppsigl-
ingu sé „hreinsun “ í Austur-
Þýzkalandi.
Eísenhover vill
ræia við Mac-
Arthnr um Kóreu.
Eisenhower, sem nú er á
heimleið frá Kóreu, hefur
sent MacArthur hershöfð-
ingja skeyti, og kveðst hann
fús til bess að eiga við hann
óformlegar viðræður um
Kóreu.
Tildrög eru þau, að Mac-
Arthur lét svo um mælt, að
hann hefði tillögur fram að
færa, sem miðuðu að því að
binda endi á Kóreustyrjöld-
ina hið fyrsta, án þess að
bjóða hejnx þeirri hættu, að
styrjöldin breiddist út.
Það vekur að sjálfsögðu
mjög mikla athygli, að Eis-
enhower hyggst ræða Kóreu-
málin við MacArthur.
MacArthur hefur látið í
ljós ánægju yfir undirtekt-
um Eisenhowers.
Yfiriýsing, sem
engu haggar.
Hannibal reynir
aft draga í Eand.
Ástæðulaust er að standa
í fánýtu orðaskaki við Hanni
bal Valdimarsson alþingis-
mann um það, sem hann
sagði á útifundinum á Lækj-
artorgi s.l. laugardag.
Mikill marinfjöldi hlust-
aði á ræðu hans við þetta
tækifæri, og getur því borið
um, hvort Vísir hafi birt
„lygafregn“ uin þetta mál,
og yfirlýsing hans í útvarp-
inu í gærkveldi haggar því
ekki, sem fólkið heyrði. —
Hitt er svo annað mál, að
skynsamlegt kann að vera að
draga úr stóryrðum, sem
engu góðu geta til leiðar
komið, og það hefur Hanni-
bal nú gert.
Verkfalismenn banna kjöt-
flutninga í búðir Sf. Sl.
Það er lögbrot ab banna slíka flutninga.
Þau tíðindi gerðust um há-
degisbilið í fyrradag, að 30
manna flokkur verkfallsmanna
kom að húsum Sláturfélags
Suðurlands hér í bænum
og stöðvaði allan flutning á
kjöti úr frystihúsi félagsins í
sölubúðir þess. Var því yfir
lýst, af bessum sendimönn-
um Samninganefndarinnar,
að því er Vísir hefur heyrt,
að „hér færi ekkext kjöt út
eða inn“.
Sölubúðir Slátux'félagsins hafa
Eldur i Dettifossi.
Kl. 3.13 í nótt var hringt til
slökkvistöðvarinnar, og til-
kynnt, að eldur væri í ms.
Dettifossi, sem hér liggur.
Slökkviliðið brá snarlega við
að vanda, en þegar slökkviliðs-
nxenn komu um borð, var búið
að slökkva eldinn, sem hafði
verið í tuskum eða fatnaði í
klefa 1. aðstoðarmanns í vélar-
rúmi. Sem betur fór mun tjón
ekkert hafa orðið af eldinum,
sem teljandi er.
því ekkert kjöt á boðstólum
lengui', en eru þó enn opnar..
Fólk, sem á kjöt í geymslu í
frystihúsinu, mun ekki fá að
hirða þar kjöt sitt, og héfur,
blaðið áreiðanlegar fregnir af
því, að þegar þessar stöðvunar-
aðgerðir vorxi í byrjun, kom
maður úr frystihúsinu með;
kjötskrokk, sem hann hafði átt
þar geymdan — og var hann.
tafarlaust sendur inn aftur með,
skrokkinn!
Verkfallsverðir eru á verði
við frysihúsið, til þéss að sjá
um, að þar fari ekki eirin biti
hvorki inn eða út.
Vísir hefir heyrt, að kjötverzl-
unum, sem hafa frystiklefa á
verzlunarstað, sé ekki meinaður
aðgangur að þeim, en slíkir
frystiklefar eru flestir litlir, og
munu tæmdir eða að tæmast.
Vegna þessara aðgerða er
bæjarbúum raunverulega þegar
meinað að fá sér kjötbita í soð-'
ið og eru víst ekki horfur á,
eins og sakir standa, að á þessu
verði nein breyting.
Óþarft er að taka fram, að
hér er um ólögmætar aðfarir
verkfailsmanna að ræða.
Fiskaflinn í október í ár þriðjungi
meiri en í fyrra.
Fiskaflinn frá áramótum tæpar
300 þús. smál.
Fiskaflinn í október 1952 varð
alls 20.839 smál., þar af síld
4.337 smál., en til samanburðar
má geta þess að í október 1951
var fiskaflinn 14.204 smál., þar
af síld 1.900 smál.
Fiskaflinn frá 1. janúar til
31. október 1952 varð 295.589
smál., þar af síld 31.922 smál.,
en á sama tíma 1951 var fisk-
Urðu í 2. sæfi í farmannakeppninni.
Gullfossmenn, taldir frá vinstri: Aftari röð: Garðar S. Gíslason
(fyrrv. formaður FRÍ), Boði Björnsson, Garðar Jónsson, Karl
Kristjánsson, Magnús Jónsson og Hjörtur Ólafsson. — Fremri
röð: Þór Elíasson, Hannes Iiafstein og Rögnvaldur Gunnlaugsson.
aflinn 343.882 smál., þar af síld
83.907 smál. og 1950 var aflinn
271.538 smál., þar af síld 49.908
smál.
Hagnýting aflans var sem hér
segir (til samanbuarðar eru
settar í sviga tölur frá sama
tíma 1951):
ísaður fiskur 25.600 smál.
(38.585). Til frystingar 111.929
smál. (84.874). Til söltunar
103.100 smál. (60.093). Til
herzlu 14.463 smál. (6.482). f
fiskimjölsverksm. 6.340 smá-
lestir (67.320). Annað 2.235
(2.620).
Síld til söltunar 16.106 smál.
(20.090). til frystingar 8.085
smál. (4.351). Til bræðslu
7.677 smál. (59.466). Til annars
54 smál.
Þungi fisksins er miðaður
við slægðan fisk með haus að
unáanskilinni síld og. þeirn
fiski, sem fór til fiskimjöls-
vinnslu, en hann er óslægður.
Skipting aflans milli veiði-
skipa til októberloka varð;
Bátafiskur: Fiskur (annar en
síld) 127.604 smál. Síld 31.234
smál. Samtals 158.838 smál.
Togarafiskur: Fiskur (annar
en síld) 136.063 smál. Síld 687
smál. Samtals 136.760 smál.