Vísir - 10.12.1952, Page 2

Vísir - 10.12.1952, Page 2
VÍSIR Miðvikudaginn 10. desember 1852 Biltt og þetfa Foreldrar drengsins, skildu •fjegar hann var reifastrangi. 'Föðurnum var dsemt barnið, en það mátti heimsækja móður rsína einu sinni á viku hverri. Þegar drengurinn var orðinn altalandi kom hann sem fyrr ‘til móður sinnar. Hún virti ihann fyrir’ sér blíðlega og sagði: „En hvað þú ert líkur honum ipabba þínum!“ „Ha?“ sagði sá litli. „Þekkir iþú líka hann pabba?“ • Hvernig lízt þér á kínversku ’.Sílórurnar, sem eg gaf þér í jólagjöf? Áttu við fílabeinsklærnar aneð löngu sköftunum? Til hvers •eru þær? Þær eru til þess að klóra sér xneð — klóra sér á bakinu. Eru þær til þess! Konan min 3ætur mig borða salat með þeim • Stærsta blóm, sem þekkist <er Rafflesia og vex í Afríku. 3»að vex á stofnum framandi i;rjáa. Ekki berst frjó þess ein- ®öngu í loftinu eða með skor- 4ýrum. Talið er að fílarnir :stigi ofan á ber af þessum Iblómum, en safinn úr þeim er ■límkenndur og fellur fílnum 31Ia að láta þetta klessast við ifætur sér. Tekur hann það þá íil bragðs að nuddá kvoðuna af sér á einhverri rót í skógar- rbotninum. Þar tekur þá frjóið :sér bólfestu og vex þar á nýrri jplöntu. • Þú ættir að hætta að drekka. 'Hér standa nú 40 tómar flöskur <ng eg vil ekki hafa fleiri á llækingi. Þetta er einkennilegt. Eg tnan ekki til þess að eg hafi Itomið heim með neina tóma flösku. CiHu Jíhhí tiar.:. í Vísi fyrir 30 árum birtist 'eftirfarandi auglýsing um liúsakaup: Húsakaup. Eg vil selja nú sem fyrst, anilliliðalaust, hálfa húseign anína Bergsstaðastræti 14, með sérstaklega hagkvæmum kjör- íim og fyrir verð, sem er sann- anlega mikið lægra (pappírarn- Jr á borðið), en raunverulegt •yerð, ein hæðin (mið) getur ■prðið laus 14. maí n. k. (þó því áoeins að samið sé bráðlega). Húsið er að öllu leyti sérstak- lega vandað, með öllum nútíma jþægindum af beztu tegund, svo ,-gem: Miðstöðvarhitunartæk j um ýreynst óvenju ódýr í notkun), flísalögðum baðherbergjum :sneð fullkomnum tækjum á ihverri hæð, W. C. á hverri hæð, þvottahús, þurrkloft, 1 a Lin- ■öleum á öllum gólfum, marmari 'ú forstofu etc. . Að auki skal mefna: Sólríkt, rakalaust (tvö- ■faldir veggir), hlýtt, viðhald ;jalveg hverfandí. Væntanlegur kaupandi getur húið svo ódýrt á einni hæðinni, áð eg vil alls ekki birta það á prenti, en mun með ánægju Syna og sanna slíkt hverjum þeim, er bæði vill og getur Jceypt. BÆJAR Miðvikudagur, 10. des. — 345. dagur ársins. RafmagnstakmÖrkun verður á morgun, fimmtudag- inn 11. des. kl. 10.45—12.15, 3. hluti. Biblíulestrarefni K.F.U.M. Jes. 11, 1—9. Opinb. 22, 16. Munið Mæðrastyrksnefndina. Þingholtsstræti 18. Þeir, sem eru aflögufærir, ættu að snúa sér til nefndarinnar, sími 4349. Hvar eru skipin? Eimskip: Brúarfoss fer frá Rostock 10.—11. þ. m. til Ham- borgar, Antwerpen, Hull og Reykjavíkur. Goðafoss kom til New York 7. þ. m. frá Réykja- vík. Selfoss fer frá Rotterdam 9. þ. m. til Leith og Reykjavík- ur. Tröllafoss kom til New York 8. þ. m. frá Reykjavík. Dettifoss, Gullföss, Lagarfoss og Reykjafoss eru allir í Rvík. Útvarpið í kvöld: 20.20 Ávarp á mannréttinda- degi Sameinuðu þjóðanna. 20.30 Útvarpssagan: ,,Mannraun“ eftir Sinclair Lewis; XV. (Ragn ar Jóhannesson skólastjóri). — 21.00 fslenzk tónlist: Árni Jónsson syngur lög eftir Hall- grím Helgason; Fritz Weiss- happel leikur undir. 21.20 Hver veit? (Sveinn Ásgeirsson hag- fræðingur annast þáttinn). — 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 „Désirée", saga eftir Annemarie Selinko (Ragnheið- ur Hafstein) — XXIX. 22.55 Þýzk dans- og dægurlög (plöt- ur). Tveir íslenzkir togarar seldu ísfisk í Þýzkalandi í fyrradag. Þar með er lokið aflasölum íslenzkra togara þar á þessu ári og ekki neinar líkur fyrir því, eins og stendur, að fleiri ísfisksölur fari fram erlendis á þessu ári. HrcAAqáta hk /79/ Lárétt: 1 Ávextirnir, 6 ó- væra, 8 fangamai-k, 10 athuga- semd, 11 barðist í Miklagarði, 12 og þó, 13 endir, 14 milli stöpla, 16 fer í ráðleysi. Lóðrétt: 2 Fæði, 3 oft í pylsu- enda-, 4 skammstöfun, 5 full- komlega, 7 mága, 9 ósk, 10 þeita, 14 spurning, 15 íónn. Lausn á krossgátu nr. 1790. Lárétt: Letin, 6 for, 8 AB, 10 Si, 11 kerling, 12 ur, 13 æl, 14 ung, 16 snara. Lóðrétt: 2 Ef, 3 tollana, 4 ÍR, 5 rekur, 7 sigla, 9 ber, 10 snæ, 14 UN, 15 gr. Egill Skallagrímsson seldi í Cuxhaven 229 smálestir fyrir 88.913 mörk. Ólafur Jóhannes- son seldi einnig í fyrradag. Hann seldi í Hamborg rúmar 53 lestir fyrir 23.511 mörk. Var hann með 124 lestir, en um 70 lestir urðu ónýtar. Liggur þannig í því, að upphaflega átti að gera tilraun til að selja ísfisk þann, sem togarinn hafði, í Aberdeen, en er af því gat ekki orðið, var ákveðið að hann landaði í Þýzkalandi, en þar komst hann ekki að og varð að bíða í 9 daga, og á þeim tíma fór hann til Esbjergs og landaði þar saltfiski, sem hann var með. Sr. Gunnar Árnason er til viðtals í prestsherbergi Fossvogskirkju á þriðjudögum og föstudögum kl. 16—17, sími 81166. Á Sóleyj arbakka við Hlíðarveg í Kópavogi kl. 18—19 alla virka daga nema laugar- daga. Samvinnan, tímarit samvinnumanna nóv.— des. hefti 1952 er komið út. Á forsíðu er mynd af aðalstöðvum S. Þ. í New York. í ritinu eru margar góðar greinar m. a.: Ein nótt og einn dagur í Jerúsalem eftir Adriane Wahlgren, Snill- ingurinn Micaelangelo, Her- varnir á íslandi, íslendingur í aðalstöðvum S. Þ. og ýmsar aðrar stuttar og langar grein- ar. Fjölmargar myndir prýða ritið, sem er allt hið snyrti- legasta að vanda. Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Ný bók. Sagan, Heiður og hefnd, eftir Jefferey Farnol, er nýkomin út. Er sagan 231 bls. í stóru broti. Þetta er einhver vinsælasta skáldsaga höfundarins, en sög- ur hans hafa farið sigurför um enska heiminn. Stíll höfundar- ins er sérkennilegur en aðlað- andi. í þessa sögu um tryggð og ástir er fléttað mörgum hættu- legum ævintýrum, svo að at- hygli lesandans er haldið fastri frá upphafi til sögulolca. Sagan er prentuð í aðeins 500 eintaka upplagi og er útgáfan snotur. Bóki kostar 38 kr. og fæst að- eins í bandi. Gengisskráning. 1 bandarískur dollar kr. 16.32 1 kanadískur dollar kr. 16.78 1 enskt pund .... kr. 45.70 100 danskar kr.....kr. 236,30 100 norskar kr.....kr. 228.50 100 sænskar kr. .. kr. 315.50 100 finnsk mörk .. kr. 7.09 100 belg. frankar .. kr. 32.67 1000 franskir kr. .. kr. 373.70 100 tékkn. Krs.....kr. 32.64 100 gyllini........ kr. 429.90 1000 lírur .........kr. 26.11 Hvöt, sjálfstæðiskvennafélagið, heldur í kvöld fund í Sjálf- stæðishúsinu kl. 8.30 Frú Krist- ín Sigurðardóttir flytur þing- fréttir, frú Soffía Ólafsdóttir heldur ræðu; sýnd verður ó- byggðakvikmynd. Félagskonur eru beðnar að mæta stundvís- lega og aðrar sjálfstæðiskonur eru velkomnar á fundinn. Katla er á Ítalíu. Veðrið. Víðáttumikil lægð fyrir vest- an Noreg. Önnur lægð út af vesturstrond Skotlands á hreyf- ingu til austurs. Mun kólna á næsta sólarhring og má gera ráð fyrir -f-3 stigum á Vestur- landi. — Veðrið kl. 8 í morgun: Reykjavík, logn, 1 st. hiti. Stykkishólmur, logn frostlaust. Hornbjargsviti NV 5, snjóél, -:-l. Siglunes NNV 3, -:-l. Ak- ureyri NNV 4, 0. Grímsstaðir N 3, -s-3. Raufarhöfn NV 5, 1. Dalatangi NV 4, 3. Djúpivogur N 4, 2. Vestm.eyjar N 4, 2. Þingvellir N 2, 1. Reykjanes- viti NNA 5, 1. Keflavík ANA 6. 1 stigs hiti. Getraunaspá vikunnar. Burnley—Arsenal 1 Arsenal sigraði í fyrra 0:1. Burnley er nú eitt af beztu fé- lögunum í Englandi. Liðin hafa bæði hlotið 23 stig. Burnley úr 19 leikjum en A. úr 18. Líkur eru mestar fyrir sigri B. Cardiff—Sundferland X2. Sunderland er nú í 1. sæti keppninnar. Úr síðustu 5 leikj- um hefur liðið fengið 6 stig. Síðustu tveim leikjum Cardiff hefur verið frestað (við Bolton og A. Villa). Þar áður hafði Cardiff unnið Chelsea (0:2) og Portmouth (0:2) úti, en tapað fyrir M. Utd. (1:2) heima. Yfirleitt hefur liðinu gengið betur að heiman en heima. Rétt er að reikna með sigri Sunder- land en tryggja þó fyrir jafn- tefli. Liverpool — M. Utd. XI Liverpool hefur að undan- förnu gengið illa. Hefur liðið aðeins hlotið 3 stig úr síðustu 5 léikjum. M. Utd. hefur fengið 6 stig úr síðustu 5 leikjum. í fyrra varð jafntefli 0:0. Jafn- tefli er ekki ólíklegt nú en rétt er að tryggja fyrir jafntefli. Manchester City — Chelsea 1 M. C. er í neðsta sæti en Chelsea í 19. Úr síðustu 5 leikj- um hefur M. C. fengið 4 stig en C. ekkert. Mestar líkur eru fyr- ir sigri M. City. Middlesbro — Portsmouth 1 M. sigraði í fyrra 2:1. Middles- bro hefur gengið sæmilega í síðustu leikjum en P. hefur tapað þrisvar í röð heima fyrir Cardiff og W. B. A. og úti fyrir Newastle. B.bro leikur heima og eru því mestar líkur fyrir sigri þess. Newcastle—Aston Villa. 1 í fyrra vann Newcastle 6:1. Newcastle hefur verið í miklum uppgangi að undanförnu, en A.Villa frekar í öldudal. Líklegt er því að N. sigri. Preston—Derby. 1 Með tilliti til stöðu liðanna í keppninni (Preston í 7. sæti, Derby í 20) verður ágizkunin tryggður heimasigur. Sheffield W. Wolwes 1X2 Tvísýnn leikur. Báðum hefur liðunúm gengið vel í vetur W. er nú í 2. sæti en Sheffield í 11. Á laugardaginn tapaði Sheff. úti fyrir Sunderland en W. gerði jafntefli heima við Tott- enham. Bezt er að þrítryggja leikinn. Stoke—Blackpool 2 1 Blackpool sigraði í fyrra 2:3. Ekki er ólíklegt að B. sigri einnig nú, en tryggja vefður þó fyrir sigri Stoke. Tottenham—Charlton 1 Tottenham hefur náð sér á strik í síðustu leikjum. Charlton hefur tapað nokkuð reglulega úti í vetur en hinsvegar oftast sigrað heima. Sigur T. er lík- legastur. W. B. A. — Bolton 1 Hér verður ágizkunin ó- tryggður heimasigur. Rotherham—Sheff. Utd. 1 2 Tvísýnn leikur sem rétt er að tvítryggja. Tvær Heians- kritígliabækur. Bókaútgáfan Heimskringla hefir sent frá sér tvær nýjar bækur, smásögusafn eftir Jón Óskar og frásögu af friðarþing- inu í Berlín eftir Kristinn E. Andrésson. Smásögusafn Jóns Óskars ber nafnið „Mitt andlit og þitt“, en í því eru 11 stuttar sögur, sem rithöfundurinn hefir skrif- að á ýmusm tímum og hafa flestar birzt áður á prenti. Munu elztu sögurnar vera yfir 10 ára gamlar, en þær síðustu hefir höfuhdurinn skrifað fyr- ir tveimur eða þremur árum. Þetta er fyrsta bók höfundar- ins, en hann hefir fyrir löngu vakið athygli á sér fyrir smá- sogur, sem birzt hafa eftir hann í tímaritum. Frásögn Kristins E. Andrés- sonar af fundi heimsfriðarráðs- ins í Berlín í sumar sem leið heitir „Skulu bræður berjast?“ Skýrir höfundurinn þar frá málefnum og erindum, sem flutt voru og að síðustu er bréf frá Frédéric Joliot-Curie til allra friðarnefnda og friðarvina. Bókin er 7 arkir að stærð og í henni eru margar myndir af fulltrúum hinna ýmsu landa. Bamabók um lífs- háttu laxins. Bókaútgáfan Hlynur hefur gefið út og sent á bókamarkað- inn lítið kver sem nefnist „Laxabörnin“ og gerist fyrst og fremst ætlað börnum og ung- lingum. En bókarkora. þetta gegnir öðru og meira hlutverki heldur en að vera skemmtilestur barna og unglinga. Þetta er fræðandi bók um lífshætti laxins allt frá því að hann er örlítið seiði og þar til hann er fullvaxta lax sem stekkur fossa og ferðast um úthöf. Bókin er skrifuð í svo léttum og skemmtilegum stíl að jafnt fullorðnir sem unglingar hafa gaman af og eru fróðari á eftir um duttlunga og lifnaðarháttu laxins. Nokkrar laglegar tekningar prýða text- ann. Höfundur bókarinnar er R. N. Stewart en Eyjólfur Eyj- ólfsson hefur íslenzkað hana.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.