Vísir - 09.01.1954, Síða 4
4
VTSIR
Laugardaginn 9. janúar 1954
WiS IR
D A G B L A Ð t |
Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. i mm
Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. ,,\mm
Skrifstofur: Ingólfsstræti S.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR HJT. k
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm línur),
Lausasala 1 krón*.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Sýning frú Unnar Ólafs-
dóttur í Þjóðminjasafninu.
EmtHigis til að sýnast.
Kommúnistar neyta nú allra bragða til að reyna að telja
bæjarbúum trú um, að bænum verði ekki stjórnað af
neinu viti, nema þeir hafi þar hönd í bagga, og helzt, að áhrií
þeirra í bæjarstjórninni verði aukin. í þessum tilgangi bera
þeir fram ýmiskonar tillögur, og bera sumar þess svo greinileg
merki, að þær eru ekkert annað en kosningabeita, að allir hljóta
að sjá í gegnum blekkingar þeirra.
Síðasta tillagan af þessu tagi kom i'ram á bæjarstjórnar-
fundi í fyrradag, þar sem Guðmundur Vigfússon lagði til, að
innkaupastofnun bæjarins kaupLinn olíu og kol, og selji síðan
bæjarbúum við kostnaðarverði. Mundi þetta að sjálfsögðu tákna
nokkurn sparnað fyrir marga, en undarlegt er, að kommúnistar
skuii ekki hafa borið fram tillögu þessa fyrr, því að eldsneyti’-
verð hefur verið hærra en það er nú. Skyldi ekki eitthvað
undir búa? Vitanlega er hér aðeins verið að hugsa um eldsneytí
undir áróðurskatla kommúnista með tillögu þessari.
Þetta sjá allir heilvita menn, og þeir gera sér einnig grein
fyrir því, að þetta mvndi baka bæjarfélaginu ærin útgjöld. En
þar sem þetta eru j ‘ útgjöld — þau gætu komið aftur í
nokkrum atkvæðum til kommúnista — þá er sjálfsagt að
sparnaðarpostularnir hverfi sem snöggvast af venjulegri braut
sinni og reyni þetta.
Fást atkvæði út á grobb?
TT'ramsóknarmönnum er fátt betur gefið en sjálfhælni og
grobb. Ef trúa má öllu, sem upp úr þeim hrekkur fyrir
hverjar kosningar, þvi að þá er um að gera að vera kok-
hraustur, hefur ekkert verið geft hér á landi, engu verið hrundið
í framkvæmd, án þess að framsóknarmenn hafi verið þar nær-
staddir, og það má jafnan lesa á milli línanna, að í rauninni
hafi þeir verið allt í öllu á öllum sviðum lífs og dauða. Þegar þeir
taka sig til í framtíðinni, og endursemja mannkynssöguna, þá
mun það koma á daginn, að Óðinn og öll hans sveit hafi verið
framsóknarmenn — þeir hafi skapað himinn og jörð og aili,
sem því fylgdi. j
Einn Óðinssona ritar í Tímann í gær og kémst' m. a. svo að
orði: „ . . er skemmtilegt að hugleiða, aö' við byggingu Laugar-:
iiéskirkju var einn af aðalforgöngumönnmn framsóknarmaðui. ■
Sama sagan endurtekur sig nú við byggingu Neskirkju. Þetta
Mýtur svo að vera. Eplið fellur sjaldan langt frá epiaténu ‘
Og úr því farið er að tala um epli, þá verður mönnum á að
spyrja, hvort hafi verið í framsókn á sínum tíma — höggormur-
ánn eða Eva? Líklega hefur það verið höggormúrinn, því að
hann var undirrót ýmissa framkvæmda þar í Eden.
Og þeir haí'a verið anzi oft í höggormslíkinu síðan. Þeir hafa
talað fagurlega við Reykvíkinga, en reynt síðan ævinlega að
;gera bæjarbúum allt til miska og er sýndaregistrið orðið langt
— allt frá þingrofinu vegna Sogsvirkjunarábyi'gðarinnar til
ábúðárskattslaga Rannveigar fyrir fáum árum. Reykvíkingar
eiga ekki' að ala þenna snák við brjóst sér eftir 31. janúár.
Það, sem efcki er hægt.
T>að mun vera Kefð vestan hafs, áð forseti Bandaríkjanna
fly.tji í ársbyrjun ræðu á þingi, þar sem hann lítur yfir
i'arinn veg og jræðir það, sem gera þarf. Eisenhower forseti
gerði þetta að venju í fyrradag, og er ekki ástæða til að hafa
neitt aí' þy.í eftir, sem hann sagði, nema eitt atriði.' |
í lok ræðu sinnar komst hann svo að orði, að þótt stjórn
keppi ósleitilega að þvi að trýggja friðinn, þá sé það engri’
stjórn fært að tendra neista friðarástar í, hjörtum erlendra'
þjóðhöfðingja -— það er að segja.einræðisher,rannafisem nú ógna
friðinum um gervallan heim. Það er þetta, sejn er; hættulégast
fyrir friðinn í heiminum, að þótt einvaldarnir tali fagufléga
um frið og ást sína á honum, sýna gerðir þeirra, að þeim er allt
annað en friður í huga.
Friðurinn í heiminum veltur á viija éínræðisherranna. Ef
þeir telja, að þeir geti ekki sigrað með styrjöld, þá munu þeir
halda friðinn, en það mun verða friður af því tagi, sem menn
hafa fenpíð að kynnast á undanförnum árum. Sá friður hefur^
verið aí því tagi, að menn hafa aldrei vitað, hvort hann mundi
standa deginum lengur, óttinn hefur hrjáð mannkynið, og mun '
gera, meðan engin hugarfarsbreyting verður meðal kommúnista.
,En slík hugarfarsbreyting kemur ekki utan írá, og því er friður
.v'ívyg'gui'; .meðan kommúnisminn vérðúr til og á sér!einhverja
'fyígjenduri ' '!"<í <* ’•>
Frú Unnur Ólafsdóttir heldur
þessa dag'a sýningu á kirkju-
legri list í fyrirlestrarsal Þjóð-
minjasafnsins, og er þetta hin
þriðja sýning hennar.
Frú Unnur hefur valið sér
mikið og veglegt hlutverk, sem
sé það að endurvekja kirkjulega
list á íslandi og áhuga fyrir
henni, og enginn getur borið
henni annað en að hún hafi
leyst sitt verkefni með sóma.
Það er glæsileg sjón, sem mætir
auganu þegar inn á sýninguna
kemur, hverjum hlut skapað
það umhverfi, sem hæfir hon-
um bezt, þannig að hver hluti
sýningar jnnar myndar stíl-
hreina og áhrifamikla heild.
Þarna eru 6 ölturu, flest með
öllum búnaði. Það er óvenjuleg
sjón hér á landi að sjá altari
þannig byggt upp, að taflan,
altarisbrúnin og klæðið sé lag-
að hvað eftir öðru þannig, að
þetta þrennt verði óaðskiljan-
legt. Og til þess að heildin sé
fullkomin, eru hér líka kirkju-
stjakar með háum altariskert-
um. Án þeirra væri taflan ekki
í sínu rétta umhverfi. Hér eru
fjórar altaristöflur saumaðar af
frúnni sjálfri á forkunnarfagr-
an hátt og eru þrjár með hlið-
arvængjum sem má loka að
gömlum sið. Hér verður það
augljóst og eðlilegt sem oft vill
glevmast, að altaristafla er
ekki veggmynd heldur hluti af
altarinu sjálfu.
Það er aðdáunarvert, hve
vandlega frú Unnur liéfur
kynnt sér kirkjulist frá ýmsum
tímum. Með hliðsjón af göml-
um mótívum hefur henni tek-
izt að skapa verk, sem eru að
fullu og öllu í samræmi við
okkar tíma að formi til en
standa þó á traustum grUnd-
velli gamallar, kirkjulegrar
erfðavenju.
Þótt útsaumur sé aðalatriði
sýningarinnar, skulum við,
fyi’st staldra við við hinn mxkla,;
útskOTna altariskross, sem,
stendur tiJ. hægri handar, þegar
inn er komið. Þennan kross
hefur frúin látið setja saman
úr óskyldum hlutum og bætt
við nokkrum nýjum stykkjum,
en verkið- allt er svo heilt og
stílhreint, að engan getur grun-
að, að þétta sé ekki vérk eins
manns.
Innst í salnum gegnt dyrum
er altari, sem eingöngu er ætl-
að til notkunar á föstudaginn
langa. Það er samstætt altaris-
klæði og tafla, hvorttveggja
saumað á svartan grunn (Geíj-
unarefni) með íslenzkum hör,
einkum hvítum. En þessi svart-
hvíta samstæða er lífguð upp
með gullsaum og örlitlu af
rauðum lit, sem fer ágætlega.
Við vesturvegginn er vængja-
tafla, sem saumuð er með gull-
og silfursaum í bláleitan grunn.
Henni fylgir altarisbrún í sömu
litum, saumuð að öllu leyti a
tveimur námsmeyjum frú
Unnai’. Við fyrstu sýn vekui
þetta altari kannski minni at-
hygli en það, sem áður var lýst,
en það verður því fegui-ra, sem
það er skoðað lengur.
Fyrir þá, sem áhuga hafa á
því, hvernig þessir hlutir eru
unnir, er skemmtilegt að at-
huga. tvær altai’istöílur hálf-
saumaðar (eða hluta af töflurn),
sem hér eru til sýnis. Einnig
má sjá hér hörinn íslenzka,
bæði unninn og óunninn, en með
honum hefur frúin saumað
heilar altaristöflur. Þá eru hér
útsaumaðir höklar og margt
fleira og loks nokkrir gamlii’
kii’kjugi’ipir erlendir, er gefa
sýningunni aukna fjölbreytni.
Fyrr á öldum áttu íslending-
ar sína kirkjulist eins og sjá
má í Þjóöminjasafninu. En
þegar kemur fram á miðja 19.
öld fer þetta ailt að losna í
sundur og hin ævafoi’na erfða-
venja slitnar loks með öliu að
því, er kix-kjuskreytingu
snei’tir. Það er ekki ofmælt.
þótt sagt sé, að hi’einn glund-
roði hafi xíkt í þeim efnum
síðastliðin 100 ár. Það er því
gleðiefni, er frú Unnur Ólafs-
dóttir hefur hafizt handa og
i’eynt að endui’vekja hina is-
lenzku kirkjulist í formi, sem
hæfir okkar samtíð, og ættu
sem flestir að nota þetta ein-
stæða tækifæri til að kynnasl
listgrein, sem sjaldan er tæki-
færi til að sjá hér á landi.
Jóharm Briem.
Lýsi & Mj'öl fuKnýta bráefjtii.
Ilefja soðkjarna TÍnnsln.
Lýsíi & Mjöl h.f. í Hafnarfirði
liéfur fyrir skömmu hafið soð-
kjarnavinnslu í verksmiðjunni
og gjörnýtir nú hráet'nið.
Á síðasta ári kynntu forystu-
menn fyrirtækisins sér soð-
kjarnavínnslu í Noregi og
Þýzkalandi, en fengu loks eim-
ingai'tcéki til vinnslurmar frá
ATLAS í Kaupmannahöfn. Ár-
ið 19ð2 h'afði nýr gufuketill ver-
ið keyptur til vei’ksmiðjunnar.
Eimingartækið kom til landsins
í október s.l. og var lokið við
uppsetningu þess í des. og hef-
ur verið í notkun síðan. Mestu
afköst eru 10 tonn af soði á
klst. Var byggð. 1344 tenings-
metra viðbyggging við verk-
smiðjuna ve^ná þessafá 'rij'jíi
tækja, og kosta'tæ^íri'ög huáið’
nm 1 9 VW.Í11-Í1 í H í I ' ! > -•
ari nýju aðferð gjörriýtist hrá-
efnið. Annars er hér um sömu
aðfex’ð að ræða og’ h.f. Hvalur
hefui’ tekið upp í sambandi við
límvatnsvinnslu í Hvalfirði og
skýrt var frá hér í biaðinu fyr-
ir skemmstu.
Með þessai’i nýjung , hefur
verið stigið stórt spor fram á
við í íslenzkúm fiskiðnaði, þó
honum hafi að vísu mjög fleygt
fram á undanförnum ái’um. T.
d. má geta þ'ess áð áríð 1943
nam útflutningsverðmæti hans
aðeins 420 þús. kr. en 1953 44
milljónum.
Formaður véx-ksmiðjustjórn-,
ar þýsis & Mjöls er Adolf I
Björnsson; framkvæmdarstjóri
Ólafur Elíasson; verksmiðju-
•stjóri' Jóri Sigurðsson og tækiii-'
fégúr tððunautur dr. Þóx’ður
Þorbjarnai’son.
um 1.2 milljU 'kr.u
Talið er að e'fnistöp í öfrennslf
isvatni eða soði verijulegrar!
síldax’- og fiskimjölsverksmiðju | ‘ ' ' '
pemi 20—25% af heildarmjöl-J , ,,
magni hráefnisins, cn með þess- S£ZT AiP AUGLYSAI VlSl
Bei’gnxáli liefur boi’izt stutt bréf
frá manni, sem er andvígur þvi
að byggð sé ný sundlaug í Reykja-
vík, og telur varliugavert að reist
verði sundlaug fyrir vesturbæ-
inga sérstaklega. Hann segir á
þessa lei'ð: „Mikið liefur vei’ið
rsett og ritað um sundlaug Vest-
tii’hæjar, sem svo er nefnd. ilei-
ur vei’ið háfirin markviss ái’óð-
ur fyrir þessu máli, en mér fianst
að þar gæti lítiliur fyrirhyggju.
Reyndar skil ég vel, að Vestui’-,
bæingar vilji liafa sundlaug út
af fyrir sig, einkum þar sexn j'á
myndi styttast leiðin fyrir bless-í
uð börnin, sem þyrftu að sæuja
hana vegna sundskyldunnar.
Hvað um Sundhöllina?
En nú vita allir, að aðsókn að
Sundhöll Rcykjavíkur hefur ver-
ið sízt of góð, og mun þeim fækka
ár frá ári, sem hana sækja. Virð-
ist því Sundhöll Reykjavíknr vel
geta tekið við öllum þeim bæjar-
búum, sem óska að stunda sund.
En yr'ði nú byggð sundlattg fyrir
stóran bæjarhluta, eins og Vest-
urbæinn, livernig myndi þá að-
sóknin að Sundhöll Reykjavíkur
verða. Líklega myndi þeim verú-
lega fækka, cr þa sæktu þangað.
Vestui’bæingar alíir myndu auð-
vitað styi-kja sina sundlaug og
Sundhöll Reykjavíkur verða rek-
in með enn meii’a tapi, en und-
anfai’ið hefttr verið.
Vegalengdirnar í bænum.
Satt að segja skil ég lieldur
aldrei hve mönnttm vaxa i aug-
um vegalengdirnai’ hér í bænum,
sem eru þó snöggt ttm styttri en
i öllum öðriirn höfuðborgum
heims. Það er skiljanlegt sjón-
armið, að foreldrar séu liræddir
við að óenda hörnin siu eiri frá
vesturbæ og austur í Sundhöll
Reýkjávíkur. En væri ekkt miklu
auðveldara og ódýrara að Jtaga
svo til að sérstakir strætisvagu-
ar géngju frá vesturbæ að Sttnd-
liallat’dyrum, en byggja sérstaka
sundlaug fyrir þá, er vestast búa
í bænunt. Nú heyrir máður ið
ákveðið muni vera að byggja
þessa margumtöluðu 'sundlaug
vesturbæjar, og verður þvi varla
breytt úr þcssu. En ég hefði vilj-
að að málið hefði verið Jvetur
rætt áður en flanað yrði út i
þesa byggingu. — Miðbæingmv1
Tvenn sjónarmið.
Eg geri ráð fyrir að ekki mnni
allir sammála „Miðbæing“ í surnt-
lauganiáliiui, en sjálfsagt þykir
að láta þetta sjónarmið koma
i'ram. Hvorki Sundhöll Reykjavík
ur né sundlaug vesturbæjar verða
ítokkurn tíma reknar ineð Jtagn-
aði, og hefur sjálfsagt aldrei ver-
ið gert ráð fyrir því. Það er
menningarmál, að ltafa næga staði
fyrir fólk til jtess að iðka sund.
Hins vegar vil ég' engan dónt á
það leggja Itvort Sundhöll Rcykja
vikur nægi öllum bæjarbúum. Og
ég er sammála „Miðbæingi" í þvi,
að vegarlengdin vestan úr bæ
austur í Sundliöll ætti engum að
vaxa í aiigum. En það sjónarmið
eitt hefur varla ráðið, er ráðist
var í að hefjast lvanda unt bygg-
ingu sundlaugar fyrir vesturbæ-
inn. Kannske vilja fleiri taka til
rnáls um þetta mál, sem nú er of-
arlega á baugi? — kr.
Margt á sama slaft
LAOCAVEG 10 - SIMI 3367