Vísir - 10.02.1954, Blaðsíða 8
VÍSIR er ódýrasta blaðið og bó bað fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 og
gerist áskrifendur.
'VISIR
9
Miðvikudaginn 10. febrúar 1954.
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
-
Ráðgerð brúarsmíð yfir
Eyrarsund fyrir 1963.
Þá yerðisr ekið á 15 miu. inillí
Svíþjáðar og Danmerkur.
Því er spáð, að ekki síðar en (
1963 muni menn geta ekið á
stundarfjórðungi milli Málm-
eyjar í Svíþjóð Amakurs í
Danmörku eða á 40 mínútum
alls, frá Málmey á Ráðþústorg-
ið í Kaupmannahöfn.
Ríkisstjórnir Svíþjóðar og
Danmerkur eru nefnilega farn-
ar að hugleiða í fullri alvöru
áætlanir um að byggja risa-brú
yfir Eyrarsundið og brúa þann-
ig „bilið“ milli þessara ná-
grannaríkja.
Áætlað er að mannvirki þetta
myndi kosta um 350 milljónir
sænskra króna, en brúin ásamt
jarðgöngum og uppfyllingum
að henni myndi verða um 18
km. að lengd., og 45 metra að
hæð þar sem bogi hennar yrði
hæstur.
Hugmynd þessi hefur fengið
mismunandi undirtektir. M. a.
eru sumir á þeirri skoðun, að
hrúna ætti fremur að byggja
milli Helsingjaborgar og Hels-
ingjaeyrar, því að sú vega-
lengd sé mun styttri. Þá er og
um það deilt, hvort hún eigi
aðeins að vera tengd akvega-
kerfinu beggja megin sundsins,
eða járnbrautum líka, en eins
og nú er, má heita að járnbraut-
irnar (ferjur) hafi einkaað-
stöðu um fólksflutninga yfir
sundið.
Mál þetta er nú mjög ofar-
lega á baugi og mikill áhugi
ríkjandi fyrir því að brú kom-
ist yfir sundið þótt enn sé déilt
um markmið og leiðir í því
sambandi, en allir munu sam-
mála um að þetta sé hið nauð-
synlegasta mannvirki. Sex verk
fræðingafirmu í Svíþjóð og
Danmörku og þrír bankar hafa
heitið stuðningi sínum við fyr-
irtækið, og svo langt er hug-
myndin komin, að fyrsta teikn-
ingin hefur verið gerð að
brúnni og er meðfylgjandi
mynd af útliti hennar.
Menn verða að greiða toll
við notkun brúarinnar, en að
60 árum liðnum yrði hún eign
ríkisstjórna Dana og Svía.
Neðri málstofa brezka þings
ins ræðir í dag tillögu til
þingsályktunar framborna
af Attlee o. fl. er felur í
sér gagnrýni á afstöðu stjórn
arinnar til viðskiptasamn-
inga við Japan.
Hnefaleikamótið:
Leif Hansen reyndist
afburða hnefaleikari.
Hnefaleikamót Ármanns fór
fram að Ilálsralasidi í gær-,
kvöldi við húsíylli, svo sem við
var að búasí.
Jens GuðbjSrnsson, formaður
Ármanns, ávarpaði viðstadda,
lOg kynnti þá Leif Baggis Han-
sen, Norer
iáta-ra í veltér-
vigt, og Habý, ritara norsJia
finefaleikasambahdsins.
Af mótinu sjálfu er það að
segja-, að. Léií 'Hsnsen sýndi af-
; fcurða leikni cg tækni,. enda
varð Björn Eyþórss.on mjög
fljótlega. að láia í minni pokv
<v ann, og var Hi.burinr stöðvað-
...ur í þriðjir kb . en áður hafði
Hansen barið hann niður. Um
aðra leiki segir fátt, utan það,
að þeir Jens og Alfons í þunga-
vigt börðust af hreysti, en Jens
bar sigur af hólmi.
Sigurvegarar mótsins voru
þessir: auk þeirra, sem hér hafa
verið taldir: Léttvigt: Jóhann-
es Halldórsson. Léttveltervigt:
Sig. H. Jóhannesson. Millivigt:
Leifur Ingólfsson. Veltivigt;
Arnkell Guðmundsson og létt-
þungavigt: Óskar Ingvarsson.
Mót þetta bar það með sér,
að íslenzka hnefaleikamenn
skortir átakanlega tækni pg
þjálfun, að því er kunnáttu-
menn telja.
I\lýja híá s
Sr. Camillo og
kommúnistinn.
Nýja Bíó sýnir þessi kvöídin
kvikmyndina „Sira Camillo og
kommúnistinn11. Sagan, sem
kvikmyndin er gerð eftir, er
eftir kunnan italskan höfund,
Giovanni Guareschi, og hefur
komið í íslenzkri þýðingu
(1952) og nefnist í henni Heim-
ur í hnotskurn. Sagan hefur
verið þýdd á f jölda mörg tungu-
mál. Hún gerist í ítölskum
smábæ eftir stríðið, þar sem
tveir menn eru höfuðleiðtogar,
síra Camillo, klerkur, og Pepp-
one, borgarstjórinn, sem gerst
hefur kommúnisti, en þessir
leiðtogar voru samherjar í and-
spyrnuhreyfingunni á styrj-
aldartímanum. Þeir deildu oft
þá og létu hnefana skera úr, og
þessu geta þeir blátt áfram ekki
hætt, og skapar það mýmörg
tækifæri til þess að sýna
skemmtileg atvik, svo að menn
veltast um af hlátri. En annars
hefur sagan annað og meira
gildi. Hún er athyglisverð lýs-
ing á lífinu í ítölskum bæ, þar
sem alþýðumenning er á lágu
stigi og fólkið alið upp í ka-
þólskri trú og við hennar
ströngu venjur, og kröpp kjör.
Þarna ná kommúnistar völdun-
um, sem fyrr var sagt, en það
er spyrnt rösklega á móti. Um
þau átök verður eigi frekar
rætt. En kvikmyndin er spegill,
sem sýnir hverjum er í hann
lítur, margt broslegt og at-
hyglisvert að sama skapi. —-
Mörg hlutverk eru frábærlega
vel leikin. Klerkinn leikur
franski leikarinn Fernandel en
borgarstjórann Gino Cervi og
éru bæði hlutverkin snilldarvel
leikin. — Tal er á frönsku, en
texti á dönsku.
Meiri þáttaka í cSstnsSaga-
keppni SKT en nokkru sinni.
Alls bánist hvorki meira né minna
en 132 lög, jiar af 58 valsar.
Þátttaka 1 danslagakeppni
SKT hefur orðið meiri í ár en
nokkur sinni, að því er Frey-
móður Jóhannsson tjáði Vísi.
Frestur var útrunninn 15.
janúar, en framlengdur til
mánaðamótanna síðustu. Þá
höfðu borizt hvorki fleiri né
færri en 132 lög, en til saman-
burðar má geta þess, að í fyrra
urðu lögin 104. Er sýnilegt, að
nóg er til af fólki, sem hefur
yndi af dægurlögum og dans-
músík og hefur gaman af að
búa til lög um þau efni.
Dómnefndin hefur nú lögin
til meðferðar, og er tekin ao
vinna úr þeim. í henni eiga
þeir sæti: Carl Billich, Þor-
valdur Steingrímsson og Bjarni
Böðvarsson, allt þjóðkunnir
tónlistarmenn.
Síðan er svo ráð fyrir gert,
að úr þessum 132 lögum verði
vinzuð 32, sem til greina koma
í keppninni. Á næstunni verð-
ur tekið til við að æfa lögin,
en sjálf hefst keppnin í fyrstu
viku næsta mánaðar.
Geta má þess, að valsar eru
í yfirgnæfandi meirihluta af
hinum aðsendu lögum, eða 58
samtals. Síðan koma tangóar,
foxtrottar, slowfoxar, en aðrar 1 mun
tegundir njóta minni hyllí
keppenda.
Margir textanna við danslög-
in eru sæmilegir, og má þakka
það danslagatextakeppni Út-
varpsins, sem síðan hefur látið
SKT fá textana. Af þessum
lögum eru um 30 við texta,
sem Útvarpinu barst.
Að lokum má geta þess, að
lögin, sem hlutskörpust urðu í.
keppni SKT í fyrra og hitteð-
fyrra, virðast hafa náð miklum
vinsældum landsmanna.
Herflutningaskip
í föstum ferðum.
Foringjadýrkun
Dana er of mikil.
Bodil Koch, kirkjumálaráð-
herra Dana, hefur komið mikl-
um umræðum af stað í Dan-
mörku.
Frúin hefur látið svo um
mælt, að foringjadýrkun Dana
væri of mikil, og fólk hugsaði
almennt ekki nógu sjálfstætt.
í öðru lagi hefur kirkjumáía-
ráðherrann gert fremur lítið úr
kristindómsfræðslunni. Fjöldi
fólks hefur lagt ummæli frú-
arinnar þannig út, að hún vilji
eyðileggja allan aga, m. a. á
vinnustöðum og þó einkum í
skólum. Frúin hefur hinsvegar
bent á, a ðallmikill munur sé á
foringjadýrkun og eðlilegri
hlýðni.
Akveðið hefur verið að her-
flutningaskipið USNS Pvt. E.
II. Johnson verði í förum millí
New York og Reykjavíkur.
Mun skipið artnazt liðs- og
birgðaflutninga fyrir varnar-
liðið á Keflavíkurflugvelli.
Fyrsti áætlaði komudagur
skipsins hingað til lands er 10.
febrúar n. k. og burtför dag-
inn eftir þann 11. Síðan mun
skipið koma hingað reglulega á
h. u. b. 23 daga fresti.
Flutningar þeir, sem skipið
annazt eru venjulegir
) liðflutningar, og hafa þessir
flutningar áður farið fram loft-
leiðis. Skipið fly+ur vamarliðs-
menn hingað, sem leysa af
jafnmarga liðsmenn, sem fara
með skipinu til baka og mun
þetta því að sjálfsögðu ekki
hafa nein áhrif á tölu vamar-
liðsmanna hér á landi.
Ferðaáætlun Elísabetar
drottningar og manns henn-
ar um Nýja Suður-Wales
hefur verið breytt, til þess
að létta hin opinberu skyldis
störf drottningar.
Stálframleiðslan í Bretlandi
var meiri í síðastliðnum
mánuði en hún nokkum
tíma hefur áður verið í jan-
úar.
) 20 menn, þeirra meðal 2
konur, hafa verið dæmd í
1—15 ára fangelsi fyrir
samsæri gegn Francostjóm
inni.
Verftlækkuniii ber
þegar árangur.
Nýlega lækkaði verð á trú-
lofunarhringum í Bretlandi um
eitt pund.
Aðleiðingin varð sú að ó-
venjulega mikill fjöldi fólks
trúlofaðist og dálkar blaðanna
fylltust a£ trúlofanafréttum.
Egyptar og Rúmenar hafa
sarnið um viðskipti, sem nexna
23 millj. kr. á ári.
T ónlistarviöburður.
Amerísk sinfóníuhljómsveit
leikur hér.
Eins og Vísir gat um í sl. viku, hann kom einnig hingað í fyrra.
er væntanleg á næstunni fjöl- Hann er geysifær tónlistarmað-
menn og vel skipuð hljómsveit ur, enda yfirmaður tónlistar-
bandaríska flughersins. j mála bandaríska flughersins,
Það er Tónlistarfélagið, sem j sem hefur á sinni könnu 90—
annast undirbúning að komu 100 hljómsveitir víða um heim.
hljómsveitarinnar, sem má vera 1 Ágóði af tónleikunum, sem
músikvinum fagnaðarefni, þar ■ fara fram í Þjóðleikhúsinu á
sem hér er um að ræða full- j mánudags- og þriðjudagskvöld,
komna symfóníuhljómsveit 84 j rennur til SÍB.S.
manna, og þá stærstu, sem hér j Björn Jónsson, framkvæmda-
hefur leikið. Geta má þess, að stjóri Tónlistarfélagsins, gat.
í hljómsveitinni, sem hingað þess við blaðamenn í gær, að
kom í fyrra, voru engin strengja með hljómsveitinni yrðu tveir
hljóðfæri, en þessi er sem sé einsöngvarar, þeir William
búin öllum þeim hljóðfærum, j Jones, bariton, og William Du-
sem notuð eru í symfóníuhljóm Pree, tenór. Þá mun Guðmund-
sveit, en auk þess eru þar tvær j ur Jónsson syngja með henni,
hörpur, og mun mörgum þykja og mun sá þáttur ugglaust verða
nýnæmi að heyra leikið á það .mörgum sérstakt fagnaðarefnL
hljóðfæfi. j Þá er ráðgert, að Róbert A.
Stjómandi hljómsveitarimiar ’ottósson muni stjóma einu
er George Howard ofursti, en i verki, sem hljómsveitin flytur.