Vísir - 26.05.1954, Síða 5

Vísir - 26.05.1954, Síða 5
Hiðvikudaginn 26. maí 1954 TfSIB Mwéff Málverkasýning ’ * • Orlygs SigurðsscMiar. Fyrir nokkrum dögum Ias ég í Morgunblaðinu grein um mái- verkasýningu Örlygs Sigurðs- sonar, eftir hr. Valtv Pétursson jþar sem hann lagði Örlyg nið- itur við sitt dómaratrog og skar hann þar — svo að Örlygur á sér ekki viðreisnarvon fram- ar, nema bví aðeins að hann snúi frá villu síns vegar og mnáli hér-eftir eftir recepti hr. Valtýs Péturssonar. Eftir að hafa lesið áfellisdóm- inn gerði ég mér erindi á sýn- ingu Örlygs Sigurðssonar að sjá verk hans þar, og verð ég aðj segja að ekkert tilefni fannst mér þau gefa til hins harða dóms hr. Valtýs Péturssonar í Morgunblaðinu. Þvert á móti voru þar ágætlega unnin verk, sem töluðu skýru máli — þar sem vel var leyst úr þeim við- fangsefnum, er málarinn hafði tekið sér til úrlausnar. M. a. sanna andlitsmyndir hans það, að Örlygur verður að teljast til okkar færustu mál- ara í þeirri grein og þó ekki væri nema vegna þess eins fell- ur hinn harði dómur hr. Valtýs Péturssonar á sjálfan hann en 'ekki Örlyg. Það ískyggilega fyrirbrigði hefur gerst á sviði málverka- listarinnar hér að upp hefur komið hópur myndagerðar- maima, sem hefur skírt fram- leiðslu sína „nútímalist“ og dregið af því þá ályktun að þeir séu „nútímalistamemV'. Þeir virðast margir hafa mjög takmarkaða kunnáttu og menntun og eru nógu ósvífnir til að gefa í skyn að þeirra stefna sé sú eina sem gildir og að allar aðrar stefnur séu dauð- ar og úr sögunni, en þeir einir séu hinn sanni vaxtarbroddur málverkalistarinnar. Menn sem kalla sig listfræðinga , taka í sama streng og virðast ætla að, koma á einstefnuakstri á sviði listarinnar — og komið hef ég á samsýningu 5, „nútímamál- ara“ í Listamannaskálanum, þar sem öll verkin voru að heita mátti eins og þau væru eftir einn og sama mann. Var það furðu óhugnanlegt, m. a. þar sem enginn þeirra virðis1 geta teiknað nema með reglu- striku. Línur og fletir og ekki annað — og yfir þetta blessuðu listfræðingarnir í dálkum Morgunblaðsins og Þjóðviljans. Margir af þessum „nútíma“- málurum hafa komið úr sölum Handíðaskólans, þar sem kenn- 1 ararnir hafa strita > við að kenna þeim að mála- myndir af engu — abstrakt —1 áður en þeir höfðu lært, einföldustu teikningu, og efíir eins eða tveggja vetra dvöl í skólanum hafa þeir svo siglt til framandi landa og haldið áfram að mála myndir af engu þar. Þeir hafa fengið inngöngu í félag myndlistamanna og með meirihlutavaldi komist í stjórn- ir og sýningarnefndir og ofl útilokað eldri kunnáttumenn frá þátttöku í sýningum á ís- lenzkmn málverkum, innan- lands og utan; með þeim.ár- angri að sýningarnar gefa. ranga mynd af íslenzkri mál- aralist i dag. Blöðin hafa þeir látið flytja látlausan áróður fyrir sinni „nútimalist" — enda þótt illa hafi gengið að ráða niðurlögum heilbrigðrar skyn- semi alþýðunnar hér á landi á þessu sviði. Doktorar og aðr- ir lærdómsmenn hafa verið fengnir til að docera um ,,nú- tímalistina“ á sýnfngum og hljóðfærasláttur auglýstur þar, og boðið til umræðufundar á sýningunum, allt með litlum árangri, nema ef til vill nei- kvæðum, þvi að á sýningum eru það verkin sjálf, sem eiga að tala, en ekki mennirnir. En þau hafa í mörgum tilfellum verið ómælandi — og þvi hefur upphafsmönnum þeirra þótt nauðsynlegt að viðhafa ýmis- konar bægslagang í sambandi við sýningar á þeim. Aðrar sýningar málara, sem ekki fylgja „nútímalistinni“, eru • oft annað hvort látnar af- skiptalausar eða fordæmdar. Eins og t. d. sýning Örlygs Sigurðssonar nú. A henni eru þó mörg heiðarleg verk, erfið viðfangs, sem leyst er vel og samvizkusamlega úr, bæði í stórum og smáum atriðum. Ég get ekki stillt mig urn að taka orðréttan kafla upp úr stóra- dómi hr. Valtýs Péturssonar i Morgunblaðinu 15. maí: „Þessi sýning Örlygs sannar ekki hæfileika hans sem mál- ara. Hann virðist enn sem kom- ið er ekki vera farinn að glíma við viðfangsefnin af alvöru og festu, en lætur sér nægja yfir- borðið og léttvæga myndagero. Litameðferð hans er þung og hljómlaus og tilfinning hans fyrir eðli lita og forms er óljós. Myndbygging hans er laus og ekki byggð af næmleik og kunnáttu heldur alvörulaus og hroðvirknisleg." „Ég tel það óheiðarlegt gagn- vart Öríyjgi sjálfum að segja ekki sannleikann um þessa sýningu hans og vel því þann kostinn að benda honum á, að sú leið, sem hann hefur valið leiðir ekki til mikilla af- reka og virðingar á komandi tímum. Vonandi á hann eftir að átta sig á leyndardómum listarinnar og snúa baki við innantómum lofrollum vafa- samra sérfræðinga.“ Sem betur fer er svona mikill gorgeir sjaldgæíur. Einn hinna „vafasömu sérfræðinga'" hlýtur að vera Jóhannes Kjar- val, sem skrifaði vingjarnlega Vun sýníhgú Örlygs í Morgun- bl§ði3 12. maí. Allt þetta „nútímalistar“tal ,,nútímalisíamanna“ getur ef til vill blekkt einhverja og fælt um stundarsakir. En annars er „ljósi púnkturinn“ í þessu öllu sá að heilbrigð alþýða lætur ekki svo auðveldlega blekkjast. Enn er í fersku minni útreið sú, sem listfræðingur Þjóðviljans fékk á málverkasýningu V'etur- liða Guðmundssonar fyrir nokkru. Á sýningu Örlygs Sigurðs- sonar voru 40 myndir og af þeim voru seldar 20 er. ég kom þar í gær. Bendir það jafnvel til þess að almenning- ur líti frekar á stóradóm hr. Valtýs Péturssonar í Morgun- blaðinu sem tilraun til að hnekkja hans atvinnu, heldur en sem það eina og sanna í málinu, og lítur á það sem ágæta auglýsingu. 20. maí 1954. Ragnar Ásgeirsson. Hvað viltu vita? Vigfús spyr: Er bað rétt sem stendur í grein í „Ný Tíðindi“, að Finnar geti ekki lengur gert sig skiljanlega á sænsku þann- ig að það hái viðskiptum þeirra við aðrar þjóðir. Svar: Þetta er ekki rett. Um það bil þriðji hver íbúi Finn- lands getur gert sig skiljan- legan á sænsku og allt að þvi 400.000 Finnlandssvíar búa i landinu og er sænska móðui- mál þeirra. Finnskir verzlunar- menn tala oftast auk finnsku og sænsku einnig þýzku eða ensku og allmargir frönsku. Leikhúsgestur spyr: Getur Vísir sagt mér hver hafi skrifað Gimbil, sem nú er sýndur , Iðnó? Svar: Því miður hefur Vísh’ ekki leyfi höfundar til þess að birta nafn hans, en sennilega segir hann til sín sjálfur þegar stundir líða. ■ Ljóðelskur spyr: Hvar get ég fengið „Norræn söguljóð“ í þýðingu Matthíasar Jochums- sonar“? Svar: Þau ættu að vera á boðstólnum í öllum bókabú^- um. Síðasta útgáfan kom út 1949 og er ekki uppseld. Garðeigandi spyr: Hvar get ég fengið spírað útsæði? Svar: Það getið þér fengið i Grænmetisverzlun ríkisins. Fimmtán ár drengur spyr: Getur Vísir sagt mér hvad ritstjóri tímaritsins Afbrot heitir? Svar: Því miður getur Vísir ekki sagt þér hver hann er. Ritstjórar sakamálarita láía ekki nafns síns getið. S.S. spyr: Er það réít að Finnar hafi gert mjög merki- legar rannsóknir á mismun- andi áhrifum öls og sterkari drykkja á fólk? Svar: Þetta er rétt og eru niðurstöður finnsku vísinda- manna gagnmerkar. uðurinn hafði yfir að ráða, m. a. höfðu allir gluggar kirkj- unnar verið kíttaðir og málaðir og rafmagnsofnum komið fyrir í fordyri kirkjunnar, skrifstofu- fundar og búningsherbergjum. Kostnaðinn af þessum fram- kvæmdum höfðu félögin innan safnaðarins borið og þakkaði formaður þessum aðiljum fórn- fúst starf. Látið hafa af störfum hjá söfnuðinum Bergsteinn Krist- jánsson gjaldkeri og Árni Magnússon kirkjuvörður og við starfi gjaldkera tók Njáll Þó>'- arinsson stórkpm., en frú Laufey Guðmundsdóttir við starfi kirkjuvarðar. Árni Magnsson verður áfram hringj- ari kirkjunnar. Úr stjórn safnaðarins áttu að ganga að þessu sinni skv. lög- unum, formaður, tveir safnað- arfulltrúar, og einn varasafnað- arfulltrúi og voru þeir allir einróma endurkjörnir, en stjóirr safnaðarins skipa nú: J. Bjarri Pétursson frkvstj. formaður, Kristján Siggeirsson húsg.smm. varaformaður, Magnús J. Brynjólfsson kmp. ritari, Þor- steinn J. Sigurðsson kmp, Kjartan Ólafsson varðstj., og frúrnar Ingibjörg Steingríms- dóttir og Pálína Þorfinnsdóttm, en varasafnaðarfulltrúar eru þeir: Þorgrímur Sígurðsson skipstjóri og Valdimar Þórðar- son kmp. í fundarlok var presti safn- aðarins færðar sérstakar þakk- ir fyrir vel unnin störf, sem ekki hvað sízt hafa birzt í mjög góðri kirkjusókn og örutn vexti safnaðarins. Var fundi síðan slitið með því, að fundarmenn sungu saman sálmversið: Son Guðs ertu með sanni. Fundarstjóri var Óskar Bj. Erlendsson lvfjafræðingur. Berklavörn Reykjavík Farið verður í Heiðmörk kl. 2 e.h. á morgun (Uppstign- ingardag) frá skrifstofu S.I.B.S. ^JdárareJó litda rarcjretöó Uiclama óskast í hárgreiðslustofu á Keflavíkurílugvelli. Upplýsingar í sírna 2462 eftir kl. 7 í kyöld. Stulku vantar' á Kópavogshælið nýja frá 1. júní til að leysa af í sumar- fríum. Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkona, sími 3098. Jarðarberjaplöntur seldar í dag Atvinnudeild Háskólans ^VVSiVVWWVVVVVWWWJVWVWtfWVSWVVWWWWWW Aðalfundur Frí- kirkjusafnaðarins. Aðalsafnaðarfundur Frí- kirkju.safnaðarins 1 Reykjavík var haldinn sunnudaginn lö. maí s.l. að aflokinni guðsþjón- ustu í kirkjunni. í upphafi fundarins minni- ist prestur safnaðarins, sr. Þorsteinn Björnsson, látinna safnaðarmanna, en fundarmer-i risu úr sætum og vottuðu minningu þeirra þakklæ’ti sitt og virðingu. Formaður safnaðarstjórnar innar, J. Bjarni Pétursson frkvstj., flutti ýtarlega skýrslu um starf safnaðarins ;s.l. starf ár. Hafði- verið ráðist í ýmsar verkelgar framkvæmdir, þrá't *fyrir takmarkað fé, sem söfn- ir f .•JÍ.V.Va, ' ! PiÍKsbiuýs Hmm XXXX •• Baksturinn tekst BEZT með | EKEICHWnjjf i -æzsS' | BEZT hveiti (efnabætt) JFramleitt tit ulhliðu nuthunur Avallt hreint. — Avaíít nýtt. — Ávallt sama gæðavaran, Wretnstu hveititegfundin

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.