Vísir - 03.07.1954, Blaðsíða 7

Vísir - 03.07.1954, Blaðsíða 7
Laugardaginn 3. júlí 1954. VÍSIR PAVAV.V.V.VAV/.V/W/AV.V/.'.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W £•»••••••••••••»«»•♦♦»••♦* •♦ »♦•••»•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• — 9BBB aa oooo » OHiD ijj OOOO \M OOOO OOOO |jjjj ODOO ■ OOOO jgj OOOO £ ChfiHH ieit ÁÍHa | &*■ |o Sl í:s $1 %:5 1- fs K Blfll S:j: Eitir W. van Wfgck Mason. =•:• 96 -I V ■ ••• _ ■■■■ y ■■■■ ii|j| ■■■■ nin ■■■■ |HH ■■■ ■■ nt|j ■■■■ gg ■■■■ gg ■■■■ 5B ■■■■*!* „Eg þori að veðja um það, Tom, að við verðum komnir inn í þetta virki eftir tíu mínútur.“ „Þagnið, ef ykkur er annt um líf ykkar,“ hvæsti einn foringj- áhlaupið byrjaði. Vonandi tækist ekki svo illa til, að nokkur þeirra manna biði bana. Allt í einu var gefið merki um að nema staðar. „Við höfum ekkert okkur til hjálpar að komast upp virkis- vegginn,“ hvíslaði Offut að þeim, sem næstir stóðu, „við verð- um að skríða upp eftir bökum hvers annars.“ Nú var skotið fyrstu sprengikúlunni, svo annari, og þegar þeirri fimmtu hafði verið skotið kreppti hver maður hönd fast um byssuskefti og hólk. Sjöttu sprengikúlunni var miðað fullhátt, en í glampanum, er hún sprakk, sást virkið vel. „En avant, áfram,“ var kallað. Það var Gimat hinn franski. „Áfam, áfram,“ grenjaði Offut til manna sinna. Og allur hermannaskarinn rak upp ferleg óp og svo æddu menn fram með brugðnum byssustingjum. Og næstum fyrr en nokkurn varði voru þeir fremstu komnir að virkisgarðinum og lögðust að veggnum, en hinir klifruðu upp eftir bökkum þeirra og upp á virkisvegginn, en þar var lítið um mótspyrnu, og gegnum reykinn sá Offut einhverjar verur óljóst, en engir vaskir menn réðust gegn þeim. Fát og felmtur hafði gripið þá, sem eftir voru, og báðust þeir vægðar, en því miður hafði meginhluti varnarliðsins komizt undan, en virkið, sem var mikilvægt, var á valdi bandamanna, en aðeins níu menn höfðu beðið bana af liði þeirra og um tuttugu særzt. Um 45 Englendingar gáfust upp. Hamilton skipaði svo fyrr, að manna þegar allar fallbyssur virkisins. „Hafið hraðan á,“ kallaði hann. Fjandmennirnir munu koma aftur.“ Virki nr. 9. Meðal manna sinna í fremstu víglínu fyrir framan virki nr. 9 var de Lameth. Vamarskothríð Englendinga og hins þýzka málaliðs þeirra var hin ákafasta. „Skjótið, sækið fram,“ kallaði de Lameth og eggjaði menn sína til dáða. Og samtímis hrópuðu þeir: „En avant. En avant. Vive le Roi.“ „Loks, höfuðsmaður, sækjum við fram, lifi konungurinn,“ kallaði undirforingi nokkur, en varð fyrir skoti í sömu svifum og greip báðum höndum um háls sér, riðaði og féll til jarðar í blóði sínu. En Deux Ponts herdeildin sótti fram, þrátt fyrir skothríð og reyk. Héctor de Lameth reyndi að sjá hvað fram- undan var. Skyldi föður hans hafa liðið eins við Minden og honum núna? Nú sá hann menn sína falla, marga þeirra. Hann sá marga hika, og hann kallaði eins og forfeður hans höfðu gert við Crecy og Agincourt: „En avant? Pour Dieu et Saint Louis.“ Hann hnaut um fallinn hermann og var að staulast á fætur, er honum fannst sem logheitu járni væri stungið í mjöðm sína. En hann sótti fram, haltrandi, veifandi sverðinu, hrópandi eggj- unarorð. Guði sé lof, sumir manna hans voru komnir upp á virkisvegginn. Og fyrr en hann varði var hann sjálfur kominn þangað, en þá snerist gegn honum þrekvaxinn riddaraliðsmað- ur úr fjandmannaliðinu með brugðinn byssusting: „Þið skuluð fá að kenna á því, þið frönsku dansmeistarar!“ De Lameth gat vikið sér undan laginu og rak sverðið í háls honum, en annar fjandmaður var kominn að honum og notaði byssuskefti sitt sem barefli og greiddi de Lameth slíkt högg með því í síðuna, að honum sortnaði fyrir augum og hann hneig niður. Andartak fannst honum hann vera að hrapa í dimma og djúpa gjá og svo vissi hann ekkert framar. Læknar ráða ráðum sínum. Hvorttveggja var, að árásin kom Bretum óvænt, og að her- stjórn þeirra fyrirskipaði ekki gagnárás. Þess vegna stóðu enn auð sjúkrarúm í sjúkraskýlum handamanna. Enginn, hvorki í hópi lækna né yfirmanna, hafði búizt við svo litlu manntjóni, sannast að segja var það svo lítið, að Pétur Burnham skamm- aðist sin hálft í hvoru fyrir að hafa yfirgefið hina særðu og sjúku menn, er í hans umsjá voru. Dubois skurðlæknir og aðstoðarmenn hans gátu sem bezt ann- ast þá 60 menn, sem særzt höfðu. Meðal hinna særðu voru að- eins þrír liðsforingjar. Einn hinna ungu, særðu liðsforingja vakti sérstaka athygli Péturs Burnhams. Hann var ungur maður, grannur og glað- legur. Pétur var að reyna að gera sér grein fyrir sárum hans er Dubois kom. „Ah, hann er ekki að barma sér þessi piltur, hann de Lameth,“ sagði Dubois. „Hann hefir fengið byssukúlu í vinstri mjöðm og svöðusár af sverðslagi á hægri öxl.“ * y BRIDGEÞÁTTIIIR V * ♦ ♦ f visis Eaasn á Bridge-þraut: A Á-D-10-5 V 9-5-2 ♦ K-7-4 * K-7-4 A 8-6-4 V K-10-8-6-4 ♦ G-8-3 * D-2 A K-7-2 V D-G-7 ♦ D-10-9- * 10-8-3 V G-9-3 V Á-3 ♦ Á-6-5 * Á-G-9-6-5 606% aukning vöruflutninga hfá Loftleiðum. í mánuðinum sem leið fluttu Loftleiðif fleiri farþega og meiri varning og póst Ianda milli en nokkru sinni fyrr i sögu félagsins. Fluttir voru 1344 farþegar, rúm 11 tonn af flutningi og tæplega 2 og hálft tonn af pósti. Á sama tíma í fyrra voru ekki fluttir nema 617 farþegar svo að aukningin á farþegafjólda er nú 117.8% og ekki nema rúmt tonn af pósti. Mesta breytingin hefur þí orðið á flutningi ýmis konar varnings, en þar hefur aukn- ingin orðið 606%, miðað við sama tímabil síðast liðið ár og er það ein af augljósum sönn- unum þess hvert stefnir, því að nú er svo komið að margvís- legur varningur, sem fyrir ör- fáum árum var eingöngu flutt- ur á sjó yfir úthöfin er nú færður frá seljendum til kaup- enda með flugvélum. Loftleiðir munu halda uppi þrem ferðum í viku yfir At- lantshafið með viðkomu Reykjavík þangað til 1. október næstkomandi. Gera má ráð fyr- ir að ef tir mánaðamótin október —nóvember verði einhver fækkun á ferðum, en óráðið er þó enn hve mikil hún verður. Fullskipað hefur verið í öll- um ferðum félagsins að undan- förnu austur yfir Atlantshafið, en fyrir hefur komið að nokkur sæti hafa verið laus í Ameríku- ferðunum. Gera má ráð fyrir að á því verði breyting ' þe'ss- um mánuði því að bandarískt ferðafólk, sem farið hefur tií Evrópu í sumarleyfi er nú tekið að búa sig til heimferðar, og meðal þess hafa vinsældir Loftleiða farið stöðugt vaxandi. Suður spilar 3 grönd, en út- spil V. er hjarta sex, er austur drepur með gosa. Hvernig er bezt fyrir suður að spila? Suður sér að hann á aðeins sex örugga slagi og í hjarta að- eins eina fyrirstöðu. Eigi austur drottningu aðra eða þriðju í laufi fer hann langt með spilið, ef hann svínar, og eigi vestur spaða kóng fást fjórir slagir á spaða með því að svína, enda þótt kóngur væri fjórði. En í báðum tilfellunum er teflt á tæpasta vaðið, því sé lega spil- anna öðru vísi en gert er ráð fyrir fer illa. Það eru sex spað- ar hjá andstæðingum og fimm lauf. Sex spaðar eru oftast- skiptir 4—2 og fimm lauf 3—2. Það er því möguleiki á því að lauf drottning sé önnur. Bezta leiðin er því að reyna að spila ás og kóng í laufi, og falli drottningin ekki, að reyna spaðann. Með þessari aðferð eru vinningsmöguleikar suðurs reyndir, og er þá ekkert við því að gera, ef spilalegan er öli gegn honum. Grískir kafa við Astralíu. ' Melbourne (AP). — Ástra- líumenn reyna nú að beitg grískum köfurum ; samkeppn við Japani um perluveiðar. Hafa verið ráðnir nokkriv svampakafarar frá Grikklandi, og verða þeir á periuveiða- skipum Ástralíu undan Darwin næstu mánuði Er þetta til- raun til að lífga perluveiðar Ástralíu, sem hr fur hrakáð tií muna. Copr. lí50.Edg#f Rlce Burrou|h*,Inc,—Tm. Rrg.V 8.P»l Oft Dlstr. by United Feature Syndlcate, Inc. £. £u?H>u(fkA: Að fok'uni gerði f’ökkueðli hoo oji, •■ið sig itg fanri benti d Kasu’la Nokkraj- þegna sin' i þeirra veg ' \sr ivjildi Tarzan meðal ■: évann sér aðdáun hraysli sinnar. ■ m foringja flokksins í fjárveru sinni og kvaddi þá. Og þannig yfirgaf hann hið kyrr- látá líf, án þess að g ■> pað að forlögin væru að letðá ;mn i ótrú- ioguátu ævintýri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.