Vísir - 03.08.1954, Blaðsíða 8
YÍSIB cr idýraata blaðíð ag bó það f|8i-
brayttacte. — HrtagiS f *{m* 12(1 tg
gerist áskrifendur.
WXSXR
Þeir *em gerast kaupendur VtSIS eftii
19. hvers mánaðax fá biaSiS ókeypi* tÞ
mánaSamóta. — Sbni 1(32.
Þriðjudaginn 3. ágúst 1954
Frá fiskimálaráðstefnunni. Davið Ólafsson fiskimálastjóri er i
ræðustól, og Ólafur Thors forsætisráðherra situr til hægri.
KataliMafhigbátnum, sem lask-
aðist á Þórshöfn í maí,
flogið til §aullárkrók§ í fyrri nóft
og hingað í morgun.
Mendes-France hefír lofað
Tunisbiíum helmastjórn.
Ný stjórn mynduð í Tunis,þar
sem tillögunum er vel tekið.
Katalinaflugbáturinn, sem
laskaðist á Þórshöfn laust eftir
miðjan maí og var fyrst í stað
talinn ónýtur, er nú kominn til
Reykjavíkur.
Var honum flogið frá Sauð-
árkróki hingað í morgun og var
lent kl. rúmlega hálfátta. Flug-
bátur þessi er nú eign Flug-
málastj órnarinnar.
Flugbátur þessi, sem var eign
Bandaríkjaflotans, lenti á Þórs-
höfn til þess að sækja menn
nokkra, en lenti á bát og lask-
aðist þá stýrið. Það leiddi aftur
til þess, að hann rakst á sker
og var að því kominn að sökkva
og var hleypt upp í stórgrýtis
urð og talinn ónýtur. Svo gerð-
ist það, að 'Flugmálastjórnin
kaupir flugbátinn til þess að
Pestin barst með
argentísku kjöti.
London (AP). — Opinber
rannsóknarnefnd hefir kom-
izt að niðurstöðu um þaff,
hver sé orsökin fyrir þvi, hve
gln- og klaufaveiki var skæð
nýverið 4 landinu.
Hefir nefndin skýrt svo frá,
að það sé nautakjöt frá Argen-
tínu, sem eigi sök á þessu, og
hafi verið leitað til stjórnarinnar
þar um að strangara eftirlit
verði haft með kjöti, sem flutt
verður úr landi framvegis. Hefir
SArgentínustjórn heitið því.
10 drepnir um helgina
í Marokkó.
í Einkaskeyti frá AP. —
París í morgun.
Þrír menn biðu bana í Mar-
okkó í gær, er öryggissveitir
skutu á múg manns, en alls
hafa 10 menn beðið bana þar
í Iandi um hclgina í uppþotum.
Það var orðrómur um, að hinn
útlægi soldán væri í þann veg-
inn að koma aftur, sem kom
orðrómnum af stað. — Það var
i 1—2000 manna hópur, sem
skotið var á * 1 gærkvöldi, og auk
þeirra sem biðu bana, særðust
margir af ldum skothríðar-
ínnar.
bjarga honum og gera við hann,
ef unnt væri, og stóðu fyrir
björgunarstarfinu fyrir hönd
hennar þeir Sigurður Jónsson
og Haukur Claessen, en flug-
vélaeftirlitsmaður flugmála-
stjórnarinnar, Mr. Wall, hefur
séð um bráðabirgðaviðgerð með
aðstoð flugvélavirkja frá Flug-
félagi íslands.
í fyrrinótt flaug Björn
Pálsson til Sauðárkróks
og þaðan til Þórshafnr
ar með Aðalbjörn Krist-
björnssón flugmann, sem er
flugmaður á Grummanflugbátn
um, sem staðsettur er á Sauðár-
króki til síldarleitar. Vegna
starfs síns hafði flugmaðurinn
aðeins nokkrar klukkustundir
til umráða. Komið var til Þórs-
hafnar kl. um 6 í gærmorgun
og lagt af stað þaðan um há-
degi. Fylgdi B. P. flugtaátnum
til Sauðárskróks lenti flug-
báturinn þar klukkan 13,10,
en B. P. hélt áfram
suður. í flugbátnum með Aðal-
birni var vélamaður frá Flug-
fél. íslands. Aðalbjörn flaug svo
flugvélinni hingað í morgun og
er hinn nýi flugbátur íslend-
inga nú á flugvellinum og bíður
fullnaðarviðgerðar.
12,000 manns við
bátíðahöld VR
í Tívolí.
MikiS fjölmenni var á há-
tíðahöldum verzlunarmanna í
Tivoli um helgina, og munu
hafa komið bangað samtals inn
12.000 manns á laugardag,
1 sunnudag og mánudag.
Flest var fólkið í Tivoli í
gærkvöldi en þá kom þangað
6000 manns. Hátíðahöldin fóru
mjög vel fram og var sáralítið
um ölvun.
Skemmtiatriði voru alla dag-
ana, bæði loftfimleikar, dægur-
lagasöngur, gamanþættir og
fleira, og dansað var á palli öll
kvöldin. í gærkvöldi voru stór-
fengleg flugeldasýning, er fóxk
gerir góðan róm að.
Loftfimleikafólkið, sem her
hefur skemmt að undanförnu
mun fara utan með Gullfossi a
laugardaginn og eru því aðeins
örfáar sýningar eftir.
Einkaskeyti frá AP. —
Paris í morgun-
Beyinn af Tunis hefur skipað
sem forsætisráðherra mann úr
flokki hægfara þjóðernissinna
og er hann nú að ganga frá
ráðherralista sínum. — Mun
stjórnin vart verða fullmynduö
fyrr en eftir nokkra daga.
Ný stjórn er mynduð
vegna stjórnarbótar þeiri-
ar, sem Mendes-France
hefur heitið Tunis, þ. e.
heimastjórn, sem sé ein-
göngu skipuð Tunismönnum og
þing, þar sem aðeins sitji full-
trúar Tunis, en utanríkis- og
landvarnamál séu áfram í
höndum Frakka. — Mendes-
France flaug sjálfur til Tunis-
borgar til þess að ræða tillög-
umar við beyinn. Hefur tillög-
unum verið vel tekið í Tunis
og jafnvel leiðtogi róttækra
þjóðernissinna hefur lýst yfir,
að hann muni hafa, ásamt fylg-
ismönnum sínum sanivinnu við
hina nýju stjórn.
Þáttaskipti —
innanlandsfriður.
Almenrit er talið, að með til-
lögunum verði þáttaskipti i
sögu Tunis. Að því vek beyum
i ávarpi til þjóðarinnar, um
leið og hann tilkynnti val hins
nýja forsætisráðherra. Hann
kvað tilboð Mendes France
gert af góðum hug og nú ættu
allir að leggjast á eitt og um-
fram allt varðveita friðinn. —
Margt virðist benda til þess
að dieselbilar eða bílar, sem
brenna hráolín í stað benzins
eigi mikla íramtíð íyrir sér
vegna þess hve ódýrir þeir eru
í rekstri. .
Á bílasýningu Ræsis h.f. voru
m. a. sýndir bílar, sem notuðu
eingöngu hráolíu. Á sunnudag
var efnt til reyrisluferðar um
einhverja erfiðustu vegi nær-
liggjandi sveita til þess að
ganga úr skugga um hvernig
Mercedes Benz vagnar reyndust
á íslenzkum vegum og um leið
að athuga hver eyðsla þeirra
væri. Tíðindamaður Vísis var
með í för þessari.
þrír bílar.
1 ferðinni vor þrír Mercedes
Benz bílar: Mercedes Benz 300,
T36 hestafla benzín vagn, Mer-
cedes Benz sportbíll „ 0“ og
Hvalfjörð um Dragháls og síð-
an Uxahryggi um þingvöll til
Reykjavíkur. Tveimur bílanna
óku sérfræðingar frá Mercedes
Benz-verksmiðjunum, er áttu að
gera ahuganir á því, hvori þörf
væri á styrkingu eða hreyting-
um á einhverju hlutum vagn-
anna til notkunar á íslandi.
það kom í ljós að allir voru
vagnarnir mjög sparneyttnir.
í Frakklandi er Mendes-France
talinn hafa allan almenning
með sér, en ýmsir í hægri
flokkunum taldir mótfallmr
tillögunum, og að jafnvel í
flokki róttækra (flokki M. Fr.)
kunni að vera menn, sem ekki
vilja fara þessa leið og loks
séu menn í MRP-flokknum,
sem enn séu gramir út aí
Indókína-málinu, muni greiða
atkvæði gegn Mendes-F'-ance í
þessu máli.
Deilan um McCarthy
fögd á hílluna í bili.
Einkaskeyti frá AP. —
Washington í morgun.
Deilan um McCarthy hefur
verið lögð á hilluna í öldunga-
deildinni og þar með hefur mál
ið að líkindum verið svæft
fram yfir kosningar í nóvem-
ber.
Það var Flanders öldunga-
deildarþingmaður, seiri bar
fram tillögu, þar sem McCarthy
var víttur fyrir að hafa gert
deildinni vanvirðu með fram-
komu sinni. Miklar umræður
urðu um hana, en er Know-
land, leiðtogi republikana, lagði
til að tillögunni væri vísað til
nefndar, þar sem republikanar
og demokratar eiga jafnmarga
fulltrúa, náði það fram að
ganga.
Dýrasti bílinn, Mercedes Benz-
300, eyddi benzíni fyrir kr. 87,10
á 317 km. eða 15,9 1. á hverja
100 krn. Hann kostar 129 þús-
und hingað korninn. Sportbíll-
inn, sem líka er benzínbíll, fór
með 13,7 1. á 100 krn. Dieselbíll-
inn Mercedes Benz 180 fór heldui'
lengri leið eða alls 332 knr. og
fór með í ferðalagið 23 1. af hrá-
oííu. Var eyðslan kr. 17,60 í pen-
ingunr, senr varla getur talizt
mikið. Á hverja 100 krn. fór bíll-
inn með 6,9 1. af hráolíu. Bíll
þessi kostar hingað kominn 68
þúsund krónur og virðist rnjög
hentugur til stöðvarkeyrslu.
þessir þýzku bilar eru mjög
vandaðir í alla staði og hafa þann
kost að þeir haggast varla, er
þeim er ekið, jafnvel á ósléttum
vegi.
Náðugir dagar hjá
slökkviliðinu.
Slökkviliðið hafði náðuga daga
um verzlunarmannahelgina, að
því er Slökkviliðið tjáði Vísi í
morgun.
Engar íkviknanir eða brun-
ar voru hér í bænum, og var
slökkviliðið aldrei kvatt út.
Erla Þorsteinsdóttir
syngur a5 Ja&ri.
íslenzka söngkonan Erla
Þorsteinsdóttir, sem unnið hef- .
ur sér miklar vinsældir > Dan-
mörku fyrir söng sinn, kom til
landsins í gærkvöldi, og hefur
verið ráðin liingað til hess affi-
syngja að Jaðri um tíma, en
þar kemur hún fram í fyrsta
sinn í kvöld.
*
Erla hefur nýlega sungið og
leikið inn á plötu hjá plötu-
fyrirtækinu „Obeon“ og tr
platan komin út fyrir viku sið-
an. Erla hefur dvalist um
tveggja ára skeið og vann þar
fyrst sem þjónustustúlka á
heimilum, enda kalla Danir
hana, „syngjandi stofustúlk-
una“, eftir að hún kom þar
fram sém söngkona, en hún
hefur víða ferðast um og sung-
ið. —
Fyrst kom hún fram i
skemmtiþætti danska útvarps-
ins „Göglervognen“, en sama
kvöld voru á dagskrá þattarins
ekki ómerkari „númer“ en
Hans Hedtoft, forsætkráðherr i,
Poul Reumert og Ib Schönberg.
Vakti Erla þá þegar mikiá
athygli fyrir söng sinn og gít-
arleik, en hún leikur sjálf undir
á gítar sinn, sem hún fékk í
fermingargjöf heima á Sauðár-
króki, en þaðan er hún ættuð.
Síðan hafa herini stöðugt borizt
tilboð víðsvegar að af landinu
um að syngja á samkomum og
í skemmtihúsum, og einnig frá.
plötufyrirtækinu „Obeon“. —
Bera blaðaummæli það með
sér, að Erla hefur hvarvetna
vákið athygli og unnid sér vin-
sældir, ekki sízt tyrir íslenzku
lögin sem hún hefur sungið
jafnframt þeim erlendu.
„HraÓfrystír" kálfar
fæðast í Svíþjóð.
Sænskir vísindamenn skýra
frá því, að fimm kýr, sem
voru frjóvgaðar á síðasta ári
með hræðfrystu sæði, hafi all-
ar borið á tilsettum tíma. Er
því fyrstu „hraðfrystu" kálf-
arnir sænsku búnir að sjá
dagsins Ijós, og þykir tilraun
þessi hafa gefizt ágætlega, þvi
að kálfamir dafna með eðli-
legum hætti. Sæðið er fryst
við vaxandi kulda, sem nær
mest 80° C., en efnum er
bætt í það til að verja sæðis-
frumurnar „losti“.TeIja menn
að hægt sé að geyma hrað-
fryst sæði um svo að segja
ótakmarkaðan tíma.
Mercedes-Benz-bílar prófa&ir á
vegum hér næríendis.
Díesel-bíll eyðir 23 I. hráollu
á 332ja km. leið. >