Vísir - 06.09.1954, Blaðsíða 1
VI
44. árg.
Mánuðaginn 6. september 1954.
201. tbl.
Banaslys við Hafnarfjörð í Rús§ar granda amerískri
ÞrítugurmaJur vari fyrir bifreið og hlaiit bana flngvél yfír J apansliaf Í.
Aðfaranótt sunnudagsins
varð banaslys skammt fyrir
norðan Hafnarfjörð, er maður
varð þar fyrir bifreið. Mun
hann hafa beðið samstundis
bana.
Maður þessi hét Magnús
Karl Lyngdal Þorsteinsson, 31
árs að aldri, sjómaður að at-
vinu og til heimilis að Hellu-
braut 9 í Hafnarfirði.
Slysið vildi til um eða laust
eftir kl. 3 aðfaranótt sunnu-
dagsins í brekkunni við Engi-
dal fyrir norðan Hafnarfjörð.
Samkvæmt frásögn bílstjór-
ans, en hann ók varnarliðsbíl
— svo og samkvæmt frásögn
farþega sem með honum voru
—- var bíll þeirra að koma úr
Reykjavík og var á suðurleið.
Segir bílstjórinn að þegar hann
hafi verið kominn að brekku- _____
rótunum að Engidalsbrekkunni
hafði hann séð hilla undir bíl
uppi á brekkubrúninni. Hafði
hann þá strax hægt ferðina,!
en í sama mund hafði maður
komið utan úr myrkrinu, þvert
í áttina fyrir bílinn og enda
þótt bílstjórinn
hafi það ekki dugað til, mað-
unn lenti fyrir bilnum og beið
samstundis bana.
Magnús heitinn lætur eftir
sig unnustu og tvö börn.
Stúfka týnist á berjamó í gær
Áranguslaus leit fram í myrkur.
Saknað er ungrar konu, sem
fór á vegum Ferðaskrifstofu
rikisins í bérjaferð upp í Hæk-
ingsdal í Kjós í gær, en kom
ekki að bílnum á tilteknum
tíma, þegaú lagt skyldi af stað.
Um 100 manns fóru í þessa
berjaferð á vegum Ferðaskrif-
stofunnar í gærmorgun og var
farið í 5 stórum langferðabíL
um. Var tilkynnt að lagt myndi
af stað kl. 6 síðdegis og yrðu
allir þá að vera komnir að bíl-
unum.
En þegar fólkið var sezt í bíl-
anna kom í ljós að stúlku vant-
aði, sem hafði verið með í ferð-
inni uppeftir. Var hús ein síns
liðs í rauðri kápu og ung að ár-
um, en annars vissi enginn
þátttakandi nein deili á henni.
Þegar stúlkan kom ekki fram
var þegar hafin leit um öll
berjalöndin fram í myrkur, en
er sýnt þótti að leitin myndi
ekki bera árangur var haldið
heimleiðis og lýst eftir stúlk-
unni í útvarpinu í gærkveldi.
Var jagnvel búizt við að hún
myndi hafa komizt í annan bíl
til Reykjavíkur fyrr um dag-
inn, því eitthvað var um
smærri fólksbíla upp við Hæk-
ingsdal í gærdag. Hafi svo ver-
ið er stúlkan vinsamlegast beð-
in að gefa sig fram við lögregl
una. Og eins eru aðstandendur
— ef stúlkan hefir ekki komið
fram og hennar er saknað —
beðnir að hafa samband við
lögregluna þegar í stað.
Knowland vill slíta stjórnniálasam-
bandinu við Ráðstjórnarríkin.
Einkaskeyii frá AP. Washington í morgun. —•
Bandaríkjastjórn hefur sení ráðstjórninni rússnesku orð-
sendingar íii þess að mótmæla tiiefnislausri árás tveggja rúss-
neskra MIG-flugvéla á bandaríska flotaflugvél, sem var á
fiugi yfir Japanshafi, og skutu MIG-flugvélarnar hana niður.
Hreppti
happdrættísbítmif.
S.l. föstudag var dregið í Happ,-
drætti Dvalarheimilis aWrað'a
sjómanna.
Koin vinningiírinn á númer
26,466. Eigahdi happdrættismið-
ans, þórir Hersveinsson, lög-
regluþjónn, Fjölnisveg 4 hreppti
því Chevrolett-bifreiðina.
þórir er maður á bezta aldri.
Hann hvað ætla að eiga bifreið-
ina til afnota fyrir sig og fjöl-
skyldu sína, þar sem hann hafi
ekki átt neina bifreið fyrir.
Lágt fiskverð í Þýzkalandi
vegna mikils framboðs og hita.
Röðull seldi ágætan afla fyrir aðeins
70 þúsund mörk s.l. laugardag.
B.v Röðull seldi ísfiskafla í
Cuxhaven á laugardag, 194 lest-
ir fyrir 70.136 mörk eða um það
bil 270 þúsund krónur.
Samkvæmt upplýsingum sem
Félagi íslenzkra botnvörpuskipa
eigeníia bárust fyrir helgina var
búist við lágu fiskverði, bæði
vegna mikils framboðs á fiski
og mikilla hita. Er ekki búist við
verðhækkun fyrr en kólnar í
veðri. Nú eru hitar á meginland-
inu sem í hitabeltinu, segir i
einni fregn.
Að því er Vísir hefur frétt var
Röðull með fyrsta flokks fisk. —
Svalbakur frá Akureyri selur í
Cuxhaven í dag. — Ingólfur Arn-
arson sem var að .veiðum fyrir
Þýzkalandsmarkað, landar í
Reykjavík i dag, og er með ó-
gætan afla, sem fer í frystihús
og skreið. Vegna þess hve fisk-
verðið i Þýzkalandi er lágt var
ákveðið, að landað væri úr tog-
aranum hér.
Júlí landar í Þýzkalandi um
miðja vikuna og verða svo ekki
fleiri landanir íslenzkra togara
fyrr en í næstu viku.
Þetla skrítna tæki á myndinni
er þokudreifir , sem fundinn
hefur verið upp vestan hafs.
Hefur það reynzt vel, þar sem
þokuslæður hafa legið með
jörðu, en kemur ekki að veru-
legui gagni, þegar um þykkan
þokuhjáp er að ræða. Skrúfan
þeytir loítstraumi skáhallt
niður að jörðu og feykir dala-
læðunni á brott.
-æfingar gegn
kafbátum.
Einkaskeyti frá A.P.
Nert'olk, Virginia, í gær.
FlotadeiWir frá Bretlandi,
Bandaríkjunum og Kanada
munn verða fimm daga í þess-
um mánuði að æfingum í Norð-
ur-Atlantshafi.
Tilgangurinn er að verjast
árásum kafbáta. Æfingarnar
eiga að fara fram 10.—15. sept.
undan ströndum Bandaríkj-
anna og Kanada. — Svipaðar
æfingar á vegum Nato hafa áð-
ur farið fram á vesturhluta
Atlantshafs.
Hafísfregnir
Á laugardaginn kl. 17,30 barst
veðurstofunni skeyti um að skip,
sem statt var á Strandagrunni
hafi séð 4 borgarísjaka og nokkra
minni.
Á föstudaginn varð vélbátur,
sem stundaði veiðar á Húnaflóa
orðið var við ísrek suðaustur af
Horni. Vélbáturinn Flosi hafði
séð tvo borgarísjaka 14 sjómilur
suðaustur af Horni.
Knovvland leiðtogi republikana
í öldungadeildinni, hefur sent
Eisenhovver forseta skeyti og
eindregið lagt til, að stjórnmála-
sambandinu verði slitið. — Sam-
tímis þvi-sem þetta er að gerast,
berast fregnir um, að ráðstefnan
í Manilla á Filippseyjum hafi
verið sett i morgun, en i nótt
flugu flugvélar í hópum yfir For
mósu, m. a. yfir úthverfi höfuð-
borgarinnar sem var myrkvuð.
Ætla menn, að flugvélar kín-
verskra kommúnista hafi verið
á ferðinni.
Árásin á flugvélina
var gerð s.í. laugardag. Þetta
var flotaflugvél með 1Ó manna
áhöfn og var hún urn 70 km. frá
Sibiríuströnd, er 2 MIG-flugvél-
ar komu á vettvang og skutu
hana niður. 9 mönnum af áhöfn-
inni hefur verið bjargað, en eins
er saknað. Krafizt er skaðabóta
og að rússnesku flugmönnunum
verði hegnt. Þvi er algerlega
neitað, sem Rússar hafa lialdið
fram, að flugvélin hafi verið á
sveimi yfir sibirsku landi fyrir
austan Wladiv.*ostock og að á-
höfn bandarísku flugvélarinnar
hafi byrjað skothríð, og rúss-
nesku flugmennirnir þá verið
neyddir til að svara i sömu mynt.
Knowland vill slíta
stjórnmálasambandi.
í bréfi sinu til forsetans legg-
ur hann eindregið fil að stjórn-
málasambandinu verðl slitið
þegar í stað og sendiherra Ráð-
stjórnarríkjanna í Washington
ságt að fara heim, enda væru þá
upprætt skilyrði þau, sem þeir
hafa til njósna í þessu höfuðsctri
sínu í landinu. Jafnframt yrði
Leftangursntenn
dr. Lauge'Kochs sóttir
Dakotavél Flugfélags íslands
„Gunnfaxi" iór í gær til Meisí-
aravikur og Grænlands og sótti
þangaS 20 nianns, sem. verið
höíðu í Grænlandi í sumar á
vcgum dr, Lauge Koch’s.
Voru þetta aðallega bre.zkir.
menn, franskir og svissneskir og
munu þeir taka sér far meö
„Gullfaxa" til London á niiðviku-
daginn kemur. Hefur „Gullfáxi"
þá áætlun til Khafnar, en leggur
lyk : ú leið sína og fer til Lond-
on,með. þenna hóp.
A morgun mun Flugfélag ís-
lands senda Catalínuflugbát til
Ellaaeýjar og sækja þangað
fleiri leiðangursiarþega frá dr.
Lauge Koch.
senúihcrra Bandarikjanna í
Moskvu kvaddur heim þcgar í
stað. Ekki þykir liklegt, að til
þess komi að stjórnmálasamband
inu vérði slitið vegna þessa at-
burðár. Knowland er kunnur aS
því að eiga það til að fara nokk-
uð geist.
Eisenhower sat ráðstefnu
í gær, með æðstu mönnum land
varnanna, en þar var fjallað um
árásir kínverskra herskipa á
eyna Kvimoy, sem er skammt
undan ströndum meginlandsins,
en á valdi þjóðernissinna. Þrjá
daga í röð hefur verið haldið
uppi skotárásum á hana og var
hin seinasta hörðust. Bandaríkin
liafa lofað að láta 7. flota sinn.
verja Formósu.v^en ».kki hefur
verið látið neitt uppi um það„
hvort það sé talið innifalið, aS
Kvirnoy verði varin.
Flogið yfir Formósu.
í nótt voru flugvélar í hóp-
um yfir Formóstt og munu þaS
hafa verið flugvélar kínverskra
kommúnista. Höfuðborgin á
eynni var myrkvuð. — Er mikið
um það rætt hvort þetta, sem og.
árásirnar á Kvimoy, boði að það
hafi ekki verið orðin tóm, er Chu
En-Lai sagði fyrir skemmstu, að-
kommunistar myndn taka For-
mósu herskildi.
Manilla-ráðstefnan
sett í morgun.
Nagsaysay, forseti Filippseyjæ
setti í rnorgun í Manilla, ráð-
stefnuna um varnir Suðaustur-
Asiu. — Reading lávarður, aðal-
fulltrúi Bréta sagði við komu sína
þangað í gær, að það væri mis-
skilnirigur, ef menn ætluðu, að:
Bretar teldu þessa ráðstefnu ekki
hina mikilvægustu. Eden hefði
sjálfur sótt hana, ef liorfur i Ev-
rópu væru ekki þannig nú, að>
hann ætti ekki héimangengt.
HoHand vann
*
EslancL
I gær kepptu íslenzka sveitini
í Amsterdam í fyrsta sinn, og þá
við Hollendinga.
Fóru leikar þannig, að Hollendí
ingar fengu 2% vinning, cn ís-
lentlingar l.-'.é Tapaði Friðrik
Ólafsson sirini skák, en hinar
urðu allar jafntefli, hjá þeiin
Guðm. S. Guðmundssyni, Guð-
mundi Pálmasyni og Guðmundi
Ágústssyni.
í þessari umferð kepptu t. d..
Rússar við Finna og unnu allar
skákirnar.