Vísir - 05.10.1954, Síða 8
1 VÍSIR er ódýrasta blaðið eg þó það fjöl- Þeir sem gerast kaupendur VfSlS eftir
breyttaita. — Hringið f lima 1860 eg wlfiiWI. 10. hvers manaöar fá klaðið ókeypis til
gerist áskrifendor. •Wt mm dfli cjHI9þ ♦ mánaðamóta. — Sími 1880.
Þriðjudaginn 5. október 1954.
Ihorez kominn til Frakklands tii þess
að eyðileggja níu velda samkomulagið.
Kommúnistaforingi Frakklands kom heím í
gærmorgun með nýja „línu" að austan.
Einkaskeyti frá AP.
Strassburg í gær.
Maurice Thorez, höfuðpaur
ffranska kommúnistaflokksins,
kom hingað í morgun á leið til
Parísar frá Rússlandi, þar sem
hann hefur dvalizt rúman mán>
uð.
I för með honum var kona
hans, Jeanette Vermeersch. Sagt
var, að hann hefði farið til Rúss-
Jands til lækninga vegna heila-
blóðfalls fyrir þrem árum. Jac-
ques Duclos, annar valdamesti
maður franska kommúnistafloks-
ins, kom heim á undan yfirboð-
ara sinum fyrir fáum dögum, en
hann hafði einnig verið í Rúss-
landi til skrafs og ráðagerða.
Látið er í veðri vaka, að Thor-
ez muni nú lifa rólegu lífi og
hafast ekki að, heldur reyna að
ná fullum bata einhvers staðar
á afskekktum stað.
Hins vegar fullyrða fréttamenn,
að Kreml-stjórnin hafi falið hon-
um annað og mikilvægara hlut-
verk, sem sé það, að reyna að
koma í veg fyrir aðfranska þing
ið staðfesti samkomulag það, sem
Mendes-France undirritaði i
London um sjálfstæði Vestur-
Þýzkalands og vígbúnað þess.
Sumir segja, að kommúnistar
muni nú njóta fylgis Chdrles de
Gaulle og liðsmanna hans til þess
að bregða fæti fyrir stjórn Mend-
es-France i sambandi við niu
velda fundinn, en þessir sömu
Hr i iísj«‘k ep p n i 11
Árni M. og
• /
Tvímenningskeppni í bridge
— 1. flokki — hófst hér í bæn-
um sl, Jþriðjudag á vegum
Bridgefélags Reykjavíkur.
Tvær umferðir eru nú búnar
ög var sú síðari spiluð á sunnu-
dag, en alls verða þær fimm.
Röð og stig efstu, tvímenn-
inganna eru nú að þessum tveim
umferöum loknum sem hér
segir:
Arni M. Jónsson — Kristján
Kristjánsson 194 %. Klemenz
Bjömsson — Sölvi Sigurðsson
183. Símon Símonarson — Þor-
geir Sígurðsson 180%. Bjarni
Ágústsson — Grímar Jónsson
171%. Laufey Þorgeirsdóttir —
Lovísa Þórðarson 164%. Lúð-
vík Jóhannsson — Þorsteinn
Beúgmann 164. Jón Svan —
Magnús Ingimarsson 163%.
Kristján Kristjánsson —
Tryggvi Briem 163%. Baldur
Ásgeirsson — Björn Kristjáns-
sdn 163%. Lárus Hermannsson
— Zóphonías Benediktsson
163%. Gísli Guðnason — Vil-
berg Jónsson 163%.
flokkar ollu mestu um, að Fraklc-
ar vildu ekki fallast á áformin
um Evrópuherinn.
Fáir voru á austurbrautarstöð-
inni í Paris, er Thorez kom þang-
að i gærmorgun, aðeins um tólf
dyggir flokksmenn voru þar fyrir
til þess að hylla Jeiðtoga sinn.
Fréttamenn fullyrða, að Thorez
liafi að þessu sini dvalizt í Moskvu
til þess að taka við nýrri „línu“,
ekki sízt í sambandi við níu
velda fundinn, eins og fyr er að
vikið.
Nýja torgkfukkan
komin í gang.
setja nýju klukkuna upp á
Lækjartorgi. og byrjaði hún að
gegna skyldu sinni um kl. 9.45.
Klukka þessi, sem Heild-
verzlun Magnúsar Kjarans hef-
ir látið setja upp, er auglýsing
frá fyrirtæki því, sem fram-
leiðir þvottaefnið Persil og er
smekkleg mynd af konu í
snyrtilegum kjól og með Persil-
pakka í hendinni á hliðum
hennar. Er klukkan heldur
lægri en sú eldri, en það kemur
engan veginn að sök, og skífan
ekki síður greinileg en á hinni
fyrri.
Það kom mjög greinilega á
daginn, þegar gamla klukkan
hafði verið fjarlægð, hversu
vinsæl hún var og talin ómiss-
andi af öllum, sem áttu leið
um Lækjartorg, ekki sízt þeim.
er verða að tréysta á strætis-
vagna og fara því feftir torg-
klukkunni. Voru þó ellimörk
farin að koma í ljós á henni,
því að hún var farin að bregð-
ast á stundum.
En þegar unnið var við upp-
setningu nýju klukkunnar,
heyrðu þeir, sem að því unnu,
vegfarendur fagna því, að nú
væri sú nýja að koma. Menn
sögðu: „Jæja, þá fer hún að
koma, blessunin!“, enda er nú
ekki eins tómlegt á torginu og
áður.
Auglýsendur
Æthugið!
Vísir er 12 síður ó
mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum.
Auglýsingar í þau blöð,
aðrar en smáauglýs-
ingar, þurfa helzt að
berast blaðinu kvöldið
áður. —
Roskin hjón hætt
komin í eldsvoða.
Sfuppu ttduóuglega út únt glugga á
brenitandi húsi.
Síðastl. laugardagskvöld kl. an handleggsbrotnaði og skadd-
20.30 kom upp eldur i samkomu- aðist eitthvað á baki en hann
húsinu á Þórshöfn og brann þaðrmm eitthvað hafa brennst. Þau
til kaldra kola á örskömmum liggja bæði rúmföst.
tíma. Miðaldra hjón er bjuggu á
Loftbefgur frá
íslandi setur
heimsmet.
Verið getur, að veðurathug-
anabelgur, sem sleppt var á
Keflavíkurvelli, hafi náð meiri
hæð en nokkru sinni hefur
frétzt um slíka belgi.
Belgurinn, sem sendur var
til sjálfvirkra athuguna af
Keflavíkurvelli, komst í
143.000 feta hæð, eða yfir 43
km. hæð, en fyrra heimsmet
slíkra belgja var rúmir 41
km., og var það belgur, sem
sleppt var frá Holloman-flug-
velli í Nýja Mexíkó í Banda-
ríkjunum.
Belgir þessir eru útbúnir
sjálfvirkum mælitækjum,
senditækjum og öðrum útbún-
aði. Belgirnir springa er sól
hitar þá ofsalega öðru megin,
en hinum megin á belgnum er
nístingskuldi, en þeir eru úr
þunnu plasti. Belgirnir eru
fylltir helium.
Verið er að rannsaka ná-
kvæmlega, hvort hér sé um
met að ræða.
Þrír jafnir í Sept-
embermótinu.
Sjö umferðum er lokið í
septembermótinu í skák, sem
um jþessar mundir er háð í
Hafnarfirði.
Biðskákir úr ýmsum umferð-
um voru tefldar á sunnudaginn.
Að þeim loknum er staðan sem
hér segir: Ólafur Sigurðsson,
Arinbjörn Guðmundsson og
Baldur Möller hafa 4% vinn-
ing hver, Jón Kristjánsson 4
vinninga og biðskák, Jón Páls-
son og Sigurgeir Gíslason 4
vinninga hvor, Sigurður T. Sig-
urðsson 3% vinning, Eggert
Gilfer 3 vinninga og biðskák,
Landsbankinn
gefur út
sparífjármerki.
Landsbanki íslands hefur
gefið út sérstök sparimerki
vegna sparifjársöfnunar skóla-
barna.
Merkin eru 25 aurar, 1 krón-
ur og 5 krónur að verðgildi,
smekkleg að lit og gerð, með
myndum af hesti, togara og
Landsbankahúsinu.
Sparifjármerki þessi verða
notuð við sparifjársöfnun
barna á vegum bankans, og er
innlausn þeirra bundin því
skilyrði, að andvirði þeirra
hafi áður verið lagt inn á
sparisjóðsbækur við innláns
stofnanir landsins.
Trausti Þórðarson 1% vinning
og Jón Jóhannsson % vinning,
Áttunda og næstsíðasta um-
ferð verður tefld í kvÖld.
efri hæS hússins urðu að stökkva
út um glugga og meiddust tals-
vert við fallið.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið fékk frá hreppsstjóranum
á Þórshöfn í morgun, kom upp
eldur í eina samkomuhúsinu,
sem til er á Þórshöfn, á laugar-
dagskvöld skömmu áður en halda
átti þar kvikmyndasýningu.
Eigandi hússins Aðalbjörn Arn-
grimsson, var ásamt sýningar- j
manni hussins, að reyna sýning-(
arvélina fyrir sýninguna og
kviknaði þá allt i einu í henni.
Engu varð bjargað.
.. Húsið brann til kaldra kola á
skannnri stund og var engu laus-
legu hægt að bjarga. Húsið var
gamalt tvilyft timburhús, sem.
hafði verið flutt frá Skálum á
Langanesi og útbúið sem sam-
komuhús. Engin slökkvitæki eru
tU á Þórshöfn, en vegna þess hve
húsið stóð afsíðis náði eldurinn
ekki að komast i nærliggjandi
hús. Húsið og innbú hjónanna var
eithvað vátryggt.
Eidurínn breiddist óðfiuga út| Saimiingar Bandaríkja-
og varð við ekkert ráðið. Þeir ma{|na V.-ÞjÓ&Vefj»
sluppu þo omeiddir ut ur hmu
brennandi húsi en nokkrir dreng-
ir, sem sátu á svölum salarins og
voru að 'bíða eftir því að sýning
hæfist, komust út við illan leik,
þó að mestu ómeiddir.
Björguðu sér út um glugga.
Á efri hæð hússins bjusgu hjón
in Hólmgeir Halldórsson og Stein
fríður Tryggvadóttir og voru
þau, þegar eldurinn kom upp,
stödd í herbergi, sem var beint
yfir sýningarklefanum. Þegar þau
urðu vör við að .eldur var kom-
inn í gólf herbergis þeirra, ætl-
uðu þau að hraða sér til dyra og
freista þess að komast til útgöngu
dyra, en þá hafði eldurinn magn-
ast það mikið að það virtist al-
veg útilokað. Þau biðu því ekki
Bandaríkjamenn fylgja nú eft-
ir samkomulagi því, sem náðist
á níu velda ráðstefnunni í Lond-
on.
Einhvern næstu daga munu
stjórnarfulltrúar Bandaríkjanna
í Vestur-Þýzkalandi hefja við-
ræður við Bonn-stjórnina í því
skyni að gera vináttu- og við-
skiptasamninga milli ríkjanna.
Munu Bandaríkjamenn leggja allt
kapp á að hafa sem vinsamelgasta
sambúð og samvinnu við hið sjálf
stæða sambandsríki Vestur-
Þjóðverja.
Þá hefur frétzt um viðbrögð
austan járntjalds vegna sam-
komulagsins í London. — Hefur
Tass-fréttastofan rússneska lát-
ið svo um mælt, að með sam-
komulaginu hafi aftur verið
boðanna en vörpuðu sér út um j kveiktur neisti hernaðaranda með
gluggann. FalliS var hátt, meidd- j Þjóðverjum, og stafi friSinum
ust þau þvi talsvert mikiS. Kon- mikill háski af þessu.
í dag verður Trieste-deil-
an loks til lykta leidd.
Samningur um hið
mál undirritaður
Einkaskeyti frá AP. —
JLondon í morgun.
I dag verður endir bundinn
á TriesÉe-málið, þetta gamla
deiltunál Itala og Júgóslava.
Munu fulltrúar þessara þjóða
koma saman til fundar í Lond-
on í dag til þess að undirrita
sáttmála þaraðlútandi.
Mun eins konar Salómons-
dómur hafa verið upp kveðinn
í þessu máli, því að ítalir eiga
að fá A-svæðið svonefnt,
Júgóslavar B-svæðið, en sjálf
Trieste-höfn verði ítölsk, þó
þannig, að júgóslavnesk skip
fái full afnot af henni.
Talið er víst, að bandamenn
muni hverfa á brott með her-
afla sinn frá borginni og ná-
grenni hennar innan 3ja vikna,
og. lýkur þar með nokkurra
viðkvæma deihi-
í London í daig.
ára hersetu í hinni umdeildu
höfn við Adríahaf.
ítalska stjórnin hefur skipa'ð
svo fyrir, að fánar skuli dregn-
ir að hún í dag á öllum opin-
berum byggingum í landinu
til þess að fagna þessum gleði-
lega atburðd.
Víðast hvar í Vestur-Evrópu
fagna menn því, að loksins
skuli þrætuepli þetta úr sög-
unni, og telja ýmsir, að nú
muni eflast mjög samvinna
ítala og Júgóslava, sem til
skamms tíma gátu ekki setið á
sárs höfði.
Þá hafa grískir stjórnmála-
menn látið í ljós ánægju sína
yfir lyktum þessa máls, og
gera þeir sér vonir um, að
ítalir muni taka þátt í varnar-
samtökum Balkanskaga.