Vísir - 30.10.1954, Blaðsíða 8
VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í sima 1660 eg
gerist ásbrifendur.
nsmt
Þeir, sem gerast kaupendur VtSIS eftir
10. hvers manaðar, fá blaðið ókeypis tO
mánaðamóta. — Sími 1660.
Laugardaginn 30. október 1954
Stú dentaráðsko snin ga rn ar:
Listi Vöku er
D-listi.
I dag fara fram kosningar til
Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Að þessu sinni eru fjórir listar
í framboði, en listi Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta, er D-
listinn.
Kjörfundur liefst eftir hádégi
i Háskólanum, og eru 'stúdentar
beðnir að kjósa snemma.
Lýðræðissinnaðir stúdentár
íettu að veita Vöku allt það braut
argengi er þeir mega og vinna
að því, að D-listinn nái meiri-
hluta í stúdentaráði. — Kosninga
skrifstofa listans er í Aðálstræti
12, uppi, simar 81801 og 81802.
Fimm efstu frambjóðendur á
lista Vöku, fél. lýðræðissfnnaðra
stúdena, eru þessir: Sverrir Her-
mannsson, stud. oecon., Jónas
Hallgrímsson, stud. med., Ragn-
hildur Helgadóttir, stud. jur.,
Ingólfur Guðmundsson, stud.
theol. og Sigurður Líndal, stud.
jur.
lítför próf. Einars
Jónssonar að Hrepp-
hóíakirkjir.
Útför próf. Einars Jónssonar
fór fram að Hrepphólakirkju s.l.
fímmtudag.
Um morgunin flutti biskup
íslands bæn að lieimili hans, en
síðar var haldið austur og stað-
næmzt að Galtafelli, fæðingar-
stað listamannsins.
Hrepphólakirkju sungu söng-
menn úr Hreppum og Reykja-
vík. Sóknarprésturinn, séra
Gunnar Jóhannesson, jarðsöng.
Viðstaddir athöfnina voru for-
setahjónin, biskup landsins, for-
máður Bandálags ísl. listamanna
og forseti efri deildar Alþingis
auk ættingja listamannsins,
Réðust á gamlan
mann.
Aðfaranótt 28. þ. m. var brot-
izt inn í veitingastofuna Vest-
urhöfn við Mýrargötu og stol-
ið þaðan lítilsháttar af tóbaki
og sælgæti.
Rannsóknarlögreglunni hefir
nú tekizt að upplýsa þetta mál
og handtók tvo pilta, 16 og 17
ára, sem hafa játað að hafa
brotizt þama inn.
En við yfirheyrzlú játuðu
þeir að hafa ráðizt á mann og
ætlað að ræna hann.
Maður þessi, sem heitir
Eiríkur Narfasóh, er sjötugur
að aldri, vaktmaður við karla-
salernið í Bankastræti. Var
hann að vinnu sinni að kvöldi
15. þ.m. og bar þá þesssa pilta
að. Annar réðst þegar á gamla
manninn, nefbraut hann og
sikldi við hann allmjög þjak-
aðann. Virðist þá sem hinn
pilturinn, hafi skorizt í leikinn,
þannig að ekki var frekara að-
bafst og gamli maðurinn ekki
rændur, svo sem upphaflega
,var ætlað. -
Hafnarverkfallið í Englandi breiðist ört út og farþegarnir á hinum stóru áætlunarbátum fá
að vita af því. Myndin hér að ofan er frá Southampton og sýnir farþega, sem verða sjálfir að
að aka farangri sínum frá borði.
Morðíngjar og fyrrverandi fasistar
meðai þingmanna kommúnista á Ítalíu.
Kommúnistum svarafátt, þegar þetta
er borið í þá.
Togliatti er m. a. sakaður um að
hafa komið manni í heitdur
fasistalögreglunnar.
ítalskir kommúnistar eiga mjög í vök að verjast um þessar
mundir, því að þeim verður orðfall, þegar á þá eru bornar þær
sakir, að í hópi þingmanna þeirra sé fyrrverandi fasistar og
jafnvel morðingjar, auk þess sem sumir þeirra hafi verið í
hinni pólitízku lögreglu á stjórnarárum Mussolinis.
Fyrir rúmri viku var þetta
borið á þá á fundi í þinginu, og
varð úr handalögmál, því að
kommúnistar höfðu ekki önn-
ur rök til að svara þessum
ákærum með. Síðan voru þess-
ar ásakanir endurteknar utan
þinghelginnar, en kommúnist-
ar svöruðu ekki að heldur, og
þeir,, hafa heldur ekki gert
kröfu til þess að rannsóknar-
nefnd verði sett á laggirnar.
Loks hafa menn veitt því at-
hygli, að þeir hafa ekki stefnt
neinum fyrir ærumeiðingar, og
er þeim mjÖg brugðið, er þeir
grípa ekki til slíkra ráða.
Þyngstu sakir
um langt skeið.
Það var fyrrverandi ráðherra
úr flokki Kristilega lýðræðis-
floksins, Giuseppe Togni, sem
bar þessar sakir á kommún-
ista, og hafa ekki eins þungar
sakir verið bornar á kommún-
ista á Ítalíu um langt skeið.
Maðurinn, sem gaf Togni
upplýsingamar, heitir Edgardo
Sogno, 35 ára gamlall, er var
sæmdur æðsta heiðursmerki
ítala eftir stríðið fyrir þátttöku
í baráttu skæruliða gegn fas-
istum. Hann er formáður and-
kommúnistasamtaka, er heita
Pace e Liberta (Friður og
frelsi), sem gefur út mánaðar-
blað, er undanfarið hefur bivt
í ,
mjög skæðar ásakanir á hend-
ur kommúnistum.
Virðist Sogno hafa komizt
yfir spjaldskrár pólitísku
lögreglunnar á tímum fas-
ista, og notar nú óspart þær
upplýsingar, sem þar er að
finna.
Meðal annars hefur tímaritið
birt nöfn þeirra manna*er
sviknir voru í hendur þeirrar
lögreglu af mönnum, sem nú
eru þingmenn kommúnista, svo
og margra háttsettra manna,
sem styðja kommúnista á laun.
Til dæmis hefur Togliatti
verið sakaður um að hafa
svikið einn flokksbræðra
sinna í hendur fasista, og
hefur formaður kommún-
istaflokksins svarað með —
algerri þögn.
Þá hefur þingmaður og
hverfisritari flokksins fyrir
Emilia-hérað verið mirintur á
það, að hann hefði myrt mann
af persónulegum ástæðum árið
1926. í fjarveru sinni var
maðurinn dæmdur í 30 ára
þrælkunarvinnu, en þegar
Togliatti varð dómsmálaráð-
herra eftir stríðið, var dómur-
inn ógiltur.
Adenauer vlll sáttmála
vé5 Rússa.
Einkaskeyti frá AP.
New York í morgun.
Adehauer kanzlari hefur stung-
ið upp á, að þjóðirnar sem standa
að hinum nýju varnarsamtökum,
geri örýggissáttmála við Ráð-
stjórnarríkin, þegar þau séu kom-
in á laggirnar.
Telur hann það nauðsynlégt
til aukins öryggis Þýzkalandi og
til að tryggja sameiningu þess.
Uppástungan fær góðar undir-
tektir í brezkum blöðum, enda í
samræmi við utanríkisstefnu
Breta og almenningsálitið.
Jarðhræringar
í alla nótt.
Jarðhræringa varð vart hér í
bænum í gærkveldi, Hveragerði
og víðar. Upptökin eru sennilega
austan fjalls, í um 35—40 km. fjar-
lægð frá Rvík.
Ekki niunu hafa fundizt nema
3 kippir í gærkveldi, allir litlir
og álíka snarpir. Hræringa varð
vart í alla nótt, seinast kl. að
ganga 9, og alls um 40 smákippir
frá því í gærkveldi þar til 10 ár-
degis.
Hræringarnar voru mestar í
gærkveldi og dró úr þeim því
lengur sem leið á nóttina.
Eisenhower
í sókn.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Eisenhower forseti hefur þeg-
ar flogið 3200 km. vegarlengd í
skyndi-leiðangri sínum til að
hressa upp á fylgi republikana í
kosningunum, sem fara fram n.k.
þriðjudag.
í öllum flugstöðvum, þar sem
Eisénho'wer hefur komið, hefur
hann haldið stuttar ræður. —
Andersen & Lauth h.f.
í endurbættu
húsnæðí.
í morgun var fataverzlunin-
Andersen & Lauth h.f. opnuð á'
ný eftir endurbót og stækkun ál
húsakynnum þess á Vesturgötui
17.
Eru húsakynnin nú mjög rúm*
góð og sérlega smekkleg. Innrétt*
inguna teiknaði Skarpliéðinn Jó*
hannsson arkitekt, en skreytingiti
á einum vegg afgreiðslusalsins
gerði Sverrir Haraldsson listmál*
ari. Á gólfi innri liluta afgreiðslu
salsins er teppi úr islenzkri ull<.
Verzlunin Andersen & Lauth
h.f. var stofnuð 30. okt. 1913. —•
Stofnandi hennar var Ludvig:
Andersen klæðskerameistari, sem
nú er nýlátinn í Englandi. í júlí*
mánuði 1918 gekk O. J. Lauth
inn í fyrirtækið og var þa nafn-
inu breytt til samræmis við það^
en árið 1935 var fyrirtækinu
breytt í hlutafélag. Fyrirtækið
hefur einkum verzlað með karl-
mannafatnað og haft þar sam*
vinnu við verksmiðjuna Föt h.f.»
sem hóf framleiðslu á tilbúnum
karlmannafatnaði árið 1941 og
eru eigendur og stjórnendur
beggja þessara fyrirtækja hinip
sömu.
Éftir nýárið er fyrirhugað að
opna klæðskerastofu i sambandi
við verzlunina og verður saum-
að þar eftir máli. Ungur klæð-
skeri og vel menntaður hefur
verið ráðinn forstöðumaðup
klæðskerastofunnar.
f stjórn fyrirtækisins Anderseu
& Lauth og verksmiðjunnar Föt
h.f. eru Þorleifur Helgi Eyjólfs-
son, Ásgeir Bjarnason, Böðvar
Jónsson og Jón Jónsson. Fram-
kvæmdastjóri er Theódór Jóns-
son.
Auk aðalverzlunarisnar á Vest-
urgötu 17 opnaði Andersen &
Lauth h.f. útbú á Laugavegi 28 i
fyrra.
Staðsetning mmnis-
nterkis sr. Friðriks.
Samþykkt hefur verið að
minnismerkið um dr. theol.
Friðrik Friðriksson verði komið
fyrir á Ióð ríkisins á horni
Lækjargötu og Amtmannsstígs.
Fjársöfnunarnefnd minnis-
merkisins leitaði til skipulags-
ráðs um staðsetningu þess og
lagði skipulagsráð til að því
yrði komið fyrir á þessu um-
rædda horni. Fjármálaráðu-
neytið og bæjarráð samþykktu
einnig fyrir sitt leyti staðsetn-
ingu þessa, en vegna þess, a5
þetta var lóð ríkisins varð
einnig að fá samþykkt for-
sætisráðuneytisins.
Þann 22. október s.l. lagði
svo forsætisráðuneytið fram
bréf á bæjarráðsfundi, þar sem
það hefur einnig fyrir si.tt leyti
samþykkt staðsetningu minnis-
merkisins á horni Lækjargötu
og Amtmánnsstígs.
Ennþá er algjörlega óráðið
hvernær minnismerkið verði
afhjúpað en vonir standa til að
það verði sem fyrst.