Vísir - 18.11.1954, Síða 4

Vísir - 18.11.1954, Síða 4
VtSIR Fimmtudaginn 18. nóvember 1954, I ¥ism DAGBLAB Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. ’Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁPAN YlSIB H.F. Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan hJL Hið „friðsamlega" hagkerfi. TT'inn traustasti liðsmaður hinna kommúnistku alþjóðasam- taka á íslandi, MÍR-maðurinn Kristinn E. Andrésson, rit- aði grein í málpípu Kremlstjórnarinnar 1 fyrradag er hann nefndi: „Tvískipting eða eining Evrópu.“ Greinar um sama efni og með svipuðu orðalagi birtast þessa dagana í öllum kommúnistablöðum Evrópu, og tilefnið er það, að verulegar horfur eru á, að Vestur-Evrópurikin myndi nú loksins með sér traust bandalag, sem líklegt þykir til þess að geta stöðvað frekari framsókn kommúnismans. „Evrópuþjóðirnar standa nú á krossgötum og eiga um tvo kosti að velja, samsteypu vesturevrópuríkja, er leiðir til tví- skiptingar álfunnar og styrjaldar eða samkomulag austurs og vesturs, sem felur í sér frið og öryggi fyrir evrópuþjóðirnar allar.“ Með þessum orðum hefst fyrrnefnd grein Kr. E. A. Hann fer ekki dult ineð það, sem hann telur í vændum: Myndi Vestur-Evrópuþjtð rnar bandalag, skal það kosta stríð. Þá vita þeir það, sem ekki höfðu trú á hernaðaranda austan tjalds. Þessi grein Kr. E. A. gefur tilefni til nokkurra hugleiðinga. Hún hlýtur, þegar að er gáð, að verða kommúnistum óþægi- leg. Af henni verður auðvitað ekki annað ráðið en það, að sjálfsagt sé, að járntjaldslöndin hafi með sér öflugt, komm- únistískt bandalag, en hins vegar sé það óhæfa, að hinar frjálsu þjóðir Vestur-Evrópu myndi samtök til þess að vega upp á móti slíkri samsteypu. Bandalag Vestur-Evrópu má ekki verða að veruleika, þess vegna hamast Kr. E. A. og sálu- félagar hans um gervalla Evrópu eins og naut í flagi. Þess vegna er framkomið „tilboð“ Rússa um ráðstefnu í lok þessa mánaðar, ef verða mætti til þess að koma í veg fyrir varnar- bandalag þeirra rikja, sem ekki vilja „hoppa þegjandi og hljóð- laust inn í skipulag kommúnismans“, eins og Laxness orðaði það, þegar Rússar réðust á Pólverja. Ekki hafa vésturveldin eða ráðamenn þeirra viljað hlýða á tillogur Rússa til samkomulags, segir Kr. E. A., og meira að segja hefur friðarvilji Rússa gengið svo langt, að þeir hafa boðizt til að ganga í Atlantshafsbandalagið! Þarna er barna- skapurinn eða óskammfeilnin svo fáránleg, að engu tali tekur. Aðild Rússa að Atlantshafsbandálaginu væri álíka eðlileg og sú ráðstöfun, að leigja mönnum húsnæði í Landsbankahúsinu, sem gild ástæða væri til að ætla að myndu ræna bankann og hefðu til þess öll verkfæri. Enda hefur enginn heilvita maður tekið mark á þessu. Kr. E. A. segir, að alþýða Evrópu' styðji ekki hið „nýja glæpafélag<’‘, sem verið sé að reisa af vesturveldunum. Sann- leikurinn er sá, að æ fleiri alþýðumenn Evrópu neita að styðja glæpa- og bófasamtök alþjóðakommúnismans, en telja vest- rænni menningu betur borgið með því að skipa sér sem fastast um varnarbandalag hinna frjálsu þjóða, sem vilja ekki láta ' Kr. E. A. og aðra slíka taka af sér ómakið að hugsa. Það þarf meiri en litla ósvífni til þess, að tala úm hið „friðsama hagkerfi“, sem kommúnistar hafa komið á í mikluni hluta álfunnar. KriStinn E. Andrésson. getur vélt því fyrir sérý hvað Laszlo Rajk hinn ungverslti.CSlankfchmn tékkhériciv'-'eða Rússarnir Sinoviev, Kamenev og Radek myndu hafa um það að segja, ef þeir mættu mæla, eh liin kommúnistísku stjórn- arvöld þessara landa færðu þessum mönnum þánn frið, að fyrra bragði, sem enginn fær nokkru sinni raskað. Kj\.. E, Á'. gætí lika spurþ riðjþýðúménn Eystrasaltslandanna, Austur- Póllands, Búkóvínu og Bessarabíu, hvort þeir séu ,ekki fullir hrifningar yfir hinu ,ífriðsamlega“ hagkerfi kommúnista. Með grein Kr. E. A. í Kreml-blaðimi birtist mynd af her- mönnum á göngu, þýzkum, að því er mönnum skilst. Þessi mynd á að skjóta mönnum skelk í bringu. Hermennska er aldrei skemmtileg, og manndráp ævínlega viðbjóðsleg. En Kr. E. A. klígjar ekki við því að standa uppi á þakinu á grafhýsi Lenins og horfa fullur hrifningar á óvígan her rússneskra kommúnista marséra framhjá við alvæpni,- meðan himinninri myrkvast af „friðsamlegum“ flugvélum rússneskra skoðana- bræðra hans. Menn verða nefnilega að hafa það hugfast, að kommúnistískir herménrí eru „góðir“, állir aðrir. hermenn . þar af léiðancti vþndir. — Samvizkulipur maður, - Kristinn E. JAndrésson. ■ . L ■ . Á:' Hhitdrægni iistfræðingsins i Hvernig lítur islenzk myndlist út eftir 25 ár ? Til uppfræðslu fyrir þá hlust- endur Ríkisútvarpsins, sem á- huga og ánægju hafa af mynd- list, hefur stofnunin valið sem leiðbeinanda og uppfræðara, einn af hinum allra einsýnustu abstrakt-aðdáendum, Björn Th. Björnsson listfræðing og listdómara Þjóðviljans. Einn þátturinn í þessari uppfræðslu hans er sá, að segja landslýðn- um frá málverkasýningmn, sem haldnar eru hér í höfuð- borginni, Sérlega hefir honum verið hugljúft að lýsa sýning- um abstraktmálaranna, og hafa nokkrir þeirra komið að hljóð- nemanum til þess að láta Ijós sitt skína þar. og útskýra fyrir þjóðinni listarsjónarmið sín. En nú bregður svo undár- lega við, þegar félagar Nýja myndlistafélagsins halda úr- valssýningu í Listasafni ríkis- ins, að þá lætur uppfræðari Ríkisútvarpsins sér ekki til hugar koma að minnast á þenna merka listviðburð í þætti sínum „Úr heimi mynd- listarinnar“. í þessu félagi eru þó tveir af okkar mestu meist- urum í málaralistinni, þeir As- grímur Jónsson og Jón Stef- ánsson. og sýna þeir á sýningu þessari úrValsverk. Nokkur þeirra voru sýnd á íslenzku sýningunni, sem haldin var í Danmörku síðastl. vor. Fengu þau afbragðs góða dóma, og áttu þessar myndir sinn rnikla þátt í því, hvað sýning sú varð landi okkar og þjóð til mikils sóma. _____ ___ Ýmsuni finnst, að nær hefði verið fyrir listfræðinginn, og vænlegra til uppfræðslu fyrir almenning, að sýna þá sjálf- sögðu kurteisi, að bjóða að hljóðnemanum einum eða tveim af málurum þeim, sem eiga verk k þessari merku úr- valssýningu í Listasafninu, og heyra um sjónarmið þeirra í listinni, en ýmsa af þeim dán- dismönnum, sem þar hafa kom- ið fram, fyrir tilstilli listfræð- ingsins. Þetta er með öllu óþolandi framferði, og er hið mesta undur, að Ríkisútvarpið skuli þola það, að beztu og þekktustu málurum okkar sé misboðið á svo herfilegan hátt. Hefir stofnunin ekkert eftirlit með uppfræðurum sínum? Annars vekur það furðu margra manna, hverskonar trúboða í listum Ríkisútvarpið og flest dagblöðin hafa valið sér. Og mörgum verður á að spyrja: Hvernig lítur íslenzk myndlist út eftir 25 ár, ef framhald verður á því, áð nær öllum áróðurstækjum verði beitt gegn sannri listsköpun í þjóðlífi okkar. Hlustandi. Margt er shritið Seldir voru 27 heiðurs- titlar fyrir um hálfa millj. kr. Bóksali nokkur keypti fimm. Vásir sagði frá því í byrjun þessa mánaðar, að um þær mundir mundu nokkur „greifa- dæmi“ (Lordships) verða seld á uppboði í Englandi. Nú hefur uppboð þetta farið fram, og segir í erlendum blöð- um, að um fimm hundruð manna hafi sótt það, en það sem; ; um ' var' 'áð ' 'fæða, voru nokkrir titíar, sem hégómleg- ir menn sóttust efiir, eða menn buðu í þá sér til skemmtunar. Sumjr . þessarra titla eru svo fornir, að þeir voru komnir til ára sinna, þegar Vilhjálmur bastarður kom til Englands og sigraði Harald Guðinason við Hastings. Gert ,var ráð fyrir. því, .að Bandaríkjamenn kynnu að sækja uppboöið, ti) að geta kallað sig ,’,lávarða“, en þe$s varS ekki vart, áS þeir. væiu þar viðstaddir. Þó er ekki loku fyrir það skotið, að einhverjir lögfræðinga þeirra, sem buðu í titlana, hafi verið umboðs- jnenn Bandaríkjamanna. En hafi svo verið, þá nældu þeir áð minnsta kosti ekki í virðu- íegustu titlana. :• Um tuttugu og sjö titla var að ræða, og fóru þeir fyrir sam- tals. 9855 sterlingspund eða um hálfa milljón króna. Hverj- um titli fylgja ýmis gömul skil- ríki, en það hefur verið úr- skurðað, að ekki megi flytja þau úr landi, því að um forn- gripi er að ræða. Virðulegasti titillinn „Lord of the Manor of Circum cum Wilcocks alias Faversham Parva“ var seldur fyrir 330 sterlingspund. Ekki er getið um kaupandann,; en bóksali,. í London, William Alfred Foyle, Eftiffarandi bréf hefur Berg- máli borizt frá P. S„ sem nokkr- um sinnum' áður hcfur sent mér pistil: „Séð og heyrt í Bandaríkjunum“ hét útvarpserindi, er frú Sigrið- ur Björnsdóttir flutti 10. nóv. sl. Eg freistast jafnan til aS hlusta, er ég heyri tilkynnt að einhver ætlar að segja frá komu sinni til Ameríku, því að margt er skraf- að og skrifað urn þann heim og ekki allt af góðvilja né sann- leiksást. Sumir slíkra manna þykjast vita betur en við, sem liöfum átt þar heima árum sam- an, jafnvel áratugi. Samanburður gerður. Mér geðjaðist vel að frásögn frúarinnar, en minnist hér á er- ' indið einkum vegna þess, að hún J minntist á ýmislegt til saman- burðar hér og þar, þar á meðal ! meðferð matvöru, t. d. brauðs. ' Þau 10 ár sem ég átti heima t 1 Kanada kveið ég aldrei fyrir að kaupa brauð. Frá þeim var jafn- an gengið eins og frú Sigriður lýsti því í erindi sinu. Hér kaupi ég aldrei svo brauð, að ég kvíði þvi ekki. Oft hef ég minnst á þessa afgreiðslu brauða hér á landi, skrifað um það árum sam- an, en framfarirnar eru rauna- Jega hægfara, og er sú tregða furðuleg'. f beztu brauðsölum okkar verður sama stúlkan, sem handleikur þvælda og óhreina pcningaseðla allan daginn, að gripa brauðin, er liún lætur þau í umbúðirnar. Húsmæður kvarta ekki. Því má ekki slá utan um brauð- in áður en þau eru látin í hill- urnar? Það gæti þá einhver gert,. sem ckki sinnti öðru á meðan og væri anðvitað hreinn um hend- ur. Þyrfti ekki að handleika ó- lireina peninga á sama tíma. Að inismæður i Reykjavík umbera sóðaskapinn enn í dag, má furðu legt. heita. Vitaskuld gætu þær kippt þessu í lag, ef þær krefð- ust. að syo væri gert. Brauð era jafnvel send langar leiðir út f,yr-. ir' bæ, án þess að þau séu i um- búðum, og þá stundum seld í alls konar vefzíunuriv, og erum við sumir jafn brauðlausir fyrir' slíkri afgreiðslu. Skyríuskortur. Frú Sigríður minntist einnig á vissár iðriaðárvörur, og hefðu;. þau orð mátt vera fleiri. Mánuð- um saman lief ég svipast um i . I.ænum eltir milliskyrtum. Nei, ails slaðar nei, hvergi til. Sama <'r að segja uin nærföt, þau hafa helzt ekki fengist eins og við eldri mennirnir höfutri átt áb venjast þeim. Þetta virðist bénda til þess, að neyðá skuli okkur alla að lúta strax nýjustu tizku, hve vitlaus sem hún kann að verá. Ofurlítið meiri fjölbreytni mætti vera i þessum efnum.“ — Bergmál þakkar bréfið og tekur undir með P. S. um það er við- ýílfjir þrauðunum. — kr. keypti fimm titla fyrir 1905 i pund. Ætlaði hann að kaupa ; fleiri, en dóttir hans harðbann- , aði honum það. 1 Þótt menn hafi fyrst og fremst sótzt eftir titlunum, fylgja þó nokkrar lendur með i sumum þeirra, eins og getið var ; |í Vísi áður, svo að meng geta • ; * jafnvel : heimtað leigu fyrir -» símastaurastæði $ þessum lönd- - .. ; um sínum:

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.