Vísir - 30.11.1954, Síða 2
8
vlsm
Þriðjudaginn 30. nóvember 1954,
SEKSfl?KSSSSÍKEXSÍKSS^^
iwmwwvvwmwwwv^wvuvwwwvwwvwwwuvVw
• WWWJ* íWVWWWU%V
wwwv _ _ _ . _ wwwwww
vwvwi 13 717 T 4 ¥3 "WWVWUUW
wwsrwww I* A-gi, .1 í-a M /» wwwwvwvw
^uwvvw mJXjLJís iTa.JL'ii. /y MAMnnnMyv
// > # / • >fVft/VWWWVW
ÍH/iTri m 'swwwwwv
wuvws ír£/LLLr» uww.wuww
WWVWV / nwuwuvuw
(VÚVUW / rtWUUWUUUV
WWAM ifl^VWWWW
CwwwQOwwwwwwvwwwvwvwwwwwwwwwwwwwwvwwvípiKSKSKiíSKK?
|UUUUUUUUUUUUUUUU«»UUVUUWUWWUUUUUUUUUUUUUWU'
Útvanpið í kvöld.
Kl. 20.00 Fréttir. — 20.30
Erindi: Upphaf kvenréttinda-
hreyfingar á íslandi (Rannveig
Þorsteinsdóttir lögf ræðingur).
21.00 Tónleikar (plötur). —
21.35 Lestur fornrita: Sverris
saga; V. (Lárus H. Blöndal
bókavörður). — 22.10 Fréttir
og veðurfregnir. — 22.10 Úr
heimi myndlistarinnar. (Björn
Th. Björnsson listfræðingur).
— 22.30 Daglegt mál. (Árni
Böðvarsson cand. mag.). —
22.35 Léttir tónar. (Jóns Jón-
asson sér um þáttinn). — 23.15
Dagskrárlok.
við hjúkrunardeild í Heilsu-
verndarstöðinni.
Tilboð í raflagnir.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var samþykkt að taka tilboði
Rafvélaverkstæðisins Volta í
raflagnir íbúðarhúsa, er bær-
inn lætur reisa við Réttarholts-
veg.
Eftirlitsstarf.
Húsameistara bæjarins hefir
verið heimilað að ráða Valgeir
Guðjónsson, múrarameistara,
til eftirlitsstarfa í stað Sigur-
jóns Sveinssonar.
Hekla,
millilandaflugvél Loftleiða,
er væntanleg til Reykjavíkur
kl. 7.00 árdegis á morgun frá
New York. Flugvélín fer kl.
8.30 til Stafangurs, Oslóar,
K.hfnar og Hamborgar.
Leirböð í Hveradölum.
Eins og áður hefir verið getið
hefir Skíðafélag Reykjavíkur
ákveðið að hefja tilraunir með
leirböð í Skiðaskálanum í
Hveradölum. Leirinn hefir nú
verið rannsakaður og virðist
hann vera alveg óskaðlegur t. d.
fyrir húðina. Stjórn félágsins
hefir því ákveðið að láta gera
þró fyrir leirinn í einu kjall-
araherbergi skálans og verður
hann hitaður upp með mið-
stöðvarrörum. f sama herbergi
eru einnig heit og köld steypu-
böð og kerlaug í öðru herbergi.
Um 10—15 manns ættu að geta
notið leirbaðanna daglega, en
leirbaðið sjálft stendur ekki yf-
ir nema 20—30 mín. Forráða-
menn leirbaðanna telja æski-
legt, að sjúklingar leiti ráða
læknis síns áður en þeir hefja
leirböð. en að öðru leyti er öll-
um frjáls afnot leirbaðanna,
Yfirhjúkrunarkona.
Bæjarráð sefir samþykkt til-
lögu stjórnar Heilsuvemdar-
stöðvar Reykjavíkur 23. þ. m.
um að ráða Sigurlaugu Helga-
dóttur sem yfirhjúkrunarkonu
I'wv.-m wwuw
Minnisblað
almennings.
Þriðjudagur,
30. nóv. — 333. dagur ársins.
Flóð
verður næst ’í Reykjavík kl.
20.27.
Ljósatími
bifreiða og annarra ökutækja
í lögsagnarumdæmi Reykja-
víkur er kl. 15.55—8.25,
Næturlæknir
er x Slysavarðstofunni. Sími
,5030.'
Næturvörður
er í Reykjavíkur Apóteki.
Sími 1760. Ennfremur eru
Apótek Austurbæjar og Holts-
apótek opin alla virka daga til
kl. 8 e. h.. nema laugai'daga, þá
til kl. 6 e. h.
Lögregluvarðstofon
hefir síma 1166.
Slökkvistöðin
hefir síma 1100.
K. F. U. M.
Biblíulestrarefni: Jes. 40,
12—24. Þjóðirnar era sem ekk-
ert.
Heima og erlendis,
tímarit um fsland og íslend-
inga, gefið út af Þorfinni Krist-
jánssyni, 4 tbl. þessa árg., er
komið út. Af efni þess má nefna
viðtal við Sigurð Nordal, sendi-
herra um félagslíf íslendinga
í Kaupmannahöfn á háskólaár-
um hans. Þá er greinin Á slóð-
um íslendinga í Kaupmanna-
höfn og segir ritstjórinn þar frá
Steingrími Matthíassyni, lækni.
Einnig er það greinin íslend-
ingar búsettir í Danmörku og
er hún um Jakobínu Ágústs-
dóttur, gift Jensen. Að lokum
er þar Hafnar-annáll.
Bágstadda fjölskyldan
(sbr. hjálparbeiðni í Vísi 26.
nóv.) afh. Vísi: G. 25 kr. G. K.
100. S. J 50 kr.
Víkingur.
Dregið hefir verið í happ-
drætti Knattspyrnufél. Víking-
ur og eru vinningar samtals
20. Eru það 10 ferðir til Kaup-
mannahafnar og til baka með
flugvél og aðrar 10 ferðir sömu
leið með skipi. — Þessi númer
hlutu vinninga: 44, 96, 315,
498, 561, 578, 633, 694, 908, 948,
1034, 1145, 1324, 1373, 1532,
1614, 1663, 1765, 1881, 1959.
Vinninga skal vitja til Ingvars
Pálssonar hjá Björgvin Fiæde-
riksen h.f., Lindargötu 50.
Hvar eru skipin?
Skip S.Í.S.: Hvassafell er
væntanlegt til Norðfjarðar á
morgun. Arnarfell er á Akra-
nesi. Jökulfell fór 27. þ. m. frá
Hamborg áleiðis til Rvk. Dís-
arfell fer fi'á Rotterdam í dag
til Amsterdam. Litlafell fór frá
Siglufirði í gær til Vestfjarða-
hafna. Helgafell kemur til
Reyðarfjarðar í dag. Stientje
Mensinga er væntanlegt til
Nörresundby í dag. Tovelil er í
Keflavík. Káthe Wiards er á
Skagaströnd. Ostzee er í Borg-
arnesi.
Salka Valka.
Vegna mistaka í afgreiðslu
frá Nordisk Film getur frum-
sýning hér á Sölku Völku ekki
farið fram 1. desember. Þess er
vænst, að það dragist ekki lengi,
að sýningar á kvikmyndinni
geti hafist hér, ef til vill.aðeins
nokkra daga.
Brúðkaup.
Sl. sunnudag vora gefin sam-
an í hjónaband af síra Ingólfi
Ástmarssyni, Helga Bachmann,
leikkona. og Helgi Skúlason,
leikari frá Keflavík. Heimili
þeirra er að Óðinsgötu 18.
Gefin hafa verið saman í
hjónaband af síra Jakobi Jóns-
syni ungfrú Erla Jónsdóttir,
Ægissíðu 68. og Örn Geirsson,
vélvirki, sama stað. Heimili
ungu hjónanna verður að Kvist-
haga 29.
Mkrossfftíta 2367
Lárétt: 2 Bæjarhverfi, 6
ólán, 7 fjall, 9 mishæð, 10 tindi,
11 títt, 12 tveir eins, 14 frum-
efni, 15 þvaga, 17 gengur fyrir
vindi.
Lóðrétt: 1 Dýi'bítir, 2 fanga-
mark, 3 ellihrumleiki, 4 fanga-
mark, 5 sleginn, 8 eftir frost,
9 veizlu, 13 sægróðui', 15 um
tíma, 16 átt.
Lausn á krossgátu nr. 2366.
Lái’étt: 2 Gróða, 6 kál, 7 RV,
9 Óm, 10 Sem, 11 BSE, 12 LR,
14 an, 15 las, 17 nauma.
Lóðrétt: 1 Verzlun, 2 GK, 3
ráð, 4 ól, 5 almennt, 8 ver. 9
ósa, 13 Kam, 15 LU, 16 SA.
Hjónaefni.
Ssl. laugardag opinberuðu
trúlofun sína urtgfrú Jórunn
Mary Ingvarsdóttir, Norður-
götu 19, Akureyri, og Emil
Bii'nir Sigurbjörnsson, Miðtúni
3, Keflavík.
Veðrið.
Kl. 8 í morgun var veðrið á
ýmsum stöðum sem hér segir:
Reykjavík ANA 5, 6 st. hiti.
Stykkishólmur A 2, 5. Galtar-
viti ANA 4, 5. Blönduós NA 1,
—1. Akui'eyri logn, 2. Gi'íms-
staðir A 2, 1. Raufai'höfn A 4,
4. Dalatangi A 4, 4. Horn í
Homafirði NA 2. 4. Stórhöfði
A 8, 6. Þingvellir NA 3, 6. Kefla
víkurflugvöllur NA 4, 6. Veð-
urhorfur fyrir SVland: Austan
kaldi eða stinnings kaldi, skýj-
að í dag, allhvass NA og rigning
á morgun.
Togararnir.
Jón Baldvinsson, Jón Þor-
láksson og Geir eru í Reykja-
vík, Neptúnus og Þorsteinn Ing-
ólfsson fóru á veiðar sl. laug-
ardag.
Vinsælir hljómleikar
varnarliðsins
til ágóða fyrir barnaspítal-
ann. Hljómsveit varnarliðs-
in sefndi til jasshljómleika á
sunnudagskvöld í Austxrrbæjar-
bíói til ágóða fyrir barnaspít-
alasjóð Hringsins. Hljómsveit-
arstjóri var Patrick F. Veltre
og einsöngvari Philip Celia.
í hljómsveit þessari er valinn
maður í hverju rúmi, mega allir
kallast meistarar, hver á sitt
hljóðfæri, enda leikur svo að
segja hver maður sinn ein-
leikskafla. Mesta athygli vöktu
einleikarai'nir Custer Ruley
(slíðurhorn), Stan Piwnica
(trompet), John O’Donnel
(saxó) og Robei't Grouse, sem
er afburða trumbuslagai'i, hár-
viss og hugkvæmur. Einsöngv-
aranum, Philip Celia, var á-
kaflega vel fagnað. Hann hefir
fallega rödd og kai’lmannlega,
góðan framburð og örugga
framkomu. Kristján Kristjáns-
son hljómsveitarstjóri kynnti
atriðin hvert um sig og mjög
fjörlega. Fögnuður áheyrenda
var mikill, hljómsveitinni bár-
ust blóm, og varð hún að leika
aukalög. — Síðari jasshljóm-
leika sína heldur hljómsveitin
í kvöld kl. 11.30 í Austurbæjar-
bíói, einnig - til ág’óða fyrir
barnaspí talasj óðinn.
il
Kjöfíars, fiskfars,
hvítkál, gulrætur, gul-
i
rófur.
Axel Slgurgeirsson
[Barmahlíð 8. — Sími 7709.
ÍHáteigsvegi 20. — Sími 6817.
Salikjöt og baunlr, í
kjötfars, hvítkál og róf-
ur.
& JJiál u-r
Horni Baldursgötu og
Þórsgötu. Sími 3828.
Gólfteppi
mjög falleg og ódýr.
Cocosteppi
mjög falleg og ódýr.
Hollenzku
gangadreglarnir
nýkomnir í fjölda lita og breidda.
Athugið að gjöra pantanir yðar nógu tímanlega,
svo þér getið fengið þá faldaða á þeim tíma er þér
helzt óskið.
Gjörið svo vel og skoðið í gluggana.
Stúlliu óskasi
til matreiðslu.
Mjjöt ék ÍKTrtvivtiivii
Snorrabraut 56.
Uaði Hjörvar
ótvarpsmaður, lézt að heimili foreldra sinna 26.
nóvember, tuttugu og sex ára gamall. Otförin
hefur farið fram í kyrþey, eftir ósk hans
sjálfs.
Ástvinir hans senda hiarians kveðju öllum
vinum hans og félögum, nær og fjær.
Sjöfn Hjörvar, Ari og Helgi.
Rósa og Helgi Hjörvar.
Eiginmaður minn og bróðir okkar
Ólalnr Magnnsson,
konunglegur hirðljósmyndari,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 2. desember kl. 11. f.h.
Guðrún Árnadóttir, Ásta Magnúsdóttir,
Karl G. Magnússon, Pétur J. H. Magnússon.