Vísir - 01.02.1955, Síða 4

Vísir - 01.02.1955, Síða 4
VÍSIR Þriðjudaginn 1. febrúar 1955 % DAGBLAÐ Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. AXgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm lmur). Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. „Hv0 sænsku sverðtn bíta. n Allir kannast við sænska hetjukonunginn Karl tólfta, sem mun hafa verið frægastur allra konunga, meðan hann vari uppi, enda einhver mesti ævintýramaður og hershöfðingi um sína daga og raunar lengur. Meðan hann var upp á sitt bezta stóð slíkur ljómi af nafni hans og Svía, að hvorki fyrr né síðar munu þeir hafa verið eins frægir, en þó fengu þeir að finna það, að slík frægð er létt í rftaga, þegar iíla gengur, enda var þjóðin í sárum, er Karl féll, eftir sífelldar styrjaldir með þeim börmungum og harðrétti, er þeim fylgja ævinlega. Karl tólfti virtist ekki kunna að hræðast, og réðst ekki •ó garðinn, þar sem hann var lægstur, því að hann hikaði ekki við að ráðast á Rússa, er áttu yfir margfalt stærra landi og vafalaust miklu fólksfleira að ræða. Hann hafði tíðast frægan sigur yfir hers’rörum Rússa, en varð þó undir um síðir, og bar ekki sitt ba.r eítir það. Hann hélt samt í hemað aftur, því að hann vildi sýna þjóðum, „hve sænsku sverðin bíta“, eins og í kvæðinu stendur. Dagar hetjukonunga eru liðnir, en svo virðist sem menn hafi ennþá löngun til að færa sönnur á, „hve sænsku sverðin bíta“, því að SAS hefur áhuga að sýna íslendingum eggjamar, og beitir fyrir sig sjálfu sænska ríkinu. Kann að vera að í stjóm þessa volduga félags leynist einhver, sem gæddur er sðmu hetjulund og Karl tólfti, en þá hefði verið eðlilegra, að leitað hefði verið á, þar sem meiri sæmdar var að vænta af sigri, sem vinnast kynni. En það var ekki gert, og er því ekki einkennilegt, þótt menn spyrji, hvort ísland sé óvinaríki, eins og gert var í Noregs Handels- og Sjöfartstidende eins og sagt var frá hér í blaðinu í gær, en fjölmörg önnur blöð hafa tekið í svipaðan streng í máli þessu. * í loftferðasamningi þeim, sem gerður var á sínum tíma milli ríkisstjórna íslands og Svíþjóðar, var svo ráð fyrir gert að deilumál skyldi leggja í gerð eða menn skyldu að minnsta kosti ræðast við um þau atriði, sem deilur kynnu að rísa um. Hvorugt hefur sænska ríkisstjórnin talið ástæðu til að gera, heldur segir hún samningnum aðeins upp, og mun engum koma til hugar að nefna slíkt háttvísi. Það er einnig harla hlálegt, að Svíar skuli segja samningi þessum upp, þegar Loftleiðir hafa sama fargjald og önnur flugfélög milli íslands og Norðurlanda, og fargjaldið milli íslands og Bandaríkjanna kemur SAS ekk- ert við, þar sem það er samningsatriði milli íslendinga og amerískra félaga. Sjöprófin... Framh. af 1. síðu. Eftir hádegið i gær héldu á- fram sjópróf út af strandi „Egils rauða“, og voru þá auk skipstjór- ans, teknir fyrir tveir Færeying- ar, þeir er vakt áttu í brúnni, áð- ur en slysið varð. Fyrst var tekin skýrsla af Berg Nilsen vaktformanni. Hann kvaðst hafa komið upp i brúna kl. 15.30 stranddaginn og hafi skipið þá verið látið reka inn með Grænulilíð. Hafi livorki skipstjóri né stýrimaður verið á stjórnpallinum, er hann kom upp, en aðeins þrír Færeyingar. Litlu siðar telur hann, að annar stýri- maður liáfi komið upp og gefið fyrirmæli um að sigla til skipa er lágu nær landi. Kvaðst liann hafa byrjað að sigla kl. 16.55 og siglt í hálftíma með hægri ferð í austur, og hafi Egill rauði þá verið kominn í grennd við skip- in. Hafi vélin þá verið stöðvuð og látið reka. Sagði Berg - Nilsen, að skip- stjóri hefði komið upp í brú kl. 18,00 og hringt í vélsimann hæga ferð úfram og sagt, að sigla skip- inu í NA. Ekki kveðst hann þá hafa séð nein ljós eða skip í þeirri stefnu, er sigla átti til. Hafi skipstjóri nú brugðið sér frá 20—25 mínútur, en þegar hann hafi komið aftur, liafi hann þeg- ar hringt á stopp. Segist Berg Nilsen hafa gengið út á brúar- væng, en i sama bili hafi skipið tekið niðri, og telur hann að liinir tveir Færeyingarnir hafi þá verið í stýrishúsinu. Ekki kveðst hann vita, hvað skipstjóri hafi tekið sér fyrir hendur, er skipið tók niðri, því að sjálfur hafi hann farið í klefa sinn og náð i björgunarbelti, en síðan út ú bátadekk, þar sem margir skip- verjar hafi verið að reyna að setja út björgunarbát. Berg Nil- sen kvaðst liafa skipstjórnarrétt- indi á öllum stærri fiskiskipum norðan 35 breiddarbaug. Þá var tekin skýrsla af öðrum Færeying, Olav Joensen háseta. Kveðst hann h'afa komið í brúna kl. 15.30 með Berg Nilsen, og ver- ið þar allan tímann þar til skip- ið strandaði. Kvaðst liann hafa séð ljós á 3 skipum ú bakborða. Þá ber hann það, að annar stýri- hann var á stjórnpallinum, hafi skipinu verið siglt tvisvar og hafi hann verið við stýrið. í fyrra sinnið hafi verið siglt með hægri ferð í austur og þegar þeirri sigl- ingu var lokið, hafi ljós skipanna verið nálægt á bakborða, Þá ber hann það, að skipstjórinn hafi kömið í brúna kl. 18,00 og hringt í velsíman liæga ferð áfram og gefið fyrirmæli úni að sigla í NA. í sama bili hafi hann séð ljós framundan i þeirri stefnu, cn ekki minnist hann þess, að skipstjóri gæfi fyrirmæli um að hætta sigl- ingunni er komið væri að þessu ljósi. Segir hann að næst er skip- stjóri kom í brúna hafi ’ hann hringt á stopp, og kveðst Olav allan tímann liafa verið við stýr- ið, og kvaðst minnast þess, að það hafi áður tekið niðri tvisvar eða þrisvar. Þegar skipið var orðið fast á grunni, segist Olav hafa farið í klefa sinn og náð i bjargbelti, en síðan upp á báta- dekk og reynt að hjálpa félögum sínum að koma út björgunarbátn um, en það tókst ekki. Jl uócjacýna- unvm maður hafi komið upp niiniista Þótt það sé alli'a vitorði, að SAS hafi lengi litið Loftleiðir ’ kosti einu sinni, en ekki hafi óhýru auga, af því að hið íslenzka félag hefur gefið mönnum ’ ilann heyrt hann gefa nein fyrir- kost á að ferðast vestur um haf héðan fyrir minna -fargjald j mæli. Hann' segir, að á meðan en tíðkast hjá SAS og, öðrum flugfélögum, er nota stærri og í ____________' ___________- alla staði fullkomnari flugvélar, stendur deílan ekki lengur' # milli þeirra. Um deilu af hálfu Loftleiða hefur raunar ekki L Eldraun fyrir M- verið að ræða, því að það hefur í engu farið út fyrir þau tak- ! • mörk, sem því eru heimil. En sænska ríkisstjórnin virðist hafa e * 10006 1 VJKUtlHl* gert málstað SAS að sínum, og horfir málið þá allt öðru vísi við, því að um leið er íslenzka ríkisstjórnin orðin aðili. Um það verður ekki sagi á þessu stigi málsins, hverjir samningar takast, er fulltrúar ríkisstjórnanna hittast, en ís- lendingar munu að sjálfsögðu standa á rétti sínum. Ætti sænska ríkisstjórnin einnig að gera sér Ijóst af undirtektum þeim, sem uppsögnin hefur fengið í blöðum þar í landi og víðar, að hún hefur ekki farið hyggilega að ráði sínu. Mönnum finnst, að lítið leggist fyrir kappana, er þeir segja upp samn- ingnum við ísland, því að Svíar muni aldrei hafa þor til að reyna að beita stærri þjóðir sömu tökum. Loftleiðir hafa einnig svarað fyrir sig. Félagið hefur ekki látið það á sig fá, þótt SAS láti ófriðlega, því að félagið hefur ráðizt í að kaupa nýja Skymasterflugvél til viðbótar við þá, sem það á, og hefur þá þrjá til umráða, þar sem félagið hefur eina á leigu. Það hyggst auka flugferðir sínar yfir Atlantshaf til mikilla muna á komandi sumri, og munu félaginu áreiðan- lega fylgja heilla- og hamingjuóskir allra íslendinga, ekki sízt af því að nú á að reyna að beita félagið bolabrögðum. Og margir útlendingar, sem félagið gerir fært að fara nauð- synlegra ferða fyrir minna gjöld en keppinautarnir, munu áreiðanlega einnig óska því góðs í samkeppninni við risaxm SAS. París í morgun. f þessari vikn láta andstæðing- ar Mendes-France slag standa og reyna að fella hann. Honum er sögð stafa mest hætta af fáeinum mönnum í hans eigin flokki, radi kala flokkinum, sem hafa samein- ast gegn honum. Hið kærkomna tilefni andstæð- inganna er umræða um Norður- Afríkulönd Frakka, hin þriðja á 7 mánaða stjórnarferli M,- France. — Næstkomandi mið- vikudag hefst sú umræða og er ráðgert að henni Ijúki á fimmtu- dagskvöld. Fari M.-France fram á traust, sem gera má ráð fyrir, getur atkvæðagreiðslan ekki farið fram, fyrr en á föstudag. Stjórnmálafréttariturum bcr saman um, að mikill vafi muni á leika um úrslitin þar til atkvæða greiðslan hefur fram farið. • MIN CREAM er ódýrt. 0 — er varanlegt. • MIN CREAM gljáfægir. alla póleraða hluti, svo sem píanó og viðtæki. • MIN CREAM er viður- kennt fyrir gæði í tuttugu ár. Heildsölubirgðir: KRISTJAN ó. SKAGFJÖRÐ H.F. MAAAWWVVWIAVÍVVVVVVV ~Kaupi fyull oy .SKARTBRIPAVERZIUN^ * »FNtSS‘TQÆfl AÐALFUNDUR Skíðafélags Reykjavíkur verður haldinn að Aðal- stræti 12, uppi, föstudaginn 4. þ. m. kl. 8.30 síðd. Stjórnin. Það hafa margir verið óá- nægðir með frestinn, sem þeir fengu hjá Skattstofunni til þess að ganga frá skattskýrslu sinni. Eyðnblöðin koniú svo miklu síð- ar að þessu sinni til skattgreið- enda en áður, og fannst mörgum að vel hefði mátt liafa frestinn lengri, einkum vegna þess, að engin skattskrá kom út í fyrra og flestir hafa orðið að leita upp- lýsinga hjá Skattstofunni um það, livernig gjöld þeirra vorti sundurliðuð á s.l. ári. Hætt er við að margir hafi verið búnir ‘að týna miðunum, sem sendir voru heim til þeirra yfir gjöldin og þvi í bezta falli munað heild- arupphæðina, sem ekki er nóg,. ef skýrslan á að útfyllast rétti- lega. Skökk heimilisföng. Að þessu sinni voru skattskýrsl urnar sendar með pósti til skatt- greiðenda, en ekki bornar í hús- in, sem verið hefur venja. Skökk heirailísföng hafa verið á all- mörgum skýrslum, eins og gerist og gengur, og þær skýrslur verið endursendar. Dæmi veit ég uro mann, sem frétti af skýrslu sinni á stað, þar sem hann hafði áður búið, en var ekki húinn að fá hana í hendur í gær. Slæmt væri það fyrir hann, ef skatturinn yrði áætlaður, þegar hann í rauninni gat ekkert að því gert, og úti- lokað var fyrir hann að skila skýrslunni i tæka tíð. Áður bár- ust eyðublöð þessi mönnuin venjulega milli jóla og nýárs, og liöfðu menn þá nægan tíma, þótt reyndar hafi raunin verið að flestir hafi dregið það til síð- asta dagS að útfylla skýrslurnar.. Fljótgert. Það má auðvitað segja það, og það með réttu, að fyrir flesta sé það fljótgert að útfylla skatt- skýrsluna og skal ég játa að yf- irleitt vorkcnni ég fólki ekki að skiia skattskýrslu sinni í tæka tíð, þótt fresturinn hafi verið skemmri nú eii áður. En það er með þá, sem ekki fengu eyðublöðin fyrr en kannske sein- asta daginn, eða kannske ekki fyrr en cftir þann tíma, og eru ef til vill ckki búnir að fá þau. Þeir munu líka sMlfsagt fá sinn frest ef þeir skýra frá því, hvern- ig í málinu liggur. Það væri slæmt ef skattur yrði áætlaður hjá þeim, sem þannig væri ástatl um. Útburðurinn. Um þann hátt, að senda skatt- skýrslurnar i pósti má segja, að vafamál er að það borgi sig. Sennilega er það dýrara og svo kemur það til, að séu fengnir sérstakir menn til þess að bera þær út, geta þeir leiðrétt heim- ilisföng jafnóðum og skýrt frá því á Skattstofunni, én þegar pósturinn annast verkið, fara skýrslurnar fyrst á pósthúsið og síðan til Skattstofunnar, og tekur það lengri tima. Þótt ríkt sé gcngið eftir því, að menn til- kynni bústaðaskipti þegar í stáð, er sú reyndin að vanhöld eru á tilkynningum og má alltaf gera ráð fyrir að allmikið af eyðublöð um scm þessu komi til baka, vegna þess að heimilisfangið er ekki rétt. En hvað sem þessu öllu liður, þá eiga menn að vera búnir að skila skýrslum sínum nú, og gera verður ráð fyrir, 'að það hafi verið aðalreglan, a'Ö flestum hafi tekizt það. — kr.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.