Vísir - 01.02.1955, Blaðsíða 8
ylSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 »g
gerist áskrifendur.
»
Þriðjudaginn 1. febrúar 1955
Þeir, sem gerast kaupendur VtSlS eftir
10. hv-rs mánaðar, fá blaðið ókeypis til
m&naðamóta. — Sími 1660.
Matsveinaverkfallið veldur vax-
andi erfiðleikum úti á landi.
Tvísýn Skjaldarglíma Á
að Hálogalandi í kvöld.
Skæðusíu glímumeniiirnir eru
Ármann J. Lárnsson og Sfiíiiialr
tssi ðmundsson.
Sums staðar orðinn
olíuskortur.
Matarbírgðír
ganga til [mrrðar.
Verkfall matreiðslu- og fram-
Teiðslumanna á kaupskipaflot-
anum er þegar farið að valda
•erfiðleikum úti á landi.
Verkfallið hefur nú staðið i
lt daga, og hefiir ekkcrt gcrzt.
•«r miðar í samkomulagsátt. —
DeiluaSilar áttu fund með sótta-
semjara ríkisins frá kl. 8% í
gáerkveldi til kl. 1 i nótt, en
árangur varð enginn af viðræð-
nnum.
Vísi er kunnugt ura, að sums
staðar úti á landi hefur verkfall
þetta þégar valdið erfiðleikum.
Til dæmis má geta þess, að við
borð lá, að rafstöðin i Norðfirði
yrði stöðvuð vegna olíuskorts, og
varð að veita oliuskipinu Þyrli
rindanþágu til þess að mega fara
auslur með olíufarm og fór skip-
ið i fyrrakvöld.
Þá er vitað, að sums staðar fyr-
ir norðan er orðinn hörgull á
olíu, og hefur Litlafell, oliuskip
SÍS, orðið að fara með smú-
slatta milli staða þar, en skipið
hefur enn ekki verið stöðvað, þar
sem það hefur ekki komið í
heimahöfn (Reykjavík).
Þá hefur Visir frétt, að viða
fari að ganga á matvælabirgðir
vegna stöðvunar strandferða-
skipanna, enda þótt ekki hafi
komið til beinna vandræða enn
sem komið er.
Loks má geta þess, að atvinnu-
leysi hlýtur að fara að gera vart
við sig við höfnina hér meðal
verkamanna, eftir þvi, sem fleiri
skip stöðvast vegna verkfallsins.
„Já eða nei" í kvöSd
í SjáBfstæ5ishústnu.
Þátturinn „Já eða nei“ verður
tekinn upp í Sjálfstæðishúsinu
í kvöld og hefst það kl. 9.
Auk spurninganna ,já eða nei“
verður „annaðhvort eða“ og
loks korna þar fram fjórir hag-
yrðingar, sem botna aðsenda
fyrríhluta. Hagyrðingarnir eru:
Guðmundur Sigurðsson, Helgi
■Sæmundsson, Iíarl ísfeld og
Steinn Steinarr.
Aðgöngumiðar eru seldir í
Sjálfstæðisliúsinu eftir kl. 3 i
<lag.
Italir fá kafbáta
vestra.
ítöslk kafbátsáhöfn tók. í
anorgun við bandarískum kaf-
íbáti.
Var hann afhentur í Nýju
London, Connecticut, sem er
eitt austurfylkjanna, og er
þetta annar kafbáturinn sem
Bandaríkjamenn afhenta ítöl-
T.nný» einum og hálfum mánuði.
Fimleikaflokkur frá
Marybnd sýnir hér
Annað kvöld sýnir fimleilca-
flokkur frá Háskólanum í
Máryland í Bandaríkjunum
fimleika í íþróttahúsinu á Há-
logalandi.
í flokknum eru 10 stúlkur og
11 piltar. Allt eru þetta stúd-
entar frá Háskólanum í Mary-
Aflatregða og
hvassviðri á
niiðufiúm.
Aflinn er enn tregur í ver-
stöðvunum hér sunnanlands. —
Auk þess eiv hvasst á miðun-
um og margir bátar héldu
kyrru fyrir í dag þ. á m. allir
Keflavíkurbátarnir.
Nokkrir Akranesbátar munu
hafa veitt sæmilega í gær og
öfluðu þrír þeirra um eða yfir
8 lestir á bát. Þeir sem minnst
öfluðu komust allt niður í
1 lest.
Keflavíkurbátarnir komu
inn í gær með allt frá 2 og
upp í rúmlega 5 lesitir. Hjá
Hafnarfjarðarbátum var aflinn
áþékkur, eða 2)^—5 lestir.
Reykjavíkurbátarnir öfluðu
einnig illa, mest 5 lestir. Aftur
á móti hafa smábátar, sem eru
með ýsulóðir hér rétt fyrir
utan, veitt ágætlega og m. a.
komst einn þeirra upp í 4 lestir
í gær. Hafa þessir bátar verið
meira og minna á veiðum frá
því fyrir áramót og jafnan veitt
ágætlega.
I Þorlákshöfn var á dögun-
um, þegar sunnan- og suð-
austanáttin geysaði, gæftaleysi
þar og gátu bátar ekki róið
marga daga samfleytt. En nú
hefur verið róið þar frá þvi s.l.
föstudag, en aflinn heldur
tregur, yfirleitt 4—5 Vz lest, og
meiri hlutinn af því ýsa. Nú
virðist aftur á móti sem þorsk-
ganga sé að færast á miðin og
í gær bar óvenju mikið á
land. Stúdentaflokkur þessi
hefur ferðast víða um heim á
undanförnum árum og skemmt
í herstöðvum Bandaríkjanna.
Flokkurinn sýnir hér á ýms-
um áhöldum. sem ekki hafa
sézt hér áður, t. d. sýna þeir
stökk á fjaðraborði.
I flokknum eru að þessu
sinni tveir heimsfrægir trúðar
og leika þeir margvíslegar
listir.
þorski í aflanum.
lestir í róðri en hæsti báturinn
er með um 40 lestir yfir allan
tímann.
Eftir 9 róðra Þorlákshafnar-
bátanna er meðalafli þeirra 3
I dag er stíf norðanátt og
hvassviðri á miðunum, en
flestir Þorlákshafnarbáta eru á
sjó í dag.
----★-----
M.-France fer
hvergi.
Einkaskeyti frá AP. —
París í morgun.
Franska stjórnin biðst ekki
lausnaij vegna ósigurs þess sem
hún beið við atkvæðagreiðslu í
fulltrúadeildinni í gær.
Til umræðu var frv. um
bráðabirgðafjárveitingar og
beið stjórnin ósigur við at-
kvæðagreiðslu um eina grein
þess. Ósigurinn hefur vakið
umíal aðallega vegna þess, að
fyrir stendur önnur atkvæða-
greiðsla óg mikilvægari, að af-
stöðnum umræðum um stefnu
stjórnarinnar varðandi lönd
Frakka í Norður-Afríku. Ætla
margir, að þá sameinist fjand-
menn Mendes-France gegn
honum.
Tvíbiirar í 4. siiui
Frú Edith David heitir kona
nokkur 33ja ára, sem búsett er
í Hamborg. Það kom fyrir hana
á dögunum, að hún ól tvíbura,
og er þetta í fjórða skipti, sem
hún eignast tvíbura.
Skjaldarglíma Ármanns 1955
verður háð að Hálogalandi í
kvöld.
Keppendur eru 11, þar af 5 frá
Glímufélaginu Armann, 5 frá
Ungmennafélagi Reykjavíkur og
1 frá Ungmennafélagi Biskups-
tungna. Meðal keppenda eru all-
ir beztu glímumenn landsins og
skal þar fyrst til nefna Ármann
J. I.árusson UMFR og Rúnar
Guðmundsson (Á.).
Ármann J. Lárusson er núver-
andi Glimukóngur íslands og
Skjaldarhafi. Rúnar Guðmunds-
son er fyrrverandi Glimukóngur
og Skjaldarhafi. Hann hefur s.l.
ár starfað við löggæzlu á vegum
Sameinuðu þjóðanna og þvi ekki
getað tekið þátt í keppni. Hann
i kom heim þ. 21. þ. m. og gengur
strax til leiks. — Guðmundur
Jónsson (UMFR) og Kristmund-
ur Guðmundsson (Á.) fá nú að
reyna sig við ókunnan ungan
mann Bjarna Sigurðsson (Umf.
Bisk.), son Sigurðar Greipssonar
bónda að Geysi. Verður gaman
að sjá þessa 3 fulltrúa yngri kyn-
slóðarinnar reyna með sér, en
einnig munu þeir hita þeim, sem
eldri eru. Gísli Guðmundsson
(bróðir Rúnars) er í góðri æf-
ingu og t. d. stökk hann 1.82 m.
í hástökki nú nýlega, þó hann
mælist ekki svo hár sjálfur. —
Hann V'ánn flokkaglimu Reykja-
víkur í þyngsta flokki s.l. og
cinnig mun liann hafa lagt glimu-
kónginn, þó það eitt sé ekki nóg
tii sigurs, en það bendir aftur
á móti til þess að enginn gengur
öruggur um sigur til leiks.
Keppendur eru sem hér segir:
Anton Högnason (Á.), Ármann J.
Lárusson (UMFR), Baldur Krist-
Nokkuð vaið um slys hér í
bænum mn sl. helgi, en ekkert
þeirra alvarlegt eðlis.
Árdegis á laugardag, varð
umferðarslys á gatnamótum
Skothússvegar og Fjólugötu,
en þar varð kona fyrir bíl. Lög-
regla og sjúkrabifreið fóru á
staðinn og var konan flutt á
Landspítalann en læknar töldu
að hún hefði meiðzt lítið.
Sama dag, um eittleytið var
lögreglan og sjúkrabifreið aft-
ur kvödd á vettvang vegna
slyss sem orðið hefði á Suð-
urlandsbraut gegnt Múlahverfi.
Atvik voru þau að tvær bif-
reiðar mættust, var önnur
sendiferðabifreið en hin vöru-
bifreið og hafði steinn hrokkið
frá þeirri síðarnefndu á fram-
rúðu sendiferðabílsins, og brot-
ið hana. Ekki mun bifreiðar-
stjórann hafa sakað að ráði.
Aðfaranótt laugardags kom
ölvaður maður rúðu í sam-
komuhúsi einu hér í bænum og
skarst við það illa á hendi.
Gísli Guðmundsson og
Anton Högnason.
insson (Á.), Bjarni Sigurðsson
(Umf. Bisk.), Gisli Guðmundsson
(Á.), Guðmundur Jónsson (UM-
FR), Hannes Þorkelsson (UM-
FR), Karl Stefánsson (UMFR),
Kristján H. Lárusson (UMFR),
Kristmundur Guðmundsson (Á.)
log Rúnar Guðmundsson (Á.). —
Keppt er um Ármannsskjöldinn,
gefandi Eggert Kristjánsson stór-
kaupm. Ármann J. Lárusson er
skjaldarliafi og liefur hann unn-
ið skjöldinn tvisvar og vinnur
liann til eignar, vinni hanu
þessa keppni. Ferðir að Háloga-
landi verða frá afgr. sérleyfis-
liafa hjá Ferðaskrifstofunni og
með strætisvögnum Reykjavíkur.
Aðgöngnmiðar verða seldir við
innganginn, en rétt er að geta
þess, að búast má við mikilli að-
sókn.
Hann var fluttur í Landspítal-
ann þar sem gert var að sáruni
hans, en að því búnu fluttur
heim.
í fyrradag, um hálftvöleytið
varð kona, sjúklingur á Kleppi
fyrir strætisvagni á Langholts-
vegi. Konan var flutt á Land-
spítalann og kom í ljós, að hún
hafði fengið heilahristing.
Á laugardagsmorguninn var
töluverð hálka á götum bæjar-
ins og af hennar völdum varð
töluvert um árekstra bifreiða,
en engir þeirra stórvægilegir.
Einn bifreiðarstjóri var tek-
inn fyrir ölvun við akstur.
Kvöldbað.
Á 11. tímanum á laugar-
dagskvöld var lögreglunni til-
kynnt að menn væru á sundií
í Sundlaugunum og var hún.
beðin að koma og hirða þá.
Þama var um þrjá unglings-
pilta að ræða og höfðu þeir
klifrað yfir girðinguna til þess
að komast í laugina.
4 slys hér um helgina
ekkeri þó alvarlegs eðlis.