Vísir - 13.02.1956, Blaðsíða 1

Vísir - 13.02.1956, Blaðsíða 1
12 bis. 46. árg. 37. tbl, ¥é!in7fariiist brotin á HoStgvör^tiheíði ©§ í 'gær .varð sviplegt flugslys á Holtavöiðuheiði. Ungur Ak~ ureyringur, Sveinn Eiríkssen, 19 ára, var á leið suður í lít- illi ilíigvél, bg spurðist ek-ki til hans, fyrr en flugvél lians fannst brotin utan vegarins í námunda við sæluhúsið. og var flugmaðurinn látinn, er að var komið. Er flugvélin fannst voru margar flugvélar farnar að leita og margvíslegur við'- búnaður annar til björgunar hafinn. Flugvélin lagði af stað frá Akureyri kl. 10.32. Flugmað- urinn, Sveinn Eiríksson, er son ur Eiríks Guðmundssonar kjöt iðnaðarmanns á Akureyri. — Hafði Sveinn verið í Svifflug- félagi Akureyrar frá unga aldri, lærði svifflug, og tók seinna próf í vélflugi. Lærði hann í flugskólanum Þyt eins og ýmsir fleiri Akureyringar. Flugvélin, sem Sveinn flaug í, er tvíþekja af svonefndri Fleet Finch gerð, með einum hreyfii og sæti fyrir tvo. Elds- neyti hafði hann til þriggja klukkustunda flugs. Áætlaði hann að verða 2y2 klst. á leið- inni til Rvíkur. Hann hafði loftskeytatæki fyrir mjög stutta öldulengd, en að því er virðist hafa tækin bilað, því að Sveinn hafði ekkert sam- band við radioflugþjónustuna á Akureyri, eftir að hann lagði af stað. Þegar flugvélin var akki komin fram á þeim tíma, sem hennar mátti vænta til Rvík- IMI. ur, ef allt væri með felldu, var hafin athugun á því, hvort hún hefði lent. á Blönduósi, Sauðár- króki eða Stóra-Kroppi, en flugvelli á þessum stöoum hugðist Sveinn nota sem vara- flugvélli, ef á þyrfti að haida. Athugunin leiddi í íjös, að hann hafði ekki lent á neinum þessara staða. Svo skjótt var brugðið við, að neyðarleit var hafin á þeirri stund, sem gera mátti ráð fyr- ir að eldsneyti flugvélarinnar hefði þorrið. Allar sirnastöðv- ar voru hafðar opnar og flug- vélar hófu leit. Símastöðvarn- ar veittu mikla aðstoð, eihkum Iirútafjarðarstöðin. Meim í jeppa fundu flugvélina. Það voru menn í jeppa, sem voru á ferð yfir heiðina, sem fundu flugvélina, um fjögurra metra vegarlengd frá veginum, rétt hjá Sæluhúsinu. Náðu þeir manninum út úr flugvélmni og var hann mikið skaddaður og tekinn að blána. Samkvæmt úrskui'ði heþ’aðslæknisins á Kleppjárnsreykjum, er kom skömmu síðar á staðinn, mun maðurinn hafa verið örendur, er hann náðist út úr flugvél- inni. Helikopterflugvél fór frá Keflavík með lækni og leiðsögu menn súrefnistæki og hjúkr- unargögn o. fl., en Björn Páls- son fór í sinni flugvél með flugbjörgunarmenn og lækni og F.ramh. á 7. síÖii. 1955 versta árið í sögu um- ferðarslysa í Bretlandi. JVtvrri SZ68.00® Muamms hfflius hana eða ineiddust. Fleiri menn biðu bana á veg- um Bretlands árið sem leið en nokkurn ííma fyrr. Samkvæmt bráðabigðaskýrslum, sem birt- ar voru í vikunni sem leið, fór- ust eða meiddust í umferðar- slysum 267.903 manns, og ném- ur aukningin frá 1954 12% af hundraði. Af þessum fjölda bið 5517 manns bana, 62.099 meiddust svo alvarlega, að þeir voru fluttir í sjúkrahús, en 200.287 meiddust Iítillega. Þessar tölur eru hærri en fyr- ir árið 1954, sem kallað er „Svarta árið“ í sögu umferð- arslysanna, eri þá fórust eða meiddust 239.946 manns. Að einu léyti horfir þó betur 1955 en 1954 — færri létu lífið af völdum bifreiðarslýsa í fyrra en hitt eS fyrra. í desember biðu 721 bana af völdum bifreiðarslysa, einum færri en í desember 1954, sem er enn versti máhuðÚrinn að því er þetta snertir. Miklum áhyggjum veldur, að slysfarir jukust meðal * barna, sem voru á reiðhjólum. Loks er vakin athygli á eft- irfarandi: Frá því í ágúst 1954 þar til í ágúst 1955 fjölgaði bifreiðum á vegum landsins um 600.000. Árið 1954 voru sett lög um 48 km. hámarkshraða d klst. :'og gert að skyldu að ganga undir ökupróf. í stjórnarskrártillögum Nassers, forsætisráðher ra Egypta, er lagt til, að konur fái kosningar- rétt og kjörgengi. Myndin hér að ofan er af kvennahópi sem hyllir Nasser fyrir þessar til- lögur hans. afli hjá bátuni fyrlr helgi. Gamaiifeikur frum- sýndur \ HafnarfirHi. Leikfélag Hafnarfjarðar frum sýnir annað kvöld í Bæjarbíó ,,kátbrosIeikinn“ „Stanz, aðal- braut, stopp.“ Leikrit þetta er eftir ensk- an höfund, Stafford Dickens, og hefur verið sýnt áður hér á landi undir nafninu „Köld eru kvennaráð.“ Ragnar Jóhannesson skóla- stjóri á Akranesi, hefur þýtt leikinn. Leikstjóri er Karl Guð mundsson. Leikendur eru sex: Friðleif ur Guðmundsson, Flosi Ólafs- son, Elín Ingvarsdóttir, Sverr- ir Guðmundsson, Kristbjörg Kjeld og Höskuldur Skagfjörð. HeBBendingar verzla mikið. Utanríkisviðskipti Hollend- inga voru í algeru hámarki á síðasta ári. Útflutningur nam 10,2 mill- jörðum gyUina, hafði aukizt um milljarð frá síðasta ári, en innflutningurinn vai' 12,2 mill- jjarðar móti 10,9 árið 1954. jÞrátt fyrir þetta var greiðslu- i jöfnuður nær í jafnvægi. (Gyll- ini er ca. 4,40 kr. ). Allt að þriðjungi meiri afli en um sama leyti í fyrra. •fc Dr. Ewatt hefur verið end- urkjörinn formaður þing- flokks jafnaðarmanna á sambandsþingi Ástralíu með 58 atkvæðum og háfði 30 atkv. fleiri en só, er næst flest hlaut. Framan af vikunni sem leið voru ógæftir og' þar afleiðandi lítil veiði bjá bátaflotanum, en undir vikulokin batnaði \*eður og glæddist aflinn þá til muna. I sumum verstöðvanna er talið að þessa síðustu daga hafi aflinn verið allt að þriðjungi meiri en um sama leyti í fyrra. Hjá einstökum bátum hefur aílinn komizt upp í 18 lestir á bát. Aki’anes. Allgóður afli var hæði á föstu- daginn og laugardaginn. Mun heildaraflinn hafa verið sem næst 200 lestir hvorn daginn á 20 báta, eða 10 lesta meðalafli á bát. Lægsti bátarnir voru með 6 lestir, en þeir hæstu með 12—14 lestir. Beykjavík. Róið hefur verið alla síðustú dagana og allir bátar, sem héðan verða ^gerðir út í vetur byrjaðir róðra, en þeir eru 8 eða 9 tals- ins. í gær fengu þeir frá sex og upp í þrettán lestir á bát. J-Iafþór og Arnfirðingur voru með mest- an afla 12 og 13 lestir. S.l. föstu- dagskvöld fékk Arnfirðingur 15 lestir og er það mesti afli sem Reykjavíkurbátur hefur landað til þessa. Keflavík. Á föstudaginn var jöfn og góð veiði hjá Keflavíkurbátum al- mennt ög aflinn verið um 400 lestir hjá 40 bátum. BjörgVin var þá hæstur með 18 lestir. Á laug- ardaginn var veiðin eitthvað treg ari. Nokkrir voru með 5—8 lestir en nokkrir með frá 9 og upp í 14 lestir. Kristján frá Ólafsfirði var þá hæstur. Á laugarclagskvöldið var ekki róið í Keflavík fremur en úr ýmsum öðrum verstöðvanna, en í dag eru bátar hvarvetna á sjó. Sandgerði. Á föstudaginn og laugardag- inn var ágætis veiði, frá 7 og upp í 17 lestir og var Muninn II, hæstur i fyrradag. Grindavík. Á laugardaginn x'éru 18 bátar og öfluðu 219 lestir, miðað vif slægðan fisk, og var Guðjón Ein arsson þá með mesta veiði, 16 lestir. í gær veiddust 210 lestir á sama bátafjölda, Gunnar frá Ak- ui'eyri var þá hæstur með 14.2 lestir, Hrafn Sveinbjarnarson með 13.5, Víðir 13.4 og Hafrenn- ingur 13 lestir. , manntjón vegna kuldanna. Hörkuvetrarveður er enn i fiestum löndum álfunnar. Sums staðar er mikil fann- koma, en í sumum löndum hef ur heldur dregið úr frostum. í Júgóslavíu hafa mragir menn farizt af völdum snjóflóða. Tala þeirra, sem farist hafa í vetrarhörkunum, skiptir nú hundruðum. Á - Máxiudaginxr l?. febrúar 1956

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.