Vísir - 03.05.1956, Síða 8
t>eir, lem gerast kaupendur VlSIS eftir
19. hver* mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
VÍSia er ódýrasta blaðið
Fimmtudaginn 3. maí 1956.
Engin sameiiiing án afvnpn-
unar, sem neining ríkir
ton áfram.
Yfirlýsing liefur verið birt í
London varðandi viðræður von
Brentanos ut anrí k i si’ áðli e r ra
Vestur-Þýzkalands og brezku
stjórnarinnar.
Með viðræðum þessum, segja
brezk blöð, hafa verið upprætt-
ar allar grunsemdir um, að
milli Breta og Rússa hafi kom-
ið til orða nokkur lausn, er af
leiddi, að Bretar féllust á sam-
komulag „á kostnað Vestur-
Þýzkalands“.
í greinargerðinni er viður-
kennt, að horfur séu öllu væn-
legri, en ekki megi slaka á
vörnum. Sameining Þýzkalands
sé höfuðskilyrði og raunveru-
legt öryggi fáist ekki, né held-
ur samkomulag um afvopnun-
armál, fyrr en Þýzkaland sé
sameinað.
Ekkert samkomulag náðist
um, að V.Þ. greiddi áfram kostn
að af dvöl brezku hersveitanna
þar, en þetta er orðið mikið
deilumál. Bráðabirgða sam-
komulag varð um að ræða mál-
ið frekara.
Engin sanngirni.
Brezk blöð í morgun minna á
það, að V.-Þ. hafi ekki afgreitt
herskyldufrumvarpið hvað þá
meira, en engin sanngirni sé í,
að Bretar beri kostnað við her-
sveitir sínar í V.-Þ., méðan
Vestur-Þjóðverjar séu ekki til
búnir að taka á sig hlutfallslega
byrði af sameiginlegum vörn-
um, ekki sízt þar sem Bretar
verði sjálfir að bera vaxandi
skattabyrðar, meðan létt sé
sköttum á Vestur-Þjóðverjum.
Eina leiðin.
Þá er bent á það í blöðum í
morgun, að eina leiðin til að
ná samkomulagi um Þýzka-
land sé afvopnun, en nú er und-
irnefnd afvopnunarnefndar
Sameinuðu þjóðanna, sem starf
að hefur í London, að taka sam
an föggur sínar — án þess
nokkur árangur hafi náðst. Eft
ir er að eins að ganga frá
skýrslu til aðalnefndarinnár
um árangursleysið.
Er því ljóst, að þrátt fyrir
margra ára starf, hefir lítið sem
ekkert þokast nær markinu.
í París, •
þar sem ráðsfundur Nato
hefst á morgun, ræddust þeir
við í gær utanríkisráðherrarn-
ir Dulles og Pineau, sem gerðu
grein fyrir viðhorfi sínu til til-
lagnanna um víðtækara sam-
starf N.A. þjóðanna.
Ræddi Pineau einkum vænt-
anlega aðstoð til landa og lands
hluta, sem þurfa efnahagslegr-
ar aðstoðar, vegna þess að þar
er allt á eftir tímanum.
Líklegt þykir, að árangurs-
leysið á fundum undirbúnings-
nefndarinnar, hafi þau áhrif,
að N.A. þjóðirnar sannfærist af
nýju um, að hyggilegast sé að
treysta ekki að svo stöddu á
breytt viðhorf, og muni afleið-
ingin því verða, að þær gæti
þess að veikja ekki varnirnar —
og samtakamátt sinn.
360,000 hafa sjóii"
varp \ V.-PýzIcalaBídi.
Sjónvarpstækjum fjölgar
mjög ört í V.-Þýzkalandi um
þessar mundir eða um 30,000 á
mánuði.
Eru skráðir notendur nú
orðnir um 360.000, og sá hópur,
sem bætist við á mánuði hverj-
um, fer jafnt og þétt ýaxandi.
Þó er sjónvarpið að mörgu leyti
á byrjunarstigi enn, og standa
sendingar aðeins 2—3 klst. á
dag. Þó er talið, að fullkomn-
asta sendistöð í Evrópu og jafn-
vel öllum heimi sé við Ham-
borg’.
Harding kvaddur fil London.
SSrezIi biöð GÍeiIsa bbííi KvptariBiálId.
Sir John Harding landstjóri
á Kýpur er væntanlegur til
London í dag til viðræðna við
ríkisstjórnina.
Brezk blög greinir á um hvað
rétt sé að gera. Sum, einkum
frjálslyndu blöðin segja, að
ekki tjói að beita valdi og kúg-
unum, brezka stjórnin ætti að
geta lært af reynslunni, og
minnir t. d. News Chronicle á
hvernig hörkulegar aðfarir hafi
gefist Bretum á írlandi og víð-
ar. Réttast sé að hefja viðræður
og mætti hugsa sér, að þær
væru á þeim grundvelli, að
Kýpur væri áfram innan sam-
veldisins, en í einhverskonar
tengslum við Grikkland.
Biaðið Scotsman bendir hins-
vegar á, að deilan sé þess eðlis,
m. a. vegna kröfunnar um
sameiningu við Grikkland og'
afstöðu tyrkneska þjóðernis-
minnihlutans, að ekkert sam-
komulag sé hugsanlegt, sem
báðir þessir aðilar telji sig geta
sætt sig við.
Harding landstjóri er þeirrar
skoðUnar, að eins og sakir
standa sé gagnslaust að hefja
nýjar viðræður um stjórnar-
skrá fyrir Kýpur. v
Aflabrögð —
Frh. af 1. síðu:
Afl línubáta var sáratregur
bæði í gær og á mánudaginn,
bezt 5 lestir á bát. Færabátar
eru nú byrjaðir veiðar en hafa
aflað vel, allt upp í % lest á
mann.
Hafnarfjörður.
Á mánudaginn lönduðu 7
línubátar 29 lestum í Hafnar-
firði, en í gær 5 bátar 17 lest-
um. Nú eru 4 línubátar hættir
veiðum.
í fyrradag komu 5 netabát-
ar af veiðum og þeir hæstu með
ágætan afla, Hljóðaklettur með
51 lest eftir 5 lagnir og Stjarnan
34 lestir eftir 4 lagnir, hinir
með 14—15 lestir hver.
Togarinn Ágúst kom í gær-
morgun með 100 lestir af salt-
fiski og ea. 30 lestir af ísfiski.
Hann fór í slipp í morgun.
Keflavík.
Tregur afli var hjá Keflavík-
urbátum bæði í gær og á mánu-
daginn, þ. e. a. s. þeim, 'er veiða
á línu. Voru flestir með 3—5
lestir. Þó komst Hilmir upp í
röskar 9 lestir í gær og tveir
bátar feng'u um 6 lestir hvor.
Netabátar öfluðu aftur á
móti vel. Geir goði, sem land-
aði í Sandgerði, fékk fullfermi,
eða um 30 lestir, Haukur frá
Ólafsfirði 24, Fróði 20 og Ing-
ólfur rösklega 14 lestir. Sumt
af þessu var eftir 2 lagnir.
Flutningaskip hafa lestað
hrogn í gær og saltfisk í dag.
Sandgerði.
Afli Sandgerðisbáta var treg
ur. í gær var hann frá 2V2 og
upp í 6 lestir en á mánudaginn
nokkuru skárri, eða 4—7 lestir
á bát.
Vestmannaeyjar.
Afli einstakra Vestmanna-
eyjabáta var mjög misjafn í
gær, en þeir sem bezt veiddu
fengu mjög’ sæmilega veiði,
jafnt á færi sem í net. Telja
Vestmannaeyingar að komið sé
lokasnið á aflabrögð og vertíð-
ina í heild og aðkomufólk byrj
að að fara þaðan heim til sín.
í dag er austan stormur á
miðunum og fáir á sjó; en eín-
hverjir þó. Telja sjóménn og
útgerðarmenn að stormurinn
fari með síðustu veiðivonina
á þessari vertíð.
Griudavík.
í gær réru 6 bátar og var
Sæborg hæst með 10 lestir. í
fyranag. réru 5 bátar og þá var
Hafrenningur hæstur með 17.2
lestir.
Um s.i. mánaðamót var Haf-
renníngur aflahæstur allra
Grindavíkurbáta á vertíðinni
með samtals 854%. lest, miðað
við slægðan fisk.
Isienzk lliagvél fiytur Hanéorg-
arójieruna snílli landa.
Vélar F.í. fara áááa i'crðir sioriiur
iil Tlaiaie í suiaaar.
Ilamboigaróperan hefur tek-
ið íslenzka flngvél á leigu seint
á komandi sumri ti! ]>ess að
flytja sig í fjórum ferftum milli
Skotlánds og Þýzkalandsi.
Hamborgaróperan hefur ver-
ið ráðin til þess að flytja óper-
ur á næstu Edinborgarhátíð, en
hún er í hópi mestu tónlistar-
viðburða heims hverju sinni.
Edinborgarhátíðin hefst í ágúst
mánuði og lýkur í byrjun sept-
ember.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Hamborgaróperan flýgur milli
landa í hljómlistarerindum og
heíur í þessari fyrstu för sinni
tekið Skymastervél frá Flug-
félag íslands á leigu.
Flugvélin fer tvær ferðir
hvort skiptið og flytur 120
manns hvora leið, þannig að
samtals verða ferðirnar fjórar
að tölu. Mun það vafalaust
vekja nokkra athygli í Þýzka-
landi <að Hamborgaróperan
skuli Jiafa valið sér íslenzkan
fai’kost til þessa fyrsta utan-
landsflugs síns.
Leiguflug til Grænlands.
Þá hefur Flugfélag íslands
samið við danska aðila, sem
hafa með höndum byggingar-
framkvæmdir fyrir bandaríska
herinn norður á Tuleflugstöð-
inni í Gænlandi að flytja þang-
að danska verkamenn og far-
angur þeirra í sumar. Alls
verða farnar 8 ferðir í Skymast
ervélum frá Khöfn til Thule og
verður sú fyrsta þeirra væntan-
lega 27. þ. m.
Þess má geta að á Thule hef-
ur íslenzk flugvél aldrei lent til.
þessa, en aftur á móti hefur vél
frá Flugfélagi íslands lent all-
miklu norðai’, fyrir -3 eða 4 ár-
um, eða á 80. breiddargráðu og
þá í 20 stiga hita.
Flogið til Meistaravíkw.
í gærkveldi flaug Gullfaxi,
millilandavél F. f. norður til
Meistaravíkur á Grænlandi með
flutning og farþega á vegum
námafélagsins. Flugvélin fór
héðan kl. 7.30 í gærkveldi og
var væntanleg aftur í nótt.
-----♦------
4000 husvilltir
í Japan.
Mikill eldur kom upp í smá-
borg einni í Japan £ s.1. viku,
og urðu Uin 4000 manns hús-
villtir.
Brunnu um 600 af 2700 hús-
um í Awara, sem er rétt hjá
Fukui, en smábær þessi er hjá
einni helztu baðströnd Japans.
Tveir menn fórust í eldinum og
20 slösuðust.
Ölvaðir menn finnast
í 2 stolnum bílum.
llöfðu sáoliH laíiaamaaiaa vétt oðaar.
í fyrrinótt skeðu }iau tíðindi
að tveim bifreiðuin var stolið
hér í bænum en báðar fundust
aftur nokkuru síðar og í báð-
um bifreiðunum fundust ölv-
aðir menn.
Klukkan 2.15 um nóttina
kom maður á lögregluvarðstof-
una og tilkynnti að bifreið sinni
hafi verið stolið þar sem hún
hafði staðið fyrir utan Sjálf-
stæðishúsið. Á fimmta tíman-
um um nóttina fanst bifreiðin
suður í Hafnarfirði og tveir
drukknir menn í henni. Lög-
reglan tók mennina fasta og er
mál þeirra í athugun.
Urn svipað leyti og tilkynrit
var um hvarf framangreindrar
bifreiðar var lögreglunni skýrt
frá hvarfi annarrar bifreiðar,
sem stolið hafði verið frá Þjóð-
leikhúsinu. Lögreglan fann
þessa bifreið litlu síðar í Aust-
urstræti og í henni drulckinn
mann við stýrið. Hann var
handtekinn.
Slys.
Síðdegis á mánudaginn slas-
aðist fjögurra ára gömul telpa,
er hún varð fyrir strætisvagni á
mótum Skothúsvegar og Frí-
kirkjuvegar. Telpa þessi heitir
Sigurbjörg Einarsdóttir til
heimilis að Bröttugötu 6. Hún
mun hafa slasast allmikið á
höfði.
um í öllum matvöruver rí unum.
Heildsölubirgðir: ÞORÐUR SVEINSSON & CO h.'