Vísir - 11.06.1956, Síða 1

Vísir - 11.06.1956, Síða 1
4*. árg, -j.'.a-ri-Ta 132. tbl. Mánudaginri 11. júní 1956. Hrædcla bandalagið hefur nú gefið út stefnuskrá sína sérpnentaða. Er hún að sjálf- sögðu mjög mislit eins og þeir flokkar sem að henni standa. Þeir eiga ekkert sam eiginlegt nema viljann til að ná völdunum. Einn liðurinn í yfirlýsingunni er svona: „Allar vinnustéttir, hvort sem þær starfa á landi eða vi'ð sjó, i bæ eða sveit, eiga sameigplegra hagsmuna að gæta. Þær eru mikill meiri- hluti þjóðarinnar. Ef þær suméinast er það tryggt, að þjóðmálunum verður stýrt í þeirra þágu.“ Þa (er ljóst ao Hrædda bandalagið telur engar „vinnustéttir“ nema verka- menn og bændur. Allir hin- ir eru „afætur“ og „millili- ir“. En það yrði dálítið fróð- Jegt að sjá hvernig HB færi að stýra þjóðmálunum ein- göngu í þágu þessara stétta. Alþýðuflokkurinn mundi krefjasf mikillar kauphækk- unar fyrir verkalýinn til að hamla upp á móti dýrtíðinni. . Auðvitað mundi slík kaup- hækkun hækka vísitöluna. Framsókn mundi þá að sjálf- sögðu kr'efjast verðhækkun- ar á öllum Iandbúnaðarvör- um, til þess að bóndinn standi ekki verr að vígi en verkamaðurinn. Þetta mundi enn hækka .vísitöluna. En • þegar svo væri komið mundu kratarnir ekki una öðru en að verkakaupið hækkaði enn itegna hækkunar á land- Svona mundi hjólið snúast til þess að tryggja það, AÐ ÞJÓÐMÁLUNUM VÆRI STÝRT í ÞÁGU „VINNU- STETTANNA*. Svona mundi verða stjórn- arferill hrædda bandalags- ins, sem heldur að hægt sé að blekkja þjóðina til fylgis við sig með því, að lofa að stýra í þágu sérhagsmuna| tveggja stétta, sem liafa1 gagnstæðra hagsmuna að^ gæta, að öðru leyti en því, að þeim ér sameiginlega hagur að því að VITURLEGA sé stjórnað. En við slíku getur enginn búizt af foringjum HB. Það hefur reynsían sýnt. rra reguroarsamjseppninni i gærkveldi. Her sjást blómarósirn ar fjórtán eftir keppnina, er þeim var haldið svolítið lióf að Café HöII. Viðstaddir þar voru, auk noltkurra aðstandenda þeirra, dómnefndin, kynnir og forstöðúmenn. Ljósm.: Vignir. manns á fegurdai' I kvöfd keppa flmm efstu stúikurnar tíi úrslita, siasast í lívoií. í gærkveldi datt maður úr Parísarhjólinu í Tivoli og fót- 1.'.roínaði. Heitir hann Magnús Jónsson. Hafði hann dottið úr einum stólnum og var fallið úm tvær mannhæðir. Gífurlegur mannf jöldi flykkt- ist suður 1 Tivoli í grærkveldi, en þar skyldi fram fara fegurð- arsamkeppni í sambandi við keppni vestur £ Kaliforníu um titilinn ,,Miss Universe". Óhætt mun vera að fullyrða, að þarna hafi veriS saman komnir um eða yfir 7000 manns, enda var vart þverfótað fyrir bílum á Njarðargötunni og Hringbraut rétt fyrir keppn- ina, svo ört streymdi fólkíð að. Veður hafði verið óhagstætt um morguninn, og leit heldur óbjörgulega út um keppnina, en henni hafði verið frestað um einn dag vegna veðurs. Þegar leið á daginn gerði fegursta veður og unt kvöldið var, stillt veður og bjart. Fjórtán stúlkur tóku þátt í keppninni að þessu sinni, flest- ar úr Reykjavík. Mun það mál ílestra, að þar hafí verið métra kvennaval en á nokkurri slíkri keppni hér í bænum. Var svo til ætlazt, að áhorfendur og eSa dómnefnd veldi fimm. stúlkur úr þessum hópi, sem síðan skyldu koma fram í kvöld í Tivoli, og þá á sundfötum, en þá yrði endanlega kjörinn full- , trúi íslands á keppninni í Long ! Beach í Kaliforníu. Var það og gert, en ekki er Vísi kunnugt urn höfn þeirra fimm, sem 1 kjörnar voru, og verða úrslit I birt kl. 12 á miðnætti í nótt suður í Tivoli. Vel hafði verið vandað til keppninnar, bæði að því er snertir þátttöku stúlknanna, svo og tilhögun álla. Langur pallur lá frá leiksviði Tilvolis frarn á áhorfendasviðið, en , sjálft sviðið lrafði hinn hollenzki meistari, Anton Ringelberg, hjá fyrirtækinu j „Rósin“, skreytt blómum og á annan hátt. Rin'geiberg þessi er sá hinn sarni og fór til Monaco í sambandi við brúð- kaup Grace KeJiy og Raiuiers ! fursta. I dómnefnd Reppninnar, voru ■ Sigurður Grímsson lögfr., for- ! maður, Bjarni Konráðsson . læknir, Haraldur Ólafsson ; forstjóri, Karólína Pétursdótt- ir bókari, Sig. Magnússon full- trúi Loftleiða og Þorsteinn E. 1 Jónsson flugstjóri hjá F.í. I Verðlaunin, sem keppt var . um, voru óvenju glæsileg: .Far ' vestur til Kaliforniu tvennir . kjólar og skotsilfur, radíó- ! grammöfónn, ■ dragt, flugfar til Hafnar og til baka og loks gull- j úr. Keppnin fór i alla sxaöi á- gætlega fram. ! Get.a má þess, að sú nýjung 1 var viðhöf.3 við þessa keppni, m. a.. að palíúrinn, sem stúlk- i urnar stóðu á, var upphitaður imeð gas-geislaútbúnaði (Kos- .. ■ ■ : 'angasi) sem heildsiölufyrirtækið Optima hafði lagt til. Reyndist útbúnaðar þessi mjög vel. Ma5ur drukknar vi5 Akranes. Hörmulegt slys varð við ; Akranes á föstudaginn, er ung- ur maður drukknaði þar úti • fyrir. i Hafði hann verið einn ábáti, en báthum mun hafa bvolft, og itóku menn ekki eftir honum, fyrr en svo var komið. I bátn- um var ungur Reykvíkingur, Óskar Guðmundsson prentari, sem Jætur eftir sig Jronu og tvö börn. ■ffia Sjálfstæðisfélögin hér í Reykjavík efna til almenns kjó'Sendafundar annað kvöld. og hefst hann klukkan 8,30 í Sjjálfstæðishúsimi. Ræðumenn verða Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra, Sveinn Guðmuntlsson frarakvæmdar- stjóri, Birgir Kjaran hagfræðingur. Davíð Ólafsson fiski- málastjóri, Geir Hallgrímsson héraðsdómslögmaður og Gunnar Thoroddsen borgarstjóri. Nú er orðið mjög stutt til kosninganna, og sjálfstæðis? menn herða róðurinn með’ degí hverjum. Ef vel verður unnið, eiga sjálfstæðismenn að geta fengið fimm menn kjiörna í Reykjavík, enda ber kosningaharáíta hinna flokk- anna og bandalaganna þess Ijóst vitnl, að þeir eiga við mikla vanmetakennd að síríða, þar sem vopnin snúast jafnt og þétt gegn þeim. Sjálfstæðismeim eiga að fjölmenna á fundinu annað kvöld og auka með því enn á hræðslu and- stæðinganna.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.