Vísir - 11.10.1956, Qupperneq 5
I
Fimmtudaginn 11. október 1956
rtani
Enginn árangur af fundi
Breta, Frakka og Egypta.
Ágreiningur um grunci-
vallaratriði.
Fulltrúar Breta, Frakka og
Egypta, þeir Selwyn Lloyd,
Fineau og Fawzi sátu í gær
Jþriðja fund sinn um Súezmál-
i«. Var fundurinn haldinn að
tilhlutun Dag Hammersltjöld,
íramkvæmdastjora Sþ.
Talið er að grundvöllur þess-
ara viðræðna hafi verið tillaga
Egypta, en hún er á þá leið, að
•skipuð yrði samninganefnd, en
Öryggisráðið legði henni starfsr-
reglurnar. Ekki fengust nánari
fregnir af cfni tillögunnar. A
hinn bóginn er það kunnugt, að
Selwyn Lloyd telur tillöguna
athygliverða Munu Bretar reiðu
búnir að fallast á málamiðlun,
en hallast helzt að tillögum
Indverja. Eru þær á þá leið, að
rekstur skurðarins verði í hönd-
um Egypta og að alþjóðleg
nefnd hafi eftirlit með notkun
skurðarins og viðhaldi hans og
stækkun.
Amerísk blöð héldu því fram
í gær, að Bretar hefðu nú al-j
veg snúið við blaðinu og teldu
sig nú geta fallist á tillögu
Egypta. Þessu mótmælti sendi-
nefnd Breta hjá SÞ. og sagði
að Bretar og Frakkar væru á
einu máli um að vinna að því
að skurðurinn verði alþjóðleg
sigling'aleið undir alþjóðastjórn.
Að loknum þriðja fundi
Breta, Frakka og Egypta virð-
ist svo sem lausn sé enn fjar-
lægari en áður. Ekki náðist
neinn árangur á fundinum og
töldu fulltrúarnir sig ekki geta
gef'ið Öryggisráðinu neinar
skýrslur um viðræðurnar. —
Halda Bretar nú aftur fast við
tillögur . 18 þjóða fundarins,
sem haldinn var í London í upp
hafi deilunnar.
Virðist svo sem aðalágrein-
ingurinn sé sá, að Egyptar
leggja aðaláherzluna á fullveldi
sitt og telja öll afskipti alþjóða
nefndar af siglingum um skurð
inn. skerðingu á fullveldi sínu.
Á hinn bóginn vilja Brtar og
Frakkar ekki viðurkenna yfir-
ráð Egypta yfir skurðinum og
leggja aðaláherzluna á það, að
skurðurinn sé alþjóðasiglinga-
leið, er vera skuli undir alþjóða-
eftirliti og alþjóðastjórn.
Dregið í 10. fl.
HHÍ í gær.
Dregið var í 10. flokki Happ-
drættis Háskólans í gær. Dregn
ar voru 534.000 krónur og
komu upp eftirfarandi númer:
50 þús. krónur komu á nr.
669 hálfmiða í umboði Arndís-
ar Þorvaldsdóttur, Vesturgötu
10. —
10 þús. kr. komu á nr. 28618,
hálfmiða í umboði Jóns Árna-
sonar og Guðrúnar Ólafsdóttur,
Bankastræti 11. Aðrar 10 þús.
kr. komu á nr. 39185.
5 þús. kr. komu á nr. 3796,
fjórðungsmiða í umboði Frí-
manns Frímannssonar í Hafn-
arhúsinu, aðrar 5 þús. kr. komu
á nr. 16314, hálfmiða á Sauðár-
króki og hjá Frímanni Frí-
manni Frímannssyni og þriðju
5 þús. kr. komu á nr. 20209 í
Vestmannaeyjum.
Eldur í verk-
smiðju.
1 imnnishúw eyði-
Seytjsi mi' ettli,
í gær var slökkviliðið kvatt
út þrisvar sinnum. í fyrsta
skipti að Hverfisgötu 116, þar
sem rimlatjaldagerðin Hansa er
til húsa.
Var það klukkan 18,35. Þégar
slökkviliðið, kom á staðirin var
mikill reykur í herberginu og
varð áð brjóta ruðu til að
hleypá út reyknum. Eldurinn
var fljótlega slökktur, en tals-
vert tjón mun hafa orðið' á
framleiðslunni.
Klukkan 19,40 var slökkvi-
liðið kvatt að: Grænuhlíð 18, en
þar hafði kviknað í vinnuskúr.
Þegar • slökkviliðið koyn á
vettvang, var skúrinn éitt eld-
haf. Tók um klukkutíma að
slökkva og eyðilagðist skúrinn.
Var skúr þessi úr timbri, járn-j
varinn, og var auk þess geymt
í honum eitthvað af timbri og1
öðru dóti og skemmdist það. I
Klukkan 20,49 var slökkvilið-!
ið kvatf að Kamp Knox E-23J
Hafði verið þar yfirfylling í
olíukyndingu og fólk orðið
hrætt. Engai- skemmdir urðu1
þar.
Nína Tryggvadóttir
opnar sýningu á gier-
mosaik.
Nína Tryggvadóttir opnar í
dag sýningu á málverkum og
glermosaik í húsi Landsbóka-
safnsins við Hverfisgötu.
Er það í fyrsta sinni, sem
haldin er sýning á glermosaik
hér á landi, en þó er þetta göm-
ul listgrein. kunn af skreyting-
um á kirkjum á miðöldum, en
er nú mjög að ryðja sér til
rúms í húsaskreytingum nú-
tímans.
Nína Tryggvadóttir hefur
haldið sýningar á glermosík í
Frakklandi og fengið góða
dóma í blöðuflum í Parísi Þá
hefur hún og selt í tvö söfn í
Þýzkalandi, í Köln og Aachen.
Sýningin vérður opin dáglega
kl. 1—10 næstu tíu daga.
Uttsrgabardine
frakkar
útlendir,
Uppmokstur úr grunni
geta þeir fengið endurgjaldslaust sem vilja sækja hann
Stigahlíð 18.
Byggingarfélag verkamanna.
NORSK BLÖÐ
Ný blöð koma með
Gullfossi.
BLAÐATURNINN
Laugavegi 30 B.
Volkswagen'56
keyrður 5 þús. km. til
sýnis og sölu í dag.
Bílasalan, Hverfisgötu 34,
Sími 80338.
íbúð — Hitaveita
Sólrík íbúð í suðurbænum til leigu nú þegar. 5 herbergi.
Sér hitaveita.
Lysthafendur leggi nöfn sín inn á afgr. Vísis fýrir kl. 12 á
hád. laugard. 13. þ.m. merkt: „Góð íbúð — 134.“
Bremsuborðasett
í flestar tegundir bifreiða.
Einnig Bremsuborðar í rúllum,
margar þykktir og breiddir.
Kublingsdiskar og lagerar.
SMYRILL, Húsi SameinaSa. — Sími 6439.
B.S.S.R.
B.S.S.R.
Til sölu
Ágæt 3ja herbergja kjall-
araíbúð í nýju húsi. Þeir,
sem vilja neyta forkaups-
réttar gefi sig fram fyrir
n.k. þriðjudag í skrifstofu
félagsins Laugav. 24 III.,
kl. 17;—18,30 virka daga
aðra en laugardaga.
Stjórnin.
Gerist skátar
Þeir drengir í Reykjavík sem bafa hug á að gerast
skátar geta komið til innritunar í kvöld kl. 8 í Skátaheim-
ilið við Snorrabraut.
Félagsforingi.
BEZT Af) AUGLYSAI VISl
Vélabóliliald
Vér óskum að ráða sknfstofumann td starfa við
vélabókhald.
Nauðsynlegt að umsækjendur hafi unnið við
vélabókhald úður. Upplýsmgar á sknfstofu vorri.
Mjéikurssnamsttlam
Endið miðdegismáltíðina á hátíðarétti
Sú Bifla vann
4 millj. kr. ,
Stúlkubarn eitt í Sao Paulo í
Brasilíu varð fyrir óvæntu
happi nýlega.
Þegar stúlkan var 15 daga
gömul og enn óskírð, keypti
amma hennar miða í veðhlaupa-
happdrætti og gaf barninu. Féll
vinningur að upphæð 240 þús.
dollara —- nærri 4 millj. kr. —
á miðann og hefur varla nokk-
ur verið , orðinn , svo rikur, 15
daga gamall, sem á annað borð j
kom snauður í þennan heim. p
Það er sannarlega ómaksins vert að bera
á borð eitthvað girnilegt, sem setur veizlu-
brag á hversdagslega máltíð. Gtkerbúöingur
er rétti hiuturinn!!
0tkers búðingar eru frábærlega bragðgóðir,
og það er fljótlegt og kostnaðarlítið að búa
þá til. Af þeim eru margar ljúffengar teg-
undir.
BUÐINGSDUFT