Vísir - 11.10.1956, Qupperneq 8
Potr, t#s& g«'.ra*4 katipendnr TlSIS «fíta
If. feverg m£iL»i)ur tá blaSið ókeypis M!
máa&Saœét& — Síml Ifff.
VlSIB cr idýrasta bíaoii eg bó það fjSI-
kreyttaata, — Hringii i (ims IfM *g
ferist ásferlfenáia-.
Fimmtudaginn 11. október 1956
Esja verðnr ekki í förum
um langan tíma.
Sveifarásinn s annarri aflvéSinni hrotnaii.
Skipið héSt íjó áfrasn för sinni.
Ms. Esja váici vætanleg til! ekki skemmri tíma en 6 vikur
Reykjavíkur í morgun. Önnur
Þetta er líkan af kínverskum farkosti, svonefndum „Djunk“,
gert úr skíru gulli, og fóru 10 kg. af þessum dýrmæta málmi í
líkanið. Það var notað við tízkusýningu Iijá Jacques Fath, hinum
franska tízku-„kóngi“.
Dautt fé finnst daglega i
@nn
Snjór leystur á flestum vegum og
bílar hafa farið milii Héraðs og
Akureyrar.
áflvél skipsins varð íyrir al-
varlegri bilun, er skipið var
statt undan Hrollaugsevjum í
fyrradag á suðurleið og hefur
skipið því orðið að halda á-
iram ferð sinni með annarri
vélinni. Verður Esju lagt hér í
Beykjavík og óvíst er að liún
verði tekin í notkun í marga
jnánuði.
Forstjóri Skipaútgerðar rík-
isins Guðjón Teitsson, sagði
Vísi í gær að sveifarás annarr-
ar aflvélarinnar hafi brotnað
®g verði því að rífa alla vélina
©g fá nýjan sveifarás. Um leið
«g vélarbilunin var tilkynnt
símaði forstjórinn til vélafirm-
ans í Svíþjóð til að fá nýjan
sveifarás. Aflvélarnar í Esju
eru Pólardieselvélar og hafa
þær yfirleitt reynst vel, því
mikið reynir á vélar strand-
ferðaskipa, sem stöðugt er ver-
ið að ræsa, þegar lagst er að
þryggju.
Vélarriar í Esju eru nú orðn-
ar 17 ára gamlar, en það er
allhár aldur á dieselvélum í
strandferðaskipi.
Það tekur yfirleitt mjög
Jangan tíma að fá varahluti í
svo stórar vélar og virðist svo
véra að ekki séu fyrirliggjandi
svojstprir varahlutir sem sveif-
arásar, enda mun það ekki títt
að þeir brotni. Taldar eru þó
líkur fyrir því að eitthvert af
skipafélögum þeim sem keypt
hafa Pólardieselvélar eigi til
sveifarás til vara, sem ríkis-
skip gæti fengið. Jafnvel þótt
varastykkið kæmi strax verður
Esjan ekki í strandferðum um
langan tíma, því það . tekur
Flugfélag íslands flytur
næstu daga allmikið a£ varn-
ingi og vistum til Meistara-
víkur á Grænlandi, sem ekki
tókst að flytja þangað á skipi
sökum ísalaga.
Hafði skip verið sent frá
Danmörku áleiðis til Meistara-
víkur 'á- Grænlandi með vistir,
varahluti og annan varning sem
flytja átti til starfsmanna
Nordisk Mineselskap í Meist-
aravík. En þegar skipið var
komið nokkuð norður með
Grænlandsströnd varð sam-
felld ísbreiða fyrir því, sem það
treystist ekki að brjóta í gegn.
Sneri skipið því við og er
væntanlegt til Reykjavíkur í
dag.
Hafa samningar tekizt við
Flugfélag íslands um að það
að rífa vélina sundur.
Mikið annríki hefur verið
hjá ríkisskip í sumar og útlit
er fyrir að svo verði í vetur,
er það því mjög bagalegt að
hið góða skip skuli ekki geta
verið í förum. Því enn er það
svo á íslandi, að þegar flug-
vélar geta ekki flogið og vegir
eru tepptir, þá ganga skipin
hvernig sem viðrar, nótt sem
dag.
Slátrun að Ijuka
á Kópaskeri.
Akureyri í gær.
Haustslátrun er í þann veg-
inn að Ijúka á Kópaskeri og
verður síðasti slátrunardagur-
inn n. k. laugardag.
Slátrun hófst 18. sept. s. 1.
og verður samtals slátrað rúm-
lega 19 þúsund fjár á Kópa-
skeri í haust. Alls hafa 70
manns haft vinnu við slátrun
og frystingu kjöts þar á staðn-
um að undanförnu.
50 millj. sjónvarps-
tæki í heiminum.
Skýrt hefir verið frá, að
meira en 50.000.000 sjónvarps-
tækja séu nú í notkun í heim-
inum.
í Bandaríkjunum eru 4/s hlut-
ar þessara tækja. Næst kemur
Stóra-Bretland með 6.000.000
tækja, því næst Kanada með
2.200.000 tækja og loks Ráð-
stjórnarríkin með 1.000.000
tækja.
flytji 13 lestir af varningi
skipsins til Meistaravíkur og
verður hann fluttur í þrem
ferðum með Skymastervélum
félagsins. Fyrsta ferðin verður
á morgun og verður það Sól-
faxi sem fer í hana. í dag
flytur Sófaxi 60 manna lið
norska frjálsíþróttamanna frá
Osló til Prag, er þar háir lands-
keppni við tékkneska landsliðið
í frjálsum íþróttum. Sólfaxi
átti að leggja kl. 7 í morgun
af stað frá Osló, en þaðan er
5—6 klst. flug til Prag. Þar
hefur vélin aðeins skamma við-
stöðu og flýgur síðan til ís-
lands með viðkomu í Hamborg
og Khöfn. Hingað er flugvélin
væntanleg seinni hluta nætur,
en fer til Grænlands á morgun
eir.s og áður segir.
Akureyri í gær.
Síðustu dagana hefur verið
hiti norðanlands og í dag er 11
stiga hiu á Akureyri.
Hefur snjó að mestu tekið
upp í öllum nærliggjandi fjöll-
um nema í giljum og skorning-
um þar sem skafið hefur í
djúpa skafla. Út með Eyjafirði
eru enn sumstaðar miklar
fannir, einkum fyrir utan
Höfðahverfi og í Kaldbak.
Hinsvegar festi lítinn snjó inn
í Eyjafjarðardölum í hríðar-
veðrinu mikla og í Saurbæjar-
hreppi gránaði rétt í rót á sama
tíma sem hríðin var svo rnikil
út í Höfðahverfi að íbúarnir
minnast ekki annars eins sorta.
Um leið og snjórinn sjatnaði
í hlýviðrinu undanfarna daga
hefur fjöldi fjár komið undan
sköflum, er fennt hafði í hríð-
inni miklu. Sumt af þessu fé
hefur náðzt lifandi, en fleira þó
fundizt dautt. Mestir fjárskað-
ar urðu í Fnjóskadal, Höfða-
hverfi, Árskógsströnd og
Köldukinn, en;á ýmsum bæjum
í þessum sveitum er fleira eða
færra fjár enn saknað.
Á einum bæ_ Brimnesi í Ár-
gkógsströnd var 30 kinda sakn-
að eftir bylinn. Af þeim eru 18
fundnar og 7 þeirra dauðar.
Þannig mætti lengi telja.
í hlýviðrinu hefur snjó tekið
að mestu upp á flestum fjall-
vegum svo að fært er orðið frá
Akureyri og norður um allar
Þingeyjarsýslur, að því undan-
skildu að enn er ófært yfir
Reykjaheiði. Hinsvegar er öll-
um farartækjum fært um Mý-
vatnssveit að Grímsstöðum á
Fjöllum og þaðan niður með
Jökulsá í Axarfjörð og Keldu-
hverfi og alla leið til Raufar-
hafnar. Ennfremur er bílfært
orðið austur á Þórshöfn og að
Möðrudal á Fjöllum.
I gær komu tveir bílar aust-
an af Héraði til Akureyrar,
annar var fólksbíll en hinn
marghjóla vörubíll. Varð sá
síðarnefndi víða að aðstoða
fólksbílinn á Jökuldalsheiðinni
því þar voru enn miklir skaflar,
en hafði þó mjög leyst síðustu
dagana. Töldu bílstjórarnir
leiðina austur ófæra nema
stærstu og sterkustu bílum.
Sérleyfisferðir austur á Hérað
eru með öllu lagðar niður á
þessu ári.
Þegar Tjörnesvegurinn hefur
verið lagður að fullu verður
hann mikil samgöngubót þá
tíma ársins sem Reykjaheiði er
ófær. Nú er þar snjólétt og
myndi þar fært ef ofaníburði
væri lokið.
_____♦_______
★ Pólska stjómin hefir boðað
30% skattalækkun á lág-
tekjum. Nær skattalækkun
þessi til 2ja millj, manna.
Hinir Iægst Iaunuðu eiga
engan tekjuskatt að greiða.
í nótt féllu tveir menn í
Reykjavíkurhöfn og náðust þeir
báðir, en höfðu þá misst með-
vitund.
Var lögregj.unni gert aðvart,
en áður en húíi kom á vettvang,
var búið að ná öðrum mannin-
um upp á þurt. Lögreglumenn-
irnir náðu hinum og fluttu þeir
báða mennina á slysavarðstof-
una.
Lífgunartilraunir voru reynd-
ar á báðum mönnunum og eftir
alllanga stund tókst að kohia
öðrum manninum tii meðvit-
Tvímenningskeppni Britlge-
félags Reykjavíltur í 1. flokki
hófst s.l. sunnudag.
Spilaðar hafa verið tvær
umferðir af f.jórúm. Að þeini
loknum eru st-ig sex efstu tví-
menninganna sem hér segir.
Rafn Sigurðsson og Jón.
Björnsson 872 stig, Þorvaldur
Matthíasson og Sigurður Helga-
son 720 stig, Ragnar Halldórs-
son og Úlfar Kristmunds 71®
stig, Ágnar Jörgensson og Ró-
bert Sigmundsson 708 stig,
Grímar Jónsson og. Karl Jóns-
son 693 stig og Hilmar Guð-
mundsson og Jakob Bjarnason.
679 stig.
Þriðja umferð verður spiluð
á sunnudaginn kemur og loka-
umferðin n.k. þriðjudagskvöld.
OBsr menn ráSast ínn
í harttaskóla.
Tveir vopnaðir bófar réðust í
gærmorgun inn í skóla einn í ná
grenni Milanó og ógnuðu 90
börnum og kennurum þeirra.
Kröfðust þeir 200 milljón líra
lausnargjalds, ella mundu þeir
ekki sleppa neinum lifandi út
úr skólanum. Fjölmennt lög-
reglulið var sent á vettvang og
hófst þá skothríð, með því, að
lögreglan drap annan bófann em
særði hinn. Hvorki börnin né
kennararnir urðu fyrir meiðsl-
um. Það kom síðar í ljós, aS
mennirnir, sem réðust inm í
skólann, voru geðveikir og
höfðu veríð vistmenn á geð-
veikrahæli.
r A
Armann efnir
til sundmóts.
Glímufélagið Ármann efnir
til sundmóts í Sundhöll Reykja-
víkur dagana 6. og 7. nóv. nk,
og verður iþað fyrsta sundmót
haustsins.
Keppt verður í 10 sundgrein-
um karla og 6 greinum kvenna.
Karlasund verða: 100 m., 200
m., 400 m. skriðsund, 100 m.
og 200 m. bringusund, 50 m. og
100 m. flugsund, 100 m. bak-
sund, 5X50 m. fjórsund og
4X50 m. bringusund.
undar, en Vísi er ekki kunn-
ugt um hvernig tekizt hefir til
um hinn. Mennirnir voru báðíi’
taldir í allmikilli hættu og voru.
þeir því báðir fluttir í sjúkra-
hús af slysavarðstofunni.
Mannlaus bíll rennur
á annan bíl.
í gær raim mannlaus bíll,
sem stóð við Skólavörðustíg 10,
niður götuna og staðnæmdist á
öðrum bíl, sem stóð móts við
hús nr. 3 við sömu götu. Bíllinn,
sem varð fyrir hinum rennandi
bíl, skemmdist stórlega,
F.í. fíytisr 13 lestir af vörum
til Græniands næstu daga.
Skip, sem flytja átti vörumar, lenti
í ís og varð að snúa frá.
Tveim mönnum bjargað
rænulausum úr höfninni.
Féllu út ai Fttxeefjít r r)t.