Vísir - 10.08.1957, Blaðsíða 10

Vísir - 10.08.1957, Blaðsíða 10
10 VÍSIR Laugardaginn 10. ágúst 1957, ENGIM VEIT SÍNA ÆVIXA e^tir 3L KJl orence séu þær veikar fyrir — en mér er ekki rótt að vita af þér einni í húsinu. Það er leitt, að Bridget skuli eiga frí, — hvern get ég íengið til að vera hjá þér.“ Hann var mjög hugsi og Jane sagði: „Hafðu engar áhyggjur, ég kemst af ein.“ „Nei, ég hætti ekki á þste. Kannske ég geti fengið Evu Edmond til þess að vera hjá þér?“ Hann gekk að símanum, áður en henni gæfist tækifæri t.jl að svara, og hringdi til hennar. Hann talaði í mjög 'núsbóndalegum tón, er hann bað hana að koma. Hún notaði tækifærið til að segja: „Ég hef gert það, sem þú baðst mig um?“ Hann skildi þegar við hvað hún átti: Að hún hafði rekið það erindi, að sækja farangur Stellu, og væri því allt í bezta lagi hvað þetta snerti og mundi auðvelda Stellu að fara aftur til Kanada tafarlaust. Hann bað Evu um að koma í leigubíl eins fljótt og hún gæti. Sjálfur gat hann ekki verið lengur, þar sem hans var beðið í sjúkrahúsinu. Um það bil klukkustundu síðar, þegar Jane vaknaði eftir góðan blund, leið henni mikið betur, — og hafði nú fengið góða lyst, og þáði það því með þökkum, er Eva Edmond bauð henni að búa til tedrykk. Meðan Eva var frammi var dyrabjöllunni hringt, og fór Eva til dyra. „Það er kona, sem komin er, frú Taylor að nafni," sagði Eva, þegar hún kom aftur, „Hún spurði eftir lækninum, en þegar ég sagði henni að hann væri ekki heima óskaði hún eftir að tala við yður.“ Jane gat ekki munað eftir neinni konu með þessu nafni. Hún reis upp af legubekknum og snyrti sig dálítið til fyrir framan spegilinn, og bað svo Evu að bjóða henni inn, Inn kom svartklædd, roskin kona, svartklædd, þrátt fyrir hit- ann. Jane hafði aldrei séð hana fyrr. Hún bað frú Taylor um að fá sér sæti, settist gegn henni og beið átekta. „Ég verð nú að biðja yður afsökunar á, að ág ónáða yður á helgum degi. Ég hafði búizt við, að hitta mann yðar, en ég get alveg eins afhent yður þetta.“ Jane veitti því.nú athygli, að konan var með skjalatösku, af svipaðri gerð og algengar voru fyrir 10—15 árum. „Maðurinn yðar var kvæntur stjúpdóttur minni, Stellu," sagði konan, „og nú hef ég flutt hingað til þess að búa með systur minni í Lundúnum. Það er eins ástatt fyrir mér og henni, aö hún verður að komast af á ellistyrk, og þar sem alit fer hækk- andi búumst við við að komast betur af, ef við búum saman. Þegar ég var að búa mig til brottfarar kom ég auga á nokkur gömul plögg, m. a. nokkur bréf, sem maðurinn yðar skrifaði Stellu, nokkrar myndir, sem voru teknar þegar hann var orðinn kandídat, sem hann kannske á ekki, og nokkrir smáhlútir. Ég er með þetta allt saman hér í töskunni. Ég ætlaði að afhenda honum það.“ ,Hánn er ekki heima," sagði Jane og vissi ekki hvernig hún ætti aö snúast við þessu. „Eins og þér vitið getur maður aldrei vitað með vissu um heimkomu lækna — viljið þér annars ekki fá tesopa?" „Tja, ef það bakar ekki allt of mikið ómak,“ sagði frú Taylor, sem fór eins og hjá sér og virtist dálítið feimin. „Það gleður mig, ef þér drekkið te með okkur,“ sagði Jane vin- samlega. „Maðurinn minn kann áreiðanlega að meta hugulsemi yðar. Ég man, að hann hefur tvívegis talað um, að hann hefði týnt mynd frá kandidatsárinu, — mig minnir, að hún hafi verið tekin, þegar hann var í þann veginn að ljúka prófi eða kannske nýbúinn að því.“ Frú Taylor varð nú rólegri vegna vinsamlegrar framkomu Jane og öll hlédrægni fór af henni. „Ég hef oft reynt að gera mér í hugarlund hvernig stjúpdótt- ir yðar var,“ sagði Jane. „Stella, já, hún var áreiðanlega ólík yður, bæði í útliti — og framkomu. Mér þótti mjög leitt, að hjónaband þeirra skyldi fara út um þúfur, en hún var duttlungafull, og hennar einkunnarorð hefðu getað verið „allt eða ekkert“ og það án tafar. Já, þér kann- izt við svona kvenfólk, það er ég viss um. Hún var átta ára, þeg- ar ég giftist föður hennar, og ég segi það eins og það er, að ég óttaðist alltaf, að eitthvað illt mundi koma fyrir hana. Það var ekki í hennar eðli, að sætta sig við rólegt líf, en hún var glaðvær, gat verið aðlaðandi, og það var alltaf líf og fjör í kringum hana.“ Eva Edmond ýtti riú hjólaborði inn og bjóst til að hella í boll- ana. „Þetta er úngfrú Eva Edmond, aðstoðarstúlka mannsins míns í læknastofuni — og frú Taylor, stjúpmóðir fyrri konu mannsins míns.“ Eva varð allóstyrk í knjáliðunum. Ef Stella hitti stjúpmóður sína mundi hún eiga á hættu, að allt kæmist upp. Eva bar enga meðaumkun í brjósti til Stellu, en hún sá hver hætta Allan gat verið búin af þessu. Hann hafði hjálpað Stellu og hún hafði búið á heimili hans. Hneyksli gæti komið til sögunnar, sem eyði- legði mannorð hans. „Það gleður mig að kynnast yður. Allan gat komið heim hvenær sem var og hann væri alveg óviðbúinn komu frú Taylor þessarar. Eins og allt var í pottinn búið gæti hann ekki fagnað því á nokkurn hátt, að hún skyldi koma til sögunnar. Það gat ekki boðað annað en nýja erfiðleika. F.va hugsaði um þetta allt og komst að þeirri niðui'stöðu, að hún yrði að reyna að aðvara Allan. Kannske væri hann ekki enn far- inn úr sjúkrahúsinu? Hún sagðist þurfa að fara fram í eldhús, afsakaði sig og gekk út. Hún vissi, að það var talsímaáhald í svefnherbergi Allans og læddist upp stigann, opnaði dyrnar hægt og gekk að náttborð- inu, þar sem síminn var. Það var eins og hjartað stöðvaðist í brjósti hennar, er mínúta leið án þess svarað væri. Þá sá hún, að millisamband var, og að hún þurfti að snúa snerli til að fá samband, og nú heyrði hún rödd Allans, er hún hringdi. „Nokkuð að konu minni?“ spurði hann áhyggjufullur. „Nei,“ svaraði hún. „Henni liður betur, miklu betur, og ég þarf því ekki að vera hér lengur, en það er annað, Allan ...“ Hún sagði honúm í stuttu máli frá komu frú Taylor og gætti þess að tala mjög lágt. Þegar hún hafði lokið því leið nokkur stund áður en Allan svaraði. Hann var að íhuga málið. „Það er eins og ég hef sagt,“ sagði hann loks. „Því fyrr sem Stella fer til Kanada því betra. Það er of áhættusamt fyrir hanaj að vera hér. Ég þakka þér fyrir að hringja og segja mér þetta, Eva. Mig langar ekkert til að hitta frú Taylor, sem ég ekkert þekki, að minnsta kosti meðan ég finn til þungrar ábyrgðar gagnvart Stellu. Nú er kominn nýr vandi til sögunnar, Eva. —1 Larriman hefur laumazt burt úr sjúkrahúsinu. Fyrir um það bil einni klukkustundu kpm ein hjúkrunarnemanna að rúmi hans auðu og tilkynnti það yfirhjúkrunarkonu deildarinnar." l1 k*v*ö*!*d*v*ö«k*u*n*n*í Það kann að vera tími til að minna á það, að munninn er líka hægt að nota til þess að þegja með honum. Klukkan var sjö á mánudagsmorgni. Frú Thomas, ræstingar- konan, sem þvoði gólfið og tók til í læknastofu Allans, var þreytt og úrill. Það hafði gengið á ýmsu um helgina, börn hennar, sem öll voru komin á legg, höföu heimsótt hana, og hún var útkeyrð,' fannst henni, eftir að hafa matbúið handa þeim öllum, og þar fram eftir götunum. Hún tók upp lyklakippuna og opnaði dyrnar á biðstofu Allans Pellmann kom grátandi inn til mömmu sinnar og sagði henni að krakkarnir hefðu verið að stríða sér voðalega mikið: — Þau segja að höfuðið á mér sé svo stórt. — ö, blessaður láttu þér á sama standa, það er ekkert í því, svaraði móðirin. * — Ég er þeirrar skoðunar, að skilnaðir eigi rætur að rekja til mistaka í einni eða annarri mynd. Ert þú ekki sammála? — Jú. Maður vei-ður skotinn í brosi eða hárlokk og svo tek- ur maður þá örlagaríku ákvörð- un, að giftast stúlkunni allri •¥■ Til þess að auka tekjur sínar hefur útfararstjórinn í þýzka bænum Neheim-Hiisten sett á fót fyrirtæki, sem leigir út bif- hjól. til bæjarbúa. • Það var einu sinni greifi, sem fór í skemmtigöngu út í skóg- inn sinn. Hann nam staðar við tjörn eina og kom þar auga á ljóta pöddu. — Eg er prinsessa í álögum, sagði paddan vesæla, — en þú getur leyst mig úr álögunum með því að láta mig liggja á koddanum hjá þér meðan þú sefur í nótt. Greifinn hikaði eitt andar- tak, en tók pödduna síðan upp, hafði hana með sér heim og lagði hana á koddann hjá sér um kvöldið, þegar hann fór að sofa. Og viti menn, þegar greif- inn valcnaði næsta morgun, lá við hlið hans yndislega fögur stúlka, með gullna lokka. Álögin voru á enda. En getið þér ímyndað yður — þrátt fyrir það að maður gengi undir manns hönd reynd- ist alsendis ómögulegt að fá eiginkonu greifans til að trúa sögunni! £ & SuncuyhA -TARZAN- 2120 ! Nokkrar vikur voru liðnar frá því ■Tarzan hafði séð bátínn sigla inn á víkina, hann dvaldi í skóginum og :naut friðarins. Hann var á leið til svertingjanna, sem bjuggu við vatn- ið. Þeir voru friðsamlegir pg vin- gjarnlegir. Allt í einu kom óttasleg-., inn svertingi hlaupandi eftir árbakk- anum. Maðurinn steypti sér í grugg- uga ána og í sama vetfangi renndi stór, hungraður krókédíll-sér-í ána. Hann hafði tekið eftir manninuncL, sem reynast myndi honum auðveld bráð í vatninu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.