Vísir - 16.12.1957, Blaðsíða 12

Vísir - 16.12.1957, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. VlSIR Mánudaginn 16. desember 1957 Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Fyrsta slþjóðaráðstefna á eldflaugaöld hafln. DmStr benni koinið hvað framfíðiii ber í skanfi síno. Ráðherrafundur Norður-Atlantshafsbandalagsins var settur í Chaillothöllinni í París árdegis í dag. Aðalræðuna flutti Eisen- hower Bandaríkjaforseti, en einnig flutti ræðu Gaillard for- sætisráðherra Frakklands, og flutti liann hana sem forsætis- ráðherra landsins, þar sem ráð'stefnan er haldin. í heimsblðS- unum eru helztu fréttir og ritstjórnargreinar um ráðstefuunb, og er m. a. vakin athygli ó, að þetta sé fyrsta ráðstefna eM- flaugaaldar og það kunni að vera mest undir ákvörffunjcm komið, sem hún tekur, hvað framtíðin ber x skauti sínu. Ráðstefnan er haldin í Chaill- öt-höllinni, höfuðstöð NA-varn- arbandalagsins, og hefur þar verið mikið um undirbúning að undanförnu. Var loks aðalsalur- inn tilbúinn í gær og í nótt var verið að leggja seinustu hönd á ' ýmsan undirbúning í hliðarsöl- nm. 1300 fréttamenn . í höllinni hafa og aðalbæki- * stöð til starfa sinna um 1300 fréttamenn, útvarps og sjón- varpsmenn, til þess- að' i öllum löndum heims geti menn fylgzt með öllu sem gerist með því að lesa blöð, hlusta á útvarp eða sitja við sjónvarpstæki, eða þá gækjafréttir í allar þessar lindir, eins og margir munu gera, þvi að segja má að augu allra þjóða beinist nú til Parísar, en bréfa- ílóð Bulganins hefur að allra dómi orðið til þess að færa mönnum heim sanninn um mik- ilvægi ráðstefnunnar. Bæðurnar munu heyr. ast á mörgum málum. I höllinni hefur verið komið fyrir tækjum til þess að frétta- menn þar geti hlustað á ræðurn- ar á enn fleiri málum en vana- lega, en fjöldi túlka flytur ræð- urnar á ýmsum tungum jafnóð- um og þær eru fluttar. Við ko.mu Esenhowers til Parísar s.l. laugardag var mikill fjöldi manna viðstaddur I flugstöðinni og við allar götur, sem ekið var um inn í miðhluta Parísar, en það er upp undir hálfrar klst. akstur í bifreið. Þetta var í fyrsta skipti, sem forseti Bandaríkjanna kom til Parísar frá því er WoodroW Wilson sat friðarráðstefnuna í Versölum 1919. 1 flugstöðinni las Eisenhower 600 orða yfirlýsingu, og kvað einkunnarorðin í frönsku stjórnarbyltingunni, 3% áiag vegna hreins- mm Suez. Allslierjaroþing Sþ. sam- þykkti 3% álag á skipagjöld skipa, sem sigla um Súezskurð. Hér er um heimild að ræða til að innheimta gjöldin með þessu álagi til að greiða fyrir hreinsun skurðarins. Féð skal leggjast í sérstakan sjóð til endurgreiðslu á lánum, sem 11 þjóðir veittu til framkvæmd- anna. frelsi, jafnrétti, bræðralag, enn í dag í fullu gildi og lýstu þau svo vel marki NA-varnarbanda- lagsins, að þau gætu verið eink- unnarorð þess. Nú kæmu leið- togar hinna frjálsu saman til þess að treysta samheldni sína og samstarf, svo að sem bezt yrði mætt hættum þeim, sem steðjuðu að hinum frjálsa heimi, og ákveða hversu það skuli gert svo örugglega, að tryggt verði að þjóðirnar geti búið við frelsi, en verði ekki þrælar í allsherj- ar lögregluríki. Aðvörunaroi’ð Spaaks. Spaak frkvstj. NA-varnar- bandalagsins mælti þau aðvör- unarorð fyrir helgina, að , svo virðist sem sumir leiðtogar og sum blöð í NA-löndunum skildu ekki migilvægi þeirra tíma, sem nú væru, er allt væri undir því komið, að hafa til varnar þau vopn, sem ein myndu duga — virðist svo sem sumir menn virtust ætla, að ef árásir væru gerðar með eldflaugum væri unnt að verjast með berum hnefunum. I fremstu línu. Það kemur mjög fram í brezk- um blöðum í morgun, að að- staða Bandaríkjanna sé nú breytt frá því sem áður var, er ýms lönd voru í yztu varnarlínu Nú — vegna hinna langdrægu eldflauga — sé öllum löndum jafnhætt, og aðstaða Bandaríkj- anna hin sama og annnrra NA- ríkja nú — þau séu líka komin í yztu varnarlínu. Öll leggja þau þó áherzlu á, að ekki dugi að einblína á varnirnar einar, held- ur ræða stjórnmál og efnahags- vandamálin samtímis. Sum ræða nauðsyn þess, að ná samkomu- lagi um stjórnmálalega stefnu bandalagsins út á við í vissum málum, þótt aldrei geti verið um sameiginlega stefnu að ræða í þeim öllum. Spánn var einnig aðvaraður. Það er nú komið í Ijós, að það voru ekki einungis NA-ríkin, er aðvöruð voru i bréfum frá Bulg- anin. Hann skrifaði einnig spænsku stjórninni ogvaraði við afleiðingum þess, að Spánn hef- ur látið Bandaríkin fá herstöðv- ar. Komi til styrjaldar, segir Bulganin í bréfi sínu, munu af- leiðingarnar bitna á íbúunum í borgum Spánar, þeim, er næstar eru herstöðvunum. 12. þingi SÞ lokið. Rætt um aukafund um Ungverjajand. 12. allsherjaiþing Samein- uðu þjóðanna er lokið. Forseti þess sagði, er hann sleit þinginu, að ef afvopnun- armálin hefðu áður verið kom- in í sjálfheldu, væru þau kom- in í tvöfalda siálfheldu nú. .Og hann lét í ljós vonbrigði yfir, að Wan prinsi hefði ekkert crðið ágengt í hlutverki sínu, eins og skýrsla hans um Ung- verjalandsmálin bæri með sér. f tilefni af þessum ummælum, sagði Lodge fulltrúi, að stjórn hans myndi krefjast aukafund- ar um Ungverjalandsmálin, ef ástæða þætti til vegna fram- komu valdhafanna þar og Sov- étríkjasambandsins gagnvart ungversku þjóðinni. Munið Hall- grímskirkju. Góðir Reykvíkingar! Nú þegar jólin nálgast og þið farið að hugsa um jólagjaf- ’ir, þá bið ég ykkur að gleyma ekki Hallgrímskirkju í Reykja- vík. Gefið henni jólagjöf ár hvert. Upphæðirnar þurfa ekki að vera háar. En með elju og árvekni mun musteri drottins rísa, þótt hægt gangi. Minning- um um Hallgrím Pétursson mun aldrei deyja út með þjóð- inni. Leggið ykkar skerf til þess að halda uppi heiðri þess manns, sem íslenzka þjóðin á mest að þakka. Dagblaðið Vísir tekur við jólagjöfum til kirkjunnar. Eg þakka þeim mörgu, sem- sent hafa kirkjunni jólagjafir á und- anförnum árum. — Gleðileg jól! Guðrúij Guðlaugsdóttir. LeBurbEakan úr Eyjum f æst ekki til ákvörðunar, Nýlega fannst leðurblaka i vegg gagnfræðaskólans í Vest- mannaeyjum. Voru það nemendur gagn- fræðaskólans, sem fundu han; og var hún þá lifandi. En ni er hún dauð og ætlar gagn fræðaskólinn í Vestmannaeyj- um að hafa hana við kennsluna Ekki er vitað, hvaðan húr hefur borizt, því að Náttúru- gripasafnið hefur ekki fengii hana til ákvörðunar. En vær þetta t. d. amerísk tegund, sen borizt hefði fyrir veðrum hing- að væri það vísindaleg æsifrétt sem mundi gerbreyta skoðun- um manna um útbreiðslu henr ar í heiminuín. Er þetta önnur leðurblakan sem finnst hér á landi á þessi ári. Hin náðist í Selvogi 8. oktc ber síðastliðinn. Reyndist þac við ákvörðun vera amerísk teg- und og er álitið, að hún haf: borizt hingað fyrir veðrum. Náttúrugripasafnið hefur óskað eftir að fá leðurblökun; frá Vestmannaeyjum til á- Andf EögregSu en ekSci mennta ríkír í pólsStum skóium. Vandi frelsisþrá ungra mennta- manna vekur beyg forsprakka. Pólsk stjórnarvöld hafa kom- ist að þeirri niðurstöðu, að eitt- livað verði að gera til þess að efla á ný kommúnistisk áhrif í menntaskóhim og' háskólum iandsins. Hafin or barátta til þess, að skólarnir verði „algerlega sosí- alistiskar stofnanir.". Kommúnistaforsprakkarnir líta svo á, að frá því skólastofn- anirnar fengu meira frjálsræði „Hvers vegna?" JVýút latp eftir Siajj-* fús Malldárss&n. „Hvers vegna?“ heitir nýtt lag, sem kemur í hljóðfæraverzl anir í dag. Er það eftir Sigfús Halldórsson. Hundrað eintök verða tölusett og árituð af höfundi og fást þau í sýningasalnum við Ingólfs- stræti. Textinn er eftir Stefán Jóns- son, hinn vinsæla barnabóka- höfund. Lög Sigfúsar Halldórssonar eru mjög vinsæl og hafa farið sigurför um landið, svo sem t. d. „Litla flugan“. Þarf ekki að efa, að eins verður með þetta lag. Lagið kemur á hljómplötur eftir áramótin. Hverníg er veðrlð? f morgun var djúp og víð- áttumikil lægð norður af Jan Mayen og önnur minni yfir Suður-Grænlandi á hreyfingu norðaustur. Veðurhorfur fyrir Suð- vesturland og Faxaflóa: Stinningskaldi vestan og síð an suðvestan eða sunnan; skúra og éljaveður. KI. 8 í morgun var vestan átt og 5 vindstig í Beykja- vík; liiti 2 stig. Hiti erlend- is kl. 5: London -p3, París 0, New York 4, Hamborg -p9, K.höfn -p4, Stokkhólmur 1 og Þórshöfn í Færeyjum 5 st. Stjórnarkreppa á Möltu. Mintoff, forsætisráðherra á Möltu hefir beðizt lausnar. Leggur hann til, að öðrum mnni úr flokki sínum, verka- manpaflokknum, verði veitt stjórnarforystan. Það er ó- ánægja verkamanna í skipa- smíðastöðvum eyjarinnar, sem veldur, en afkoma almennings byggist að verulegu leyti á starfrækslu þeirra. — Óttast verkamenn, að þær verði lagð- ar niður eða atvinna þar drag- ist mjög saman, og munu óánægðir yfir hvernig Mintoff hefir lialdið á málunum. fyrir einu ári, hafi smám sam- an breyzt svo, að horfurn- ar séu hinar alvarlegustu — fyr- ir kommúnista. Aukið frelsi hefur sem sé fælt menn frá kommúnismanum. Á fundi flokksfullttrúa úr skólunum og fulltrúa miðstjórn- ar kommúnistaflokksins, var samþykkt skýrsla, sem innifel- ur aðvörun um, að aukið mennt unarfrjálsræði geti orðið til þess að fæla menn algerlega frá kommúnisma í stað þess að hæna menn að honum. M. a. var komist svo að orði, að tími væri til kominn að íhuga hvort hinar nýju starfsreglur í menntastofnunum, hafi borið „æskilegan stjórnmáialegan. árangur, hvort vér liöfuni eldd blekkt sjálfa oss, er véi* trúðum því, að breytingarnar myndu vei’ða til Jxess að styrkja liina sósíalistisku stefnu í þessum stofnunum^ og hvort vér þess í stað höf- um veikt hin sósíalistisku öfl.“ Þá var rætt um, að áhrif kirkj unnar, frjálsræðis, þjóðernis- sinna og borgaralega sinnaðs fólk smeygðu sér inn um hverja smugu í þessum stofnunum, und ir eins og kommúnistar „lina eitthvað á tökunum." Og loks var kvartað yfir því að menn væru farnir að líta á menntastofnanirnar sem frið- helga staði — þar sem menn gætu verið óhultir fyrir „flokks- lögreglunni". — Nú horfir svo, að hert verði á tökunum, því að frjáls menning og kommúnismi geti ekki átt samleið. Vofir því yfir, að yfir pólskum mennta- stofnunum svífi andi flokkslög- reglunnar yfir vötnunum, en ekki menntagyðjunnar. Spennandi kappSeikur í kvölde Undirbúningskeppnixmi að heimsmeistaramótinu í liand- knattleik Iýkur í kvöld að Há- logalandi. Fara þar fram tveir leikir, sá fyrri milli úrvalsliðanna beggja, þ. e^Vals og f.R. og úr- vals II. Seinni leikurinn er milli F. H. og K. R., sem kunnugt er hefir sigrað til þessa og vænta menn mikils af þeim leik og telja hann tvísýnan í hæsta máta. Eru bæði liðin í góðri þjálfun og hafa sýnt betri leik en önnur handknattleikslið í haust. Leikurinn hefst kl. 8 í .kvöld. Húsmæðrafél. Reykjavíkur: Konur, munið húsmæðrafé- lagsfundinn í kvöld kl. 8,30. Frú Hrönn Hilmarsdóttir talar um jólaundirbúning og sýnir jólaborðsskreytingar. Allar konur velkomnar. —• Stjórnin. ,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.