Vísir - 11.06.1958, Síða 12
fSkksrl Ma8 ei Uýnn i áskrift u Víslr.
Látifl hana færa ySur fréttir «g annað
Ssstrarsfal halsa — án fjnrirhafiuue «1
yðar hálfa.
Eímil l-lí-51.
Miðvikudaginn 11. júní 1958
Munið, aS þeir, sem gerast áskrifendtu
Vísis eftir lð. hvers mánaðar, fá blaðif
ákeypis ti) mánaðamóta.
Siini 1-18-BO.
Sfjómmálafundir Sjáifstæö-
ismaona víða um fand.
Fyrstu fundir sinnað kvöld á
Akurevrj ©a EskifirðL
Nú í vikunni og' um næstn
lirlgi efnir Sjálfstæðisflokkui'inn
t-i :0 stjórnmálafunda á ýmsum
jstöðiun á landinu.
Verða fyrstu fundirnir annað
kvöld á Akureyri og Eskifirði.
— Á föstudag verða fjórir fund-
ir, á ísafirði, Blöndósi, Siglufirði
og Seyðisfirði og á laugardag
verða fundir á Breiðabliki á Snæ
fellsnesi, í Bolungarvík og á
Hvammstanga. Á sunnudag verð
ur fundur í Búðardal. — Öllum
er heimill aðgangur.
Fundirnir verða sem hér segir:
Fimmtudaginn 12. júní:
Akureyri kl. 8,30 sd. Frummæl-
■endur, alþingismennirnir Sigurð-
ur Bjarnason og Friðjón Þórðar
son.
Eskifirði kl. 8,30 sd. Frummæl
endur: Gunnar Thoroddsen borg
arstjóri og Einar Sigurðsson út-
gerðarmaður,
Föstudaginn 13. júní:
Blönduósi kl. 8 sd. Frummæln
endur: alþingismennirnir Magn-
ús Jónsson og Jón Pálmason.
Isafirði kl. 8,30 sd. Frummæl-
endur: alþingismennirnir Ólafur
Björnsson, Björn Ólafsson og
Kjartan Jóhannsson.
Siglufirði kl. 8,30 sd. Frum-
mælendur: alþingismennirnir
Friðjón Þórðarson og Sigurður
Bjarnason.
Seyðisf. kl. 8,30 sd. Frummæl-
endur: Gunnar Thoroddsen borg
arstjóri og Einar Sigurðsson út-
gerðarmaður,
Laugardaginn 14. júní:
Breiðablik á Snæfellsnesi, kl.
8,30 sd. Frummælendur: Ólafur
Thors, form. Sjálfstæðisflokks-
ins og Sigurður Ágústsson, alþm.
Bolungarvík kl. 8,30 sd. Frum-
mælendur alþm. Björn Ólafs-
son og Ólafur Björnsson.
Hvammstanga kl. 8 sd. Frum-
mælendur alþm. Jón Pálmason
og Magnús Jónsson.
Sunnudaginn 15. júlí:
Búðardal kl. 3 sd. Frummæl-
endur: alþm. Magnús Jónsson
og Jón Pálmason.
----e----
100 þiís. á m&a
29505.
í gær var dregið í G. flokki
Happdrættis Háskóla íslunds.
Vinningar voru 843 að upphæð
1.085 millj. kr.
Hæsti vinningurinn, 100 þús.
kr., kom á heilmiða nr. 29505
og 50 þús. kr. á hálfmiða nr.
28157 — bæði númerin seld í
umboði Guðrúnar Ólafsdóttur
og Jóns Arnórssonar í Banka-
stræti.
10 þús. kr
á nr. 3777, 14898, 20545, 25191,
34778, 34899.
5 þús. kr.
2436 4273 6874 16548 19262
30265 36696 38943.
(Birt án ábyrgðar).
Drætti frestað til
24. júní.
Drætti í liappdrætti Sjálfstæð-
isflokksins hefur verið frestað
um hálfan mánuð til 24. þ. m.
Eins og skýrt var frá hér í
blaðinu í gær, átti dráttur að
fara fram á miðnæti síðastliðnu,
en sökum þess að ýmsir um-
boðsmenn happdrættisins úti um
land hafa ekki gert skil ennþá,
varð ekki komizt hjá umgetinni
frestun.
Drengjameistaramct íslands
hófst á Eaugardaginn.
Sendlarnir úihlutulii
verðlaunum.
Frá fréttaritara Vísis,
K.höfn í júní.
Fimmtán Kaupmannahafnar-
ungíingar hafa veril ákæriir
fyrir svik af óvenjuíegu tagi.
i Sumir drengjanna höfðu ver-
ið sendlar blað‘s eins ,og eitt af
verkefnum þeirra var að flokka
svör við verðlaunakrossgátum.
Tóku þeir upp á því, að rita
nöfn kunningja sinna á rétt
svör og ,,drógu“ síðan sigur-
vegarann. En allt komst upp,
þegar einn drengjanna spurði
kynningja sinn, hvort hann
vildi Ijá nafn sitt til slíkrar
notkunar. Sá neitaði og kærði
fyrir lögreglunni.
Helga Ilaraldsdóttir á verðlaunapallinum í Sundmeistaramóti Drengirnir höfðu kornizt yfir
íslands er fram fór á Akureyri. um 2500 danskar krónur.
Skip frá Eyjafirði búast til
veiða um helgina.
Búið að dreifa 20 þús. fðmtunnum á
austurhafnir.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í morgun.
Mikill áhugi er í síldarút-
gerðarmönnum hér fyrir síld-
arvertíðinni og er verið að búa
skipin á veiðar.
Héðan munu eftirtalin skip
fara á síldveiðar: Snæfell, Súl-
an, Kópur, Baldvin Jóhannsson,
Gunnar, Akraborg, Gylfi II.
Garðar og Gylfi frá Rauðuvík
á Árskógsströnd. Frá Grenivík:
Vörður.
Frá Dalvík yerða fjögur
skip gerð út á síld og sömuleiðis
fjögur frá Ólafsfirði. Verið er
nú þessa dagana að undirbúa
Þorstein Þorskabít héðan frá
Akureyri og verður Guðmundur
Jörundsson skipstjóri, fyrrver-
andi eigandi hans, með hann.
Alls verða tuttugu manns á
Þorsteini Þorskabít. Stóðu von-
ir til að hægt verði að fara á
veiðar n.k. sunnudagskvöld.
Akraborg og póstbáturinn
Drangur hafa verið í stöðugum
flutningum með síldartunnur
frá Akureyri til Raufarhafnar
og annast Akraborg aðallega
flutningana og fer hún annan
hvern dag. Er búið að flytja nú
yfir tuttugu þúsund tunnur
austur, sem fara til ýmissa sölt-
unarstöðva.
Sléttbakur kom til Akureyr-
ar á sunnudaginn eftir 12 daga
veiðiferð með 263 tonn af
þorski, sem fer bæði í herzlu
og hraðfrystingu. Kaldbakur
stundar saltfiskveiðar við
Grænland og hafði hann fengið
um síðustu helgi um 260 tonn af
saltfiski. Mun hann koma heim
á næstunni.
Bandarískir kommúnistar
vonast til að geta endurreist
dagblað sitt í New York,
Daily Worker, sem hætti að
koma út í janúar.
Margrét prinsessa fer í
opinbera heimsókn til Kan-
ada í næsta mánuði.
Vatnsskortur —
Framh. af 1. síðu.
til Eyja til að rannsaka aðstæð-
ur til vinnslu neyzluvatns úr sjó,
Lýsið enn í Eyjiun.
Ekkert af þessa árs fram-
leiðslu af lýsi hefur verið flutt
út. Geymar lifrasamlagsins eru
því fullir og varla hægt að taka
á móti meira af lýsi. þriðjungur
af framleiðslunni hefur verið
seldur fyrir 20% lægra verð en
fékst i fyrra.
Lifrasamlagið greiddi eina
krónu fyrir lifrapottinn til út-
gerðarinnar í vetur. Ekki er vit-
að hvað hið endanlega verð verð-
ur, en í fyrra var það kr. 1,40.
Síldarbátar á förum.
Verið er í óða önn nð búa bát-
ana til síldveiða fyrir norðan. Er
það ætlun flestra að fara fyrr
norður en i fyrra. Einn bátur,
Sigurður Pétur er farinn norður
og má gera ráð fyrir að ein-
hverjir fari um næstu helgi, ef
búið verður þá að ákveða verð-i
ið. Milli 30 og 40 bátar munu
fara norður á síld.
Upprelsfarmeiiii boða
nýjja sókn í ABsír.
Ds Gaulie sfdpar sex nýja ráiherra.
Drengjameistaramót fslands í
frjálsum íþróttum hófst á
íþróttavellinum á laugardaginn.
Urslit í keppnisgreinum
•Tyrri dags mótsins urðu þessi:
100 m. hlaup:
1. Ómar Ragnarss. f.R. 11.6 sek.
2. Gretar Þorsteinss. Á. 11.8 sek.
3. Úlfar Teitsson K.R. 11.8 sek.
800 m. hlaup:
1. Helgi Hólm Í.R. 2:10.8 mín.
2. Guðjón Ingi Sigurðss. F.H.
2:11,9 mín.
200 m, grindahlaup:
1. Steindór Guðjónss. Í.R. 29.2
sek.
2. Gylfi Gunnarsson K.R. 30,0
sek.
Langstökk:
1. Ólafur Teitsson K.R. 5,81 m.
2. Kristján Eyjólfss. Í.R. 5,73 m.
Hástökk:
1. Steind. Guðjónss. Í.R. 1.65 m.
2. Þorv. Jónasson K.R. 1.60 m.
Kúluvarp:
1. Arthur Ólafsson U.M.S.K.
15,16 m.
2. Gylfi Magnússon H.S.H.
13,98 m.
Spjótkast:
1. Sigmundur Hermundsson Á.
48,74 m.
2. Arthur Ólafsson U.M.S.K.
43,36 m.
Allt ■ lagi hjá
„víkiragum”.
Einkaskeyti til Vísis.
Kliöfn í gær.
Loftskeytastöðin í Bergen, er
liefur samband við Víkingaskip-
ið tilkynnir, að það liafi ekki
haft við rök að styðjast, að skip-
ið væri í stórhættu suður af ís-
Iandi.
Stýrið, sem eyðilagðist, var
skrautstýri, sem fest var á skip-
ið öðrum megin, en skutstýrið,
sem skipinu er stýrt eftir, er ó-
laskað.
Víkingaskipið sigldi i gær með
9 mílna hraða og er það met-
hraði á leiðinni það af er.
Alsírnefndin, sem starfar er-
lendis, og fyrir málstað upp-
reistarmanna, hefir boðað sókn
á hendur Frökkuni þar til „al-
ger sigur er unninn í sjálfstæð-
isbaráttunni.“
Franska herstj órnin í Alsír
tilkynnir, að næstum 690 upp-
reistarmenn hafi verið felldir í
vikunni sem leið, en vfir 120
teknir höndum.
i
Borgarstjóri
Algeirsborgar
biðst lausnar.
Borgarstjórinn ; Algeirsborg
hefir skrifað Saian yfirhers-
höfðingja og beðizt lausnar, en
borgarstjórinn hefur ávallt
fylgt frjálslyndri stefnu um
ilausn Alsírinálsins. Síðar frétt-
ist, að bæjarráðsmenn flestir
hefðu farið að dæmi borgar-
stjórans.
Sex nýir ráðherrar.
Ráðuneytisfundur var hald-
inn í París í fyrrad. og skipað-
ir sex nýir ráðherrar, flestir lítt
kunnir miðflokkamenn. Skip-
aður hefir verið nýr landshöíð-
ingi á Korsiku, en sá, sem
uppreistarmenn skipuðu á
dögunum — hann hefir fengið
samskonar embætti á Bretagne-
skaga. — Rene Brouvier var
skipaður til þess að fara me3
æðstu borgaraleg völd í Alsír í
samráði við Salan yfirhershöfð-
ingja. Brouvier hefur starfað 1
sendiráði Frakka í Vatikan-
ríkinu og er ræðismaður..