Vísir - 05.08.1958, Blaðsíða 7
Þriðjudaginn 5. ágúst 1958
V f S I R
„Ég ér viss um að' ég heyrði hann kalla til mín,“ sagði hún
með þráa. Hún var hálfringluð og dösuð, og hana sárverkjaði
í annan öklann. „Hvað er að fætinum á mér?“ spurði hún.
„Þér hafið snúist um öklann,“. sagði Henry læknir. „Það er
ekki alvarlegt, en þér verðið að liggja í rúminu nokkra daga.
Að minnsta kosti meðan þér eruð að jafna yður yfir tauga-
áfallið. Þér hafið meiðst talsvert á höfði, og mesta furða að þér
skylduð ekki fá heilahristing. Já, það hefði getað orðið annað
enn verra."
„Eigið þér við að ég hefði getað dauðrotast, læknir?“
„Vafalaust. Jafnhál og stigaþrepin eru------og svo myrkrið . . “
„Það hlýtur að hafa verið skammhlaup á leiðslu einhversstaðar,
sagði Valentine.
„En ég er viss um að einhver hefur bundið snæri eða eitthvað
annað þvert yfir stigann, ég fann það um leið og ég datt.“
„Hvaða vitleysa er þetta,“ sagði Valentine og virtist verða bylt
við. Og læknirinn hrökk við líka. „Ég kom hlaupandi undir eins
og ég heyrði þig detta, og sá ekkert þesskonar.“
„Við skulum ekki þrátta um það,“ muldraði hún og seig niður
á koddann aftur. Eflaust var þetta fótakefli horfið núna. Hver
var það sem hrópaði? Fred var sofandi? Ef hún hefði beðið bana
þarna mundi það hafa litið út sem slys. Hún skildi, hafði bjarg-
fasta vissu um að þetta var ekkert slys. Það hafði verið reynt
að myrða hana.
Læknirinn setti styrktarumbúðir um öklann og lofaði að koma
aftur daginn eftir. Valentine fylgdi honum út og kom svo aftur
inn til Nancy.
„Veslings Nancy, en hvað þetta var sorglegt. Ég get ekki lýst
hve leiðinlegt mér finnst þetta.“
„Ætli það verði ekki skárra á morgun,“ muldraði hún.
„Þú ert heppin að fá að upplifa daginn á rnorgun," sagði hann.
„Ég er líklega eins og kötturinn, sem hefur niu líf,“ sagði hún
og hugsaði með sér, að þrjú af þessum lífum hefði hún þegar
notað.
„Þú veist hve vænt mér þykir um þig, Nancy. Lofaðu mér nú
að gleyma ekki að taka svefnmeðalið, sem læknirinn gaf þér.
Eða kannske þú viljir fá koníak í staðinn?“
„Nei, þökk fyrir. Ég tek svefnpillurnar ef ég þarf á þeim að
halda.“ En hún tók þær ekki. Hún þorði ekki að sofna fast. Ég
verð að ná í Clark, hugsaði hún með sér og bylti sér í rúminu —
ég verð að ná í Clark, hann veit hvað ég á að gera.
Hún vaknaði ekki fyrr en Bertha stóð við rúmið með árbítinn.
„Æ, hvað þetta var leiðinlegt, ungfrú — þetta var hræðilegt slys.“
„Ég held ekki að það hafi verið neitt slys, Bertha," sagði
Nancy hægt. „Einhver hlýtur að hafa bundið snæri yfir þveran
stigann, svo að ég skyldi detta um það, og sá hinn sami hefur
rofið rafstrauminn, svo að koldimmt var í húsinu. Þetta var
einhver, sem vildi stúta mér, Bertha!“
Ljósblá augun störðu með skelfingu á hana. „Hvað eruð þér
að segja, ungfrú! Nei, nei, það er ómögulegt að hann hafi ætlað
að drepa yður, sem.... “ Hún tók sig á og greip hendinni fyrir
munninn, eins og hún væri hrædd við það, sem hún hafði sagt.
„Ég er að minnsta kosti viss um að eitthvað var þarna í
stiganum, sem hafði verið komið þar fyrir i ákveðnum tilgangi."
„Hvað er -þetta sem mér heyrðist, um snævi yfir stigann?“
sagði Fred, sem hafði komið inn án þess að þær tæki eftir. Hann'
var enn í náttfötunum og sloppnum. Bertha muldraði eitthvaðj
setti frá sér bakkann og fór. Fred kom að rúrninu. „Ég var aö
frétta hvað hefði komið fyrir í nótt,“ sagöi hann. „Mér er óskiljan-!
legt hve fast ég hef sofið. Ég var að vakna núna. Hvers vegna
fórstu niður um miðja nótt?“
„Ég.gat ekki betur heyrt en að þú værir að kalla á mig. Ein-
hver var að hrópa á mig, það er engum vafa bundið."
Hann fór og lokaði dyrunum og settist svo á rúmstokkinn hjá
henni. Hann vildi vita nákvæmlega hvernig þetta hefði atvikast,
og þegar hún hafði sagt honum frá því varð hann áhyggjufullur
og á báðum áttum. „Ég skil ekkert í þessu, Nan. Og mér líður
svo illa, ég er með höfuðverk og þurr 1 kverkunum. Ég hlýt að
hafa sofið of fast. Ætlarðu að bjóða mér sopa .af kaffi? Ég get
ekki borðað neinn morgumnat, aðeins svart kaffi, og mér er
ómögulegt að fara niður og tala við Val. Hann var svo undarlegur
] fjölhreytt úrval
★
★
★
★
GÍTAR
GITAR
GÍTAR
GÍTAR
GÍTAR
strengir
pokar
neglur
magnarar
HUÓMAR
NYKOMIÐ
HLJÓÐFÆRAVERZLUN
Sigríðar Helgadóttur si.
Sími —-11315 — Vesturver
E. R. Eurroiígíis
TARZAN
Líbanon...
Frh. af 1. s.
Robert Murphy, sérlegur sendi
herra Eisenhowers Bandaríkja-
forseta, kom um helgina frá
Bagdad til Beirut. Hann ræddi
við ýmsa ráðherra í Bagdad og
gerði þeim grein fyrir skilningi
vestrænna stjórnmálamanna á
Bagdadbandalaginu. Murphy seg
ir, að stjórnin sé staðráðin í að
vernda sjálfstæði landsins og
ekki taka þátt í neinum stór-
veldasamtökum. — Murphy fer
frá Beirut til Kairo og ræðir'við
Nasser forseta, þar næst til
Aþenu og heimleiðis urn
London og ræðir þar við Mac-
millan forsætisráðherra.
Tyrkland fær
efnahagsaðstoð.
Tyrkland fær nú aukna efna-
hagsaðstoð frá Bandaríkjunum
(að % hlutum), Bretlandi, Vest-
ur-Þýzkalandi og Efnahagssam-
vinnustofnun Evrópu (OEEC)
og nemur alls 1359 mihj. dollara
og gengur til framleiðslu og
kaupa á nauðsynjayörum handa
almenningi, kaup.um á varahlut-
um o. s. frv.
Ávörp í útvarpi.
1 fregnum í morgun segir, að
Chehab herráðsforingi (hann
(hann gegnir því áfram þar til
hann tekur við forsetaembætt-
inu), hafi flutt útvarpsávarp, og
hvatt til þjóðareiningar, án henn
ar sé ekki hægt að varðveita
sjálfstæði landsins, og hún sé
nauðsynleg vegna kröfunnar um
brottflutning erlends herliðs úr
landinu. — Sami el Solhl for-
sætisráðherra flutti einnig á-
varp og kvað hættur ekki farn-
ar hjá. Kvað hann stjórnina því
hafa tekið ákvörðun um að sitja
áfram eins og sakir standa.
Bannar flug yfir ísnael.
Israelsstjórn hefur bannað
flug með birgðir yfir ísrael til
brezkra liðsins í Jórdaníu, en
miklar birgðaflutningar í lofti
hafa átt sér stað undangenginn
hálfan mánuð, og auk þess hef-
ur skip flutt miklar birgðii' til
Akraba, en tafsamt kann að
verða að koma birgðum ]>aðan
til stöðva liðsins vegna flutninga1
skilyrða.
Dulles í heimsókn
í Brazilíu.
John Foster Dulles utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna er
kominn til Brazilíu. til viðræðna
við Kubichek forssía um al-
heimsmál og hætíur þær, seni
nú blasa við.
Við burtförina var hann.
spurður um það atriði yfirlýs-
ingar Krúséys og Mao Tse-tung,
að efla bæri Suour-Ameríuríkx
til sjálfstæðis, og kvað Rússum
nær að efla sjálfsíæði landa
nær sér.
dauðastv skjótar |
en ■ . ann sér und- i
an . nífuripn gekk í jörð- j
x om._ Oj ; vxíxö i af grimmd
cg heoti sér á apamanninn
til þess að veita honum
Nú átti Tarzan leikinn
. ian Pomeroy var að reyna
að komast á fætur, en Pom-
4ætluKar?b';; piiíEí
Parísar c: -„a -kvu.
Áæilunarflu, -ríKr eru hafn-
I uv ui-illi ParFar a •
| Hóíust þ;. .' •ivu.o þv.i, i.ú umi
; helgina, uð <lu,. ;-i frú Ai?}
eroy bar af sér hnífalögin France lenti í vu, on T -
af hinni mestu leikni og 104, n snesk Hrþegaþota,
komst ósár á fætur. í París, daginn cftir.