Morgunblaðið - 07.11.1913, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.1913, Blaðsíða 1
Talsími Talsími 500 (Ritstjórn) HOBfiDNBLADID 48 (afgreiðsla) Reykjavík, 7. nóvember 1913. Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmiðja 1. árgangur, 6. tölublað I. O. O. F. 931179 — I. Bio Biografteater Reykjavíkur. Bio Sæbúinn, Aukamynd. Konungsdóttirin indverska. Sorgaxleikur í 3 þáttum. Hr. Kakerlak á ferðalagi. Aukamynd. Bio-kaffif)úsið (ingangur frá Bröttugötu) mælir með sínum á la carte réttum, smurðu brauði og miðdegismat, Nokkrir menn geta fengið fult fæði. Tíarfvig Tlieísen Talsími 349. = 714 ja Bíó = Hótel ísland Mynd elskhugans ítölsk listmynd. Stórfagurt landslag. Aukamynd: Borgundarhólmsúrið. Mjög hlægilegt. Heijkið Godfrey Phillips tókbak og cigarettur sem fyrir gæði sín hlaut á sýningu í London 1908 sjö gullmedaliur og tvær silfurmedalíur. Fæst í tóbaksverzlun /?. P. Leví. 1E 3IE Sælgætis- og tóbaksbúðin LAN DSTJ ARNAN Skrifsfofa _ Bimskipaféíags ísfancfs . Austurstræti 7 Opin kl, ^—7.____ Talsími 409. H. Benediktsson. Umboðsverzlun. — Heildsala. f 111 * 1 rnTTTmiTrrriiTli Hvar verzla menn helzt? Þar sem vörur eru vandaðastar! Þar 8em úr mestu er að velja! Þar sem verð er bezt eftir gæðum! Hver uppfyllir bezt þessi skilyrði? Óefað Vöruhúsiö Reykjavfk. Erlendar símfregnir Yoða slys á Frakklandi. London 6. nóv. kl. 6 Hraðlesíin jrá París til Melun á Frakklandi, rakst á póstlestina, er í leið til Parísarborgar oq voða-tjón varð aj. Fjöldi fólks jórust 0g íeiri meiddust. Slysið skeði skamt jrá Melun, en jregnir um pað óná- Fjárhagsáætlun Reykjavíkur 1914. Eins og getið var í Morgunblað- inu í fyrradag kom frumvarpið um fjárhagsáætlun Reykjavíkur til fyrri umræðu í bæjarstjórninni í gær. Ef að líkindum ræður og venju munu þó eigi allir liðir frumvarps- ins staðfastir standa í meðferð bæjar- stjórnarinnar á frumvarpinu, eins og fjárhagsnefndin, þeir borgarstjóri, Halldór Jónsson og Lárus H. Bjarna- son, hefir frá því gengið. Fjárlaga-fundirnir, ef svo mætti segja, eru merkustu fundirnir, sem bæjarstjórn heldur á árinu og mun Morgunblaðið gera sér far um að skýra sem rækilegast frá þeim. Ekki hefir bæjarstjórn sama sið og al- þingi að halda eldhúsdag við fjárhags- áætlunarumræðurnar. Væri það þó hentugra fyrir ráð- herra Reykjavíkur eða borgarstjór- ann, að réttu nafni, að fá aðfinninga- hríðina alla í einu, en á þá smá- skamtavísu, sem tiðkast á fulltriia- þingi Reykjavíkur. Það er fróðlegt að bera saman þetta þrent: reikning bajarins 1912, jjárhagsácetlun 1913 og jrumvarp til jjárhagsáatlunar 1914, í aðalatriðum Tekjur og gjöld bcejarins voru: Reikn. 1912: Áætlun 1913: Frv. T4: kr. 643.780 349.603 372.704. Hinn mikli munur á reikningnum 1912 og áætlununum stafar af því, að í reikningnum er tekið með stór- eflis lán af hafnarfé, sem hleypir reikningnum mjög mikið upp. Aðaðal-tekjuliðirnir eru þessir: 1. Aukaútsvör. Þau námu á reikningnum 1912 rúmum 1x5.000 kr., samkvæmt áætlun 1913 riimum 117.000 kr., en samkvæmt frumv. 1914 141.000. Á þessum lið er því hækkunin frá því í fyrra 24.000 krónur. 2. Tékjur aj vatnsvéitunni. Þær voru samkvæmt reikningi 1912 nær 53 x/2 þiis. kr., samkvæmt áætlun 1913 50.000 kr., og samkv. frumv. 1914 52.000 kr. 3. Tekjur aj Gasstöðinni, samkv. reikningnum 19x2 nær 30.000 kr., samkvæmt áætlun 1913 30,000 kr. og samkvæmt frumvarpinu 1914 34.000 kr. 4. Ejtirstöðvar jra /. á. voru samkvæmt reikningnum 1912 56.000 kr. riimar, samkvæmt áætlun 1913 35.000 kr. og samkvæmt frumvarp- inu 1914 30.000 kr. Þær fara þann- ig lækkandi allmjög. Aðrir tekjuliðir eru helztir: gjald af bygðri og óbygðri lóð 1912: nær 13.000 kr., 1913: 12.400, 1914: i2'6oo, Elliðaárveiðar kringum 6— 7000 o. s. frv. Þá koma gjaldliðirnir: 1. Gasstöðin er hæst á útgjaldahlið- inni. Til hennar fóru samkv. reikn. 1912 74.000 rúm kr. (nál. 29.000 í vöxtu og afborganir og nálægt 45.000 til aukningar); samkvæmt áætlun 1913: 65.000 kr. (afb. og vextir 30.000 og aukning 35.000); samkv. frumv. 1914: 69.000 kr. (af- borgun og vextir 34.000, til aukn- ingar 35.000). 2. Fátcekrajramjceri varð samkv. reikningi 1912 rúm 48.500 kr., samkv. áætlun 1913 38.000 og samkv. frv. 1914 48.000. 3. Barnaskóli Reykjavíkur kostaði samkv. reikningi 1912 rúm 37.000 kr., samkvæmt áætluni9i3: 38.500 kr. og samkv. frv. 1914: 40.400 kr. 4. Vatnsveitan hefir kostað í reikn. 1912 41.550kr., samkv. áætlun 1913: 33.550 kr. og samkv. frv. 1914: 35.000 kr. 5. Vegagerðír og holrasi kostuðu 1912 samkv. reikn. nær 75.000 kr., samkvæmt áætlun 1913' 39.000 kr. og eftir frumv. 1914: 33.640 kr. 6. Þurjamenn annarra sveita tóku f sinn hlut 1912 10.563 kr., 1913 (samkv. áætlun) 7.200 kr., en 1914 samkv. frumv. 10.000 kr. 7. Til stjórnar kaupstaðarins (borg- arstjóra, bæjarstjórnar, bæjargjaldkera o. s. frv.) fóru 1912 nær x0.900 kr., 2913 samkv. áætlun 11.500 kr. og 1914 samkv. frumv. 12.500. Fer sú hækkun sumpart til aukins kostnaðar við innheimtu. 8. Til löggcezlu fóru 1912 samkv. reikningi rúmar 7.700 kr., 1913 sam- kvæmt áætlun 8.300 kr., en samkv. frumv. 1914 9.000 kr. Frumv. fer fram á að hækka laun Þorvalds Björnssonar og Jónasar Jónssonar um 200 kr. til hvors þeirra, og laun Sighv. Brynjólfssonar 100 kr. 9. Vextir og ajborganir af lánum námu samkv. reikn. 1912 nær 220 þús. kr., samkv. áætlun 19x3 29.000 kr. rúmum og samkv. frv. 1914 rúm- um 41.000 kr. Að öðru leyti mun Morgunblaðið ræða fjárhagshorfur bæjarins og ýmis- legt í þvi sambandi innan skamms. Skuldir Reykjavíkur. Reikningskil yfir skuldir Reykja- vikur eru komin út, til 31. des. 1912. Þá skuldaði bærinn alls krónur 1.680.499.73 aur., eða hátt upp í 1700.000 krónur. Þessir sjóðir og stofnanir áttu mest hjá bænum: Hafnarsjóður 46.000 kr., Landssjóður nál. 35.500 kr., Hannesar Arnasonar sjóðurinn 22.000 kr., íslands banki 94.500 kr., Veðdeild Landsbankans nál. 485.000 kr., Bikuben í Khöfn nál. 193.000 kr., lifsábyrgðarfélagið Hafnia í Khöfn nál. 146.000 kr., lífsábyrgðar- félagið Danmark nál. 145.000 kr., íslands banki (reikningslán) 233.000 kr., Landsbankinn víxillán 35.000 krónur. Skuldaraukning á árinu 1912 hefir orðið um 114.000 kr., en á árinu hefir þetta verið gert til varanlegra umbóta: Makademisering Austurstr. 9000 kr., hellulagðar gangstéttir 3.248 kr. holræsi samkv. áætlun 43.560.27 aur. holræsi utan áætlunar 12.707.38 aur., vatnsæð að Grímstaðaholti 5.317.52 aukning gasstöðvarinnar 45.408.93, gufutromlan 8.800, til slökkvistöðv- ar og brunasíma 19.149.93 eða alls rúmar 147000 kr. Símfréttir. Afli á Akranesi. Fréttaritari Morgunblaðsins á Akra- nesi símaði í dag, að afli væri góð- ur þar þessa dagana. Höfðu vélar- bátar í gær fengið frá 400 til 600 á skip, og 1 róðrarbátur frá 40 til 60 í hlut. Má það heita góður afli um þetta leyti árs. — Gisli. Vestmanneyjum, fimtudag. Símað er frá Vestmanneyjum, að afli hafi þar verið með minsta móti þetta ár, síðan vélabátar byrjuðu fyrst að ganga þaðan. Alls eru bátarnir um 70, og hafa flestir aflað miklu ver en í fyrra. Álitið, að um 10 þús. skpd. vérði útflutt úr Eyjum í ár. — Mikið er kvartað yfir hafnarleysi, og álíta menn, að þegar nýja höfn- in, sem alþingi í sumar veitti ríflegt fé til, er fullger, muni það hjálpa útveginum mikið. Ef til vill muni iðgjald vátrygginga á vélabátum lækka. Askriftalistar ganga milli Eyjabúa um að gjörast hluthafar í félagi, sem koma vill á raflýsingu í Eyjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.